Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 43 Af konum í hefndarhug Konur í hefndarhug á götum Napólí-borgar. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Regnboginn: Comorra ★ 'h Handrit og leikstjórn Lina Wert- miiller. Kvikmyndataka Guiseppe Lanci. Framleiðendur Golan- Globus. Aðalhlutverk Angeia Molina, Harvey Keitel, Isa Dani- elli, Fransico Rabal. ítölsk. Cannon 1986. Sú var tíðin að menn biðu með eftirvæntingu nýrrar myndar eftir Linu Wertmiiller enda var hún með- al athyglisverðari leikstjóra fram eftir síðasta áratug. Árið 1972 kom sú ógleymanlega mynd The Seduction of Mimi, sem vakti mikla athygli. Næsta ár rak hvert meistaraverkið annað; Love and Anarchy, Swept Away... og 1976 Seven Beuties, tvímælalaust hennar besta verk fyrr og síðar. Eins og flestum er kunnugt hefur smælinginn í þjóðfélaginu löngum verið meginviðfangsefni Wertmiill- ers og var hann lengst af túlkaður af snilld í myndum hennar af hinum hæfileikaríka Giancarlo Gianinni. í Seven Beuties reis frábær sam- vinna þeirra hæst. Myndin er klassísk og segir fyrst af gangstem- um og undirheimahöfðingjanum Gianinni, síðar stríðsfanga Þjóð- vetja í seinna stríði, baráttu hans við að komast af undir gjörólíkum kringumstæðum. Myndin varð heimsfræg og nú komst Wertmuller ekki lengur hjá garði í Hollywood. Warner Bros bauð henni margra mynda samning og fyrsti afrakstur hans var hin kolómögulega The End Of The World In Our Usual Bed In Night full Of Rain. Sambúð Hollywood og Wertmullers var bæði stutt og slæm, ferili hennar beið skipbrot eftir Wamer-ævintýrið og hefur lítið sést eftir konuna fyrr en nú að Comorra kemur fram á sjónarsvið- ið með dyggri aðstoð Cannon-fyrir- tækisins. Enn er yrkisefnið barátta lítil- magnans við fjandsamlegt, yfir- drottnandi umhverfi. Að þessu sinni em það húsmæður í Napólí, sem eiga harma að hefna á Mafíunni, sem þar í borg gengur undir nafninu Comorra. Þessar harðsnúnu konur eiga það sameiginlegt að böm þeirra hafa orðið eiturlyfjum að bráð fyrir tilstilli Comorrunnar. Og þær safna liði og hefna . . . Því miður eimir lítið eftir af fomri frægð Wertmullers í Comorra sem er ósköp hversdaglegur og auð- gleymdur þriller, efnistökin t.d. ekkert merkilegri á nokkurn hátt en í meðalsakamálaþætti á borð við t.d. bann ítalska Kolkrabba. Ekki bætir úr að myndin er „döbbuð“ og ég minnist þess ekki að hafa séð þau vinnubrögð vel úr garði gerð. „Döbbun" verður alltaf lýti á kvikmynd og óskandi að við- komandi aðilar legðu kapp á að fá allar myndir með frumtexta. Það væri greiði við alla kvikmyndahús- gesti. Mikill skákáhugi í Dölum: Gísli Gunnlaugs- son sigraði í firmakeppni Búðardal. Ungmennasamband Dala- manna og Norður-Breiðfirðinga efndi til firmakeppni í skák i Dalabúð 27. desember sl. 35 fyr- irtæki, félög, stofnanir og sveit- arfélög tóku þátt í keppninni. Keppendur voru 61 er kepptu í 7 flokkum. Sigurvegari mótsins varð Gísli Gunnlaugsson er keppti fyrir Samvinnubankann Króksfjarðarnesi. í kvennaflokki sigraði Sigurbjörg Kristmundsdóttir. Hún keppti fyrir Þömngaverksmiðjuna, Reykhólum. í öldungaflokki sigraði Jósef Jó- hannesson, Kaupfélagi Hvamms- íjarðar. í 16—18 ára flokki sigraði Guðjón Gíslason, Kaupfélagi Saurbæinga. í 13—15 ára flokki sigrað, Elvar Guðmundsson, OLÍS, Búðardal. í 11—12 ára flokki sigr- aði Gunnar Gunnarsson, Mjólkur- samlagi Búðardals. í flokki 10 ára og yngri sigraði Ragnar Gísli Ólafs- son, Lyfsölunni, Búðardal. Sérstök verðlaun vom veitt yngsta og elsta keppanda mótsins. Einnig vom veitt verðlaun þeirri fjölskyldu er samanlagt hlaut flesta vinninga. Þessi verðlaun hlaut fjöl- skyldan að Giljalandi, Haukadal. Vegleg verðlaun vom í boði, sem gefin vom af eftirfarandi fyrirtækj- um í Reykjavík: Bílanausti hf., Goða, kjötiðnaðarstöð, Teppaland, Víði Finnbogasyni, Þýsk-íslenska verslunarfélaginu. Við öll þessi fyr- irtæki hafa Dalamenn og Austur- Barðstrendingar átt góð viðskipti á liðnum ámm. Á þessu skákmóti keppti fjöldi barna og unglinga. Eflaust má rekja skákiðkunina til þess, að skól- amir hafa haldið upp skákstarfi undanfarin ár. T.d. í Búðardals- skóla er ráðinn á hverju hausti aðili til að sjá um skáklífið í skólanum. Þá má geta þess, að í vetur er rek- inn skákskóli í Dalabúð fyrir böm og unglinga eða alla, sem hafa áhuga. Það er Gísli Gunnlaugsson, sem hefur staðið fyrir skákíþróttinni í Búðardal og stendur fyrir skákskól- anum og fær húsnæði í Dalabúð. Gísli eyðir sínum frítíma í að leið- beina börnum og unglingum í þessari íþrótt og á hann þakkir skildar fyrir þau störf. Kristjana Málfreyjudeildin Kvistur 10 ára: 'ftirminnileg ferð, sem kostar aðeins frá kr. 24.385.- Afmælisfagnaður á Sögu um helgina UM ÞESSAR mundir er mál- freyjudeildin Kvistur 10 ára. Deildin mun af því tilefni efna til afmælisfagnaðar að Hótel Sögu þann 17. janúar nk. og hefst hann kl. 19.00. Samtökin Intemational Training in Communication vom stofnuð í Bandaríkjunum árið 1938. Stofn- andi þeirra, frú Emestine White, sameinaði þá úndir merki ITC ræðuklúbba kvenna sem starfandi vom víðsvegar um Bandaríkin. Hún sagði þá: „að með sameiginlegu átaki væri ófyrirséð hversu langt konur gætu náð í því, að vinna sjálf- um sér og þjóðfélaginu gagn.“ Stefna ITC er: „að efla frjálsar og eðlilegar umræður sem skulu vera hlutlausar í stjómmálum, félags- málum, fjármálum, kynþáttamálum og trúmálum". Fyrsta málfreyjudeildin var stofnuð hér á landi árið 1975 og ber hún heitið Varðan í Keflavík, en málfreyjudeildin Kvistur er fyrsta deildin sem stofnuð var í Reykjavík. Stofnforseti hennar var Aðalheiður Maack. Málfreyjudeildin hefur staðið fyr- ir kynningarfundum í starfi mál- freyja og stuðlað að stofnun deilda víða og em deildimar nú orðnar 23 og starfa þær í Hafnarfírði, Kópavogi, Mosfellssveit, Keflavík, Reykjavík, Selfossi, Akranesi, Vest- mannaeyjum, Stykkishólmi, Pat- reksfírði, Bolungarvík, ísafirði, Bíldudal, Tálknafírði, Akureyri, Mývatnssveit og yngsta deildin verður á Hvolsvelli. í núverandi stjórn Kvists em: Guðrún Björg Gísladóttir forseti, Olga Hafberg 1. varaforseti, Hafdís Benediktsdóttir 2. varaforseti, Jóna Möller ritari, Jóhanna Hlöðvers- dóttir gjaldkeri, Hansína Á. Björg- vinsdóttir þingskapaleiðari og Hildur G. Eyþórsdóttir ráðsfulltrúi. (Úr fréttatilkynningu) Tónlistin hefur verið aðalsmerki Vínar um aldir og svo er enn í dag. Hvergi í heiminum er tónlistarlífið blómlegra, eins og sjá má á fjölbreyttum dagskrám ópera og annarra tónlistarhúsa. Á næstu vikum gefst þér m.a. kostur á að sjá óperurnar La Traviata, Hollendinginn fljúgandi, Valkyrjurnar, Leðurblökuna og ótal margar fleiri. Vínarbúar eru snillingar í matargerð. í Vín getur þú valið um fjölmörg úrvals veitingahús, sem öll eiga það sameiginlegt að bjóða upp á fyrsta flokks mat. Daglega eiga sér stað stórviðburðir á öllum sviðum í þessari sígildu borg lista og menningar í hjarta Evrópu. - Það er FLUGLEIDIR sannarlega þess virði að skella sér með í Vínarferð SAS og Flugleiða og upplifa allt það sem Vín hefur að bjóða. SAS og Flugleiðir bjóða þér fimm daga Vínarferðir, brottför er alla fösfudaga. Gist er á Sheraton í Kaupmannahöfn eina nótt og fjórar nætur í Vín, þar sem þú getur valið um gistingu á nokkrum fyrsta flokks hótelum. Hægt er að framlengja dvölina í báðum borgunum að ósk. Boðið er upp á fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferð- ir um borgina og einnig til Búdapest. Eftirminnileg Vínarferð með SAS og Flugleiðum kostar aðeins frá kr. 24.385.- í tvíbýli. Innifalið er flug, gisting og morgunverður. ffl/SHS G0H FÓLK / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.