Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 5

Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 5
v?,ei H3aM3Tqa?. .01 auoAauTMMia .oiQAjaviuoHOM . a í MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 B 5 StSð 2: Apríldagar ■^■H Fyrsta kvikmyndin af OO10 þremur á dagskrá ^ Stöðvar 2 í kvöld heitir Apríldagar (The April Fools) og er bandarísk gamanmynd með þeim Jack Lemmon, Catherine Deneuve og Peter Lawford í aðal- hlutverkum. í myndinni leikur Jack Lemmon kaupsýslumann, sem býr við mikið ofríki á heimili sínu. Hann hittir fagra konu í hanastélsboði og verður ástfang- inn. Konan reynist vera gift yfírmanni hans. Myndin fær ★ ★ V2 í kvikmyndahandbók Schreuer, en leikstjóri er Stuart Rosenberg. ■■■ Næsta mynd nefnist 09 40 Sumar óttans, (Sum- O mer of Fear) og kveður þar við annan tón. Þetta er bandarísk hrollvekja frá 1978 með Lindu Blair, leikkonuna úr Exorc- ist í aðalhlutverki. Söguþráður er á þá leið, að ung stúlka missir fjölskyldu sína í bflslysi og flyst til frændfólks síns. En skömmu eftir komu hennar á heimilið fara ógnvænlegir hlutir að gerast. Leikstjóri myndarinnar er Wes Craven, sem einnig leikstýrði myndinni Nightmare on Elm Stre- et. Myndin er alls ekki við hæfí bama. Úr myndinni Sumar óttans. ■■■■ Draugasaga (Ghost A -| J5 Story) heitir síðasta ” A myndin á dagskrá Stöðvar 2, en hún er bandarísk frá 1981, byggð á skáldsögu Pet- er Straub. Með aðalhlutverk fara Fred Astire, Douglas Fairbanks jr. John Houseman og Alice Krige. Fimmtíu ára gamalt leyndarmál þjakar ijóra roskna karla í Nýja Englandi. Myndin fær ★ í kvik- myndahandbók Schreuer, en leikstjóri hennar er John Irvin og tekið er fram að myndin er alls ekki við hæfi bama. Bíóin í borginni 10.00 Stjörnufréttir (fréttasími 689910). 10.00 Gullaldartónlist. Fréttir kl. 12. 12.00 Hafnarfjarðardagskrá. Dagskrá tengd Hafnarfirði, útvarpað frá veit- ingahúsinu Fjörunni þar í bæ. 18.00 Stjörnufréttir. 18.00 Árni Magnússon. Tónlist. ÚTVARP ALFA 13.00 Fjölbreytileg tónlist. 14.30 Tónlistarþáttur í umsjón Hákonar Möller. 16.00 Á beinni braut. Unglingaþáttur. 17.00 Hlé. 22.00 Vegurinn til lifsins. Tónlistarþáttur með ritningarlestri. 24.00 Næturdagskrá. Tónlist leikin. 04.00 Dagskrárlok. HUÓÐBYLGJAN AKUREYRI 10.00 Barnagaman. Þáttur fyrir yngstu Sjónvarpið: Hetjur Kellys ■I Hetjur Kellys nefn- 20 ist bandarísk kvik- mynd frá 1970 sem Sjónvarpið sýnir í kvöld. I mynd- inni fara þeir Clint Eastwood, Donald Sutherland og Telly Sav- alas með aðalhlutverkum, en sögurþráður er á þa'leið, að inn- rás bandamanna á norðurströnd Frakklands er nýlokið og Kelly hefur tekið þýskan yfírmann til fanga. Kelly kemst þó brátt að því að hin þýski fangi er ekki allur þar sem hann er séður. í myndinni eru atriði sem ekki eru talin við hæfí bama, en myndin fær ★ ★ í kvik- myndahandbók Schreuer. Leikstjóri er Brian G. Hutton, en Gunnar Þorsteinsson þýddi mjmdina. hlustendurna, tónlist og viðtöl. Umsjón Hanna B. Jónsdóttir og Rakel Braga- dóttir. 12.00 í hádeginu. Þáttur í umsjón Pálma Guðmundssonar. 13.00 Fréttayfirlit á laugardegi í umsjón Friðriks Indriðasonar, fréttamanns Hljóðbylgjunnar. 14.00 Líf á laugardegi. íþróttaþáttur í umsjón Marinós V. Marínóssonar. 16.00 Alvörupopp. Tónlistarþáttur í um- sjón Ingólfs Magnússonar og Gunn- laugs Stefánssonar. 19.00 Létt og laggott. Þáttur í umsjón Hauks Haukssonarog Helga Jóhanns- sonar. 23.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5. Fjallaö um íþróttaviðburði helgarinnar á Noröur- landi. BÍÓBORGIN Tveir á toppnum ★ ★ ★ Tveir á toppnum er óvenju góð flétta spennu- og skemmtimyndar þar sem mannlegi þótturinn hefur ekki gleymst. — sv. Sórsveitin ★ ★ Nútímavestri sem Walter Hill leik- stýrir og Nick Nolte leikur í. Fátt nýtt, blóðslettur og hæg andlát. — ai. Bláa Betty ★ ★ V* Ofsafengin ástarsaga um Zorg og Betty frá einum af athyglisverð- ustu leikstjórum Frakklands. Vel leikin, vel gerð og vel þess virði. — ai. HÁSKÓLÁBÍÓ Súperman I ★ Súperman fjögur tekur að sór að losa okkur við kjarnorku- vopnin. Heldur þunnur þrett- ándi allt saman. — ai. STJÖRNUBÍÓ Óvænt stefnumót ★ ★ ★ Þegar Blake Edwards nær dampi standast fáir honum snúning í að skapa havarí og uppákomur sem kítla hlátur- taugarnar. — ai. Subway ★ ★ V* Oft skemmtilega gerð og stílis- eruð undirheimamynd Luc Bessons með Christopher Lambert og Isabelle Adjani í aðalhlutverkunum. — ai. Wisdom ★ ★ Ágætt byrjendaverk unglinga- leikarans Emilio Estevez á leikstjórabrautinni. Handritið er betra en leikurinn, leik- stjórnin betri en handritið. — ai. BÍÓHÖLLIN Geggjað sumar ★ Hraðsoðið stundargaman fyrir unglingana að skemmta sór yfir í sumarfríinu. Gallinn sá að myndin er ekkert sérlega skemmtileg og sumarfríinu er lokið. — ai. Logandi hræddir ★ ★ ★ Frískur og hressilegur Bond eftir mjög tímabæra andlits- lyftingu. — ai. Tveir á toppnum ★ ★ ★ Tveir á toppnum er óvenju góð flétta spennu- og skemmti- myndar þar sem mannlegi þátturinn hefurekki gleymst. — sv. Innbrotsþjófurinn ★ ★ Handritið er flatneskja og höf- undar greinilega treyst því að áhorfendum nægði Goldberg og Goldhwait en þau duga ekki til. — sv. Lögregluskólinn 4: Allir á vakt ★ Endurtekið efni. Það nennir enginn að halda samhengi í frásögninni, stutt en yfirleitt ófyndin og kjánaleg brandara- atriði taka við hvert af öðru og þaðerfáttnýttíþeim. — ai. Leynilöggumúsin Basil ★ ★ ★ ★ Einhver alskemmtilegasta og vandaðasta teiknimynd sem hér hefur verið sýnd lengi. (Sýnd um helgar). — ai. Mjallhvít og dvergarnir sjö ★ ★ ★ ★ Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd; tímamótaverk, klassík, gimsteinn. (Sýnd um helgar.) — ai. Blátt flauel ★ ★ ★ Það er rétt sem stendur í aug- lýsingunni. Blátt flauel er mynd sem allir unnendur kvikmynda verða að sjá. — sv. REGNBOGINN Vild’ðú værir hér ★ ★ ★ 1/2 Vildi að þú værir hér er mynd sem enginn lætur framhjá sér fara sem ann listaverkum á tjaldinu. — sv. Hálendingurinn ★ ★ ★ 1/2 Sagan er heldur fjarstæðu- kennd en Russell Mulcahay færir hana í sérlega áhrifamik- inn búning. Myndin er konfekt fyriraugað. — ai. Vilttir dagar ★ ★ ★ Ein skemmtilegasta og maka- lausasta uppákoma sem maður hefur lengi upplifað í kvikmyndahúsi. Drama, farsi, þriller og kómedía allt í senn. — sv. Herdeildin ★ ★ ★ ★ Hin margverðlaunaða Víet- nammynd Oliver Stones. Platoon er yfirþyrmandi lista- verk. ísköld, alvarleg áminning um stríðsbrölt mannskepn- unnar, fyrrogsíðar. — sv. Þrír vinir ★ ★ ★ Farsakennd og gráthlægileg skopstæling, yfirfull af brönd- urum sem grínlandsiið Ameríku nýtur þess að flytja undir vakandi auga Landis. — ai. Gfnan ★ Þegar þeim í Jollywood tekst verulega illa upp verður útkom- an eitthvað eins og Gínan. — ai. Otto ★ 1/2 Otto er Fríslendingur og Fríslendingar eru svona Hafn- firðingar og Otto er mesti Hafnfirðingurinn. — ai. LAUGARÁSBÍÓ Hver er ég? ★ ★ 1/2 Hlýleg mynd um þrjóska Suð- urríkjamenn og leit ungrar stúlku að sjálfri sér. Vönduð og vel leikin en þrátt fyrir hádramatískan efnisþráð er hún furðu slétt og felld. — sv. Rugl í Hollywood ★ ★ ★ Fljótt á litið er Hollywood Shuffle meinfyndinn og ærsla- fullur, svartur Hollywood-farsi en þegar nánar er skoðað er hún annað og meira; hvöss ádeila á Hollywood. — sv. Valhöll ★ ★ 1/2 íslenskt tal á danskri teikni- mynd sem byggir á norrænni goðafræði. Mjög norrænt og gottalltsaman. — ai. BÍÓHÚSIÐ Undir eldfjallinu ★ ★ 1/2 Albert Finney fer á kostum í þessari mynd hins nýlátna John Hustons. — ai. Atriði úr CBS-þáttunum Tour of Duty. haldsþættimir yrðu líka byggðir á minningum hermanna úr stríðinu. — ai. Víetnamstríðið í sjónvarpinu Bandarískt sjónvarp er loksins farið að gefa Víetnamstríðinu gaum tólf árum eftir að því lauk og eftir að myndir eins og Platoon eftir Oliver Stone og Full Metal Jacket eftir Stanley Kubrick hafa hrært upp í þjóðlífinu vestra. í nýlegu hefti vikuritsins News- week er grein um tvo leikna sjónvarpsþætti um Víetnamstríðið. Annar er frá CBS og heitir Tour of Duty en hinn frá kapalkerfi Home Box Offíce er heitir Vietnam War Story. „Duty er gyrsta viku- lega þáttaröðin um stríðið en „War Story“ eru þrír hálftíma langir þættir, sem byggja á reynslu þeirra sem voru hermenn í Víetnam. Að auki munu Fox Broadcasting og ABC-stöðin íhuga að gera smá- þáttaröð úr stríðinu en NBC ígrundar frakkasta leikinn; gera svarta kómedíu eins og M.A.S.H. byggða á Víetnam. „Duty“ þykir mun lakari en „War Story“. Þættimir segja frá mönnun- um í einum herflokki en eins og kannski mátti búast við af sjón- varpsframleiðslu er lítill broddur í efninu. Þama er sjálfboðaliði frá Suðurríkjunum, friðarsinni sem hætt hefur í háskóla og Puerto Ric- ani frá Bronx en þar með lýkur samlíkingu við bíómyndimar. Það er ekki aðeins að enginn maður í þáttunum blótar svo mikið sem einu sinni; vandamálið er, eins og segir í Newsweek, að CBS hefur litið algerlega framhjá þeim þáttum stríðsins sem gerðu það hryllilegt. Enginn reykir dóp. Agavandamál í bandaríska hemum eru engin. Skírskotanir til pólitískra deilna um stríðið eða mannslífanna sem það kostnaði em engar (í undarlegustu ákvörðun sinni ákváðu ritskoðendur stöðvarinnar að það væri í lagi að sýna menn sprengda í loft upp en það mátti ekki sýna þegar þeir komu niður aftur). I stuttu máli er Tour of Duty áhættulaust, formúlusjónvarp. En CBS á þó gott skilið fyrir það fram- tak sitt að fjalla um Víetnamstríðið yfírleitt. Það vom uppi deilur innan stöðvarinnar um réttmæti þess að gera sjónvarpsútgáfu af stríðinu. Hinir neikvæðu róuðust eftir að hafa séð fyrsta þáttinn en kannski þeir eigi eftir að æsa sig upp aftur því framleiðandinn, Zev Braun, hef- ur athyglisverðar hugmyndir um hvemig þættimir ættu að þróast. Hann vill sýna átök innan her- flokksins og hann er með þátt í undirbúningi sem sýnir stríðið frá sjónarhóli óvinarins. „Þeim blæðir og þeir gráta alveg eins og góðu gæjamir," segir hann. Kapalsjónvarp nýtur meira frels- is til athafna en auglýsingastöðv- amar og þess vegna m.a. er Víetnam War Storys öllu raun- vemlegri í lýsingu á mönnum og stríði. I öðmm þætti stígur illa lið- inn hermaður á jarðsprengju sem springur ef hann stígur af henni og hann verður að standa klukku- stundum saman undir brennandi sólinni á meðan félagar hans ákveða hvort það sé áhættunnar virði að bjarga honum. HBO íhugar að búa til framhaldsþætti byggða á „War Story“-forminu. „Þar sem við þurf- um ekki að halda okkur við sömu persónumar getum við fjallað vítt og breitt um stríðið," segir fram- kvæmdastjóri þáttanna. Fram-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.