Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 57

Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 57 Aldarminning: Vagnborg Einars- dóttir, Dynjanda Grunnavíkurhreppur í Norður- ísafjarðarsýslu á nokkur ítök í hjarta mínu og snertir djúpa strengi ótal marga sona og dætra byggðarinnar. Otæmandi lindir minninga og svo mörg hjörtu eru knýtt við byggðina. Náttúran þar og um- hverfi á sinn þátt í því að vekja og halda tryggð þeirra sem í byggð- inni hafa búið og átt þar sumar- dvöl, fyrr eða síðar, líf okkar er náknýtt móður jörð og blæbrigð- um hennar. Stephan G. Stephansson túlkar þessa tilfinningu svo: „Ég ann þér, ég ann þér, þú indæla jörð. Hver árstíð, sem klæðir þinn lífsfrjóa svörð. Hvort dökkgræna sumarsins silkið þitt skín við sól, eða vetrarins drifhvíta lín.“ Þessi tilfinning verður stað- bundin í lífi flestra manna að ein- hverju leyti. Flestir elska æsku- stöðvar sínar og sinna og festa tryggð við. eldranna til nærri þrítugs er hún giftist frænda sínum árið 1913, Guðmundi Jónssyni, en hann var sonur hjónanna Jakobínu Þor- leifsdóttur og Jóns Elíassonar er lengi bjuggu í Bolungarvíkurseli í Grunnavíkurhreppi. Guðmundur var hið mesta prúðmenni, sann- gjarn, áreiðanlegur og hinn skil- vísasti um allt, hann var hreinn og beinn og einlæglega trúr vinur vina sinna. Vagnborg og Guð- mundur áttu lengst af heima á Úlfsá í Skutulsfirði og lengi í Hnífsdal, þeim varð þriggja barna auðið. Elztur var Einar Gunnar en hann lézt 19 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. Jakob Loftur, nú starfsmaður hjá Orkustofnun, átti Þórunni Jónsdóttur frá Tröð í Álftafirði, nú látin. Hulda Salóme, húsfreyja á Úlfsá, gift Veturliða Veturliðasyni. Heimilisbragur Vagnborgar og Guðmundar var hinn ákjósanleg- asti, þau voru samtaka í öllu og hin þrautbeztu á erfiðleikastund- um, og ræktu allar skyldur sínar af alúð. Vagnborg og Guðmundur létust bæði árið 1965 með stuttu millibili. Þau trúðu á sannleik og réttvísi og á skyldu mannsins til að láta sem mest gott leiða af sér í lífinu, um það bar allt þeirra líf hinn fegursta vott. Meðan þeir lifa, sem kynntust Vagnborgu og Guðmundi á Úlfsá, blessa þeir minningu þeirra með þakklátum huga og kenna börnum sinum hið sama. Helgi Vigfússon TBiodroqa, p 2000 snyrtivörur Nýtt skrúbbkrem frá Biodroga 2000 hreinsar stíflaða fitukirtla og yfir- borðsfitu á andliti, bringu og baki. Bankastræti 3. S. 13635. TBiodmqa j 2000 • J snyrtivörur. Vagnborg Einarsdóttir var fædd á Dynjanda í Jökulfjörðum 16. september 1885. Foreldrar hennar voru hjónin Einar Bær- ingsson bóndi og hreppstjóri og Engilráð Benediktsdóttir á Dynj- anda. Heimilið á Dynjanda naut virð- ingar og héldu þau hjón Engilráð og Einar jafnan bú sitt með rausn, en gestakoma á Dynjanda var þó svo mikil að fádæmum sætti, en gestrisnin var æ hin sama og fannst það aldrei á, að gestakom- an þætti sérlega tilfinnanleg eða við of. Einar Bæringsson var mik- ill starfsmaður og fékk miklu af- kastað. Hann hafði góða stjórn á all umfangsmiklu búi. Hann var hreppstjóri og hreppsnefndar- oddviti í sveit sinni og sýslunefnd- armaður. Vinnuþróttur Einars á Dynjanda var ósigrandi. Eigi gat kærri og skemmtilegri gest borið að garði í sveitinni en hann, ung- um og gömlum var hann jafnalúð- legur. Einari á Dynjanda varð allt að hunangi er hann Ias og nam. Hann var bjartsýnn maður, færði allt til betri vegar, ætlaði engum illt. Hann sá í senn báðar eða allar hliðar hvers máls, var því varkár og orðvar, sanngjarn og mildur. Einar á Dynjanda kvæntist 1885 jafnöldru sinni, Engilráð Bene- diktsdóttur. Hún var hin mesta atgerviskona og verða mannkostir hennar lengi í minnum hafðir. Áhrifin af heimsókn til Dynjanda voru góð. I öllu vildu þau hjón vera samtaka, sambúð þeirra var hin ákjósanlegasta. Dynjandahjón voru hin fegursta fyrirmynd barna sinna. Vagnborg var elzt sinna systkina og er í heimili for- Blómastofa Friðfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl.22,-einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. ..... • I TEKURÐU EFTIR VERÐINU ? S Sllver-Reed EX 42 rafelndarltvélln - vönduð, fjölhæf og á einstöku verði. Áferðarfalleg prentun ■ Leturhjól ■ 3 íslenskar leturtegundir yMif Hp. ■ Sjálfvirk leiðrétting. Verð KR. 19.990 % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % Hverfisgötu 33 — Simi 20560 Pósthólf 377 Helstu söluaðilar auk Skrifstofuvéla hf.: Reykjavlk Penninn, Hallarmúla Húsavlk: Bókaverslun Þórarins Stefénssonar VestmannaeYjar: kjami hf. Akureyri: Bókval Isafjörður: Bókaverslun Jónasar Tómassonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.