Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 56
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
-t
Alsírverkefniö:
Arnarflug trygg-
ir sér leigu á
~átta flugvélum
ARNAKFLUG hf. hefur tryggt sér rétt á leigu á átta DC-8-flugvélum
ef félagið nær samningum við Air Algerie um pílagrimaflug og
áætlunarflug. Félagið bauð í þetta verkefni ásamt 25 öðrum flug-
félögum, þar á meðal Flugleiðum, og Agnar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Araarflugs sagði í gærkvöldi að ákveðið hefði verið
að þeir og fulltrúar Air Algerie hittist næstkomandi sunnudag.
Agnar Friðriksson sagði að
samkvæmt útboðsgögnum væri um
að ræða flutning á 25.000 pflagrím-
um frá Alsír til Saudi-Arabíu og til
baka aftur. Fjórar flugvélar eiga
að vera í þessum flutningum. Þá
er jafnframt um áætlunarflug að
raeða fyrir §órar vélar í viðbót.
.Útboðslýsingin gerir ráð fyrir að
verðmæti samningsins sé um 650
milljónir fslenskra króna.
Þegar Agnar var spurður um það
hvort Alsírmenn hefðu ekki þegar
gert samning við Flugleiðir, eins
og greint var frá í Morgunblaðinu
í gær, sagði hann að í skeyti frá
Air Algerie kæmi fram að félagið
hefði ekki gert og hyggðist ekki
gera neina samninga að svo komnu
máli. Þá sagði Agnar að ekki gæti
verið um annan samning að ræða
við Alsírmenn en um pflagrímaflug-
ið og áætlunarflugið og um það
hefðu þeir ekki samið enn.
Amarflug gerir ráð fyrir að veru-
legur hagnaður verði af samningn-
um við Air Algerie, ef af verður.
Að sögn Agnars allt að 70 milljónir
króna hagnaður. Á síðasta ári var
hagnaður af pflagrímaflugi félags-
ins nálagt 45 milljónum króna.
Feðgamir Geir Sveinsson og Sveinn Björasson á heimili sínu í gær.
Takmarki náð
„Ég setti mér það takmark í upphafi að komast í landsliðshópinn sem
fer til Sviss svo mér létti óneitanlega mikið þegar mér var tilkynnt
að ég færi með,“ sagði Geir Sveinsson, sem í gær var valinn í íslenska
handknattleikslandsliðið. Hann er ásamt Jakobi Sigurðssyni yngsti
leikmaður liðsins, aðeins 22 ára.
Geir hefur tekið sér frí frá háskólanámi í vetur og einbeitt sér að
handknattleik í þeim tilgangi að ná landsliðssæti. Hann á reyndar
ekki langt að sækja íþróttaáhugann; faðir hans er Sveinn Bjömsson,
forseti íþróttasambands íslands.
Sjá nánar um íslenska landsliðshópinn á bls. 55.
Skríður á viðræðum ASÍ og vinnuveitenda:
Nýtt tilboð frá VSI um
yfir 10% kauphækkun
— hugmyndir um verulega aukin framlög ríkisins komu viðræðum í gang á ný
SEINT í gærkvöldi var búist við
að eftir fyrirhugaðan næturfund
samninganefnda ASÍ og vinnu-
veitenda ætti að vera ljóst hvort
samningar takist á næstu dögum.
Viðræðumar tóku fjörkipp í
"•fyrrinótt eftir að samkomulag
varð í samninganefnd ASÍ um
að setja fram óformlegar hug-
myndir í nokkrum Iiðum við
samninganefnd VSÍ og VMS um
að reynt yrði að fá ríkisstjómina
til að eiga stærri hlut í væntan-
legum samningum. Síðar um
nóttina bárust jákvæð viðbrögð
frá vinnuveitendum og hafa þeir
nú boðið, samkvæmt upplýsing-
um sem Morgunblaðið hefur
aflað sér, 10—12% kauphækkun
á þessu ári. Það tilboð gerir ráð
fyrir að kaupmáttur fyrra árs
haldist á þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hljóðar breytt tilboð
VSI — sem í gærkvöld var enn
óformlegt og háð fyrirvörum um
frekari aðgerðir af hálfu ríkisstjóm-
arinnar — upp á 5% launahækkun
frá undirskrift samnings, 3% hækk-
un 1. júní og 2% hækkun 1. septem-
ber. Jafnframt munu þeir fúsir að
semja um aldursflokkahækkanir.
sem gætu hækkað laun um 2-3%
til viðbótar, meira eða minna í
einstökum tilfellum. Fyrra tilboð
þeirra hljóðaði upp á 3,5% hækkun
við undirskrift samnings og önnur
3% 1. júní.
Mikill tími fór í gær í að ræða
kauptryggingarákvæði. Af hálfu
VSI er gerð krafa um að laun hækki
jafnt framfærsluvísitölu en atvinnu-
rekendur hafa sett fram hugmynd
um að þriggja manna gerðardómur
skeri úr um hvemig bregðast eigi
við hækkunum á vísitölunni, sem
fari fram úr einu stigi eða svo.
Reiknimeistarar ASÍ munu telja,
Eitt mjólkurglas á dag
„AUKNING mjólkurneyslu um
eitt mjólkurglas á dag á hvern
íslending mundi duga til að eyða
allri umframframleiðslu síðast-
liðins árs,“ sagði María Hauks-
dóttir í Geirakoti á heitum fundi
kúabænda á Suðurlandi i Njáls-
búð í fyrrakvöld til að ræða
mjólkurkvóta.
Á myndinni er María með teikn-
ingar sem hún afhenti Félagi kúa-
bænda á fundinum. Við hlið hennar
situr Sveinn Sigurmundsson ráðu-
nautur. Lengst til vinstri á mynd-
inni er Guðmundur Stefánsson
hagfræðingur Stéttarsambands
bænda.
Sjá frásögn af fundinum á
blaðsíðu 22, viðtal við Jón
Helgason landbúnaðarráð-
herra á blaðsíðu 16—17 og
frá sögn af umræðum á Al-
þingi á blaðsíðu 32.
að með frekari aðgerðum af hálfu
ríkisstjómarinnar megi jafnvel
koma verðbólgu niður í 7%, eða
neðar en ríkisstjómin hafði stefnt
að.
Af hálfu vinnuveitenda er lögð á
það þung áhersla, að ef samkomu-
lag eigi að nást á þessum nótum,
þá verði að koma til ákveðnar opin-
berar ráðstafanir til hjálpar físk-
vinnslu (frystihúsum) og ullariðn-
aði, sem ekki er ágreiningur um
að standi illa. Þessum greinum
getur reynst mjög erfitt að starfa
við bundið gengi og því mun vera
hugmynd vinnuveitenda, sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins, að
leita eftir endurgreiðslum eða ríkis-
framlögum upp á 200—300 milljón-
ir króna.
Enginn hefur viljað nefna
ákveðnar tölur um skattaiækkanir
umfram þær 450 milljónir, sem rík-
isstjómin hefur nefnt að mætti
skera af tekjuskatti og útsvari.
Báðir leggja áherslu á, að fyrirsjá-
anleg búvöruverðshækkun um
næstu mánaðamót (3% giskaði einn
samningamanna á) mætti ekki
koma til framkvæmda undir nokkr-
um kringumstæðum. ASÍ hefur
einnig sett fram hugmyndir um
lækkun aðflutningsgjalda og afnám
eða verulega Iækkun á verðjöfnun-
argjaldi á rafmagn. Rafmagn til
heimilisnota hækkaði um 14% frá
1. janúar en ríkisstjómin hefur
heitið að beita sér fyrir 10% lækkun
þess. Með því að fella niður 16%
verðjöfnunargjald og söluskatt af
því gjaldi telja samningamenn ASÍ
að hægt verði að lækka raforkuverð
til almennings um allt að 15% frá
því sem var fyrir 1. janúar.
Sjá bls. 2: Hljóta líka að ræða
tekjuöflun ríkissjóðs. Ummæli
fjármálaráðherra, forsætis-
ráðherra og aðila ASÍ og VSÍ.
Nýræktirnar grænka
undir Eyjafjöllum:
Bændur farn-
ir að huga að
niðursetningu
kartaflna
— Veturinn eins og gömlu
mennirnir spáðu
Holtí undir Eyjafjöllum, 18. febrúar.
SÉRSTÖK veðurblíða hefur ver-
ið hér það sem af er vetri. Klaki
er fyrir nokkru farinn úr jörðu.
Sumir bændur eru farnir að tæta
garða og jafnvel að huga að því
að setja niður kartöflur. Þá era
nýræktir faraar að grænka.
Þetta er annar veturinn í röð sem
veðrið hefur verið með þeim hætti
að Eyfellingar hafa varla orðið varir
við veturinn. Gamlir bændur halda
þeim aldna sið að lesa í gamir á
haustin. Einn spáði því í haust að
enginn vetur yrði, nema hvað stutt
kuldakast yrði í kringum áramótin
og annað um sumarmálin. Kulda-
kastið um áramótin kom eins og
hann spáði, en nú á eftir að sjást
hvort einnig komi kuldakast um
sumarmálin.
Vegna mikilla rigninga á milli
hefur verið óvenju mikið um skriðu-
föll úr Fjöllunum. Til dæmis féll
skriða við bæinn Núp og hrundi
stórgrýti að fjósi og íbúðarhúsum.
Fréttaritari
Kópavogshæli:
Maður
brenndist
VISTMAÐUR á Kópavogs-
hæli var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans eftir að
brenndist á hælinu í gær-
kvöldi um klukkan 21.20.
Talið er að kviknað hafí í
fötum mannsins út frá vindl-
ingi, en eldurinn var slökktur
áður en hann barst í hús og
innanstokksmuni. Brenndist
hann á bringu, alvarlega að
því er talið var í fyrstu, en
ekki tókst að afla nánari upp-
lýsinga um iíðan hans í gær-
kvöldi.
Vörur frá S-Afríku:
Bann Dags-
brúnar er
ólöglegt
FÉLAGSDÓMUR hefur dæmt
ólöglegt bann Dagsbrúnar á
afgreiðslu vara til eða frá Suð-
ur-Afríku. Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Dagsbrún-
ar sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að líklegast myndi
Dagsbrún beita verkfalli gegn
uppskipun og afgreiðslu á vörum
frá S-Afríku.
Félagsdóm skipa: Ólafur St.
Sigurðsson formaður, Gunnlaugur
Briem yfírsakadómari, Björn
Helgason, hæstaréttarritari, Ámi
Guðjónsson hæstaréttarlögmaður
og Gunnar Guðmundsson héraðs-
dómslögmaður.
Sjá frásögn á bls. 33.