Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 Fangelsistakan á Elbu: Slepptu einum en skutu á samningamann Málið alfarið í höndum Indverja - segir stjórnarformaður Nóbels-samsteyp- unnar um Bofors-málið 20 gíslar enn í haldi Elbu, Reuter. SEX FANGAR vopnaðir byssum og sprengiefni hótuðu í gær að drepa 22 gísla sína ef kröfum þeirra yrði ekki sinnt. Þeir leyfðu þó einum fangavarðanna að fara auk þriggja sjúkra fanga, sem voru í fangasjúkrahúsinu, þar sem mennirnir hafa búið um sig. Fangarnir, sem tóku fangels- ið á Elbu herskildi, krefjast þess að fá þyrlu til þess að komast frá eyjunni. Elba er þekktust fyrir að þangað var Napóleón Frakklandskeisari sendur í fyrri CAVACO Silva forsætisráðherra stjórnar sósialdemókrata í Portúgal tilkynnti í gær áform sín um efnahagsbreytingar í frjálsræðisátt, en Portúgal er fátækasta ríki Vestur-Evrópu. Þessar ráðstafanir felast helst í sölu ríkisfyrirtækja og því að ryðja úr vegi hindrunum svo einkaframtakið megi blómstra. „Tímabil ríkisforsjár verður brátt úr sögunni," sagði Anibal Cavaco Silva, sem er fyrsti for- Pakistan: 11 látast í byssubardaga Karachi, Reuter. ELLEFU manns létust og meira en 80 særðust í bardaga milli striðandi þjóðflokka í Karachi, stærstu borg Pakistan í gær. Stjórnvöld settu útgöngubann og sendu herlið á vettvang til að skilja að pastúna og mohajíra. Vandræðin hófust í fyrradag þegar skotum var hleypt af eftir orðaskak um hvort draga ætti flokksfána að húni. Reykjarmökkur huldi borgina sem telur sjö milljón- ir íbúa og lögregla átti í erfiðleikum með að skakka leikinn. útlegð sína. Leiðtogi fanganna er Mario Tuti, nýfasisti, sem afplánar tvöfaldan lífstíðardóm fyrir morð. í gær náðu þeir á sitt vald fangelsisstjóranum og 21 fangelsisstarfsmanni öðrum. Um svipað leyti og þeir slepptu fangaverðinum í gær skutu þeir jafnframt á samningamann stjóm- valda. Hann slapp með skrekkinn. í viðtali við ítölsku fréttastofuna Ansi sagði Tuti að fangamir væru tilbúnir að deyja fyrir málstaðinn og varaði lögregluna við því að freista inngöngu, því þá yrði blóð- bað í fangelsinu. ítölsk stjómvöld segjast munu sætisráðherra meirihlutastjóm- ar eins flokks frá því að lýðræði var endurreist í Portúgal fyrir 13 ámm. „Áætlun okkar snýst um grund- vallarhlutverk einkaframframtaks- ins í efnahagsiífinu," tjáði Silva þingmönnum í stefnuræðu sinni, en þetta var fyrsti þingfundur Portú- gals eftir að sósíaldemókrataflokk- ur Silva, PSD, bar sigur úr býtum í kosningunum í síðasta mánuði. Flokkurinn, sem talinn er til hægri við miðju, hefur 23 sæta meirihluta. Cavaco Silva sagði í ræðu sinni að flest iðnfyrirtæki og fjármála- stofnanir, sem þjóðnýttar voru eftir byltingu vinstrisinna árið 1974, yrðu smám saman seldar á ný til einstaklinga og fyrirtækja. „Ríkið ætti einungis að stjóma fyrirtækj- um, sem beint lúta að almennings- þjónustu," sagði Silva og átti þar við viss samgöngufyrirtæki, orku- og vatnsveitur. Auk þess á að selja hina margvíslegu fjölmiðla í eigu ríkisins, utan sitt hvorrar útvarps- og sjónvarpsrásarinnar, sem haldið verður eftir. Silva sagði að ríkisfyrirtæki (og þá eru bankar og aðrar fjármála- stofnanir ekki taldar með) hefðu kostað þjóðina 13 milljarða Banda- ríkjadala (um 520 milljarðar króna) í beint tap og niðurgreiðslur undan- Reuter Mario Tuti. taka á málinu af festu, en talið er að með því eigi þau við að ekki verði orðið við kröfu fanganna um þyrlu. Hins vegar telja menn að sérsveitir lögreglunnar verði ekki fengnar til þess að ráðast inn í það að svo búnu. farinn árartug. Þá er ekki talið tap, sem þessar stofnanir hafa valdið öðrum fyrirtækjum. „Þessi tap- rekstur verður að stöðvast eigi Portúgal að takast að brúa það efnahagshyldýpi, sem skilur það frá hinum Evrópubandalagsríkjunum. Samkvæmt hagspá mun verð- bólga halda áfram að lækka í Portúgal á næstunni, hagvöxtur verður um 4% á ári og talið er að HELMUT Kohl, kanzlari Vestur- Þýskalands, sagði á blaðamanna- fundi í gær að hann tilnefndi vamamálaráðherra sinn, Manf- red Wömer, til framkvæmda- stjórastöðu varaarbandalags vestrænna þjóða, NATO, sem losnar á miðju næsta ári þegar Carrington lávarður lætur af starfinu. Kaare Willoch, fyrram forsætisráðherra Noregs, hefur einnig hug á stöðunni. Kohl sagði að Wömer hefði þá Stokkhólmi, Reuter. STJÓRNARFORMAÐUR Nóbels- samsteypunnar, Lars-Erik Thunholm, sagði í viðtali við sænska útvarpið í gær að dóttur- fyrirtækið Bofors kynni að hafa greitt einhveijar mútur, en að rannsóknin ætti alfarið að vera í höndum stjórnvalda í Nýju Delí. Thunholm neitaði öllum ásökunum um að Bofors hefði beitt brögðum til að ná vopnasölusamnningi við Ind- landsher, en sagðist ekki getað vitað hvað orðið hefði um fjármuni þá er runnu til umboðsmenn Bofors á Ind- landi. Hins vegar sagði hann að þeir peningar, sem ekki hefði verið gerð grein fyrir í reikningum Bofors hefðu verið skaðabótagreiðslur til umboðs- manna Bofors vegna samningsrofs þegar Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands krafðist þess að engir milli- liðir yrðu í samningum Bofors og Indlandshers. flárfestingar muni aukast um 8-10%. Til þess að hrinda áformum sínum í framkvæmd þarf Silva að hafa 2/a þingheims á bak við sig, því ríkiseign fjölda fyrirtækja er bundin í stjómarskrána, sem er frá miðjum síðasta áratug. Sósíalistar í stjómarandstöðu, sem hafa 60 þingsæti, hafa þegar lýst sig fylgj- andi breytingum Silva. Kaare Manfred Willoch. Wömer. sérfræðiþekkingu og reynslu af al- þjóðamálum, sem þyrfti til þess að „Við vorum samningsbundnir við þá. Það kostaði okkur peninga að rifta þeim samningi og við höfum greitt þá eins og um var beðið." Þegar Thunholm var spurður hvort umboðsmenn Bofors á Indlandi hefðu mútað embættismönnum svaraði hann: „Ég get ekki ábyrgst að svo hafi ekki verið. Það kemur okkur í raun ekki við, en við höfum ekki greitt neinar mútur." Orsök óeirðanna í Lettlandi: Léleg sögu- þekking - segir sovéskt dagblað Moskvu, Reuter. YFIRVÖLD í Lettlandi.hafa svik- ist um að miðla íbúum landsins nægilegri söguþekkingu og er þar að finna ástæðuna fyrir mótmæl- um 2000 manna í höfuðborg sovétlýðveldisins, Riga, á sunnu- daginn. Þessu er haldið fram í grein í dagblaði sovéskra ung- kommmúnista, Komsomolskaya Pravda, í gær. í blaðinu var einnig sagt að rúss- neskir íbúar Lettlands kynnu oft ekkert í lettnesku og skýrt frá því að þjóðemisuppþot gegn Rússum væru tíð. í Moskvu herma heimildir að 40 manns hafi verið handteknir eftir mótmælaaðgerðimar sem fóru fram til að minnast innlimunar Eystra- saltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens, í Sovétríkin 1939. Innlimunin fór fram með þegj- andi samþykki þýsku nazistastjómar- innar enda gerðu Hitler og Stalín með sér friðarsamning sama ár. verða framkvæmdastjóri NATO. Fái Wömer stöðuna verður hann fyrsti vestur-þýski framkvæmda- stjóri bandalagsins. Wömer, sem er 52 ára gamall, hefur oft verið nefndur til starfans, en hann hefur til þessa ávallt neitað að taka opinbera afstöðu til máls- ins. „Eins og þið vitið hefur Vestur-Þjóðverji ekki gegnt stöð- unni fyrr og ég held að okkar tími sé upp runninn," sagði Kohl. „Ég hef þegar hafið viðræður við vini okkar og félaga í bandalaginu." Wömer, sem sumir vilja telja til „hauka" í vamarmálum, hefur farið með varnarmál samsteypustjórnar Kohls frá því að hún tók við taum- unum árið 1982. Auk þess að vera vamamálasérfræðingur er Wömer flugkappi mikill og hefur iðulega tekið þátt í heræfingum vestur- þýska hersins. A-Þjóðverji flýr í frelsið Hamborg-, Reuter. I GÆR flúði Austur-Þjóðveiji nokkur yfir i frelsið með því að bijóta sér leið í gegnum landa- mæratálma og klifra yfir víggirð- ingar inn í Neðra-Saxland. Maðurinn, sem er tvítugur verk- fræðingur, sagði landamæralögregl- unni að hann hefði verið óánægður með heilsugæslukerfíð í A-Berlín. Maðurínn fór yfir landamærin í Liichow-Dannenberg, um 100 km sauðaustur af -Hamborg. Kína: Siðgæðisherferð í kynferðismálum Peking, Reuter. KÍNVERSK yfirvöld vísuðu í gær á bug fregnum vestrænna fjölmiðla um að vestur-þýskum starfsmanni Siemens-fyrirtæk- isins í Kína hefði verið vísað úr landi eftir að lögregla greip hann glóðvolgan í rúminu með kínverskri vinkonu sinni. Einn- ig sagði talsmaður heilbrigðis- ráðherra að það væri rangt haft eftir yfirboðara sínum að samkvæmt kínverskum laga- bókstaf væru kynmök milli ógifts fólks bönnuð. Vestrænir fréttaritarar í Pek- ing sögðu að þjóðveijinn hefði ekki sinnt viðvörunum starfsfólks á hótelinu, þar sem hann dvald- ist, um að taka ekki vinkonuna með sér inn á herbergi sitt. Sam- starfsmaður hans hjá fyrirtækinu sagði að lögreglan hefði staðið skötuhjúin að „í miðjum klíðum", hirt vegabréfið af manninum og komið honum úr landi daginn eft- ir. Ekki fylgdi sögunni hver urðu afdrif kínversku vinkonunnar, en líklegt var talið að hennar biði ársvist í „endurhæfingarbúðum." í tilkynningu kínverska ut- anríkisráðneytisins sagði að eftir því sem kínversk yfirvöld kæmust næst hefði Siemens-fyrirtækið sent manninn úr landi. Vestrænir stjómarerindrekar sögðu að yfir- völd hefðu ekki vísað manninum úr landi. Aftur á móti hefði Siem- ens-fyrirtækið verið beitt miklum þrýstingi og ekki átt annars kost en að senda hann brott. „Bæði kynvilla og fíjálsar ástir eru ólögleg og í andstöðu við kínverskt siðferði," sagði heil- brigðisráðherra Kína, Chen Minzhang, í viðtali við kínverskt tímarit fyrr í manuðinum. Ráð- herrann sagði að af þessum orsökum væri ólíklegt að alnæmi gæti breiðst út að nokkru ráði í Kína, en af því hafa erlendir sér- fræðingar haft nokkrar áhyggjur. Talsmaður Chens sagði aftur á móti í gær að rangt hefði verið farið með ummæli ráðherrans og hvorki frjálsar ástir, né kynvilla stríddi gegn kínverskum lögum. Hvort sem til eru lög um bann við ástaleikjum ógiftra eða ekki fylgjast sérstakar nefndir á veg- um Kommúnistaflokksins með því að ungmenni séu ekki á villigötum í þeim efnum og vara þau við ella. Sérstaklega er þess gætt að kínversk æska komist ekki í of náin kynni við útlendinga. Kínverska ríkisvaldið stendur nú fyrir siðgæðisherferð í kyn- ferðismálum og embættismönnum er mikið í mun að hún beri árang- ur áður en að þingi flokksins í október kemur. Vændiskonur hafa verið leitaðar uppi og við- skiptavinum þeirra stungið inn og ósiðleg rit hafa verið gerð upp- tæk. Dæmi um aukna hörku í sið- gæðiseftirliti er mál 43 ára gamals Shanghai-búa, sem var dæmdur til dauða á sunnudag „fyrir að spilla ungu fólki með klámefni." Portúgal: Einkavæðing ríkisfyrir- tækja lög'ð fyrir þingið Vestur-Þýskaland: Kohl tílnefnir Wömer næsta framkvæmdastíóra NATO Bonn, Reuter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.