Morgunblaðið - 21.08.1986, Qupperneq 27
Ö8ei T8Ú0Á .IS flUOAOUTMMlT .aiaAiaH'JOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
0S
27
Ný þraut eftir höfund
„töfrateningsins “
Enn flóknari en sú fyrri!
ENN KANN að finnast fólk sem rembist við að finna lausnina á
„töfrateningi" Rubiks, en þó hafa Iíklega flestir komið honum
fyrir á góðum stað. Emo Rubik, sá er átti hugmyndina að hon-
um, er þó síður en svo sestur í helgan stein, þó svo hann hafi
svo sannarlega efni á þvi. Nú hefur hann hannað nýtt leikfang,
ef svo má að orði komast, því flestir þeir sem fengist hafa við
„töfrateninginn“ em vafalítið sammála um að glíman við hann
sé síst leikur einn.
„Töfrateningur" Rubiks byggð-
ist á 26 minni teningum, sem
voru samtengdir, en var hægt að
snúa lárétt og lóðrétt. Fletir þeirra
voru í sex skærum litum, en gald-
urinn var að láta hverja hlið stóra
teningsins vera í sama lit. Stærð-
fræðingar reiknuðu út að hægt
væri að raða teningnum saman á
43.252.003.274.489.856.000
vegu. Skyldi því engan undra þó
erfítt væri að koma honum heim
og saman.
Vegna vinsælda teningsins er
Rubik prófessor nú einn ríkasti
og um leið vinsælasti maður
heimalands síns, Ungverjalands.
Hinn upprunalegi teningur seldist
í um 100 milljónum eintaka, en
talið er að a.m.k. 50 milljónir eft-
irlíkinga hafí verið seldar. Þa má
nefna útgáfu fjölda bóka, sem
ijölluðu um það eitt hvernig hægt
væri að leysa þrautina.
Rubik, sem er 42 ára gamall,
segist ekki hugsá um það eitt að
græða peninga, en hann er einn
fárra milljónamæringa í
Ungvetjalandi. í Ungveijalandi
er máttur framtaksseminnar og
einkaframtaksins viðurkenndur,
þrátt fyrir að landið sé að öllu
leyti leppríki Sovétríkjanna. Rubik
á þijár bifreiðir, þar af einn
Mereedes Benz. Hann hyggst enn-
fremur flytja inn í gamalt hús,
sem hann hefur látið gera upp í
besta hverfí Búdapest. Hann var-
ar sig þó á því að sýna auð sinn
of mikið og lét því koma fyrir
sundlaug í kjallaranum, en ekki
utanhúss.
Frægð hans eykst að sama
skapi og auðlegð. Bráðlega mun
hann koma fram í auglýsingum
víða um heim, til þess að kynna
hina nýju uppfinningu sína, sem
hann segir að sé flóknari,
skemmtilegri og töluvert list-
rænni.
Meðal leikfangaframleiðenda
er nokkur eftirvænting eftir hinni
nýju þraut, en þeir telja að hún
muni hleypa nýju lífí í iðnaðinn,
sem hefur verið í lægð að undan-
förnu. Fyrirtækið Matchbox, sem
er þekktast hér á landi fyrir leik-
fangabíla sína, mun framleiða
hina nýju þraut og dreifa henni
um víða veröld. Það hefur þegar
ráðið 2.000 verkamenn í Kína til
að framleiða þrautina og er gert
ráð fyrir að setja hana á markað
í haust, en vitaskuld mun mest
Erno Rubik sýnir hér stoltur ýmsa möguleika hinnar nýju þraut-
ar sinnar.
seljast fyrir jólin. Talið er að hún
muni kosta sem svarar 400
íslenskum krónum út úr búð í
Bandaríkjunum, sem er svipað
verð og var á teningnum góða.
Nýja þrautin, sem nefnist á
ensku „Rubik’s Magic“, eða Rub-
iksgaldur, sé því snarað á
íslensku, er handhæg þraut, sem
byggist upp á átta gegnsæum
plastferningum, sem hægt er að
snúa á alla kanta. Á femingunum
eru þrír ótengdir hringir, sem era
í öllum regnbogans litum á svört-
um granni. Með því að færa
ferningana til er hægt að sam-
tengja hringina og það er þrautin.
Rubik prófessor segir að meðan
lausnarinnar er leitað komi hin
fegurstu form í ljós og að það sé
hægt að skemmta sér við það eitt.
Það er ef til vill eins gott, því sé
þessi þraut eitthvað í líkingu við
þá fyrri (eða þyngri), mun víst
ekki veita af þeirri sárabót!
Byggt á grein The New York Times.
Frakkland:
Nýtt ráð-
herra-
embætti
París, AP.
JAQUES CHIRAC, forsætisráð-
herra Frakklands, skipaði á
þriðjudag Bernard Bosson, 38
ára gamlan lögmann, Evrópu-
málaráðherra og er það nýtt
ráðherraembætti í Frakklandi.
Einnig gerði Chirac nokkrar aðr-
ar minni háttar breytingar á
stjórn sinni.
Bosson hefur gegnt embætti ráð-
herra, sem fer með málefni bæjar-
og sveitarstjórna, frá því að hægri
menn komust til valda á þjóðþinginu
í kosningunum í mars.
Embættið, sem Bosson fær nú,
hefur verið til í einni eða annarri
mynd í nokkur ár, en í stjóminni,
sem Chirac myndaði 20. mars var
enginn sérfræðingur um málefni
Evrópu. Þeim málum sinnti Jean-
Bernard Raimond, utanríkisráð-
herra.
Boeing 747-400:
British Airways
kaupir 28 vélar
BREZKA flugfélagið British Air-
ways hefur gert samninga við
Boeing-flugvélaverksmiðjurnar
um smíði 28 farþegaflugvéla af
gerðinni Boeing 747-400, en þær
bera 412 farþega á þremur far-
rýmum. Kaupsamningurinn er sá
stærsti sem gerður hefur verið
í sögu flugsins, en hann er að
jafnvirði 170 milljarða ísl. króna.
British Airways gerði bindandi
kaupsamning um 16 þotur og er
kaupverð þeirra um 2,3 milljarðar
dollara.
Þoturnar verða knúnar áfram af
Rolls Royce-hreyflum, sem smíðaðir
era í Bretlandi. Fyrsta flugvélin
verður afhent félaginu á næsta ári.
Fyrsta flugvélin þessarar teg-
undar var seld í nóvember sl. Síðan
hafa verið gerðir bindandi kaup-
samningar um 53 þotur af þessu
tagi og flugfélög hafa tryggt sér
forkaupsrétt að 34 til viðbótar.
fierra
GARÐURINN
AÐALSTFÆTI9 S: 122 34