Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 David Huddleston í hlutverki jóla- sveinsins í myndinni Háskólabíó frum- sýnir Jólasveininn: Hagnaður fyrstu sýningar til blindra Kvikmyndin Jólasveinninn „Santa Claus“ verður frumsýnd í Háskóla- bíói í dag kl. 14. Myndin er fram- leidd á þessu ári og þess má geta að hún verður ekki frumsýnd í Bret- landi fyrr en á morgun, mánudag. Þar er það konungsfjölskyldan sem stendur að frumsýningunni. Aðgangseyrir að frumsýningunni í dag rennur til Blindrafélagsins. „Framleiðendur myndarinnar eru þeir sömu og gerðu Superman- myndirnar, Salkind-feðgarnir, og þeir hafa sjálfir samþykkt að að- gangseyririnn á frumsýningu renni til Blindrafélagsins," sagði Friðbert Pálsson, framkvæmdastjóri Há- skólabíós, í samtali viö Morgun- blaðið. „Jólin eru hátíð ljóssins. Blindir sjá ekki ljósið en þeir sem eiga því láni að fagna að sjá það munu nú styrkja þá blindu," sagði Friðbert. Þegar Háskólabíó frumsýndi mynd- ina „Amadeus" í haust rann að- gangseyrir að frumsýningu til hjartaskurðlækninga á Islandi. „Þá komu inn milli 130 og 150 þúsund krónur sem ráðherra hefur þegar móttekið," sagði Friðbert og bætti því við að Háskólabíó léti í té hús og starfsfólk endurgjaldslaust í þessum tilfellum, „þannig að hver einasta króna sem inn kemur renn- ur beint til málstaðarins." Pening- arnir sem Blindrafélagið fær nú verða notaðir til tækjakaupa á vinnustofu félagsins til að auka atvinnumöguleika þar. „Jólasveinninn" er fjölskyldu- mynd. í aðalhlutverkum eru Dudley Moore, John Lithgow og David Huddleston, sem leikur jólasvein- inn. Leikstjóri er Jeannot Szwarc. r Simamynd/Bjarni Eiríksson Ahrif olíulekans: Kappsamlega unnið að því að gera við biluðu olíuleiösluna á Tálkna- firði. verið áfátt. Um nokkurt skeið hefur staðið fyrir dyrum end- urnýjun á olíutönkum og leiðsl- um á Tálknafirði en framkvæmd- ir dregist þar sem lóð undir nýja olíutanka var ekki úthlutað fyrr en fyrir mánuði. „Það hefur lengi staðið til að endurnýja leiðslur en dregist á langinn," sagði Jón Samúelsson, hafnarstjóri, í samtali við Morg- unblaðið. Olíufélagið rekur stöð- ina i Tálknafirði. „Vafalaust má finna eitthvað að, búnaður er ekki í samræmi við reglugerðir en eftir er að kanna það nánar," sagði Haraldur Ólafsson. Hann kom með hreinsiefni og flotgirð- ingu til Tálknafjarðar, en hvor- ugt var notað. Bæði var að olían hafði borist víða og olían gufar upp á tiltölulega skömmum tíma. I laxeldisstöðinni á Gilseyri við Tálknafjörð drápust á milli Geri ráð fyrir því að Tálkn- firðingar sleppi með skrekkinn - segir Þorvaldur Ólafsson hjá Siglingamálastofnun Tálknafirdi, 23. nóvember. Frá Halli Hallswyni, blaðamanni Morgunbladsiiui. ENGINN veit meó vissu hvaða áhrif það hefur á lífríki hópsins á Tálknafirði að 20 tonn af gasolíu runnu í höfnina vegna bilunar í leiðslu. „Ég geri ráð fyrir að Tálkn- firðingar sleppi með skrekkinn. Menn voru allt af því búnir að kveða upp dauðadóm yfir fiskeldi hér í firðinum og sðarvarpið biði óbætanlegt tjón. Eins og mál horfa við ný gufar gasolían upp að lang- mestu leyti á fáeinum dögum. Ótti um að oiían velkist um í hópinu í vikur, jafnvel mánuöi, er ástæðu- laus,“ sagði Þorvaldur Ólafsson hjá Siglingamálastofnun ríkisins en hann kom til Tálknafjarðar á föstudaginn vegna óhappsins síð- degis á miðvikudag þegar 20 tonn af gasolíu runnu í höfnina. I gær var unnið að viðgerð leiðslunnar, sem leki kom að síðdegis á miðvikudag. Svo virð- ist sem búnaði leiðslunnar hafi 30 og 40 laxar. Guðjón Indriða- son, framkvæmdastjóri stöðvar- innar, lét stöðva dælingu sjávar hér af ótta við að olía bærist í kerin. Laxarnir drápust eftir að dæling hafði verið stöðvuð. „01- ían barst ekki í kerin. Laxarnir hafa líklega drepist af súrefnis- skorti þegar sjódælingu var hætt,“ sagði Guðjón i samtali við Morgunblaðið. Ú tvegsbankaklukkan hefur verið endurbætt EITT af táknum miðborgar Reykjavík- ur, Útvegsbankaklukkan, hefur nú verið endurbætt verulega og vonast stjórnendur bankans til þess, að hún geti áfallalaust þjónað borgarbúum næstu árin. Klukkan var fyrst sett upp 1964, er byggt var ofan á gamla Is- landsbankahúsið og hefur átt í vök að verjast fyrir veðri og vindum og gengið skrikkjótt á köfium. Reynir Jónasson, aðstoðarbanka- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að klukkan hefði átt erfitt uppdráttar i loftsal vinda og selta í særoki verið henni erfið. Því hefði verið gripið til þess ráðs að end- urnýja hana verulega. Ný snúnings- vél hefði verið sett við hana og neonljós á henni tekin niður. Þess í stað hefðu verið settir hvítir stafir á dökkan flöt, sem lýstur væri upp með ljóskastara. Sjálfvirknibúnað- ur ryfi síðan snúning klukkunnar við ákveðinn vindhraða. Hann sagði klukkuna hafa verið mjög viðhalds- freka, sérstaklega neonljósin, sem skipta hefði orðið um á fárra mán- aða fresti vegna seltu, sem eyðilegði þau. Nú væri vonazt til að klukkan gæti áfallalaust þjónað borgar- búum, því ljóst væri að hún skipti þá miklu máli. 11tvegsbankaklukkan í nýjum búningi. Morpunblaöiö/ÓI. K. Mag Helga Þórarinsdóttir leikur með ,^lheimssinfoníuMjómsveit“: „Má segja að ég hafí dottið í lukkupottinn" HELGA Þórarinsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit íslands, leikur 8. desember næstkomandi með alheimssinfóníuhljómsveit á tón- leikum í Stokkhólmi. Tónleikarnir eru haldnir til heiðurs Alfred Nóbel — en afiiending Nóbelsverðlauna fer fram tveimur dögum síðar. „Það má segja að ég hafi dottið í lukkupottinn — þetta er eins og vinna stóra vinninginn í happ- drætti. Það verður áreiðanlega skemmtilegt að fá að spila með svo góðum hljóðfæraleikurum. Ekki það að kollegar mínir hér heima séu ekki góðir — en það verður gaman að breyta til,“ sagði Helga í samtali við Morgunblaðið. „Það var sendur listi um allan heim þar sem óskað var eftir vissu hljóðfæri frá hverri hljómsveit og ég var svo heppin að óskað var eftir víóluleikara héðan." Helga fer utan mánudaginn 2. desember, á þriðjudeginum er fundur með hljóðfæraleikurunum og síðan verður æft á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugar- dag. Tónleikarnir eru á sunnudeg- inum. „Við eigum að spila sinfoníu númer átta eftir Bruckner. Þetta er stórfenglegt, kraftmikið og langt verk. Stjórnandi er Carlo Maria Giulini, mjög þekktur stjórnandi sem frægur er fyrir vönduð vinnubrögð. Þarna verða hljóðfæraleikarar úr öllum heimsálfum og það gæti orðið erfitt að samræma spilamennsk- una á nokkrum dögum þar sem ákveðinn stíll í hljóðfæraleik skapast í hverju landi. Enda býst sennilega enginn við að þetta verði eins og „alvöru“-sinfóníu- hljómsveit. En það cr forvitnilegt að sjá hvernig þetta kemur út.“ Tónleikunum verður sjónvarp- að viða um heim og ágóðinn af þeim rennur til UNICEF, Barna- hjálpar Sameinuðu Þjóðanna. Þetta er gert nú í fyrsta skipti en að sögn Helgu stendur jafnvel til að þetta verði árlegur við- burður. „Hljómsveitin er hugsuð sem friðarhljómsveit. Sem sam- einingartákn fyrir fólk af mörg- um kynþáttum og trúarbrögðum — að fólk geti sameinast um þetta alþjóðlega mál.“ Helga byrjaði að spila þegar hún var smástelpa. „Ég fór í Barnamúsíkskólann, eins og hann hét þá (Tónmenntaskólinn í dag) og byrjaði á blokkflautu eins og allir gera. Þegar ég var 9 ára fór ég síðan að spila á fiðlu og skipti yfir á víólu (lágfiðlu) þegar ég var 14 ára. Víólan er stærri en fiðlan — og miðja vegu milli fiðlu og Helga Þórarinsdóttir, fyrsti víólu- leikari í sinfóníunni. sellós hvað hljóm varðar. Hún hefur staðið I skugga fiðlunnar þar til fyrir nokkrum árum. Það hefur verið skrifað mun meira fyrir fiðluna — menn virðast ekki almennt hafa gert sér grein fyrir möguleikum víólunnar fyrr á tímum." Þetta er 6. starfsár Helgu með Sinfóníuhljómsveitinni en 2. árið sem hún er fyrsti víóluleikari. Mokveiði á loðnumiðum MOKVEIÐI var á loðnumiöunum á Kolbeinseyjarsvæðinu aðfaranótt laugardagsins. 27 skip höfðu um há- degi á laugardag tilkynnt um 20.500 lesta afia og voru nánast öll skip á svæðinu með fullfermi. Mesti sólar- hringsafli til þessa á vertíðinni er um 25.000 lestir. Skipin fengu flest fullfermi á um þriggja klukkustunda tímabili rétt eftir miðnættið og höfðu aðeins tvö skip af þeim, sem á miðunum voru, ekki tilkynnt um afla á hádegi daginn eftir. Eftirtalin skip voru með afla: Magnús NK, 540, Súlan EA, 800, Svanur RE, 730, Grindvíkingur GK, 1.080, Albert GK, 600, Sighvatur Bjarnason VE, 700, Rauðsey AK, 610, Jöfur KE, 460, Börkur NK, 1.220, Húnaröst ÁR, 620, Kap II VE, 710, Heimaey VE, 510, Erling KE, 450, Gígja RE, 750, Víkurberg GK, 530, Hilmir II SU, 560, Isleifur VE, 730, Víkingur AK, 1.300, Gísli Árni RE, 640, Eldborg HF, 1.450, Ljósfari RE, 560, Sæberg SU, 630, Höfrungur AK, 910, Sigurður RE, 1.400, Dagfari ÞH, 530, Bergur VE, 530 og Guðmundur RE 950 lestir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.