Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986 KSF 50 ára - hátíðarmessa í Neskirkju í dag Þann 17. júní nk. heldur Kristi- legt stúdentafélag (KSF) upp á 50 ára afmæli sitt. I tilefni afmælisins verður efnt til hátíðarmessu í Nes- kirkju kl. 14 sama dag. Upp úr 1930 kynntust nokkrir ungir íslendingar kristilegu stúd- entastarfí í Noregi og gengust þeir fyrir því að KSF var stofnað á 25 ára afmæli Háskóla íslands, þann 17. júní 1936. Sem fyrr segir verður messa í Neskirkju við Hagatorg í tilefni afmælisins og eftir messuna verða kaffíveitingar í Félagsstofnun stúd- enta við Hringbraut fram eftir degi, og eru allir velkomnir. Q /tmef a HOLLENSK HN IFAPÖR 'V* GÆDASTÁL - SPI-dlLSl.ír II) Munstw: PERLA Munstur BLÓM 10 (iERDlR AF l 'ÖNDUDl M ()(, FALI.lidl \l IINÍFAPÖRl M - I FRDID FR FINST \Kl F(IA UAdST. FI l . Dæmi: Hnífur, gaffall, skcid. Kr. 500,- 6 manna scit, 24 h/utir: Kr. 4. 740,- Þessi hnífapör — eins og svo margt annað vandað og fallegt — færð þú aðeins hjá okkur. ITJÍIi- l.IUSIVII Lauqaveyi 1í> simi 14320 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Spánn: Kosningabaráttan hefur verið daufleg en sósíal- istum er spáð sigrinum Baráttan fyrir þingkosningarnar á Spáni þann 22. júní næst- komandi er nú vel hálfnuð og hefur verið ekki einasta róleg, heldur afskaplega dauf og litlaus að sögn þeirra sem með henni hafa fylgst. Astæðan gæti verið — að því er stjómmálamenn segja — að kosningaþreytu gæti eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Atlantshafsbandalagið í marzmánuði síðastliðnum. En flestir hafa aðra skýringu á áhugaleysi kjósenda: það sé nánast óhugsandi að vekja áhuga þeirra einmitt nú, þvi að þeir sitji allir sem límdir við sjónvarpstækin að fylgjast með Heimsmeistarakeppninni í knattspymu í Mexíko. Spánveijar era öldungis ekki einir um að einbeita sér að fótboltanum um þessar mundir eins og við ættum manna bezt að vita. Og að margra dómi var sú ákvörðun röng að ákveða kosningar nú. Stjórnmálamennirnir era farair að viður- kenna að þeim tekst ekki að hafa betur i viðureigninni við fót- boltahetjumar og háttvirtir kjósendur láta það einfaldlega ógert að mæta á stjórnmálafundi og þeir slökkva á sjónvarpinu þegar umræðuþættir hafa verið og nota tima unz næsta útsending hefst frá Mexíko tíl að velta vöngum yfir því hvernig leikirnir fari sem verði sýndir það kvöldið. Felipe Gonzales forsætisráð- herra. Fréttaskýrendur segja því að þátttaka verði mjög lítil ef svo fer fram sem horfír. A hinn bóginn virðast þeir ekki telja neinn vafa leika á því að Felipe Gonzales forsætisráðherra og Sósíalista- flokkur hans fari með sigur af hólmi. Pólitískir keppinautar taka í sama streng en hvetja kjósendur til að Sósíalistaflokknum sé veitt meira aðhald. Sósíalistar hafa nú 202 af 350 þingmönnum. Flokkamir til vinstri við sósíal- ista eru litlu meira traustvekjandi; Samtök marxista, friðarsinna og annarra afla sem hafa sameinast og hafa á stefnuskránni baráttu gegn aðild Spánar að Atlantshafs- bandalaginu. Þessi samtök kalla sig Vinstri einingu. Lögum og lofum innan þessara samtaka ræður spánski kommúnistaflokk- urinn. Kommúnistar eru samt sem áður skiptir í ýmis flokksbrot. Eitt þeirra er undir forystu hinnar öldnu kempu, Santiago Cardillo, og stendur það brot utan ofan- nefndrar samsteypu. Kommúnist- ar heita því að Spánvetjar fari úr Atlantshafsbandalaginu ef þeir komast til áhrifa. Um þessar mundir er ekki sennilegt að Atl- antshafsbandalagsþátttaka skipti kjósendur meginmáli og áhugi á því efni ekki mikill að dómi frétta- manna sem hvað glöggst þykjast vita. Felipe Gonzales forsætisráð- herra hét því fyrir síðustu kosn- ingar að hann og ríkisstjóm, sem hann myndi stýra, ætluðu að beita sér af öllum mætti fyrir því að draga úr atvinnuleysi á Spáni og yrði það algert forgangsverkefni. Þetta hefur ekki tekizt og nú munu um tuttugu prósent at- vinnufærra manna vera atvinnu- lausir. Gonzales hefur viðurkennt þetta í kosningabaráttunni og forðast að gefa jafn eindregnar yfírlýsingar um þetta nú. Hann segist þó benda á að verðbólgan hafi minnkað og viðskiptajöfnuð- urinn batnað. Efnahagsmálin séu almennt í þokkalegu lagi og hag- vöxtur sé að aukast verulega. Það hefur verið auðvelt fyrir stjómar- andstöðuflokkana að gagnrýna ýmislegt sem stjóminni hefur ekki tekizt að standa við á kjörtímabil- inu og þá er náttúrlega fyrst og fremst átt við atvinnuleysisdraug- inn. A hinn bóginn hefur Gonzales slegið vopnin nokkuð úr höndum andstæðinga sinna með hrein- skilnislegum ræðum sínum um hvað hafí tekizt og hvað ekki Samkvæmt spám er álitið að þeir muni fá ámóta fylgi nú. Það kynni þó að breytast ef Þjóðemis- sinnaflokkurinn í Baskalandi vinnur mikið á eins og útlit er fyrir sem stendur. Fréttaskýrendur segja líka að ekki sé nokkmm vafa bundið að Spánverjar treysti Felipe Gonza- les forsætisráðherra öðmm betur til að halda um stjómvölinn á næstu ámm. Forsætisráðherrann nýtur óumdeilanlegra vinsælda og trausts. Það var mikill persónu- legur sigur fyrir hann þegar úrslit kosninganna um Atlantshafs- bandalagið lágu fyrir. En fieira á sinn hátt i hversu staða sósialista er sterk en persónulegar vinsældir Gonzales. Sundmngin innan and- stöðuflokkanna er ekki til þess fallin að beina áhuga kjósenda til þeirra. Meginandstaðan nú kemur að líkindum frá Alþýðubandalag- inu, þriggjaíhalds flokka sem lúta forystu Manuels Fraga. Auk þess að vera sjálfum sér sundurþykkir innan bandalagsins í afstöðu til ýmissa þátta alþjóðamála horfíst bandalagið í augu við vaxandi andstöðu og gagnrýni sem kemur frá tveimur mið og hægri flokk- um. Adolfo Suarez fyrrverandi for- sætisráðherra freistar þess að ná aftur pólitískri fótfestu. Sam- kvæmt skoðanakönnunum mun hann fá nokkra þingmenn kjöma. Þrátt fyrir allt nýtur Suarez um margt virðingar fyrir að leiða Spán á viðkvæmu tímabili eftir að Franco féll frá. Suarez er sigur- reifur og segist ætla að verða næsti forsætisráðherra Spánar. Miðflokkamir og ýmsir fylkis- flokkar einkum í Baskalandi gætu ráðið verulega framvindu mála, sérstakiega ef Sóslíalistaflokkn- um tekst ekki að fá meirihluta og verður að leita eftir samvinnu við smáflokka. Fyrirhugað var að halda þessar kosningar í október, en í kjölfar þess sigurs sem Gonzales og sós- íalistar unnu í marzmánuði ákvað hann að flýta kosningunum. Og svo framarlega sem kjósendur nást frá sjónvarpinu þann 22. júní er varla áhorfsmál hveijir verði sigurvegar í þingkosningunum á Spáni. (Heimildin NYT, Economist, o.fl.) Knattspyrnumennirnir hafa sigrað stjóramálamennina, en kosningaþátttakan gæti aukizt ef Spánn kemst ekki í átta iiða úrslitin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.