Morgunblaðið - 28.02.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
55
ísland og Sovétríkin;
Áframhald á pólitískum viðræðum
eftirD. Andrejev
För Mikhails Gorbachevs til
Reykjavíkur í október sl. til að sitja
þar leiðtogafundinn, var einnig mik-
ilvægur atburður í samskiptum
Sovétríkjanna og íslands. Þann 10.
október 1986 heimsótti hann for-
seta íslands, Vigdísi Finnbogadótt-
ur, og átti við hana viðræður.
Fundinn sátu einnig Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra, og
Matthías A. Mathiesen, utanríkis-
ráðherra. Rætt var um það sem
hæst ber í heiminum, hættuna sem
stafar af kjamorkustyrjöld, og bent
var af ánægju á aukin og ábatasöm
tengsl Sovétríkjanna og íslands.
Þetta var fyrsti fundur æðstu
manna Sovétríkjanna og íslands,
og hann hafði geysilega mikla þýð-
ingu fyrir öll samskipti ríkjanna,
og hann hóf pólitískar viðræður
þessara tveggja ríkja á nýjan
grundvöll.
Fyrirhuguð heimsókn Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra
til Sovétríkianna í boði sovésku
ríkisstjómarinnar mun einnig stuðla
að áframhaldi viðræðna og eflingu
samskipta ríkjanna.
Samskipti Sovétríkjanna og ís-
lands hafa gengið í gegn um mörg
þróunarstig. Opinberlega vom þau
fyrst tekin upp 1926, og fóru fyrst
fram í gegn um Kaupmannahöfn,
vegna þess að samkvæmt samningi
íslands og Danmerkur frá 1918, fór
Danmörk með utanríkismál íslands.
Fyrsti samningur Sovétríkjanna
við Island var viðskiptasamningur,
en hann var gerður í Moskvu 25.
maí 1927. Ríkin vilja auka náin
viðskiptatengsl sín, og koma sér
því saman um að veita hvort öðm
bestu kjör í viðskiptum og flutning-
um, segir f samningum. Á þessu
ári era þvf liðin 60 ár síðan á kom-
ust bein viðskiptatengsl milli
Sovétríkjanna og Islands. Það em
mikilvæg tímamót fyrir þjóðir okkar
með tilliti til þess að verslunarvið-
skipti hafa alltaf verið kjaminn í
samskiptum Sovétríkjanna og ís-
lands.
Diplómatísk tengsl milli ríkjanna
vom tekin upp síðar, í sambandi
við síðari heimsstyrjöldina.
Snemma á stríðsámnum vom tekin
upp diplómatísk viðskipti milli land-
anna, og fóm þau fram í gegn um
sovésku og fslenku sendiráðin í
London. Árið 1943, eftir að skipst
hafði verið á erindisbréfum, var
ákveðið að koma á beinum dipló-
matfskum samskiptum á sendiráðs-
gmndvelli. Árið 1955 urðu
sendinefndimar, Sovétríkjanna í
Reylqavík og íslands í Moskvu,
sendiráð af asðstu gráðu. Þann 11.
ágúst 1944 kom fyrsta sovéska
diplómatasendinefndin til íslands
og afhenti trúnaðarbréf sitt forseta
landsins. Þessi stjómmálatengsl
milli landanna sönnuðu vilja þeirra
beggja á að efla hina ábatasömu
samvinnu sína. Og það er eftirtekt-
arvert að þetta gerðist á hinum
bitm ámm síðari heimsstyrjaldar-
innar.
Samskipti Sovétríkjanna og ís-
lands fengu nýtt umfang og aukið
innihald á eftirstríðsámnum. Það
verður þá að segjast að annarlegar
pólitískar ástæður komu í veg fyrir
að nokkur markaðsviðskipti þróuð-
ust milli ríkjanna fyrr en á sjötta
áratugnum.
Það var ekki fyrr en árið 1953
að við undirrituðum fyrsta við-
skiptasamninginn eftir stríð. Hann
hljóðaði upp á viðskipti samkvæmt
umsömdum lista og ákveðnum regl-
um um afhendingu og greiðslu.
m/ítarH rptrlur sem við fömm
PCti/a iiivvMvi . -g-_
enn eftir og mótast af sérstöðu
íslensks efnahagslff, sem byggist á
fiski og firkafurðum. Þannig kvað
fyrsti listinn, sem gerður var yfír
vömr sem Sovétríkin seldu íslandi,
á um að það skuli fyrst og fremst
vera olíuvörur, svartolía, díselolía
og bensín. Megnið af því sem við
keyptum frá íslandi var fiskur og
fiskafurðir.
Árið 1982 undirrituðu lönd okkar
efnahagssamning. Hann krefst
aukinnar efnahagssamvinnu milli
hliðstæðra stofnana í Sovétríkjun-
um og á íslandi, og aðstæðna þar
sem byggt er á gagnkvæmum
hagnaði. Þau svið og það umfang
sem slfk samvinna nær til byggist
á því sem aðilar koma sér saman
um, á getu þeirra og þörfum.
Spumingar sem varða sjóinn og
lífríki hans hafa alltaf verið stór
þáttur í samskiptum Sovétríkjanna
og íslands. Þetta er mjög eðlilegt,
af því þetta em mikilvægir hlutir
sem gegna æ stærra hlutverki i lífi
bæði Sovétríkjanna og Islands. Sov-
étríkin hafa alltaf tekið tillit til þess
að sjórinn er sérstaklega mikilvæg-
ur fyrir ísland og íslenskt efna-
hagslíf. Sem góðir nágrannar hafa
Sovétríkin alltaf virt slíkar ákvarð-
anir íslendinga eins og þegar þeir
færðu fiskveiðilögsögu sína út í 50
mílur og síðar í 200 mílur, enda
þótt inn í hana kæmu þá svæði sem
sovéski flotinn var vanur að fiska á.
Á grandvelli gagnkvæmra hags-
muna undirrituðu Sovétríkin og
ísland árið 1977 samning um
vísinda- og tæknisamvinnu og sam-
eiginlegar viðræður um fískveiðar
og rannsóknir á lífríki sjávarins. í
samræmi við það samkomulag var
sett á laggimar blönduð sovésk-ís-
lensk nefnd og vinnur hún giftu-
samlega.
Sovétríkin og ísland hafa oft
haft sömu eða svipaða afstöðu til
mála á hafréttarráðstefnum og til
hins nýja hafréttarsáttmála, sem
þau mæla með að ná skuli til alls
heimsins og taka gildi sem fyrst.
Vísindasamvinna ríkjanna bygg-
ist einnig á gagnkvæmum hags-
munum. Tii dæmis starfaði
rannsóknaleiðangur frá jarðfræði-
og jarðeðlisfræðideild sovésku
vísindaakademíunnar á íslandi í
mörg ár. Sá leiðangur vann í ná-
inni samvinnu við íslenska vísinda-
menn. Allar upplýsingr sem þessi
sovéski leiðangur aflaði vom af-
hentar rannsóknarstofnunum
íslenska ríkisins.
—„oAUnj, Sovétríkianna og ís-
IVlUlllOUaim . —____ ...
lands era sannarlega dæmi um
samvinnu f þágu vísinda jarðarinn-
ar.
Hin margvíslegu menningar-
tengsl þessara tveggja þjóða era
byggð á samningum og fímm ára
áætlunum. Bækur gegna þar miklu
hlutverki. Bókmenntir Islendinga
em sovéskum lesendum vel kunnar.
í Sovétríkjunum em verk íslenskra
höfunda gefin út í stómm upplög-
um, og ekki aðeins á rússnesku
heldur einnig á mörgum öðmm
tungumálum sem töluð era í Sov-
étríkjunum. Bækur Halldórs
Laxness era vinsælastar, en einnig
njóta ýmsir aðrir íslenskir rithöf-
undar vemlegra vinsælda, svo sem
eins og Þ. Þórðarson, S. Stefáns-
son, E. Benediktsson og ó. Sigurðs-
son.
íslenska og íslenskar bókmenntir
em kenndar við skandinavísku
málvísindadeildina í háskólanum í
Leníngrad. Á vegum skólasamvinnu
Sovétríkjanna og íslands hefur ver-
ið gefin út íslensk-rússnesk orða-
bók.
Þá hafa farið fram skipti á sýn-
ingum hverskonar, og tónskáld og
aðrir listamenn hafa gagnkvæmt
heimsótt Sovétríkin frá íslandi og
ísland frá Sovétríkjunum. Þá hafa
verið haldnar íslenskar kvikmynda-
vikur í Sovétríkjunum og sovéskar
á íslandi. Öflug tengsl íþrótta-
manna era enn einn flöturinn á
menningartengslum landanna.
Siðastliðið sumar undirritaði heil-
brigðisráðuneyti Sovétríkjanna og
íþróttasamband íslands samning
um samvinnugmndvöll á sviði
íþiótta.
Sovétríkin og ísland búa við ólík
efnahagskerfi og tilheyra ólíkum
stjórnmála- og hemaðarbandalög-
um. í því felst áskorun til þeirra
að ástunda stöðugar pólitískar -wð-
ræður, að efla gagnkvæman skiln-
ing og leita sameiginlegrar afstöðu
og möguleika á að leysa vandmeð-
farin alþjóðamál. Sérhver þeirra í
samræmi við möguleika á að efla
alþjóðlega slökun og í samræmi við
lokaályktun Helsinki-sáttmálans.
í stjómmálaviðræðum er að finna
ýmsa ólíka farvegi og staðla sam-
skipta milli ríkisstjóma og ráðu-
neyta. í því sambandi vil ég benda
á opinbera heimsókn Geirs
Hallgrímssonar, þáverandi forsæt-
isráðherra 1977, til Sovétríkjanna,
og Einars Ágústssonar utanríkis-
ráðherra 1975. Þessar heimsóknir
áttu sér báðar stað á tímum þíðu
oo- slökunar í Evrópu.
~o--- — * í^l. _
I október 1985 kóm E. A: sne-
vardnadze utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna við á íslandi á leið sinni
frá Havana til Moskvu. Hann ræddi
þá við settan forsætisráðherra og
utanríkisráðherra íslands.
Það hefur þannig komist á sjálf-
virkni í viðræðum milli utanríkis-
ráðherra landanna. Jafnvei sú
sameiginlega yfirlýsing Sovétríkj-
anna og íslands um niðurstöðumar
af heimsókn Einars Ágústssonar til
Sovétríkjanna 1975, benti til þess,
að báðir aðilar álitu jákvætt að
haldið yrði áfram ráðgefandi við-
ræðum milli Sovétríkjanna og
íslands, og mæltu með því að
áframhald yrði á þeim í framtíðinni.
í það heila tekið verð ég að segja
að samskipti Sovétríkjanna og ls-
lands era stöðug og þjóna hagsmun-
um beggja landanna. Hin opinbera
heimsókn Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra íslands til
Sovétríkjanna og viðræður hans við
sovéska ráðamenn mun hjálpa til
að þróa þessi tengsl.
Höfundur er fulltrúi í utanríkis-
ráðuneyti Sovétríkjanna. Grein
þessi erbirtað óskAPNá íslandi
í tilefni af för Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra til
Sovétríkjanna.
ÚRVALS
FILNUR
# # Dreifing;
TOLVUSPIL HF.
sími: 68-72-70
UkDA
Árg.Ekinn Vorð
-------- nx 9b. 230 þ.
bamaia.uy. uv - ,r.
Lux 84 21 0. 155þ.
Station 85 3Zþ. 160þ.
LuxCanada 85 15þ. 195þ.
Sport 86 11 þ. 280 þ. stg.
Vegna mikillar sölu
bráðvantar okkur
nýlega bíla I sal —
ð skrð.
Opið 9.00—19.00 virka daga
iaugardaga 10.00—18.00
Bíla&
Vélsleóasalan
Suðurlandsbraut 12
84060 <. 38600
Þú svalar lestraxþörf dagsáns
ájSÍöum Moggans!