Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 Góóan daginn! Afmæliskveðja: Árni Jónas- son erindreki Þar bjuggu þau til vorsins 1945, en þá hófst nýr kapítuli í ævi þeirra. Ami var þá ráðinn ráðsmaður við nýstofnað skólabú í Skógum undir Eyjaijöllum. Bú þetta var stofnað af Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslu, en sýslumar höfðu um þessar mundir sameinast um að byggja Héraðsskóla (gagnfræða- skóla) að Skógum. Byggingafram- kvæmdir við skólann vom þá hafnar. Jafnframt þurfti að byggja ný húsakynni fyrir skólabúið. Um það efni hafði Ami forystu. Héraðsskólinn í Skógum var rek- inn af sýslunum sem byggðu hann með sérstakri aðstoð frá ríkinu eins og alþýðuskólamir almennt nutu skv. sérstakri löggjöf þar um. Starf skólans hófst haustið 1949. Skólabúinu var ætlað það hlut- verk að leggja skólaheimilinu til matvæli, kjöt, mjólk og garðávexti. í skólanum voru á fyrstu ámm hans á annaðhundrað nemendur og margt starfsfólk. Um eða yfir 150 manns vom þar að jafnaði fyrstu starfsvetur skólans. Það þurfti því fyrirhyggju til svo fullnægt væri þörfum svo fjölmenns heimilis allan veturinn fyrir búvömr. Búið var blandað bú og framleiddi bæði kindakjöt og mjólk. Ama fórst búsljómin vel úr hendi. Hann fóðraði búféð vel og náði miklum afurðum. Hann flutti með sér áhrif af búmenningu Þing- eyinga og hafði mikil áhrif á umhverfi sitt til bættra búskapar- hátta. Fjárskipti fóm fram á þessu svæði 1952. Ami var einn af fjár- kaupamönnunum sem sóttu fé fyrir byggðalagið vestur að ísaQarðar- djúpi. Hann beitti sér fyrir kyn- bótum flárins og náði mikilsverðum árangri í því starfi og fékk miklar afurðir af sauðfénu og meiri afurð- ir en flestir aðrir bændur í Eyja- Qallasveitum. Hann gekkst fyrir stofnun sauðfjárræktarfélags í A-Eyjafjallahreppi og var formaður þess. Félagið hafði mikil áhrif til umbóta í ræktun sauðfjár á félags- svaeðinu. A þessum ámm ákvað Skógrækt- arsljóri ríkisins að friða fyrir sumarbeit afréttarland. A-Eyfell- inga, Goðaland og Þórsmerkur- svæðið. Þá varð þröngt um sauðfé Eyfellinga og varð nokkurt þras um þessa ákvörðun. Skógræktarstjóri sagði bændunum að þeir ættu að rækta Skógasand til beitar fyrir féð. Gerð var tilraun með það, en féð þreifst illa á sandinum m.a. vegna vatnsskorts en einnig vegna einhæfni gróðursins og þess að féð smitaðist af ormaveiki í þeim þröngu högum. Má vera að fleira hafi komið til. Túnið í Skógum var á þessum tíma fremur lítið og nær ekkert viðurkennt ræktunarland var í ná- grenninu. Til þess að búreksturinn gæti náð tilgangi sínum þurfti að stækka túnið og auka töðufenginn. Hinn svarti Skógasandur var ekki árennilegur til túnræktar. Stofnað var sérstakt félag bænda í A-EyjaQallasveit til að vinna að ræktun sandsins, friða hann og girða. Ami varð formaður þess fé- lags frá upphafi og alla tíð, á meðan hann var í Skógum. Girtir vom nokkur hundmð hektarar lands. Tún var ræktað á um 300 ha. Þessi aðgerð bjargaði mörgum bæjum í sveitinni frá því að fara úr byggð og skólabúið fékk næga töðu af þessu túni. Túnræktin skilaði góð- um árangri, þó beit á sandinum gæfist illa. Ræktun sandsins var afreksverk á sinum tíma miðað við þá reynslu sem þá var til um rækt- un á sandi. Skólabúið hafði sláturleyfi í nokkur ár og var slátrað þar heima því fé sem þurfti til að skóladag- Hinn 26. september varð Árni Jónasson erindreki Stéttarsam- bands bænda sjötugur. Af því tilefni sendi ég honum þessa sfðbúnu afmæliskveðju. Ámi er fæddur að Grænavatni í Mývatnssveit og var elstur fimm bama hjónanna Jónasar Helgason- ar bónda og söngstjóra og Hólm- fríðar Þórðardóttur konu hans frá Svartárkoti. Systkini Áma em: Þóroddur læknir á Akureyri, Helgi bóndi á Grænavatni og tvíburasystumar Kristfn skrifstofumaður í Kísiliðj- unni og Jakobfna skólastarfsmaður á Hvanneyri. Ámi ólst upp í hópi systkina sinna á Grænavatni í hinni undur- fögm Mývatnssveit og vann að búi foreldra sinna eins og venja var í sveitum á þeim tíma. Þá var eins og nú var fjölmenni í Mývatnssveit og félagslíf §öl- skrúðugt. Faðir Áma var lengi leiðandi í sönglífi sveitarinnar. Hann var einnig deildarstjóri Kaupfél. Þing- eyinga í sveitinni og kom víðar við í félagsmálum byggðarlagsins. Heimilið á Grænavatni var þýð- ingarmikill hlekkur f félags- og menningarlífi sveitarinnar. Ámi komst ungur í hringiðu þess mannlífs sem mótaði lífsviðhorf hans. Ami fór ásamt Þóroddi bróður sfnum á kreppuárunum f gagn- fræðaskólann á Akureyri og stundaði nám þar í tvo vetur. Þá var víða þröngt í búi og ungt fólk átti ekki greiða götu að langskóla- námi sökum fjárskorts. Báðir vom þeir bræður afbragðs námsmenn, en ekki vom tök á því að báðir fæm í framhaldsnám. Því réðist það svo að Þóroddur hélt áfram námi í menntaskóla og síðar í háskóla, en Ámi hvarf aftur heim að Grænavatni og vann að búi for- eldra sinna áfram svo sem verið hafði. Ámi var mjög búhneigður og hafði sérstakan áhuga bæði á rækt- un lands og ræktun sauðfjár. Sá áhugi kom síðar fram í afrekum hans á þessum sviðum báðum. Ámi kvæntist 11. júní 1941 myndarkonu, Jóhönnu Ingvarsdótt- ur frá Undirvegg í Kelduhverfí. Jóhanna hafði stundað nám við húsmæðraskólann á ísafirði einn vetur. Hún er mikil hannyrðakona. Hún ræktar margt í garði sínum sem er til fyrirmyndar og leggur mikla vinnu á sig fyrir hann. Ungu hjónin hófu búskap á Græna- vatni f sambýli við foreldra Áma. f KAUPMENN-VERSLUNARSTJÓRAR EXTIR IKUKWAR BANANAR DEL MONTE - APPELSÍNUR USA - MANDARÍNUR - RAUP DELEC- IUS EPU USA - EPU RAUÐ FRÖNSK - EPU GUL FRÖNSK - EPU GRANNY SMITH - SÍTRÓNUR URUGUAY - GREIPFRUIT RAUTT - GREIPFRUtT HVÍTT - MELÓNUR GULAR - VATNSMELÓNUR - VÍBER RAUÐ - VÍNBER BLÁ - VÍNBER GRÆN - PERUR - PLÓMUR - AVOCADO - ANANAS - KIWI - KÓKOSHNETUR - UME - PASSION FRUÍT - DÖÐLUR - HNETUR i SKEL KARTÖFLUR OQ ÍÚRVAU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.