Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 23
MORG UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
23
Ný hljómplata:
„Ég held
glaðurjól“
BÓKAÍITFGÁFAN Örn og örlygur
hefur gefið út hljómplötu Kristins
Sigmundssonar og Mótettukórs
Hallgrímskirkju. Hljóðritunin er
stafræn (digital) og fór fram í Hall-
grímskirkju og Kristskirkju sl. sum-
ar. Upptökur annaðist Halldór Vfk-
ingsson.
Lögin á plötunni eru: Fögur er
foldin, Nóttin var sú ágæt ein,
Syngi guði himnahjörð, Það aldin
út er sprungið, Engill blíður boð-
skap tér, Jólasöngur frá Coventry,
Wacht auf, wacht auf, Guðs kristni
i heimi, Sjá himins opnast hlið,
Oss barn er fætt í Betlehem,
Engill fór i fátækt hús, Einu sinni
í ættborg Daviðs og Grosser Herr,
o starker König.
Stjórnandi Mótettukórsins er
Hörður Áskelsson, en einleikarar
eru: Ásgeir Steingrimsson, tromp-
et, Marteinn H. Friðriksson, orgel
og Szymon Kuran, konsertmeist-
ari.
Morgunblaðið/Albert
Fáskrúðsfjarðarkirkja er mikil bæjarprýði eftir endurbeturnar.
Gagngerar endurbætur
á FáskrúðsfjarÖarkirkju
FáaknðaTlrti, 22. nÓTember.
f sumar voru gerðar gagngerar endurbætur á Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Kirkjan var að mestu múrhúðuð að utan en hún var orðin illa farin
og erfitt að halda henni við.
Kirkjan er nú eins og ný að sjá og er að henni mikil bæjarprýði.
Hún var byggð skömmu eftir aldamót, teiknuð af Sigurði Samúels-
syni og er nú á skrá hjá húsfriðunarnefnd ríkisins. Endurbæturnar
í sumar sá Lars Gunnarsson um. — Albert
Tangi hf. á Vopnafirði:
Veiðar og vinnsla á
hörpudiski ganga vel
— allt að 320 krónum fæst fyrir
hvert kíló í Bandaríkjunum
VEIÐAR og vinnsla á hörpuskel hafa
verið stundaðar með hléum hjá
Tanga hf. á Vopnafirði á þessu ári
og gengur það vel að sögn fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. Alls
hafa veiðst um 420 lestir af skel upp
úr sjó, sem smasvarar um 42 lesta
framleiðslu af hörpudiskbitum. Verð
fyrir stærsta bitann hefur farið í um
320 krónur fyrir hvert kfló í Banda-
ríkjunum.
Pétur Olgeirsson, framkvæmda-
stjóri Tanga hf., sagði í samtali
við Morgunblaðið, að tilraunaveið-
ar og vinnsla hefði hafist eftir
síðustu áramót og staðið í einn
mánuð og síðan hefði þetta gengið
frá því í september. Þrír bátar
stunduðu þessar veiðar nú og
sæktu þeir aðallega á mið í Vopna-
firði og Bakkaflóa. Skelin væri
nokkuð góð, en misstór. Hann
sagði, að um 320 krónur fengjust
fyrir kílóið af stærsta bitanum en
allt að helmingi lægra fyrir minni
bitana. Hráefnisverð væri rúmlega
helmingur af afurðaverði, en nýt-
anlegur biti um 10% af þyngd
skeljarinnar.
Skelin er öll blokkfryst og seld
gegnum sjávarafurðadeild Sam-
bandsins og Iceland Seafood í
Bandaríkjunum. Pétur sagðist
ekki geta sagt fyllilega til um
afkomu vinnslunnar, þar sem hún
væri mjög samtvinnuð annarri
vinnslu í frystihúsi fyrirtækisins.
Þá gat Pétur þe$s, að mikil vinna
hefði verið á Vopnafirði allt árið
og yrði svo áfram til jóla. Það
væri helst að skortur á starfsfólki
væri til trafala.
Hitaveituinntak gaf sig:
Miklar skemmdir
af gufu og vatni
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
síðdegis á þriðjudag kvatt að íbúðar-
húsi við Nýlendugötu, þar sem hita-
veituinntak hafði gefið sig og mikla
gufu lagði úr kjallaríbúð hússins.
Að sögn Arnþórs Sigurðssonar,
varðstjóra slökkviliðsins var ótt-
ast að fólk væri inni i íbúðinni.
Fóru tveir reykkafarar inn til leit-
ar, en fundu engan. Mikil gufa var
hins vegar í íbúðinni og fimmtíu
sentimetrar vatns. Var vatninu
dælt upp með svonefndri „túrb-
ínudælu" slökkviliðsins, og starfs-
menn Hitaveitu Reykjavíkur komu
á staðinn og lokuðu fyrir inntakið.
Arnþór sagði að talið væri að
skemmdir á íbúðinni væru miklar,
bæði af völdum gufu og vatns.
Kostir KASKO
eru augljósir!
Vaxtavextir reiknast fjórum
■ / / ■
sinnum a ari
Hafðu KASKÓ að leiðarljósi.
WRZlUNflRBfiNKINN
með pén (