Morgunblaðið - 09.01.1986, Side 17
17
Árni Gunnlaugsson
„Á því er enginn vaf i
að lieilbrigðar lífsvenj-
ur eru hin besta trygg-
ing til að halda heils-
unni í góðu horfi. Er
það því ekki glapræði
gagnvart sjálfum sér
að skemma það dýr-
mætasta sem okkur er
gefið, heilsuna, með
eiturlyfjum hvort sem
þau heita alkóhol eða
einhverjum öðrum
nöfnum?“
ömurlega endi árs æskunnar í höfuð-
borginni þegar 2500 ungmenni voru
saman komin í og við Laugardals-
höllina? Þar var haft áfengi um hönd
þótt bannað sé í íþróttahúsum. Að
sögn lögreglunnar voru margir
unglinganna færðir í fangageymslu
eða á slysadeild og mikil spjöll voru
unnin. A svona að endurtaka sig eða
á þetta að gleymast eins og svo
margt annað sem miður fer í þjóðlíf-
inu? Verður dansinum í kringum
Bakkus haldið áfram?
Rætur vandans
Rætur vandans liggja annars
staðar og dýpra en hjá unga fólkinu.
Halda menn að nýjasta fyrirbærið
hér í „áfengisnienningunni", ,jóla-
glöggin" svonefnda, stuðli að betra
ástandi? Hvað rekur stjórnmálafélög
til að nota áfenga drykki eins og
jólaglögg til að laða fólk til sín á
fundi? Telja þau það orðið í sínum
verkahring að veita áfengi rétt fyrir
jólin? Getur verið að jólaglöggin
hafi átt sinn þátt í því að nótt eina
fyrir jólin var óvenju mikið fár af
völdum drykkju á mörgum heimilum
í Reykjavík, að sögn lögreglunnar.
Hér voru hinir fullorðnu að verki.
Hefur ekki áfengishugarfarið blind-
að alltof marga? Er ekki þar að fínna
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
773 dæmdir í
Sakadómi 1985
frumrætur vandans mikla sem við
er að glíma?
Vonandi byrjar vakning meðal
þjóðarinnar á nýja árinu. Hugarfars-
breyting er forsenda nýrri og betri
tíma í þjóðlífinu.
Ár friðar, heilbrigðis
og bindindis
Sameinuðu þjóðirnar helga árið
1986 málefnum friðarins. Hér á
landi verður árið ennfremur helgað
málefnum heilbrigðis og bindindis.
Forgöngu um það hefur nefnd með
landlækni og biskup í fararbroddi.
Er tilgangurinn sá að vekja athygli
á áfengis- og eiturlyfjabölinu og
hvetja landsmenn til heilbrigðari lífs-
hátta.
A sinn hátt eiga hugsjónir friðar
og bindindis samleið. Að minnsta
kosti er það víst að áfengið getur
orðið mesti friðarspillirinn enda
hefur það verið kallað „versti óvinur
mannsins". Það er því þarft verk í
þágu friðarhugsjónar að beijast fyrir
bindindi og bræðralagi.
Það fylgja því miklir kostir að
gera bindindi að lífsvenju. Margir
drekka áfengi vegna beinnar og
óbeinnar þvingunar umhverfisins.
Þeir vilja ekki skera sig úr fjöldanum
á mannamótum. En nú, þegar sú
tíska er komin á víða um heim að
það þykir ekki lengur „fínt“ að
hampa glasi með áfengum drykk,
ætti að vera auðveldara að segja
„Nei-Takk“ svo að notuð séu orðin
á spjaldi þeirra Lions-manna í bar-
áttunni gegn vímuefnum, eða orð-
rétt: „Nei-Takk-ekki-vímuefni“.
Hvað er áfengi annað en vímuefni?
Besta tryggingfin fyrir
góðri heilsu
Löngu er vitað að margir sjúk-
dómar verða raktir til áfengisneyslu.
Jafnvel hinir smæstu skammtar eru
taldir geta haft skaðleg áhrif á heil-
ann. Um þetta segir landlæknir í
grein í Mbl. 12. febr. 1983: „Of
mikil áfengisneysla er talin veiga-
mikil orsök skorpulifrar, magabólgu,
magasárs og heilarýmunar og fleiri
sjúkdóma." Hér má bæta við að
neyti verðandi mæður áfengis á
meðgöngutíma getur það haft óbæt-
anlegt heilsutjón í för með sér fyrir
fóstrið. Voru um það tekin dæmi í
áðumefndum skrifum í Folket.
Ennfremur segir landlæknir:
„Talið er að 10-20% innlagna á
almenn sjúkrahús hér á landi eigi
rót sína að rekja til áfengisnotkun-
ar.“ Má því ljóst vera hversu brýnt
heilbrigðismál það er að draga úr
áfengisneyslu og hvetja fólk til að
hafna henni alfarið.
Fyrir skömmu fór fram rannsókn,
bæði í Kalifomíu og Noregi, þar sem
aðventistar voru athugaðir sérstak-
lega. Eins og kunnugt er temja þeir
sér heilbrigðar lífsvenjur og hafna
áfengi algerlega. Telja þeir sig fylgja
fordæmi heilagrar ritningar með
slíku líferni. í ljós kom að heilsufar
aðventista er yfírleitt betra en ann-
arra Kaliforníubúa og Norðmanna
ogþeir ná aðjafnaði hærri aldri.
Á því er enginn vafi að heilbrigðar
lífsvenjur em hin besta trygging til
að halda heilsunni í góðu horfi. Er
það því ekki glapræði gagnvart sjálf-
um sér að skemma það dýrmætasta
sem okkur er gefið, heilsuna, með
eiturlyfjum hvort sem þau heita
alkóhoj eða einhveijum öðmm nöfn-
um?
Vonandi ber hugsjónabaráttan,
sem tengd er þessu ári, mikinn ár-
angur. Til þess að svo megi verða
ættu menn að hlýða kalli samvisk-
unnar og veita góðum málstað bind-
indis, bræðralags og heilbrigðra lífs-
hátta liðsinni í orði og verki.
Höfundur er hæstaréttarlög-
maður í Hafnarfirði.
ÁRIÐ 1985 voru kveðnir upp
dómar í málum 773 manna við
Sakadóm Reykjavíkur. Af þeim
voru 446 ákærðir fyrir brot gegn
almennum hegningarlögum, en
327 fyrir brot gegn sérrefsilög-
gjöfinni, einkum umferðarlög-
um. Voru 25 menn sýknaðir, en
4 málum vísað frá dómi.
samanborið við 99 árið 1984. Dóm-
ar gengu í tveimur málum vegna
undanskots á söluskatti og brots á
bókhaldslögum. í báðum tilvikum
voru menn dæmdir í skilorðsbundið
fangelsi og til greiðslu sektar.
Þá var málum 1811 manna lokið
með dómssátt. Til Sakadóms bárust
115 beiðnir um gæsluvarðhaldsúr-
skurð og 27 beiðnir um húsleit.
Þess má geta, að gæsluvarðhalds-
beiðnum fækkaði í fyrra miðað við
árið 1984 þegar þær voru 136.
Sakadómi bárust 711 ákærur frá
embætti ríkissaksóknara miðað við
617 árið 1984.
Namskeið a vegum Fl
VERND HUGMYNDAEINKALEYFA 16. TIL 17. JAN.
Hvernig getur íslenskur iönaður styrkt stööu sína meö einkaleyfis-
og vörumerkjarétti?
í stóraukinni samkeppni á nýjum mörkuöum má ekki vanmeta
nauösyn þess aö tryggja sem allra besta réttarvernd hugmynda
og framleiösluvöru.
Fjallaö veröur um uppbyggingu einkaleyfa meö hliösjón af íslensku
einkaleyfislögunum og milliríkjasamningum, fyrir hvaða hugmyndir
hægt er aö fá einkaleyfi, hvaöa tilgangi einkaleyfi þjóna og hvaöa
aðrar leiöir eru færar til réttarverndar hugmynda og framleiöslu-
vöru.
Tími:
16.—17. janúar kl. 8.30—12.30,
samtals 8 tímar.
Verö:
Fyrir félagsmenn FÍI
Fyrir aöra
kr. 2.800,-
kr. 3.650,-
Staður:
Hallveigarstígur 1, 3. hæö.
Leiðbeinendur:
Árni Vilhjálmsson hdl., Isl. einkaleyfa
og vörumerkjastofan, Gunnar Örn
Haröarson tæknifr., ísl. einkaleyfa-
og vörumerkjastofan.
Islenskur hugbúnaður sf.
Hugbúnaðargerð, hugbúnaðarpakkar, vélbúnaður, ráðgjöf, diskettur og fl.
Skipholti 35, sfmi31842. Po. box8488, 128 Reykjavfk.