Morgunblaðið - 19.02.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986
Kosið um áfengisútsölurnar í Garðabæ og Hafnarfirði á laugardag:
Frá Hafnarfirði
Frá Garðabæ
„Sjálfsögð þjónusta“ eða
ábót á áfengisbölið mikla?
HAFNFIRÐINGAR og Garð-
bæing-ar ganga að kjörborðinu
á laugardaginn 22. febrúar
næstkomandi og greiða at-
kvæði um það hvort opna eigi
áfengisútsölur í bæjunum.
Almenningur skiptist í þtjár
fylkingar í þessu máli, þeir sem
eru með, þeir sem eru á móti
og svo hinir sem kæra sig koll-
ótta hvort áfengi verði á boðstól-
um í bæjunum. Morgunblaðið
ræddi við allmarga aðila í Hafn-
arfirði og Garðabæ, flestir töldu
óþarfa að tjá sig um málið í
Árni Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður:
„Áfengisneyslan
myndi aukast
án nokkurs vafa“
„Ég er tvímælalaust á móti
því að opnuð verði áfengisút-
sala,“ segir Arni Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður í Hafnar-
firði og heldur áfram: „Ég
byggi skoðun mína á rannsókn-
um sem hafa sannað að áfengis-
neysla eykst alltaf ef eitthvað
verður til þess að auðvelda fólki
að afla sér áfengis. Tómas
Helgason rannsakaði áfengis-
venjur íslendinga fyrir nokkru
og hélt fróðlegan fyrirlestur
um niðurstöður sínar. Þar er
helst að geta, að sé miðað við
þéttbýli þar sem áfengisútsölur
eru til staðar, þá eru 13 prósent
Iíkur að 14 ára unglingur verði
drykkjusjúkur og 20 prósent
líkur á að hann verði ofdrykkju
að bráð. í dreifbýli eru þessar
tölur aðeins 4 prósent.“
Fleira tíndi Ámi til úr umrædd-
um fyrirlestri Tómasar Helgason-
ar. „Til dæmis telja fleiri karl-
menn að þeir eigi við áfengis-
vandamál að stríða þar sem
áfengisútsölur eru, heldur en þar
sem þær eru ekki,“ segir Ámi.
Fyrr á öldinni var áfengisútsala
í Hafnarfirði og Ámi var inntur
eftir því: „Það má vel koma fram,
að sú útsala var opnuð í fullri
óþökk bæjarstjómar og bæjarbúa.
Bæjarbúar óskuðu meira að segja
eftir því að búðinni yrði lokað
þremur árum eftir að hún var
opnuð, en við því var ekki orðið.
Það sýnir andstöðu bæjarstjómar,
að hún neitaði að skipa forstöðu-
mann og varð ráðuneytið að sjá
um það. Bæjarbúar sýndu hug
sinn til áfengisútsalna á þessum
tíma og ég vona að hugarfarið
Arni Gunnlaugsson
hafi ekki breyst, það yrði ekki
gæfuspor að opna hér áfengisút-
sölu og halda áfenginu þannig
bókstaflega að bæjarbúum. Ég
vona líka að Garðbæingar kjósi
skynsamlega og satt að segja yrði
það einnig áhyggjuefni ef þetta
yrði samþykkt þar í bæ, því það
myndi gera Hafnfirðingum mun
auðveldar fyrir að nálgast áfeng-
ið,“ sagði Ámi Gunnlaugsson að
lokum.
0
Olafur Torfason kaupmaður:
„Mikill hugur meðal
viðskiptavina minna“
„ÞAÐ er alveg rétt, ég hef
mikinn hug á þvi að áfengisút-
sölu verði komið á laggirnar í
nýja miðbænum í Garðabæ og
ég hef orðið var við mikinn hug
i viðskipavinum minum, vel
flestir virðast spenntir fyrir
því cinnig,“ sagði Ólafur Torfa-
son, kaupmaður í Garðakaup-
um.
Er málið var rætt enn frekar,
sagði Ólafur einnig: „Það er að
vísu við því að búast, að drykkja
aukist eitthvað í bytjun, en það
myndi áreiðanlega fjara út og
jafnast á ný. Það sem mér fínnst
skipta. meira máli en það hvort
einstaklingar drekka eitthvað
meira en ella á tiltölulega skömm-
um tíma, er hvað tilkoma áfengis-
útsölu gæti gert fyrir miðbæinn
okkar. Garðabær er í örum vexti
og áfengisútsala á staðnum myndi
stuðla að enn meiri uppvexti og
grósku. Það er verið að byggja
upp góðan miðbæjarkjama og
fyrir utan það að veita sjálfsagða
þjónustu myndi ríki hér í bænum
koma í ríkum mæli í veg fyrir að
bæjarbúar sæktu viðskipti til ná-
grannabyggðarlaga. Þá má segja
sem er, að Garðbæingar hafa ekki
beinlínis þurft að sækja áfengið
blaðaviðtali, en voru eigi að síður
ófeimnir að reifa málefnið. Hér
birtast þijú viðtöl við menn sem
sáu sér fært að tjá sig opin-
berlega, en þess má geta, að
skoðanir og viðhorf þeirra sem
einnig var rætt við, voru mjög
á sama veg og hér birtast. Þeir
sem eru á móti hampa niðurstöð-
um úr rannsóknum sem sýna
fram á drykkjuaukningu þar
sem áfengisútsölur eru. Þeir
benda á vaxandi áfengisböl í
landinu og telja það hinn mesta
óþarfa að gera fólki auðvelt með
að nálgast veigamar. Ósómi og
afbrot og mannlegir harmleikir
séu fylgifiskar áfengisneyslu og
réttara væri að loka heldur þeim
áfengisútsölum sem fyrir eru
heldur en að opna nýjar.
Það kveður svo við annan tón
hjá þeim sem em áfengisútsöl-
um hlynntir. í Garðabæ er talað
um að áfengisútsala í hinn nýja
miðbæjarkjama myndi auka
vemlega umferð um miðbæinn
og stuðla þannig að uppbygg-
ingu bæjarins og hrista úr hon-
um svefnbæjardrómann. Þá er
vinsælt að tala um hina „sjálf-
sögðu þjónustu" sem felst í að
hafa auðveldan aðgang að
áfengisútsölu. í Hafnarfirði telja
„með-menn“ ekki að ríki muni
stuðla að bæjarbrag, þar er
„sjálfsagða þjónustan" algeng-
asta röksemdin fyrir því að
borgarbúar ættu að kjósa yfír
sig ríki.
Það hefur hingað til farið
hljótt um þessar kosningar,
þegar þetta er ritað hefur ekki
komið til Ijöldafunda, engum
dreifíbréfum hefur verið rennt
inn um póstlúgur. Einn ónafn-
greindur viðmælandi Morgun-
blaðsins lýsti málinu í hnotskum
er hann sagði: „Við tjáum okkur
við kosningakassana."
að
því
langt, það er ekki stórmál
skreppa til Reykjavíkur og
efast ég um að það yrðu einhver
viðbrigði. Hitt er svo annað mál
að það væri slæmt fyrir upp-
bygginguna hér í bæ, ef Garð-
bæingar felldu málið í atkvæða-
greiðslunni, en það yrði hins vegar
samþykkt í Hafnarfírði. Lengi
hafa margir Garðbæingar sótt
viðskipti til Hafnarfjarðar, en með
vaxandi uppbyggingu í Garðabæ
hefur dregið úr því. Það gæti
aukist á ný ef atvik bjóða upp á
það,“ sagði Ólafur Torfason kaup-
maður í Garðabæ að lokum.
Hallgrímur Sæmundsson kennari:
„ Afengi er þegar allt
of mikið vandamál“
HARÐUR andstæðingur
áfengisútsölu í Garðabæ er
Hallgrímur Sæmundsson
kennari. Morgunblaðið innti
hann eftir viðhorfum sínum
og skoðanabræðra hans.
„Andstaða mín byggist á ein-
földum staðreyndum, það er, að,
áfengi er þegar allt of mikið
vandamál og aukin drykkja hefur
ekkert annað en aukin vandamál
í för með sér. í heild tekið myndi
áfengisútsala áreiðanlega auka
drykkjuna þó ekki sé hægt að
gera sér almennilega grein fyrir
hversu mikil sú aukning yrði. Þá
ber þessi atkvæðagreiðsla allan
keim af því að verið sé að reyna
að meija þetta mál í gegn. Það
eru bráðum fjögur ár síðan að
bæjarbúar kusu um þetta sama
mál, en þá var tillagan felld,"
segir Hallgrímur, en hvað segir
hann um þá röksemdafærslu að
áfengisútsala myndi verða sterkt
afl í uppbyggingu miðbæjarins?
„Mér fínnst það vægast sagt
handlítil rök að halda slíku fram,
í bæjarfélögum miðast uppbygg-
ing og viðskipti við eftirspum og
nauðsynlega þjónustu. Verslanir
verða að sanna tilverurétt sinn
með öðrum hætti en að inn í þær
slæðist einhveijir viðskiptavinir út
á áfengissöluna. Við þetta má
bæta, að mér fínnst ótækt að
ræða um áfengi eins og almenna
neysluvöru einsogt.d. mjólk.
„Þá finnst mér að beita ætti
Hallgrímur Sæmundsson
verðstýringu til þess að stemma
stigu við áfengisneyslu svo og
tóbaksneyslu. Það hlyti að minnka
vandann. Það er fáránlegt að
mjólk skuli hafa hækkað kannski
tífalt á vissu tímabili en sígarettur
aðeins sexfalt á sama tíma. Að
lokum vil ég segja að mér fínnst
það miður hvemig tekið er á
baráttu gegn áfengi. Um hana er
rætt eins og þetta sé einhver
gamall tími sem ekki á lengur
við. Þetta er auðvitað alveg öfugt
í raun og veru, það á sannarlega
við að beijast gegn áfengisneyslu
meðan vandinn af völdum hennar
er jafn mikill og raun ber vitni."