Morgunblaðið - 16.08.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.08.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985 B 15 Listmunahúsiö: Sýning á verkum Alfreðs Flóka Sýning á verkum Alfreðs Flóka veröur opnuð í Listmuna- húsinu, Lækjargötu 2, á morgun kl. 14.00. Á sýningunni verða rúmlega 40 teikningar unnar með tússi, svartkrít, rauökrít og litkrít. Myndirnar eru geröar á síðastliðn- um tveimur árum. Flóki hefur haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlend- is. Síðasta einkasýning hans var í Listmunahúsinu 1983. Sýningin sem er sölusýning er opin virka daga frá kl. 10.00 j til 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00. Á mánudögum er lokaö. Sýningin stendur til 1. september. Pöbb-lnn: Hljómsveitin Rock-óla Hljómsveitin Rock-óla leikur fimm daga vikunnar á Pöbb-lnn viö Hverf- isgötu 46, það er aö segja frá miö- vikudegi til sunnudags. Hljómsveit- ina skipa Agúst Ragnarsson, Bobby Harrison, Pálmi Sigurhjartarson og Rafn Sigurbjörnsson. Hótel Borg: Orator með dansleiki Hótel Borg hefur tekiö stakka- skiptum og þar eru aftur haldnir dansleikir á vegum Orators. Þaö verður bryddað upp á ýmsum nýj- ungum, en andi slðastliðins vetrar mun svífa yfir vötnum. LEIKLIST Tjamarbíó: „Ught nights“ fjórum sinnum í viku Ferðaleikhúsiö sýnir nú „Light Nights" fjórum sinnum I viku I Tjarn- arbiói: Fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld og hefjast sýningarnar alltaf kl. 21.00 Light Nights-sýningarnar eru sér- staklega færðar upp til skemmtunar og fróðleiks erlendum ferðamönn- um. Efnið er allt islenskt, en flutt á ensku. Sýningin gefur innsýn i is- lenskt menningarlif gegnum aldirnar. Undanfarna tvo mánuði hefur verið unnið aö endurnýjun á mörg- um atriðum sýningarinnar. Má þar nefna nýjar upptökur á allri tónlist og leikhljóðum unnar af Gunnari Smára Helgasyni. Með nýrri tækni eru nú skyggnur og tónlist samhæfð og sér Magnús S. Halldórsson um þá hlið mála. Skyggnum hefur verið fjölgað um helming frá siðustu uppfærslu og hafa þær flestar verið teknar af Herði Vilhjálmssyni Ijósmyndara og Ómari Ragnarssyni fréttamanni. Asamt fjölmörgum listamönnum sem hafa lagt þessari uppfærslu lið má nefna Jón Guðmundsson mynd- listarmann, séra Gunnar Björnsson sellóleikara og Robert Berman. Leikhússtjórar eru Halldór Snorrason og Kristin G. Magnús sem jafnframt er sögumaður Light Nights. Sýningar veröa út ágústmánuð. FERDIR Útivist: Helgarferóir Kl. 18.00 verður lagt af stað aust- ur I Núpsstaðarskóga sem eru nátt- úruperla innaf Lómagnúp. Gengiö veröur um svæðiö, m.a. á Súlutinda. Listasafn Alþýöu: Sigurlaugur Elíasson sýnir Sigurlaugur Elíasson opnar sýningu á málverkum og graf- I íkmyndum á morgun kl. 14.00 í Listasafni Alþýöu Grensásvegi 16. Sigurlaugur er fæddur í Borgarfirói eystri 1957. Hann lauk námi frá málunardeild Myndlista- og handíóaskóla íslands 1983. Þetta er hans fyrsta einkasýning. Sýningin veróur opin | virka daga frá kl. 16.00 til 20.00 og um helgar frá 14.00 til 22.00. Sýningin stendur til 1. september. Einnig er hægt að tlna ber og fara I veiöi. Einnig verður lagt upp í Þórs- merkurferð kl. 18.00. Gist verður I Útivistarskálanum Básum og farið i gönguferðir um Mörkina. Kl. 8.30 á laugardagsmorguninn verður haldið i ferð um Skóga og Fimmvörðuháls i Bása. Útivistardagur fjölskyldunnar A sunnudaginn verður haldinn útivistardagur fjölskyldunnar. Lagt verður af stað í Þórsmörk kl. 8.30 bæði fyrir þá sem ætla að vera einn dag og hina sem hyggja á lengri dvöl. Kl. 10.30 verður farið i Brenni- steinsfjöll þar sem námurnar verða skoðaðar. Kl. 13.00 veröur lagt af stað i Suðurnesjaferö, fariö f Krísu- vík, að Kleifarvatni og Grænavatni. I lok göngunnar verður boðið upp á kex og kakó. Sumarbúöirnar í Ölveri: Kaffísala Kaffisala verður í sumarbúðunum í Ölveri á sunnudaginn og hefst með guðsþjónustu í umsjá Jóns Dalbú Hróbjartssonar kl. 14.30. Um þessar mundir eru 45 ár liðin slöan Kristrún Ólafsdóttir hóf sumarbúðastarf. Fjöldi barna hefur dvalist i ölveri I sumar. Ferðafélagíö í kvöld verður farið í helgarferðir ( Þórsmörk og Landmannalaugar, aö Alftavatni, i Króksfjörð og á Hvera- velli. í öllum þessum ferðum er gist i sæluhúsum Ferðafélagsins. Sunnudaginn 18. ágúst verða dagsferðir sem hér segir: Kl. 8.00 dagsferð I Þórsmörk, kl. 10.00 gönguferð um Klóarveg (gömul þjóðleið milli Grafnings og Hvera- gerðis) og kl. 13.00 verður lagt upp í gönguferð f Reykjadali (við Hvera- gerði) og Kla.mbragil. Ferðamálasamtök Suðurnesja: Jarðfræöiferð um Reykjanesskaga Ferðamálasamtök Suðurnesja efna til jarðfræðiferðar um Reykja- nesskaga á sunnudaginn. Landmót- unarsaga Reykjanesskagans veröur kynnt og ýmis jarðfræðileg fyrirbæri skoðuð. I ferðinni veröur komið vlöa við og efalaust kemur ýmislegt þátt- takendum á óvart af þvl sem fyrir augu kann að bera. Jarðfræðingar munu sjá um leið- sögn. Lagt verður af stað frá Um- ferðarmiöstöðinni kl. 10.00 og gert ráð fyrir að ferðin taki 6—7 klukku- tíma. Athugið Þeir sem vilja koma upplýsingum i þátt þennan þurfa að skila þeim á ritstjórn Morgunblaðsins fyrir kl. 18.00 á miðvikudegi, eigi þær að birtast næsta föstudag. Hljómsveit Grétars Örvarssonar Hótel Saga: Hljómsveit Grétars Örvarssonar Hljómsveit Grétars Örvarssonar mun koma fram á Hótel | Sögu um hverja helgi frá og meó kvöldinu í kvöld. Hljómsveit- in mun leika fyrir dansi á föstudags- og laugardagskvöldum | næstu tvo mánuöina aö minnsta kosti. HLH-flokkurinn mun einnig skemmta gestum staöarins | þessi kvöld. LÚPÍNU FRÆTINSLA Lúpínufrætínsla fer ffam í Heiðmörk nú um helgina laugardag og sunnudag. Skorað er á fólk að koma og leggja sitt af mörkum til upp- græðslu. Því ífæi sem safnast, verður sáð innan landgræðslu- og skógræktar- girðinga og ffæakra, þar sem hægt verður að vélvæða ffætöku í ffam- tíðinni. Strætisvamaferðir eru ffá Rauðarárstíg norðan Hverfisgötu kl. 10 og ffá skiptistöð í Kópavogi kl. 10.15 og þaðan upp í Heiðmörk Rauðhóla- megin. Komið affur í bæinn kl. 16 báða dagana. SamstarfsneM um LúptnurækC G/obus? srtTTsT Hyrjarhotði 8 110 Reykjavik BUNADARDEILD a MJÓLKURFÉLAG REYKJAViKUR LAUGAVEG110 SIMI27788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.