Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 BO CARPELAN fæddist árið 1926 og er eitt virtasta og ágætasta ljóðskáld á Norðurlöndum á okkar dögum. Fyrsta ljóðabók hans, Som en dunkel v&rme kom út 1946, þegar Carpelan var aðeins tvítugur að aldri. Strax á eftir fylgdu bækurnar, Du mörka överlevande og Variationer. Þessar fyrstu bækur eru alvarlegar, næstum hátíðlegar og oft mettaðar táknum sem voru mjög í tísku í sænskri ljóðagerð um þessar mundir. Arið 1952 kom út ljóðasafn hans, Mínus sju, og þar kvað við annan tón. í bókinni eru prósaljóð, stundum dálítið gáskafull, en leitast umfram allt við að Ijá snögg og óvænt áhrif skyndilegs atviks. Sama viðleitni einkennir einnig næstu tvær bækur, Objektför ord og Landskapets förvandlingar. Den svala dagen kom út árið 1960 og73 digter árið 1966. Þar gengur hann einna lengst í bókum sínum í sparsemi á orð. A því verður breyting með Gárden (1969), sem hefur að geyma ljóðræna upprifjun æskuminninga úr fátæklegri leiguíbúð í bakhúsi við malbiksport í Helsinki. Á áttunda áratugnum sendi Carpelan frá sér tvær ljóðabækur, K&llan, árið 1973 og Ide mörka rummen, i de Ijusa, 1976, en fyrir þá bók hlaut Bo Carpelan bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1977. Nýjasta bók hans er Dagen vánderog kom hún út árið 1983. En hver var staða ljóskálda í Finnlandi, þegar Bo Carpelan var að yrkja sín fyrstu ljóð, í lok seinni heimsstyijaldar? „Það var árið 1946,“ svarar Carpelan. „Strax eftir stríðið var geysilega mikill áhugi á bókmenntum í Finnlandi, því þá var ekki hægt að fá neitt af neinu tagi og þá komu bækur í staðinn fyrir svo marga hluti. Eg hafði alltaf lesið mikið sjálfur, verið mikið á bókasöfnum, en ekki skrifað mikið sjálfur og ekki af alvöru. Kannski nokkur kvæði sem voru afar slæm. Ég varð stúdent 1944 og þegar ég bytjaði í háskóla, kom ég inn í hóp fólks þar sem voru, meðal annars, leikarar og rithöfundar. Þegar stríðinu lauk, fóru að berast bækur frá öðrum löndum. Þama fannst mér opnast ný veröld og þama fannst mér það vera eins og sjálfsagður hlutur að ég færi að skrifa. Á þessum árum var lítið um það að karlmenn byijuðu sem ljóðskáld, vegna þess að þeir vom svo uppteknir af stríðinu. Eiginlega settu konur svip sinn á bókmenntimar okkar milli 1940 og 1950. Næsta áratug á eftir, 1950 til 1960 komu aftur á móti fram margir karl- höfundar. Það var mér svo mikið fagnaðarefni að losna úr skóla, þar sem ég var undir ströng- um aga, átti að skrifa svona og svona, nota vissar beygingar á sagnir og allt þar fram éftir götunum. Ég varð loks fijáls. Þetta var líka góður tími til að koma fram, því í Svíþjóð höfðu módemistamir mtt brautina og reynd- ar var það svo að 5. áratugurinn var mjög fijór hjá okkur. Sjálfur varð ég fyrir meiri áhrifum af erlendri ljóðagerð ein þeirri sem var í Finnlandi og Sviþjóð, til dæmis frá Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þetta var meðal annars vegna þess að mód- emisminn kom mjög snemma fram í Finn- landssænskum bókmenntum, uppúr 1920 með þeim Edith Södergran, Gunnar Björling, Elmer Diktonius og Rabbe Enckel. Því skipti það miklu máli fyrir mig að feta ekki í þeirra fótspor, heldur finna mér áhrif utan frá. Það tók mig því langan tíma að fínna mína eigin rödd. Það gerðist ekki fyrr en með bókinni „Den svala dagen," sem kom út 1960 og er 6. bókin mín.“ Hefurðu eingöngu fengist við ljóða- gerð? „Nei, ég hef skrifað skáldsögur, bama— og unglingabókmenntir, eina sakamálasögu, leikrit, útvarpsþætti og, ja eiginlega allt mögulegt. En fyrst og fremst er ég ljóðskáld." En hefur staða ljóðskálda í Finnlandi breyst á þeim fjörutíu árum sem þú hefur verið að yrkja? „Það em vissulega miklu fleiri sem yrkja núna og það koma út fleiri ljóðabækur, en upplögin hafa ekki stækkað og það er orðið erfitt að fá bækur sínar útgefnar í Svíþjóð. Þó hef ég fengið allar mínar bækur útgefnar þar. Hinsvegar er staða skáldsins allt önnur og miklu betri nú, en var þá, því finnska ríkið hefur komið á mjög eftirtektarverðu launa- kerfi fyrir listamenn. Það er miklu betra samstarf milli skálda í Finnlandi sem annars- vegar yrkja á sænsku og hinsvegar á finnsku. í Finnlandi er mikil þýðingarstarfsemi á milli þessara tveggja mála í landinu. Það er fagn- aðarefni og gleðilegt, því fyrir okkur sem erum Finnlandssænskir, stendur fínnsk ljóða- gerð miklu nær okkur en sænsk, því þótt tungumálið sé sænska er menningarumhverf- ið fínnskt. Staða Finnlandssænsku er sú, að þetta er hluti af sænsku, en framburðurinn er á viss- an hátt öðruvísi og orðaforðinn er á vissan hátt öðruvísi líka, það er að segja, orða- forðinn hefur varðveist betur. Við höfum tekið inn færri tökuorð en Svíar úr ensku. Okkar tökuorð koma helst úr fínnsku. Svíum fínnst okkar tungumál fomeskjulegt. Ég er ekki viss um að þeir hafí rétt fyrir sér. Aftur á móti er það augljóst að Finnlandssænskan er ekki komin eins nálægt sinni upplausn og ríkissænskan, sem er Svíasænskan. Kannski er það vegna þess að í mállegu tilliti emm við minnihlutahópur sem af þeim sökum hugs- ar meira um tungumál sitt. En auðvitað tekur Finnlandssænskan líka breytingum og verður fyrir áhrifum frá nútí- malegum fyrirbærum. Finnlandssænsk ljóða- gerð hefur líka breyst, því áður fyrr hafði hún rætur sínar í náttúrunni sjálfri. Náttúru- ljóð, þar sem náttúran er notuð í táknrænni merkingu, eins og þið gerið hér á íslandi." Máfur (Den svala dagen) Landslag kann að breytast, tunglið breytist í blóð á svörtum himni og iaufín á tijánum verða brons. Það eru augu þín sem þjást, deyja og endurfæðast í þeirrigjá sem skilur veröldina þína frá veröidinni. Þú fieygir þéryfír hana í örvæntingu. Kannskirifíiarlandsiagþittfrá auga þínu þegar þú fellur og þú ert þú og ekkert nema máfur á svörtum himni með hljóm dauðans. „Upp úr 1960 breytist þetta. Þá er farið að bera meira á þjóðfélagslegri og pólitískri Ijóðagerð, einkum á vinstra væng stjóm- málanna. Þá var talað svona heldur í háðskum tón um okkur sem vomm kallaðir „sumarbú- staðaskáldin." Síðan hefur þetta breyst aftur, þegar menn fóm að verða sér æ meira með- vitaðir um mengun og náttúmeyðingu. Þá var hætt að kalla okkur „sumarbústaða- skáld.“ Nú er ljóðagerðin aftur farin að nálgast þá náttúm sem maðurinn heldur að hann sé að glata. Einu sinni tók ég mig til og hringdi í þenn- an mann sem tók upp á því að kalla mig „sumarbúsataðaskáld," afþví mig langaði að spyija hann hvað hann meinti eiginlega með þvf að nota þetta orð í svona niðurlægjandi merkingu. En ég náði ekki sambandi við hann. Hann var ekki heima. Hann var í sum- arbústaðnum sínum." Þú talar um ólíka þróun í Finnlands- sænsku og Svíasænsku, en er mikill munur á ljóðagerðinni sjálfri? „Svíar hlaupa miklu meira á eftir öllum mögulegum og ómögulegum tískustefnum, en gert er í bókmenntum Finna. Svíar tala mikið um hvað er „inni“ og hvað er „úti.“ Nú er aftur í Finnlandi ríkjandi ljóðagerð á borð við T.S. Elliott, það er ljóðagerð sem er torskilin, notar flókið myndmál og reynir á sjálfa tunguna. Fyrir nokkrum árum var þetta færdæmt. Þá áttu menn að skrifa eins einfalt og unnt var. En við tökum minni breytingum. Það er nú líka svo að sá sem er alvöru skáld fer eftir sinni eigin rödd.k en hleypur ekki á eft- ir hverskyns hégóma. Ég vísa til orða Gunnars Björling sem sagði eitthvað á þá leið: „Maður verður að framfylgja sinni eigin stefnu. Allt annað gerir líf manns og viðleitni að mark- Þögult gras (Den svala dagen) Hjartaðsamsvararekki takmörk- unum sínum Ijóðið ekki veruleikanum, veruleikinn ekki draumi Guðs. Hvers konar samtal er það sem breytir þér án þess að þú breytist sjálfur? Leitaðu ekki í þöglu grasinu, leitaðu að þöglu grasinu. „Þá var ég tiltölulega ánægður. Ekki full- komlega. Maður verður aldrei fullskapað skáld. Okkar saga er svo ólík ykkar, því styij- öldin var svoddan skelfíng. En svo var þetta spuming um tungumál. Þegar búið var að samþykkja fyrstu bókina mína til útgáfu í Helsinki, þá hætti ég á að senda sama hand- rit til Bonniers í Stokkhólmi og þeir sögðu já takk.“ Það skipti okkur sænskumálandi Finna máli að fá bækur okkar jafnframt gefnar út í Svíþjóð, því í Finnlandi eru 300.000 sænskumælandi, en í Svíþjóð níu milljónir. Og tungumálið er verkfæri skálds- ins. Maður má þó aldrei láta tungumálið tæla sig, heldur verður maður sjálfur að tæla tungumálið." Njörður P. Njarðvík og Bo Carpelan leysu.“ Þetta ber að skilja í ljósi þess að þeir sem ruddu brautina fyrir okkur með módern- ismanum, þurftu að þola háð og spott annarra, en fá ekki nú að heyra það lof sem á þá er borið. Það voru ekki margir sem elskuðu Edith Södergran meðan hún lifði, en nú kemur í ljós að hún virðist hafa átt marga vini.“ Hver hefur sagt (73 digter) Hver hefur sagt að þögnin vitni um hið ósagða? Fjarstödd orð eru fjarverandi. Tala því í samræmi við það sem þú getur ekki sagt. Ekkert er iátið ósagt nema fyrir klaufaskap eða visku. En svo við snúum okkur að þinni ljóða- gerð, þá eru ljóð þin mjög ólík i gegnum tíðina og þá helst í meðferð málsins. Á fyrri hluta ferils þíns eru sterkar lýsing- ar, siðan kemur sparsemi á orð og seinna breytist þetta aftur. Hvað er það sem ræður þessum breytingum hjá þér? „í byijun 7. áratugarins tók ég upp þá stefnu að hreinsa ljóðin sem mest. Nota sem allra fæst orð, nema burt allan „óþarfa.“ Þessi stefna gekk lengst í ljóðabók minni „73 digter," sem kom út árið 1966. Þá fannst mér þessi aðferð verða að einskonar blind- götu. Ef ég hefði haldið þessu áfram hefði ég blátt áfram orðið að þagna. Enda kom á daginn, þegar ég fór að fást við æskuminningar mínar í bókinni „Gáden,“ sem kom út 1969, að það yrkisefni krafðist þess að fá að verða að ofurlitlum frásögnum. Svo það var í rauninni yrkisefnið sem gerði sínar kröfur til aðferðarinnar. Svo fór ég að spara orðin aftur. Aðalatriðið er að hafa traustan eigin grun- dvöll. Þegar maður, sem skáld, hefur eignast hann, þá er hægt að horfa til fleiri en einnar áttar án þess að tapa sjálfum sér. Þessi grun- dvöllur verður alltaf fyrir hendi, þótt ein- hveijar breytingar verði á verkum manns. Ég tel mig hafa lært að reyna að skrifa skýrt. í því felst ekki endilega að málið þurfi að vera einfalt eða hafí einungis eina merk- ingu, en viðleitni til skýrleika skiptir mig miklu máli." Þú talar um að efnið ve(ji sér form. Er ekki hægt að sveigja efnið að forminu sem þú velur? „Það er kannski hugsanlegt að til sé yrkis- efni sem krefjist sonnettu, en ef yrkisefnið er þvingað inn í form, þá gerist eitthvað í sjálfu yrkisefninu. Það breytist, skrumskæ- list, eða jafnvel sundrast. Öll ljóðagerð á sér form. Það er hugsunarvilla að tala um að nútímaljóðagerð sé í fijálsu formi. Ljóð sem ekki bera í sér einhvetjs konar hrynjandi, einhvers konar hljómlistareðli, er blátt áfram ekkert ljóð. í nútímaljóði er yrkisefnið hluti af forminu og formið hluti af yrkisefninu. Þetta tvennt er eitt og verður ekki að skilið. Ef formið verður bara eins og ytra skraut, þá deyr ljóðið. Kannski undirstrikar maður aldrei nógu mikið að maður ætti fremur að tala um hrynjandi, heldur en form.“ Þú sagðir áðan að ljóðskáldið þyrfti að tæla tungumálið. Ertu að segja að tungu- mál ljóðsins lúti ekki sömu lögmálum og hið talaða mál og eigi sér sjálfstæða til- veru innan tungumálsins? „Hljóðfæraleikarinn verður að hafa vald á því hljóðfæri sem hann leikur á, smiðurinn verður að kunna að handleika hefil sinn og skáldið verður að kunna að meðhöndla tungu- málið. Þegar ég var með mína fyrstu ljóðabók fannst mér það stórkostlegt að orðin skyldu streyma til manns. Ég var eins og ölvaður af orðastreyminu. En í raun og veru vissi ég ekki alltaf hvað það var sem ég var að skrifa. Þegar ég skoða þá bók nú, skil ég ekkert í henni. Mér fínnst skipta mestu máli núna að mynd ljóðsins tali sínu máli og ég reyni að forðast notkun íburðarmikilla eða stórlátra tákna. Ég sækist eftir að skrifa ljóð sem eru áþreifanieg, konkret, svo að það tali til hinna fínn skilningarvita okkar og helst þess sjötta líka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.