Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 Heitavatnsinntak á Korpúlfsstöðum gaf sig: Tugir listaverka stórskemmd- ust af sjóðheitri gufu og vatni Þorbjörg Pálsdóttir mynd- listarmaður hugar að nokkrum verka sinna í kjallara Korpúlfsstaða. LISTAVERK í geymslum Myndhöggvarafélagsins á Korpúlfsstöðum stórskemmdust um helgina þegar heitavatnsinntak í kjallara hússins gaf sig og sjóðheitt vatn sprautaðist út á gólf. Talið er að á þessu hafi gengið í tæpa tvo sólarhringa, frá aðfaranótt laugardags, fram yfir hádegi á sunnudag, en þá varð bilunarinnar vart. Yfir þrjátíu félagar eru í Myndhöggvarafélagi íslands og áttu þeir flestir myndir í geymslunni í kjallara Korpúlfsstaða, auk þess sem vinnustofa Sverr- is Ólafssonar myndlistamanns var í kjallaranum, vinnustofa Marteins Davíðssonar múrhleðslumanns og hjólageymsla lögreglunnar í Reykjavík. Listaverkin voru ekki tryggð og er ólíklegt að þau fáist bætt. Listakonan Rúrí kom fyrst í kjall- ara Korpúlfsstaða á sunnudaginn, en þar leigir Myndhöggvarafélagið af Reykjavíkurborg sem á Korpúlfs- staði. „Hér var heitara en í nokkru gufubaði" sagði hún um aðkomuna í samtali við Morgunblaðið. Þá var nokkurra sentimetra djúpt vatn á gólfinu og þétt vatnsgufa í kjallaran- um. Kallað var á lögreglu og slökkvilið sem dældi vatni úr kjallar- anum. Vatnið og hitinn höfðu þau áhrif á verk úr jámi og stáli að þau ryðg- uðu, og þau verk sem eru úr gipsi og asbesti sprungu og molnuðu nið- ur. Málning á myndverkum bólgnaði og fólksbíll í eigu Sverris Ólafssonar myndlistarmanns, sem verið var að vinna undir málningu, er nú með þéttri ryðhúð. í lofti kjallarans hafa myndast ótal örsmáir dropasteinar þar sem heit vatnsgufan hefur þést. Hræðilegt áfall Þorbjörg Pálsdóttir er einn þeirra Morgunblaðið/Einar Falur VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gœr: Við suðausturströnd landsins er 964 mílli- bara lægö sem þokast austnoröaustur og grynnist. SPÁ: ( dag lítur út fyrir norðan- og norðvestan kalda (5 vindstig) um mestan hluta landsins. Él verða um allt norðanvert landið en bjart veður syðra. Yfirleitt vægt frost, en þó sennilega frostlaust suðaustanlands. VEBURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Fremur hæg noröanátt. Dálítil él um norðanvert landið, annars bjart en kalt. y, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig, / / r f r / / Rigning / / / * / * f * / * Slydda f * / * * * * * * * Snjókoma * * * -|Q Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' == Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CX) Mistur _Skafrenningur j-^ Þrumuveður ’W'l m F f W' VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri -2 alskýjað Reykjavik 2 léttskýjað Bergen 7 skúr Helsinkl S þokumóða Jan Mayen 2 súld Kaupmannah. 8 þokumóða Narssarssuaq -9 skýjað Nuuk —8 skýjað Osló 8 þokumóða Stokkhólmur 4 þokumóða Þórshðfn 6 skúr Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 12 léttskýjað Aþena 17 lóttskýjað Barcelona 16 rigning Berlfn 13 mistur Chicago -1 lóttskýjað Glasgow 6 skúr Feneyjar 11 þokumóða Frankfurt 11 rigning Hamborg 13 skýjað Las Palmas 22 skýjað London 11 skýjað LosAngeles 18 alskýjað Lúxemborg 10 skúr Madrid 14 hálfskýjað Malaga 19 skýjað Mallorca 16 skýjað Miami vantar Montreal 3 þokumóða Nice 19 skýjað NewYork 8 mistur Paris 12 léttskýjað Róm 19 Rúrí skoðar verk eftir sig, sem m.a. er gert úr spegilgljáandi málm- plötum, sem nú eru alsettar ryðblettum. „Þetta er smávægilegt tjón miðað við það sem aðrir hafa orðið fyrir," sagði hún. Inntakið sem gaf sig. myndlistarmanna sem eiga verk á Korpúlfsstöðum. Mörg verka hennar eru stílfærðar myndir af fólki sem gerðar eru úr trefjaplasti á jám- grind. „Það er ekki hægt að sjá það núna hvort myndimar hafa skemmst, en þær hafa legið hér í sjóðandi vatni sem sennilega hefur komist inn í verkin. Þau verk sem eru úr gifsi hafa morknað niður. Þetta er alveg hræðilegt áfall því flest af mínum verkum voru hér,“ sagði Þorbjörg. Tvær stórar gipsfrummyndir eftir Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara voru í kjallaranum, myndin Tónlist- armaðurinn, en bronsafsteypa af því verki stendur fyrir framan Há- skólabíó, og Sonur, sem hlaut gullverðlaun á sýningu Konunglega listaháskólans í Kaupmannahöfn, en bronsafsteypa af því verki er í Lista- safni íslands. Þessi tvö verk munu vera stærstu og dýrustu verkin sem geymd voru í kjallaranum. Ólöf sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri ljóst hvort þessar myndir væru skemmdar, en þær eru steyptar utan um jámgrind og því kemur ekki í ljós fyrr en eftir talsverðan tíma hvort jámið hefur ryðgað. Ólöf sagði að verk sín hefðu ekki verið tryggð frekar en annara listamanna sem þama áttu verk. Nákvæm skoðun á ástandi lista- verkanna í kjallaranum var ekki hafin í gær og þar af leiðandi var ekki hægt að meta tjónið til fulls. Rúrí taldi að meðalsöluverð á mynd- verkum á borð við þau sem geymd voru í kjallaranum, væri um 100 þúsund krónur en heildartjónið næmi örugglega miljónum ef ekki tugmilj- ónum. Skýrsla kemur í dag Verið var að leggja nýja heita- vatnslögn í kjallara Korpúlfsstaða og til stóð að setja nýja mælagrind upp í síðustu viku á þeim stað þar sem núverandi inntak er en það verk tafðist. Ekkert hafði verið unnið í lögninni tvo daga áður en óhappið varð. Hjörleifur Kvaran skirfstofustjóri borgarverkfræðings, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann fengi ■ dag skýrslu frá eftirlitsaðilum um óhappið, þar sem ma. ætti að koma fram, hvort heitavatnsleiðslan sem gaf sig væri gölluð, en fimm ár eru síðan hún var sett upp. Hjörleifur sagði að ekki væri fullljóst hvort Reykjavíkurborg þyrfti að greiða einhverjar skaðabætur, en sagði að borgin væri ekki tryggð fyrir vatns- skaða á Korpúlfsstöðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.