Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985 Dr. Dallas Þá er Súellen gengin í það heilaga enn á ný og hver haldiði að sé svaramaður, náttúru- lega gamall kærasti og ekki þarf að spyrja að því að Jayarr sá skúrkur er brúðguminn og nátt- úrulega er Cliffbarns í veislunni sem reyndar átti að vera ósköp látlaus — svona fjögurhundruð manns í útikokteil. Hvar enda þessi ósköp og allur heimurinn horfir á, ekki nema von að Erró láti engla hnita hringa yfir höfði nóbelskáldsins og ljóð nútíma- skáldanna ná ekki fram í sal sök- um bilaðra míkrófóna. Satt að segja bíð ég spenntur eftir því að einhver listfræðingurinn manni sig upp í að rita doktorsritgerð um Súellen og Jayarr sem væri ekki vitlausara efni en blessuð súr- mjólkin sem sænska kerlan var að sögn bráðfyndna fréttaritarans í Lundi í morgunútvarpi gærdagsins í fimm ár að semja doktorsritgerð um og fékk ótal ferðastyrki um Norðurlönd, sennilega til að heim- sækja Árnastofnun og svo nátt- úrulega mjólkurbúin, en nú er blessuð konan orðin fil kand í súr- mjólk. Já eitthvað kosta nú þessi ósköp þegar annar helmingur mannkyns verður tekinn að skrifa lærðar ritgerðir um athafnir hins helmingsins. Hvað um það þá kom vel á vondan að sögn bráðfyndna fréttaritarans í Lundi því fil merk- ir á sænsku, ja hvað haldiði auðvit- að — súrmjólk. Finnst mér ekki úr vegi að breyta þessu titlatogi og aðlaga það þeim „raunveruleika" er rannsóknarverkefnin spanna, þannig mætti kalla þann er skrifar doktorsritgerð um Súellen dr. Dallas. Ritgerðarefnið: dr. Dallas En í fullri alvöru lesendur góðir þá held ég nú að Dallas fari senn að heyjast í rannsóknarritgerð svo dularfullur er sá heimur er þar birtist. Til dæmis hef ég tekið eftir því að allar yngri konurnar í þættinum eru afar brjóstastórar nema sú sem er í stjórnmálunum og svo náttúrulega Missellí sem er nánast kynlaus, ýmist í mjaðmalausum náttkjól eða eins- konar gamaldags fermingardressi. Nú þessar glæsipíur styðja menn sína með ráðum og dáð en þeir eru gjarnan töff og ríkar útivinnuhetj- ur. Þá er lögð rík áhersla á fjöl- skylduhelgina en samt er J.R. eins og rófulaus hundur út um allan bæ á eftir hverju pilsi. Auðvitað er hér bara um leikþætti að ræða en eitt er ég viss um að þessir þættir nytu ekki svo mikilla vin- sælda og raun ber vitni ef þeir snertu ekki viðkvæma strengi í þjóðarsálinni. Það er svo fræðing- anna að greina þessa strengi og skrifa um þá lærðar ritgerðir sem rykfalla á bókasöfnum Skvampið: Á meðan þau dókument rykfalla æðir lífið áfram og máski stefnir þetta allt saman í átt til hins gullna Dallas þar sem fegurðarlæknamir hafa breytt hverri kerlu í Pamelu og þar sem þjónamir líða hljóðlaust um marmaratröppur sundlauganna en lýðurinn lætur sér nægja að horfa á dýrðina af sjónvarpsskermum og drekkur þynnta sjússa af börum Jayarranna á góðri stundu. Og allir brosa ánægðir og sælir til hinna björtu geisla Dallassólarinnar sem hvergi nær að smjúga innum steinda glugga hinna fomu bókasafna þar sem Dallasfræðingamir sitja með sveittan skallann og lýsa veruleikan- um með hinum nýja kannsellístfl sem er gjaman á mörkum bundins og óbundins máls en rykið fellur grátt og guggið yfir handritastaflana í hillunum á meðan lífið ef líf skyldi kalla líður hjá á Ewing-búgörðunum og þjónarair gerast sífellt léttstígari, vindlarnir digrari og skvampið í silf- urtærri sundlauginni verður ljóð morgundagsins. ólafur M. Jóhannesson. ÚTVARP/SJÓNVARP Sam Waterman og Mia Farrow í hlutverknm sfnum. Bíómynd byggð á sögu eftir F.S. Fitzgerald 21 H Saga F. Scotts 30 Fitzgerald um Gatsby hinn mikla er mörgum hériend- is vel kunn, enda lesin af og til í menntaskólum. Bíómynd kvöldsins er byggð á bókinni og er það kvennagullið Robert Red- ford, sem fer með aðal- hlutverkið. Myndin segir frá ungu fólki sem nýtur lífsins eins og það framast getur og saman við það blandast ástir og óhamingjusamt hjónaband. Myndin hefst á því er ungur maður, Nick Carraway að nafni, ákveð- ur að flytja til Long Island frá Mið-vesturríkjunum. f næsta nágrenni við hann býr frænka hans, Daisy, ásamt auðugum manni sínum, Tom Buchanon, en hjónaband þeirra er ekki gott. Skammt frá býr Gatsby, sem þekktur er fyrir sín stóru samkvæmi og er talinn stórefnaður. Nick er boðið í eitt samkvæmið og þar hittir hann Gatsby í fyrsta sinn. Vinkona Nicks, Jordan Baker, biður Nick fyrir hönd Gatsbys að bjóða Daisy til tedrykkju og bjóða Gatsby einnig. Daisy og Gatsby höfðu átt ástarævintýri saman fyrir 5 árum og hann reyn- ir að fá hana til að segja manni sínum, Tom, að hún hafi aldrei elskað hann. Tom grunar hvernig í pottinn er búið og dregur nú til tíðinda. Auk Roberts Redford fara með aðalhlutverk: Mia Farrow, Sam Water- man, Bruce Dern og Karen Black. Leikstjóri er Jack Cleyton. Fréttaþáttur um kosningar í Svíþjóð ■■^■i Kosningarnar í 1 Q30 Noregi eru rétt 1 um garð gengn- ar og þá taka kosningar í Svíþjóð við. f kvöld verður sýndur í sjónvarpinu fréttaþáttur frá Boga Ágústssyni um kosningabaráttuna þar og á sunnudaginn fá sjón- varpsáhorfendur að sjá Boga segja frá kosninga- úrslitum í beinni útsend- ingu. Nýtt lag með Mezzo- forte í Pósthólfinu ■■■■ Pósthóif Val- | a qq dísar Gunnars- X rí dóttur verður á sinum stað á rás 2, en það mun vera eini þátturinn sem verið hefur frá upp- hafi á sama tíma. Að þessu sinni verður það hljómsveitin Mezzo- forte sem kemur í heim- sókn í þáttinn með alveg glænýtt lag eftir þá Gunn- laug Briem og Friðrik Karlsson. Valdís sagði að þetta lag hefði ekki áður verið spilað fyrir almenn- ing, en það væri alveg dúndurgott, eins og hún orðaði það, og mætti jafn- vel búast við meiri vin- sældum á því lagi en Garden Party. „Garden Party var instrumental-lag,“ sagði Valdís, „og náði mjög miklum vinsældum í ljósi þess en í þessu lagi er sungið og því hægt áð bú- ast við betri undirtekt- um.“ Valdís sagðist ætla að spjalla við þá í þættinum um hvað þeir hefðu verið að aðhafast að undan- förnu og hvað væri fram- undan. Mezzoforte hafa komist nálægt þvf að gera garðinn frægan og kannski þeir geri það endanlega með hinu nýja lagi sínu. ÚTVARP FÖSTUDAGUR 13. september 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar G. Tómassonar frá kvðldinu áð- ur. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Asdis Emilsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Glatt er I Glaumbæ" eftir Guðjón Sveinsson. Jóna Þ. Vernharðsdóttir les (13). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 10.45 „Það er svo margt að minnast á". Torfi Jónsson sér um þátt- inn. 11.15 Morguntónleikar. Tónlist eftir Johann Sperger, Johann Joachim Quantz og Georg Friedrich Hándel. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 „Nú brosir nóttin". Æviminningar Guðmundar Einarssonar. Theódór Gunn- laugsson skráöi. Baldur Pálmason les (13). 14.30 Miðdegistónleikar. 15.15 Létt Iðg. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 A sautjándu stundu. Umsjón: Hanna G. Sigurð- ardóttir og Þorsteinn J. Vil- hjálmsson. 17.00 Fréttir á ensku. 17.05 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Kristln Helga- dóttir. 17.35 Frá A til B. Létt spjall um umferöarmál. Umsjón: Björn M. Björgvins- son. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til- kynningar. Daglegt mál. Guðvarður Már Gunnlaugsson flytur þáttinn. 19.15 Adöfinni Umsjón: Marlanna Friðjóns- dóttir. 19.25 Bráðum kemur betri tlð (Alting er næste ár) Dðnsk barnamynd um lltinn kúasmala og fjölskyldu hans I Afrikurlkinu Zimbabwe. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Danska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 21.05 Kosningar I Svlþjóð Fréttaþáttur frá Boga 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a. Þilskipaútgerð á Norður- landi. Jón frá Pálmholti tekur saman og flytur (6). b. Danska sýslumannsfrúin á Helgustöðum. Guðrlður Ragnarsdóttir les frásögu- þátt eftir Viktor Bloch úr safninu „Geymdar stundir". Umsjón: Helga Agústsdóttir. 21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsson kynnir „Poeml", fiölukonsert eftir Hafliða Hallgrlmsson. 22.05 Tónleikar. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. Agústssyni. 21.05 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 21.30 Gatsby (The Great Gatsby) Bandarlsk blómynd frá 1974 gerð eftir frægustu skáld- sögu F. Scotts Fitzgeralds, Leikstjóri Jack Clayton. Aðalhlutverk: Robert Red- ford. Mia Farrow, Sam Wat- erman, Bruce Dern og Karen Black. Arið 1925 kemur ungur 22.35 Úr Blöndukútnum. — Sverrir Páll Erlendsson. RÚVAK. 23.15 Tónleikar Kammermús- fkklúbbsins i Bústaðakirkju 17. mars sl. Guðný Guö- mundsdóttir og Szymon Kur- an leika á fiðlur, Robert Gibbons á lágfiðlu og Carm- el Russill á selló. a. Strengjakvartett nr. 7 I fls-moll op. 108 eftir Dmitri Sjostakovitsj. b. Strengjakvartett I C-dúr K.465 eftir Wolfgang Ama- deus Mozart. c. Klarinettukvintett I h-moll op. 115 eftir Johannes Brahms. Einleikari á klarin- ett: Einar Jóhannesson. maður til New York til að læra verðbréfaviðskipti og leigir sér hús á Long Island. Hann kemst I kynni við auðugan en leyndardóms- fullan granna sinn, Gatsby aö nafni, vegna frændsemi við æskuunnustu hans sem nú er gift öðrum manni. Samskipti þessa fólks og vina þeirra einkennast af glaumi og glæsibrag á yfir- borðinu en leiða þó til voveif- legra atburða. Þýðandi Oskar Ingimarsson. 23.50 Fréttir I dagskrárlok Kynnir: Gunnsteinn Ólafs- son. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. FÖSTUDAGUR 13. september 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Asgeir Tómas- son og Páll Þorsteinsson. 14.00—18.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdls Gunnars- dóttir. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ólafsson. Þriggja mlnútna fréttir sagð- ar klukkan: 11:00, 15:00 16:00 og 17:00. Hlé. 20.00—21.00 Lög og lausnir Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnandi: Siguröur Blðndal. 21.00—22.00 Bögur Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir. 22.00—23.00 A svörtu nótun- um Stjórnandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 23.00—03.00 Næturvakt Stjórnendur: Vignir Sveins- son og Þorgeir Astvaldsson. (Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar 1.) SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 13. september

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.