Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 9 Kaffihlaðborð verður í félagsheimili Fáks á Víðivöllum kl. 14.30. Kvennadeildin. Opið 10.00-22.00 alla daga. Nú skiptir veðrið engu máli, því við erum undir 7000 fm þaki. Frábær fjölskylduskemmtun. Sumarið nálgast Tryggið ykkur þennan frábæra hollenska tjald- vagn tímanlega. Fáum takmarkað magrt íár. Vagninn er með fortjaldi, eldunartækjum, vaski, 13“ dekkjum, varadekki og hemlum. Erum einnig með sænsk hjólhýsi, sérstaklega einangruð fyrir kalda veðráttu og með góðu miðstöðvakerfi. Sumarstólana fáið þið hjá okkur á góðu verði. Henta allstaðar. Verið velkomin til okkar og sannfærist. Opið daglega frá kl. 17.15-19.00. Laugardaga frá kl. 10.00-16.00. Vemdafjöl- skylduna Þegar það fréttist á sunnudaginn, að Gary Hart hefði átt vingott við unga leikkonu, hrundi af honum fylgið. Þótt 18 mánuðir séu til kosning- anna sjálfra mat fram- bjóðandinn stöðu sina á þann veg, að hann myndi ekki hafa erindi sem erf- iði í prófkjöri innan flokks sins, Demókrata- flokksms, og dró sig í hlé. í prófkosningum vegna forsetaframboðs 1984 tapaði Hart fyrir Walter Mondale, sem tap- aði síðan í kosningunum sjálfum fyrir Ronald Reagan, frambjóðanda Repúblíkanaflokksins. Fyrsta visbendingin um að Hart vœri að draga sig i hlé kom í fyrradag, þegar hann lét ekki sjá sig á fundi í New Hamps- hire-ríki. Þá var skýrt frá því að hann hefði haldið til heimilis sins í Colorado-ríki og í yfirlýs- ingu sagði, að frambjóð- andinn ætlaði að veita fjölskyldu sinni forgang og dveljast i nokkra daga eða jafnvel vikur með konu sinni. Og þar stóð einnig: „Baráttan fyrir hugsjónum hans mim halda áfram. Okkar mál- staður sigrar." Nú er ljóst, að það verður ekki Hart, sem leiðir hann til sigurs. í öllum löndum, þar sem lýðræði þrífst með eðlilegum hætti, standa þeir menn frammi fyrir erfiðu vali, sem ætla að helga sig stjómmálum. Til þeirra eru gerðar kröfur um heiðvirða framgöngu í hvívetna. Við höfum kynnst því hér á landi hvemig umræður um þennan þátt stjóm- málamanna geta þróast. Ef Gary Hart hefði hald- ið áfram stjómmála- störfum eins og ekkert hefði í skorist er ekki vafi á, að af samúð með honum hefðu einhveijir stutt hann dyggilega og af festu. Hann hefði hins Frambjóðandi í vanda Raunir Gary Hart, frambjóðanda í prófkjöri demókrata vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári, sýna í hvaða ógöngur menn geta komist taki þeir of mikla áhættu samhliða því sem þeir sækjast eftir opinberum trúnaðarstörfum. Mistök Harts snerta einkalíf hans, hjónaband og samneyti hans við konur, engu að síður ráða þau úrslit- um fyrir hann á pólitískum vettvangi; þegar skýrt er frá gruni um siðferðisbrest á opin- berum vettvangi, bregst Hart við á þann veg að hætta í prófkjörinu. vegar aldrei náð sér á það flug, sem dugar til að komast í framboð fyr- ir flokk sinn. Honum hefði ekki tekist að þjappa á bak við sig þeim hópi stuðningsmanna, sem dugar best í slikri baráttu. Hann hefði getað sagt sem svo að fráhvarf frá framboði væri sama og viðurkenning á því, að hann hefði gerst sekur um ósiðlegt athæfi. Hann hefði þó aldrei losnað undan umræðum um kvennamál sín og kona hans og börn hefðu orðið að þola rniklar raunir með honum. Nú hefur hann veitt þeim það skjól, sem best dugar í tilvikum sem þessum: Hann hefur dregið sig út úr hinu pólitíska sviðsljósi. Til hans verða ekki lengur gerðar sömu kröfur og þeirra, sem sækjast eftir opinberum trúnaðar- störfum. Fýlaí framsókn Forseti íslands býr sig nú undir að taka ákvörð- un um, hvetjum hún veitir umboð til að mynda ríkisstjóm. Reynslan sýn- ir, að í ástandi eins og þvi sem nú rikir er það alls ekki gefið, að sá sem fyrstur fær umboðið geti myndað stjóm og þótt honum takist að ná sam- an meirihlutastuðningi á Alþingi við einhveija stjóm, að sá hinn sami veiti henni forsæti. Framsóknarmenn hafa nú verið í 16 ár i ríkis- stjómum. Finnst ýmsum nóg komið i þeim efnum, líkt og Finnum þótti tímabært að gefa Mið- flokknum (bræðraflokki framsóknar þar í landi) fri frá stjómarsetu eftir 40 ár. Framsóknarmenn vifja þó ekki hætta, eins og best sást á forystu- grein Tímans á miðviku- dag, þar sem rætt var um hugsanlegt samstarf Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Sjálfstæð- isflokks meðal annars með þessum orðum: „Bæði Svavar Gestsson og Þorsteinn Pálsson urðu fyrir miklum von- brigðum með úrslit . kosninganna og er staða þeirra veik. Þrátt fyrir stuðningsyfirlýsingar þingflokks Sjálfstæðis- flokksins við Þorstein Pálsson er urgur í óbreyttum liðsmönnum sem teþ’a að Þorsteinn eigi persónulega sök á klofningi flokksins vegna aðgerða sinna gagnvart Albert Guðmundssyni. Staða Svavars Gests- sonar er þó öllu veikari. Alþýðubandalagið gekk að nafninu til heilt til kosninga en beið mikinn ósigur. Innan flokksins logar allt í illdeilum og persónulegum deilumál- um sem Svavari hefur mistekist að leysa. Hon- um er þvi mikið í mun að styrkja sig í sessi og óneitanlega myndi ráð- herrastaða gera það. Hins vegar verður það að tejjast vafasamt að Svavari verði heimilað að ganga til ríkisstjóm- arsamstarfs áður en innanhússdeilur Alþýðu- bandalagsins verða leyst- ar. Markmið Jóns Bald- vins er aftur á móti skýrt og ákveðið: að komast sjálfur í ríkisstjóm sem allra, allra fyrst. Erfitt er að ímynda sér að samvinna jafn ólíkra afla og þessara stjóm- málaflokka geti skilað þeim árangri sem lands- menn vonast eftir og þjóðin þarfnast." Flokksblað framsókn- ar sýnist gleyma þvi, að Steingrimur Hermanns- son þarf að eiga samstarf við einhvem eða ein- hveija þeirra flokks- formanna, sem það rakkar niður með þess- um hætti, ef hann á að halda áfram að vera í I ríkisstjóm. Björgunarsveitir — Bændur Verktakar — Veiðimenn ®. kynnir fjórhjóla- farartækið með drifi á öllum hjólum, sem fer allt. 99(350 ★ Vél, 25 hestöfl ★ Sprengirúm 350 cc ★ 4-gengis benzínvél ★ 5-gírar, 1 afturábak ★ Rafstart ★ Vökvafjöðrun ★ Vökvabremsur ★ Hjólbarðar 24x9-11 ★ Benzíntankur 10,5 I ★ Tengill fyrir 12 volt 15A ★ Hæðfrájörðu 16sm ★ Þyngd 259 kg Síðast en ekki síst driföxlar og hjöruliðir vandlega lokaðir. Fríbýli sf.y Skipholti 5, sími 622740. Eigum nú þessi frábæru fjórhjól fyrirliggjandi. Honda á íslandi — Vatnagörðum 24, sími 689900.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.