Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 21
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19, FEBRÚAR 1986
21
Utflutningnr sjávarafurða á síðasta ári:
Fryst flök
að verðmæti
10 milljarðar
HEILDARÚTFLUTNINGUR sjávarfurða á síðasta ári nam alls
698.014 lestum að verðmæti 25,9 milljarðar króna, en árið 1984
489.119 lestum að verðmæti 16,3 milljarðar króna. Sjávarafurðaút-
flutningurinn á síðasta ári var 76,9% af öilum útflutningi, en 68,7%
árið áður. Verðmæti útfluttra frystra afurða á síðasta ári var um
14 milljarðar króna, þar af flaka um 10 milljarðar. Verðmæti fersks
fisks var 2,6 milljarðar og aukning varð á útflutningi flestra afurða-
flokka frá árinu áður.
Samkvæmt upplýsingum Fiskifé-
lags íslands fluttum við sjávaraf-
urðir út til 17 nafngreindra landa
á síðasta ári. Sé miðað við verðmæti
er röð 7 veigamestu landanna sem
hér segir. Fyrst verðmæti talið í
milljörðum, síðan magn í lestum og
loks hlutfall heildarverðmæta:
Bandaríkin 8,4 milljarðar, 73.090
lestir, 32,46%, Bretland 5,3,
188.528, 20,36%, Portúgal 1,9,
26.850, 7,35%, Sovétríkin 1,9,
43.273, 7,33%, Vestur-Þýzkaland
1,6, 47.574, 6,20%, Japan 1,1,
15.951, 4,34% og Frakkland 1
milljarður, 35.075 lestir, 4,15%. Af
þessum löndum er hæst meðalverð
á hvert kíló afurða í Bandaríkjun-
um, 115,20 krónur, í Portúgal er
verðið 71,05 og Japan er meðal-
verðið 70,50. Lægst meðalverð í
þessum löndum er í Bretlandi, 28,01
króna, en þar er mikið af ferskum
fiski og mjöli meðtalið, í Frakklandi
er meðalverðið 30,66, 35,29 í Vest-
ur-Þýzkalandi og 43,92 í Sovétríkj-
unum.
Fimm einstakir vöruflokkar voru
seldir fyrir meira en einn milljarð
króna, það eru fryst flök, 10,2
milljarðar, óverkaður saltfiskur, 3,3
milljarðar, loðnumjöl 1,8 milljarðar,
rækja 1,8 milljarðar og loðnulýsi
1,4 milljarðar. Verðmæti ísaðra
afurða var samtals 2,6 milljarðar
króna og skiptist það þannig eftir
flutningsaðferðum: Úr fiskiskipum
voru seldar 130.895 lestir að verð-
mæti 1,4 milljarðar, úr gámum
32.690 lestir að verðmæti 1 millj-
arður og með flugi 1.492 lestir að
verðmæti 145 milljónir króna.
1,65% lækkun dalsins að undanförnu:
Tekjutap fryst-
ingar og söltun-
ar 265 milljónir
GENGISLÆKKUN dalsins að undanförnu rýrir tekjur botnfiskvinnsl-
unnar, söltunar og frystingar; um 265 milljónir króna miðað við
óbreytt ástand allt þetta ár. Útflutningstekjur þessara greina eru
áætlaðar um 16 milljarðar króna
lækkað um 1,65% á síðustu dögum.
Eftir 3,5% fískverðshækkunina
fyrir skömmu mat Þjóðhagsstofnun
fiskvinnsluna rekna með 1,5% halla,
en fiskverkendur telja tapið allt að
4%, þegar lækkandi gengi dalsins
er tekið með í myndina.
Mikillar óánægju gætir nú meðal
fiskverkenda af þessum sökum, sér-
staklega vegna þess, að við fisk-
verðsákvörðun fyrir skömmu mið-
uðust útreikningar Þjóðhagsstofn-
unar við það, að 42,30 krónur fengj-
ust fyrir hvem dal, en þá þegar var
gengið nokkru lægra og nú fást
41,60 krónur fyrir dalinn. Þykir
á árinu, en gengi dalsins hefur
mönnum að þessari þróun hafi lítill
gaumur verið gefínn, sérstaklega í
ljósi þess, að deilt var um 3,5%
hækkun fiskverðs í 10 daga, en hún
hafði í för með sér 290 milljóna
króna útgjaldaukningu fiskvinnsl-
unnar. Tekjutapið vegna þróunar
dalsins nemur hins vegar 265 millj-
ónum króna. Fiskverkendur eru
vegna þessa mjög uggandi um hag
sinn á árinu með fyrirsjáanlegum
taprekstri, sem ekki verður leystur
á sama hátt og á síðasta ári, er
framleiðendur áttu talsverðar
birgðir frá fyrra ári til að vega upp
á móti tapinu.
Páll Pétursson, gæðaeftirlits-
maður hjá Coldwater, kannar
ástand fisksins.
Aðstæður vestra eru fremur gamaldags og fiskinum meðal annars
landað í litlum körfum, en um borð í skipunum er fiskurinn í stíum,
ekki ísaður i kassa.
Tilraunir með gámafisk
á markað í Bandaríkjunum
Gæti verið fýsilegt að senda þangað ýsu, flatfisk og
karfa, segir Gylfi Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá LÍÚ
EINN gámur af ferskum fiski
var nýlega sendur til Bandaríkj-
anna í tilraunaskyni og selt úr
honum þar fyrir tilstilli Land-
sambands íslenzkra útgerðar-
manna og Coldwater. Tilraun
þessi tókst þokkalega og sýndi,
að möguleiki er á að senda tak-
markað magn af ýsu, flatfiski
og karfa ferskum vestur um haf.
Verð á stórri ýsu er þarna í
kringum 100 krónur fyrir hvert
kíló, nokkru meira fyrir flat-
fiskinn en minna fyrir aðrar
tegundir.
Gylfi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá LÍÚ, fylgdi gám-
inum vestur um haf. Hann sagði
að alls hefðu farið utan um 10
lestir af blönduðum fiski, mest
þorski, ýsu og karfa, en auk þess
smávegis af ufsa, kola, lúðu og
steínbít. Ákveðið hefði verið að
hafa fisktegundimar margar til að
sjá hver útkoman á hverri tegund
fyrir sig yrði. Fiskurinn hefði verið
sendur utan með Hofsjökli og ferðin
tekið 7 sólarhringa. Fiskurinn hefði
því verið 9 til 10 daga gamall er
hann kom á markaðinn. Ástand
fisksins hefði verið gott, nema lítils
hluta af þorski, sem hefði farið of
gamall í gáminn.
Gylfi sagði, að fiskurinn hefði
farið á markað í Boston, sem væri
einn af þremur stærstu fiskmörkuð-
unum á vesturströnd Bandaríkj-
anna. Þarna væri fiskurinn ekki
beinlínis boðinn upp, heldur miðað-
ist verðið við ákveðið dagverð. Fisk-
urinn væri ekki sýndur kaupendum
eins og tíðkaðist á þeim mörkuðum,
sem við þekktum bezt. Dagverðið
væri ákveðið af samtökum útgerð-
armanna og kaupmanna, sem yrðu
að leggja fram tryggingu fyrir fisk-
kaupum áður en þeir gætu hafíð
kaup. Þennan dag hefðu verið til
sölu 47 lestir úr þremur fiskiskipum
og á töflu í sölusalnum hefði afli
hvers skips verið skráður eftir teg-
undum með krít á töflu. Kaupendur
hefðu svo boðið í ákveðið magn úr
hveiju skipi fyrir sig. Ef þeim litist
svo ekki á fiskinn, sem þeir hefðu
skráð sig fyrir, þegar búið væri að
skipa honum upp, gætu þeir gert
við hann athugasemdir, en yrðu þó
að taka helming þess magns, sem
þeir hefðu ætlað sér að kaupa.
Verðið væri síðan meðaltal dag-
verðsins.
Það var Coldwater sem sá um
söluna á þessum fiski og ákveðið
var að láta hann allan til eins
kaupanda. Coldwater kannaði
meðal annars gæði fisksins og hvort
þetta væri fysilegur kostur. Gylfi
sagði, að niðurstaðan hefði orðið
sú, að vel kæmi til greina að senda
ýsu, flatfisk og karfa vestur um
haf með þessum hætti, en þorskur
væri hæpinn svo og aðrar fiskteg-
undir. Bezt væri að senda lítið í
einu, einn til tvo gáma, og virtist
Hofsjökull henta vel til flutning-
anna, en hann færi að meðaltali
eina ferð í mánuði. Fiskurinn yrði
að vera alveg nýr, þegar hann færi
að heiman og vel frá honum gengið
því kaupendur þama væru fljótir
að kippa að sér höndunum, væri
gæðum að einhveiju leyti ábótavant
og slíkt hefði að sjálfsögðu slæm
áhrif. Líklega væri heppilegast að
dreifa fiskinum beint til stórmark-
aða, væri þess nokkur kostur, en í
slíkum verzlunum væri útsöluverð
á ýsu til dæmis allt að 460 krónur
fyrir hvert kíló af flökum.
Norðurlandaþingið í marz:
Danskur þingmaður spyr
um hvalveiðar Islendinga
DANSKI sósialistinn Margrete Auken hefur ákveðið að leggja fram
fyrirspurn á Norðurlandaþingi í byijun marz um hvalveiðar íslend-
inga í vísindaskyni. Telur hún þær ekki samræmast almenningsáliti
og samþykktum alþjóða hvalveiðiráðsins og hefur vegna þessa sent
Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra spurningar, sem hún
óskar svara við á þinginu.
Halldór Ásgrímsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sér
hefðu borizt þessar spumingar, sem
sendar hefðu verið ríkisstjóminni.
Þetta mál væri því komið inn á
þingið og búast mætti við einhveij-
um umræðum um það. Hann sagði
spumingar hennar að mestu leyti
byggðar á vanþekkingu og vera
keimlíkar áróðri ýmissa náttúru-
vemdar samtaka. Hún spyrði á þá
leið hvort ísland myndi hætta and-
spyrnu sinni gegn alþjóðlegri sam-
vinnu umhverfísvemdarfólks og
endurskoða hinar svokölluðu vís-
indaveiðar sínar, sem að hluta til
væru í því skyni að fara á bak við
markmið alþjóða hvalveiðiráðsins
um veiðar í vísindaskyni. Þessar
fyrirhugðu veiðar væru til að grafa
undan hvalveiðibanninu, sem sam-
þykkt hefði verið með meirihluta
og án mótmæla íslendinga.
Halldór sagði, að í þessum spum-
ingum væri sama vanþekkingin og
útúrsnúningamir og kæmi fram
hjá mörgum náttúrvemdarmönnum
og augljóslega þekki danski þing-
maðurinn ekki samþykktir alþjóða
hvalveiðiráðsins.
UTSALAN
okkar byrjar á morgun 20. febrúar
Stendur
aðeins í nokkra daga
Reykjavíkurvegi 66
222, Hafnarfjörður
Sími 53900