Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985 3 Lótus fri Götu hefur hér vinninginn yfir bróður sinn Tvist og jafnaði hann met Glóu frá Egilsstöðum í 350 metra stökki en iður hafði hann b&u metið í 250 metra stökki um þrjú sekúndubrot. Knapi i Lótus var Róbert Jónsson en Erlingur Erlingsson situr Tvist. Morgunbla»ií/Valdimar „Hátfðisdagar hestafólks“ á Melgerðismelum: Tvö íslandsmet og tvö met iöfnuð í TVEIMUR greinum náðist betri tími en gildandi Islandsmet er og í þriðju greininni var gildandi íslandsmet jafnað i „Hátíðisdögum hestafólks** sem handnir voru á Melgerðismelum um helgina. Mótið stóð yfir í tvo daga og strax fyrri daginn skeiöaði Villingur frá Möðruvöllum 250 metrana á 21,5 sekúndum sem er einu sekúndu- broti betri tími en gildandi ts- landsmet. Metið á Skjóni frá Móeið- arhvoli og var það sett á metamót- inu mikla á Vindheimamelum í ág- úst 1979. Daginn eftir náði Leistur frá Keldudal sama tíma og Lótus frá Götu bætti metið í 250 metra unghrossahlaupi um þrjú sekúndu- brot. Tími hans var 17,3 sek. en gildandi met er 17,6 sek. og var það Don frá Hofsstöðum sem setti það met á áðurnefndu móti á Vind- heimamelum. Fyrri dag mótsins var blankalogn en á sunnudag var dálítill hliðar- vindur og undir lokin hafði hann snúist a móti en um leið dró úr vindhraða. Fyrir hvert met sem sett var gáfu hjónin, í Litla-Dal eitt fol- ald, að vísu með fyrirvara um að metin verði staðfest af stjorn Landssambands hestamannafélaga. í mettilraunum sem gerðar voru eftir að formlegum kappreiðum lauk náðust góðir tímar, Hómer skeiðaði 250 metrana á 22,0 sek. og var stökkhesti hleypt með en sá hafði ekki við Hómer sem bókstaf- lega stakk hestinn af. Og Lótus jafnaði met Glóu frá Egilsstöðum í 350 metra stökkinu 23,9 sek. og í 300 metra brokki sigraði Sörli Magnús- ar og Gísla Halldórssona á 31,9 sek. sem er níu sekúndubrotum frá gild- andi meti. I 150 metra skeiðinu sigraði Penni Magnúsar á 14,1 sek og í 800 metra stökki sigraði Lýs- ingur frá Djúpadal á 60,1 sek. Mikil ánægja ríkti meðal kepp- enda kappreiða með hlaupabraut- ina og töldu flestir hana þá bestu á landinu. Morgunblaðið/Sig. Sigm. Sannur keppnisandi hjá Reyni Hjartarsyni á Sámi t.v. og Sigurbirni Bárðars- yni á Gormi eftir að þeir háöu gæðingaeinvígi sem lauk meö sigri Sigur- björns. MorgunblaÖiÖ/Vaidimar Eftir sex ár tókst að bæta íslands- met Skjóna frá Móeiöarhvoli í 250 metra skeiöi og var þar aö verki Vill- ingur frá Mööruvöllum en knapi var Eiríkur GuÖmundsson. ' -1 mm m ggÞ Hl Æf al ■ ■} x Brottför 23. ágúst -16 dagar PORTO CARRAS stendur á Siþonía-skaga, nýtízku- legasti sumarleyfisstaður í Grikklandi. Dvalið á lúx- ushótelinu MELITON BEACH með hálfu fæði. Hér eru bað- strendur hvítar og hreinar og fram undan fagurblátt Eyjahafið. Iþróttaaðstaðan er frábær, m.a. nýr 18 holu golfvöllur, 9 tennisvellir, sjóskíði og seglbretti, sigl- ingar, útreiðar o.fl. í þessari ferð gefst kostur á að ferðast um meginland Grikklands undir frábærri leiðsögn Sigurðar A. Magn- ússonar, m.a. um Make- dóníu, Þessalíu og Böótíu, þegar boðið verður upp á 3ja daga kynnisferð, þar sem ekið verður hjá Olympsfjalli, heimkynnum guðanna, stansað í Trikk- ala, gist í Delfí eina nótt og dvalið tvo daga í Aþenu. Siguröur A. Magnússon Hægt er að bæta við nokkrum dögum í Ósló eða Kaupmannahöfn í lok ferðar. \ Feröasicrifstofan 0TSÝN Austurstræti 17, símar 26611 — 23510

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.