Morgunblaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGAR1. OKTÓBER1985 • Þorgils Óttar einn, leikreyndasti maður FH, apáir liði sínu þriðja til fimmta sæti í íslandsmótinu. Þorgils Óttar: „Veröum í þriðja til fimmta sæti“ — SIGURINN gegn KR var sanngjarn, við lékum mjög vel í fyrri hálfleiknum og gerðum þá alveg út um leikinn. Okkur tókst svo að halda forskotinu og tryggja okkur sigur. Við erum með ungt og óreynt lið FH-ingar núna en ég er ekki svartsýnn. Það er einna helst reynsluleysið hjá strákunum sem ég er hrœddur við. Getan er fyrir hendi. En reynsluleysið getur oröið til þess að leikir FH-liðsins veröi sveiflukenndir í vetur. Ég spái því aö viö veröum í þriöja til fimmta saeti í mótinu, sagöi Þor- gils Óttar eftir leikinn gegn KR. Þegar hann var inntur eftir mótafyrirkomulaginu sagöi hann: — Mótafyrirkomulagiö ein- kennist að sjálfsögöu af HM-keppninni í Sviss. Það er varla hægt aö framkvæma mótiö ööru- vísi. Ég tel þaö gott fyrirkomulag aö leika 14 leiki tvöfalda umferö. Liðin eru jöfn að getu núna og mótiö getur oröiö spennandi þrátt fyrir aö nokkra góöa leikmenn vanti þar sem þeir leika erlendis. Nú verkefni landsliðsins veröa mörg og þaö ætti aö skapa mikinn áhuga á handknattleik í vetur aö íslenska landsliöiö tekur þátt i lokakeppni heimsmeistarakeppn- innar í Sviss, sagöi Þorgils. Haukur Ottesen: „Öll ár orðin landsliðsár“ — ÞAÐ MA segja að viö höfum afgreitt okkur sjálfir í leiknum gegn FH. Við lékum svo itla í fyrri hálfleiknum að þaö var engu líkt. Viö gáfumst þó ekki upp og þaö er góðs viti. En forskot FH var einfaldlega orðiö of mikið. Leikmenn sönnuöu þó getu sína og þeir geta gert betur. Ég var ekki alveg sáttur viö dómgæsluna í leiknum. Við lékum einum færri í dágóöan tíma og um tíma aðeins fjórir. Ég tel þaö hafa veriö rangan dóm aö reka Ólaf af velli í þriöja sinn og þá fyrir fullt og allt,“ sagöi Haukur Ottesen KR-ingur eftir tap- iö gegnFH. Haukur sagöi aö veturinn hjá KR yröi erfiöur þar sem mikið af ungum leikmönnum væri aö koma upp í meistaraflokkinn. Þá sagöist Haukur vera mjög óhress meö mótafyrirkomulagiö í vetur. — Þaö eru öll ár oröin landsliös- ár, þaö verður aö gera stórátak til þess aö lyfta handknattleiknum upp og fá fleiri áhorfendur. Ég spyr: Hvaö eiga leikmenn og þjálfarar aö geraeftir áramót? sagöi Haukur. I t l i I. i I i # 2ÚRICH BERN ARRAU LUZERNE GENF Urvalsferð með Jóhanní Inga tíl Svíss á skíðí og HM í handknattleík. JUNGFRAU Þetta verður örugglega ein hressilegasta ferðin á því herrans ári 1986. Við hjá Úrval erum vel undirbúin - enda ekki ráð nema í tíma sé tekið. 24. febrúar fljúgum við til Zúrich og höldum sem leið liggur á skíðahótelið Crystal í Interlaken en það er á frábæru skíðasvæði: Jungfrau. Þctr ert þú vel í sveit settur til að skíða af lyst og flakka svo milli íþróttahalla ásamt Jóhanni Inga fararstjóra og styðja dyggilega við bakið á strákunum í landsliðinu á heimsmeistara mótinu. Jóhann Ingi er þaulvanur fararstjóri. í þessctri ferð verður hann svo sannarlega á heimavelli; svæðið er honum allt eins og opin bók og fáir þekkja handbolta jafnvel og hann. Jungfrau skíðasvæðið Brekkumar við Interlaken eru með þeim bestu í Sviss, samtals 140 km af brautum og um 50 lyftur. Þctma finnur þú brekkur við hæfi og veitingastaði sem þér á eftir að líka reglulega^ vel við! Áætluð leikjatafia: jsland - Japan ísland - Tékkóslóvakía ísland - Rúmenía 25. febrúar í Genf. 26. febrúar í Bern. 28. febrúar í Bern Milliriðlar verða leiknir 2.-6. mars í Bern, Basel, Zúrich, Luzerne og Arrau. Úrslit um 3.-4. sæti verða í Basel 7. mars. Úrslitaleikurinn verður í Zúrich 8. mars. Innifalið Flug og gisting með morgunverði, ömgg fararstjórn Jóhanns Inga, ferðir að og frá flugvelli og ómæld ánægja frá 24. feb. - 10. mars. Verð pr. mann: kr. 33.400.- einstaklings herbergi en kr. 30.800.- í tvíbýli. Við hjá Úrval getum útvegað þér bílaleigubíl, hálft fæði og miða á leikina, sé þess óskað. Kynntu þér málið í snarhasti, því miðctr á þessa ferð stoppa ekki lengi við á skrifstofu Úrvals. FBmSKRIRTOFAN ÚRVAL I í i Ferðaskrifstofan Úrval viðAusturvöll, sími (91)-26900. GOn FÓUÍ SÍN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.