Morgunblaðið - 05.01.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
39
leitist viö að samræma sem unnt
er lögfyöf um réttaráhrif tækni-
frjóvgunar. í Svíþjóð hafa þegar
verið sett lög sem kveða m.a. svo
á að eiginmaður eða sambýlis-
maður, sem samþykkt hefur
tæknifrjóvgun konu sinnar, getur
ekki véfengt faðerni það sem hann
hefur tekið ábyrgð á. í Danmörku
hafa menn ekki talið nauðsynlegt
að setja lög heldur telur danska
dómsmálaráðuneytið reglugerð
nægjanlega, en í Finnlandi telja
menn löggjöf nauðsynlega. í
norsku nefndinni, sem fjallaði um
málið, er enn ágreiningur um,
hvort setja skuli lög eða ekki. Þá
hefur verið unnið að drögum að
samræmdri löggjöf á vegum Evr-
ópuráðsins."
Afleiðingar tækninnar
Loks segir í tilvitnaðri greinar-
gerö:
„Þess var áður getið að einungis
giftar konur komi til greina þegar
um tæknifrjóvgun er að ræða hér
á landi. Það orkar tvímælis vegna
þess að konum er ekki skylt að
feðra börn sín samkvæmt íslenzk-
um lögum. Eðlilegt væri að nefnd-
in tæki þann þátt til athugun-
ar...
A okkar dögum fleygir þekk-
ingu mannkynsins ört fram, ekki
sízt á sviði líffræði og læknavís-
inda. Margt af þessari þekkingu
getur orðið til þess að auka
hamingju manna sé henni beitt
af skynsamlegu viti. En það er
bráðnauðsynlegt að löggjafar-
valdið fylgist náið með því sem
er að gerast, reyni að gera sér
grein fyrir því, hvernig ný tækni
grípur inn í líf einstaklinga og
setji reglur um það, hvernig hún
megi bezt verða þeim til farsæld-
ar. Það verður aðeins sé maðurinn
fær um að sjá afleiðingar tækn-
innar fyrir og stýra henni.“
Hér verður ekki tekin efnisleg
afstaða til þessa sérstæða og
athyglisverða máls. Það á þó
vissulega erindi til íhugunar hjá
öllu góðviljuðu fólki. Það sýnir
og að fleira rekur á fjörur löggjaf-
ans en flestir hyggja. Þess vegna
þótti rétt að gera lesendum blaðs-
ins lítillega grein fyrir því. Það
er heldur ekki á hverjum degi sem
þingmenn úr öllum þingflokkum
skrifa upp á eitt og sama þing-
málið.
Það verður fróðlegt að sjá
hvernig löggjafinn bregst við
þessu máli.
Gledilegt nýtt ár
jazz spom
stjörnuárið
1986
Þú ferð í leikfimi á árinu.
Freistaðu gæfunnar. Hringdu í síma 13880.
Þú finnur sjálfan þig í jazz-dansi.
Þú ferð í sauna og, slakar á.
Þú ætlaðir í leikfimi í fyrra en ferð í ár.
Það er engin afsökun að vera strákur.
Drífðu þig í jazz-ballett.
Innritun er hafin
í síma 13880
kl. 14—17.
Munid afhendingu skírteina kl.
13—17 mánudaginn 6. janúar fram-
haldsnemendur, þriðjudaginn 7. janú
ar byrjendur. Takið stundaskrána
með ykkur.
Eigendur og starfsfólk Jazz-sporsins
óskar ykkur gleðilegs árs
Þú kemst í sæluvímu í nuddpotti.
Líf þitt verður jazz-ballett.
Þú ferð í jazz-baliett á árinu.
Þú ert á besta aldri og ferð í jazz-dans.
Nú ert þú orðin 2 ára. Drífðu þig
í jazz- ballett.
Þú ferö í jazz-ballett á árinu.
Höfum flutt
starfsemi okkar að
Suðurlandsbraut 4
H4GTRYGGEVG HF
082500
Frúarleikfimi
veröur í Langholtsskóla mánud. og fimmtud. kl.
18 báöa dagana. Upplýsingar í síma 78Ö82 á
kvöldin.
Kennsla hefst 6. janúar.
Aðalheiður Helgadóttir
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 20. janúar
Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir
konur á öllum aldri. Byrjenda- og
framhaldstímar. Kennsla fer fram í
Melaskóla.
Kennari Gíga Hermannsdóttir.
Uppl. og innritun í síma 13022 um
helgar og virka daga eftir kl. 5.