Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986 Maðkar í kálínu eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur í Helgarpóstinum 28. nóvember sl. birtust tvær greinar um valda- brall stjómar NLFÍ með Jón Gunnar Hannesson lækni í fararbroddi. Ekki sá stjóm NLFÍ ástæðu til að bera hönd fyrir höfuð sér og skrifa sér til vamar, enda fátt til vama. Þess vegna skrifaði ég opið bréf til stjómar NLFÍ í Helgarpóstinum nú 9. janúar sl. og spurði fáeinna spuminga, aðallega um félagsmál. Enn svarar stjóm NLFÍ engu og lét ég þess þó getið í upphafí þess bréfs að svari þeir engu hljóti ég að líta svo á að þeir hafi engin svör. Stjóm NLFÍ sannar því með þögn sinni að svo sé einnig að þessu sinni, aðgerðir þeirra og aðferðir séu óaf- sakanlegar og óútskýranlegar. Valdabrallið sem ég er að gagn- rýna snýst einkum um að hafa völd til að ráðsmennskast með þær 64 milljónir sem hælið fær í daggjöld á ári frá hinu opinbera — án þess að bókhaldið sé endurskoðað af hálfu hins opinbera, takið eftir því skattborgarar góðir — og auk þess greiða sjúklingar hælisins um það bil 11 V2 milljón á ári sjálfír. Samtals er því þama um að ræða rúmlega 75 milljónir á ári sem engum virðist koma við til hvers eru notaðar. Auk þessara smáaura fylgja völd til að losa Heilsuhælið við vel menntað starfsfólk sem er „fyrir" þessum valdabröskumm. Ég á svo sem ekki von á að stjóm NLFI virði mig svars í þetta sinn heldur, en vil velqa almenning í landinu til umhugsunar um hvort hinn almenni borgari eigi endalaust að þurfa að gagnrýna svona brask með sjúkrastofnun án þess að heil- brigðiskerfíð í landinu telji sér koma þetta á nokkum hátt við. Valda- braskaramir telja sig greinilega langt yfír alla gagnrýni hafna og þá ekki síður yfír lög hafna. Sið- ferðiskennd þeirra er einnig í mínus. Heilsuhælið 30 ára Á liðnu sumri, nánar tiltekið þann 24. júli, átti Heilsuhæli NIFÍ í Hveragerði 30 ára starfsafmæli. Skyldi maður nú ætla að stjóm NLFÍ hefði talið vel við hæfi að gera stofnuninni til góða af því til- efni, en svo var ekki. Þess í stað var flæmdur burt yfírlæknir hælis- ins, ísak G. Hallgrímsson, sérfræð- ingur í orkulækningum og endur- hæfingu og auk þess sögðu upp 5 hjúkrunarfræðingar af 6 ásamt Þórhalli B. Ólafssyni, lækni. Eftir var einn læknir í hálfu starfí, Jón Gunnar Hannesson. Yfirlæknisstað- an var auglýst í júlí, eftir að fyrr- verandi yfírlæknir var hættur störf- um og enn hefur enginn yfirlæknir verið ráðinn og hefur rekstrarstjóm hælisins þó haft 6 mánuði til að stauta sig fram úr umsóknum um stöðuna, sem eru alls 2 talsins skv. upplýsingum formanns rekstrar- stjómar. Aðspurður, tjáði formað- urinn mér nú alveg nýlega að hann hefði ekkert með ráðningu yfír- læknis að gera, það væri fram- kvæmdastjórans að ráða yfírlækni. Framkvæmdastjórinn hins vegar tjáði mér að það væri í verkahring rekstrarstjómar og vísaði á for- mann hennar vegna máls þessa. í reglugerð fyrir heilsuhæli NLFÍ, dags. 29. desember 1978, 5. gr. segir að stjóm stofnunarinnar eigi að ráða yfírlækni í samráði við stjóm NLFÍ og skv. lögum nr 57/ 1978 um heilbrigðisþjónustu og upplýsi ég formann rekstrarstjóm- ar, sem er lögfræðingur, hér með um það mál. Vera má að ókunnug- leiki hans um lög og reglugerðir varðandi þessa stofnun svo og sjúkrastofnanir almennt, sbr. ráðn- ingu hjúkrunarforstjórans nú í nóv- ember sl. stafí að einhveiju leyti af því að hann muni eilítið vera farinn að reskjast. Verður þó að segja honum til hróss, að hann stendur sig með mestu prýði við að veija einkahagsmuni stjómar- manna NLFÍ. Ef til vill gæti dráttur á ráðningu yfírlæknis stafað að einhveiju leyti líka af því að Jón Gunnar Hannesson, ef marka má viðtal við hann í norsku blaði nú í desember sl. er yfírlæknir hælisins að eigin dómi. Hefur hælið þannig stórsett niður hvað varðar læknis- þjónustu og það er vanvirða við sjúklingana að hafa sjálfskipaðan yfírlækni sem enga sérgrein hefur. Þetta heilsuhæli var reist af vanefnum en miklum dugnaði af hugsjónamanninum Jónasi Krist- jánssyni og var hugsað sem staður sem þreyttir og þjáðir gætu hvílst, endurhæfst og safnað kröftum til að endurheimta tapað vinnuþrek og hugsjónin var sú að alltaf skyldi stefna fram á við, stefna að aukinni menntun starfsfólks og bættum aðbúnaði sjúklinga eftir þvf sem framast væru tök á. Nú er hugsjón- in fyrir bí, ferðinni ráða valdagírug- ir framagosar sem setja eigin hags- muni ofar hagsmunum hælisins og sjúklinga þess. Starf NLFA annars vegar og NLFR hins vegar Á meðan Náttúrulækningafélag Akureyrar berst af miklum dugnaði fyrir að fjármagna heilsuhælis- byggingu sína í Kjamaskógi með ýmsum uppákomum svo sem köku- sölu, veitingasölu, hlutaveltu og flóamarkaði hefst Náttúrulækn- ingafélag Reykjavíkur ekkert annað að en að stilla upp myndarlegum fulltrúalista til landsþings, er kjósa skyldi stjóm NLFÍ, sem svo skipar í rekstrarstjóm Heilsuhælisins, með 32 aðalfulltrúum og öðrum 32 til vara á móti 4 fulltrúum frá NLFA. Ef félagar í NLFR væru 1550—1600 talsins væri þetta rétt- ur fulltrúafjöldi, en tala félaga í NLFR er nokkuð á reiki því láðst hefur að halda félagatal, innheimta árgjöld og halda fundi og ennfremur er oftar en ekki allt á huldu með hveijir em í stjóm. Sumir þessara fulltrúa munu ekki hafa haft hugmynd um að þeir hefðu verið kosnir, enda ekkert látnir um það vita, hefðu þó átt skv. lögum NLFÍ að fá send kjör- bréf. Aðrir hafa líklega verið látnir halda að þeir væru ekki að styðja mikla hugsjón, þ.e. þá hugsjón sem reisti hælið, en er nú eins og áður sagði fyrir bí. Af þessum 64 aðilum em aðeins 7 sem fá málgagn NLFÍ, Heilsuvemd, þar af 3 frítt. Hinir fulltrúamir em líkast til ekki nægilega kunnugir málefnum NLFÍ til að vita að bandalagið hefur sl. 40 ár gefíð út málgagn, enda munu einhveijir af þessu fólki hvorki vera né hafa verið félagar í NLFR. Fulltrúar á landsþingi NLFÍ, 26. október 1985: Aðalfulltrúar: 1. Ásta Erlingsdóttir 2. Fanney Vilhjálmsdóttir 3. Gísli Ólafsson 4. Hilmar Norð^örð 5. Þorvaldur Biamason 6. Sigurbjörg Olafsdóttir 7. Halldóra Hjartardóttir 8. Sighvatur Cassata 9. Freyr Bjartmarz 10. Gunnar Valvesson 11. Anna Davíðsdóttir íslenskur virtuós eftirEinar Markússon Ekki var nú ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Hámenntað- ur maður eins og Halldór Haralds- son mundi ekki ráðast í svona pró- gramm, ef hann vissi ekki að hann gæti komið því vel til skila. Halldór Haraldsson píanóleikari hélt upp á 20 ára afmæli sitt sem píanisti með því að koma fram á tónleikum á vegum Tónlistarfélags- ins í Reykjavík laugardaginn 11. janúar sl. með feiknarlegu pró- grammi, sem vel sæmir slíku tilefni, fyrir troðfullu Austurbæjarbíói. Tækni Halldórs er óbrigðul. Þegar aðrir píanistar hægja á sér, þá setur minn maður upp hraðann, því að hann á mikinn varaforða, sem hann getur notað þegar honum þóknast. Hann hefur efni á því að sleppa pedal, þegar aðrir grípa til hans („þegar neyðin er mest er pedallinn næst“). Halldór þarf ekki á neinum neyðarúrræðum að halda. Ef það á að móta verk, þannig að það fái á sig einhveija heildar- mynd, verður að laga taktinn að þeirri heildarmynd, annars verkar það ekki sannfærandi. Halldór var sannfærandi í túlkun sinni. í leik hans á tónleikunum á laugardag kom greinilega fram, að hann er Halldór Haraldsson „Tækni Halldórs er óbrig’ðul. Þegar aðrir píanistar hægja á sér, þá setur minn maður upp hraðann, því að hann á mikinn vara- forða, sem hann getur notað þegar honum þóknast.“ músíkalskur án þess að vera væm- inn. Þegar ég fer á tónleika fer ég með opnu hugarfari og hlakka til. Þeir, sem aldrei hafa komið einir fram á konsertpalli og sitja heima í ruggustól og ætla sér svo að setja út á þá miklu vinnu sem liggur í svona stórkostlegu konsertpró- grammi, þurfa að vita hvað þeir eru að tala um, þegar þeir skrifa í blað. Talent er talent. Taient þarf ekki að sitja uppi á einhveijum jöklum eða uppi við fossa og líkja eftir náttúruhljóðum. Þau má einfald- lega taka upp á fullkomin upptöku- tæki. Taientið skynjar hins vegar og skilur innihald verka á sinn hátt og endurskapar þau í hvert sinn. Talentið er ekki maskína. Það er ábyrgðarhluti að vera kennari og kenna óhlutdrægt. Fólk er að leiðbeina öðrum til þess að fá það besta fram, sem í þeim býr, en ekki til að troða persónulegum skoðunum upp á þá. Musíkin hjálpar fólki til að vera sjálfstætt. Það leið- ist engum að hlusta á Halldór Haraldsson. I leik hans koma fram sjálfstæðar skoðanir. Þessa tónleika verður að endurtaka. Þeir sem misstu af þeim fara á mis við mikið. Höfundur er pínnóleikari og píanókennari. Guðrún Jóhannsdóttir „Valdabrallið sem ég er að gagnrýna snýst einkum um að hafa völd til að ráðsmennskast með þær 64 milljónir sem hælið fær í dag- gjöld á ári frá hinu opinbera — án þess að bókhaldið sé endur- skoðað af hálfu hins opinbera, takið eftir því skattborgarar góðir — og auk þess greiða sjúklingar hælisins um það bil 11 l/i milijón á ári sjálfir.“ 12. Bjami Þorvaldsson 13. Ingibjörg NorðQörð 14. Jón Gunnar Hannesson 15. Eggert V. Kristinsson 16. Vilhjálmur Ragnarsson 17. Eiður Sigurðsson 18. Þorvaldur Gunnlaugsson 19. Helga Vigfúsdóttir 20. Sigurður Hannesson 21. Ólafur Þorgrímsson 22. HilmarFoss 23. Gunnlaug Hannesdóttir 24. Steingrímur Kristjánsson 25. GuðrúnFoss 26. Njáll Þórarinsson 27. Ragnar Ólafsson 28. Ástríður Hannesdóttir 29. Guðlaug Vilhjálmsdóttir 30. Þórhalla Ágústsdóttir 31. Páll Samúelsson 32. Sigfús Cassata Varafulltrúar: 33. Hjörtur Hauser 34. Sigurður Þorsteinsson 35. Guðrún Karlsdóttir 36. Margrét Hjálmarsdóttir 37. Guðrún Markúsdóttir 38. Gunnþórunn Erlendsdóttir 39. Stella Sigurðardóttir 40. Gunnlaugur Garðarsson 41. Svavar Jóhannsson 42. Jóhannes Gíslason 43. Örlygur Bjamason 44. Guðjón Knútsson 45. ÆgirBjamason 46. Haraldur Erlendsson 47. ÖmSvavarsson 48. Unnur Skaftadóttir 49. Birgitta Svavarsson 50. Guttormur Sigurðsson 51. Þóroddur Skaftason 52. Guðjón Andrésson 53. Anna Þórarinsdóttir 54. Ólöf Einarsdóttir 55. Andrés Magnússon 56. Anna Jónsdóttir 57. Jón Guðmundsson 58. Jóhanna Sigurgeirsdóttir 59. Guðjón B. Baldvinsson 60. Anna Guðmundsdóttir 61. Elín Karlsdóttir 62. Einar B. Stefánsson 63. ÖgmundurÁmason 64. Gunnar Eggertsson Á þessu þingi voru kosnir í stjóm Njáll Þórarinsson, forseti, Eggert V. Kristinsson, varaforseti, Hörður Friðþjófsson, ritari, hann mun bú- inn að segja af sér, Jón Gunnar Hannesson og Hilmar Norðfjörð. Þeirri spumingu hvor hinna tveggja síðastnefndu sé gjaldkeri banda- lagsins er ósvarað. Nokkur dæmi um skyldleika- og fjölskyldutengsl milli fulltrú- anna: Jón Gunnar nr. 14, Sigurður nr. 20 ogÁstríður nr. 28 eru systkini. Vilhjálmur nr. 16 er giftur Ástríði nr. 28 og sonur Fanneyjar nr. 2, Guðlaug nr. 29 er systir Fanneyjar. Njáll nr. 26 og Anna nr. 53 eru föðursystkin Jóns Gunnars, Sigurð- ar og Ástríðar, sem að ofan getur. Gunnlaug nr. 23 er ekkja Jóns Þórarinssonar föðurbróður Jóns Gunnars og systkina hans. Anna nr. 56 er dóttir Gunnlaugar og Þorvaldur nr. 18 tengdasonur henn- ar. Þorvaldur nr. 5, Ægir nr. 45 og Örlygur nr. 43 eru bræður og for- eldrar þeirra em Sigurbjörg nr. 6 ogBjami nr. 12. Öm nr. 47 er sonur Svavars nr. 41 oggiftur Birgittu nr. 49. Gísli nr. 3 og Jóhannes nr. 42 em feðgar. Sighvatur nr. 8 og Sigfús nr. 32 em bersýnilega skyldir. Anna nr. 11 hefur sama heimilisfang og Sighvatur. Freyr nr. 9 er giftur Margréti nr. 36. Gunnar nr. 10 og Guðrún nr. 37 hafa sama heimilisfang. Eggert nr. 15 og Eiður nr. 17 hafa sama heimilisfang. Hilmar nr. 22 og Guðrún nr. 25 em hjón. Unnur nr. 48 og Þóroddur nr. 51 em systkini. Guðjón nr. 59 og Anna nr. 60 em hjón. Auk þessa má geta þess að Helga nr. 19 er eiginkona framkvæmda- stjóra Heilsuhælisins og Ólafur nr. 21 er lögfræðingur NLFI. Engir fundir í venjulegum félögum mun venja að ræða svona mál, ef upp koma, á félagsfundum. Stjóm NLFÍ hefur sett undir þann leka að slíkt sé hægt með því að fella úr lögum bandalagsins þá málsgrein sem segir til um hvemig fundir skulu boðaðir svo löglegt sé og í skjóli þess kemst NLFR upp með að halda enga fundi, enda leikurinn til þess gerður. Þó mun hafa borið við að haldnir hafí verið málamyndaaðalfundir, auglýstir á þann hátt að tryggt sé að sem fæstir mæti. Slíkir aðalfund- ir em lítilsvirðing við félagsmenn og vitna um afar slæma samvisku stjómar og hæfa enda einungis kálmöðkum. Stjórn NLFÍ ber að víkja NLFR úr bandalaginu! í lögum NLFÍ segir svo í 9. málsgrein: „Heimilt er að víkja bandalags- félagi úr NLFÍ, ef félagið brýtur lög bandalagsins eða starfar ekki sam- kvæmt stefnu þess eða er því til tjóns eða vanvirðu". Stjóm NLFÍ er öll úr Reykjavík- urdeildinni, utan þess manns sem mun búinn að segja af sér og því augljóslega erfítt fyrir bandalags- stjómina að nota þessa heimild, því þar með væri stjómin að víkja burt sjálfri sér. „Fulltrúakosningar" NLFR til síðasta landsþings em þó óumdeil- anlega vanvirða. Lög um heilbrigðis- þjónustu Sem leikmanni fínnst mér æði merkilegt að í lögum um heilbrigðis- þjónustu skuli ekki vera nákvæm og gagnger ákvæði um að félög á borð við NLFÍ, sem reka sjúkra- stofnanir, þurfí að sæta aðhaldi og eftirliti af hálfu hins opinbera, sem skilyrði fyrir daggjöldum. Til dæmis má nefna eftirlit með bókhaldi öllu og að slíkum félögum sé gert að halda uppi eðlilegu og heiðarlegu félagsstarfí þannig að tryggt sé að hugsjónamenn fari með völd fremur en lúmskir og valdagímgir frama- gosar, sem hægt og rólega lagfæra lög bandalagsins sér í hag og haga sér í öllu gagnvart stofnuninni eins og þeir væm í „Masters of the Universe“-leik. Beini ég því eftirfar- andi spumingu til heilbrigðismála- ráðherra: Finnst þér þetta í góðu lagi svona, Ragnhildur? Reykjavík, 14. janúar 1985 Höfundur er ritatjóri Heilsuvemd- ar, mátgagna NLFÍ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.