Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 HÁSKÓLI ÍSLANDS Saga stúdentafélaga samofut sögu Háskóla íslands FÉLAGSLÍF er mikilvægnr þáttur í starfsemi skóla og menntastofnana enda öðlast menn ekki andlegan þroska með bókalestri einum saman. Þótt óneitanlega hvíli nokkur alvara yfir öllu háskólanámi þrífst líflegt og fjölskníðugt félagslíf innan veggja Háskóla Islands. Stofnuð hafa verið nemendafélög við sérhverja deild Háskólans og er þeim ætlað að standa vörð um hagsmuni nemenda auk þess sem þau eru vettvangur fræðilegra umræðna.Nemendur í ákveðnum deildum hafa hins vegar mikinn áhuga á að gera verksvið deildarfélaganna víðtækara. Nú þegar getur almenningur sótt þangað þjónustu og ýmis konar ráðgjöf og útgáfa fræðirita er með líflegra móti. Hér er því að verða á nokkur breyting því hingað til hafa félög þessi ekki verið sérlega áberandi. Stærð þeirra er eðlilega mjög mismunandi svo og framkvæmdahugur félagsmanna. Kröftug félagastarfsemi innan veggja Háskólans Stúdentar hafa löngum haf afskipti af þjóðmálum. Myndin er frá útifundi þeirra á Austurvelli 1. desember. HHáskóIastúdentar hafa jafnan haft afskipti af þjóðmálum og eru íjög- ur pólitísk félög nú starfandi innan Há- skóla íslands. Stúdentaráð er hið sameiginlega hagsmunafélag há- skólanema og er kosið til þess eftir listum, sem hinar pólitísku fylking- ar bjóða fram. Hagsmunabarátta íslenskra haákólanema tengist því pólitískum hræringum á hveijum tíma. Saga þessara félaga er samof- in sögu Háskólans og margir mætir menn hafa staðið í brjósti fylkingar íslenskra haskólanema. Pólitískt starf Stúdentar tóku snemma að skipt- ast í fylkingar eftir afstöðu til þjóðmála. Árið 1920 var Stúdenta- ráð Háskóla íslands stofnað sem sérstakt hagsmunafélag og varð Vilhjálmur Þ. Gíslason fyrsti for- maður þess. Kosning til Stúdenta- ráðs var í fyrstu óhlutbundin. Borgaralega sinnaðir menn virðast hafa verið í meirihluta þess fyrstu árin því árið 1930 stofnuðu nokkrir meðlimir Jafnaðarmannafélagsins Spörtu með sér óformleg samtök innan Háskólans. Þremur árum síðar var fyrsta pólitíska stúdenta- félagið, Félag róttækra háskóla- stúdenta, stofnað. Haustið 1933 var í fyrsta skipti kosið til Stúdentaráðs eftir listum. Andstæðingar rót- tækra nefndu sig „lýðræðissinna" og fóru þeir með sigur af hólmi. 1 janúarmánuði árið 1934 stofnuðu nokkrir þeirra félagið Academia og var yfírlýstur tilgangur þess m.a. sá að hamla gegn útbreiðslu og áhrifum kommúnismans innan Há- skólans. Academía varð ekki langlíft því innan þriggja vikna höfðu svonefndir „þjóðemissinnar" klofið sig frá félaginu og voru dag-, ar þess þá taldir. Þeir Academiu- menn létu ekki hugfallast og ákváðu að stofna nýtt félag sem berjast skyldi gegn öfgum jafnt til hægri sem vinstri. Vaka, félag lýð- ræðissinnaðra stúdenta, var stofnað í febrúarmánuði árið 1935 og var Jóhann Hafstein kjörinn formaður þess. Vaka hefur boðið fram í öllum kosningum frá árinu 1935. Róttæk- ir menn buðu fram undir ýmsum nöfnum allt fram til 1979 en þá var Félag vinstri manna stofnað. Ymsar fylkingar róttækra manna voru áberandi fram til 1970. Árið 1953 tók Þjóðvamarfélag stúdenta í fyrsta skipti þátt í kosningum og var sá félagsskapur lengi við lýði. Stúdentafélag lýðræðissinnaðra só- síalista bauð fram lista, ýmist eitt eða með öðmm, á fimmta og sjötta áratugnum og fékk jafnan einn eða fleiri fulltrúa kjöma til Stúdentar- áðs. Verðandi, félag róttækra stúdenta starfaði á ámnum 1968 til 1979. Þess má til gamans geta að árið 1950 buðu verkfræðinemar fram sérstakan lista og fengu einn mann kjörinn. Þessum ágæta hópi manna þótti greinilega ekki ástæða til að hafa frekari afskipti af stúdenta- pólitíkinni því þetta var í eina skiptið sem sá listi var boðinn fram. Þriðja aflið Allt frá árinu 1974 og fram til 1981 börðust Félag vinstri manna og Vaka ein um hylli stúdenta. Vinstri menn höfðu meirihluta í stúdentaráði allt fram til ársins 1981 en þá bauð Félag umbótasinn- aðra stúdenta fram í fyrsta skipti og myndaði meirihluta með Vöku. Tilgangurinn með stofnun Félags umbótasinna var sá að virkja stúd- enta til að vinna að hagsmunamál- um sínum óháð sjómmálaskoðun- um. Félagið hlaut tæp 30% atkvæða og var kjörsókn það árið óvenjulega mikil. Eftir kosningar til Stúdentaráðs í vor klofnuðu umbótasinnar í af- stöðu sinni til meirihlutasamstarfs við Vöku. Klofningshópurinn stofn- aði nýtt félag, Stígandi, og mynda þeir meirihluta ásamt Vöku. Stígandi á fjóra fulltrúa í Stúdenta- ráði en Vaka tólf en fulltrúar í ráðinu eru alls 3Ö. í Háskólaráði sitja fjórir fulltrúar námsmanna, tveir frá Félagi vinstri manna og tveir frá Vöku. Starfsemi pólitísku félaganna er umfangsmikil en hún er þó ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.