Morgunblaðið - 30.10.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
41
Kvennadeild
slysavarnar-
félagsins fær
höfðinglega gjöf
Bolungarvík.
Á HINUM árlega fyrsta vetrar-
dagsfagnaði slysavarnardeild-
anna hér i Bolungarvik síðastlið-
inn laugardag, var greint frá
höfðinglegri gjöf sem slysvarn-
ardeild kvenna hafði borist. Það
var peningagjöf að upphæð
krónur 200 þúsund, sem Sigrún
Bjamadóttir gaf til minningar
um mann sinn, Sölva Betúelsson
frá Hesteyri.
Sölvi var fæddur 30. janúar
1893. Hann var alla tíð mikill at-
orkumaður og hans ævistarf lengst
af við formennsku á opnum bátum,
auk þess sem hann stundaði bjarg-
sig í Hom- og Hælavíkurbjörgum
í um 25 ára skeið. Hann lést 13.
janúar 1984 á 91. aldursári. Sölvi
var alla tíð hlynntur slysavamarfé-
laginu og slysavamarmálum, þó
ekki væri hann virkur félagi.
Bergljót Jónsdóttir, formaður
kvennadeildarinnar, færði Sigrúnu
þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf
og afhenti henni barmmerki slysa-
vamafélagsains I þakklætisskyni.
Bergljót sagði ekki ákveðið í hvað
þetta fé verður notað, að öðm leyti
en því að það fer óskipt til kaupa
á einhvers konar björgunarbúnaði.
Gunnar
Sauðfjárslátr-
un lokíð í
Stykkishólmi
Stykkúhólmi.
Sauðfjárslátrun í Stykkishólmi
er lokið. Alls var slátrað rúmlega
11 þúsund fjár og eftir því sem
Benedikt Lárusson, fram-
kvæmdastjóri sláturhússins, tjáði
fréttaritara Morgunblaðsins
gekk slátrunin vel, nægilegt
vinnúafl var allan tímann og því
engin töf.
Sláturhúsið var byggt upp og
endumýjað fyrir nokkmm árum og
virðist fréttaritara að það sé vel og
skynsamlega rekið og öll vinna
framkvæmd af kostgæfni. Benedikt
sagði að nú stæði yfír slátmn naut-
gripa og hefðu þegar verið slátrað
yfír 40, en í allt myndi verða slátr-
að yfír 100 gripum. Við höfum hér
ágætan og samviskusaman dýra-
lækni sem hefír fylgst vel með öllu.
Slátrun er ekki minni en í fyrra.
Eins og áður hefír komið fram í
fréttum er sláturhúsið í Stykkis-
hólmi eina sláturhúsið í Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu.
— Árni
ÞEGAR TVEIR
SFERKIR STANDA
AÐ ÞJÓNUSWNNI...
Van Leeuwen erstærsta lagerfyrirtæki röra og fylgihluta þeirra
í Evrópu. Sindra Stál rekurstærstu birgðastöð fyrir íslenskan
málmiðnað.
Ölfugtsamstarfvið V. Leeuwengerirokkurkleiftaðbjóðafjölbreytt
úrvai af svörtum og galvaniseruðum pípum, prófílpípum,
heildregnum pípum og suðutengjum. '
Skjót og öflug þjónusta vegna sérverkefna!
VAN LEEIIWEN ÉKÉ
SINPRAA4STALHF
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684
Arnarfíug og KLM
- 77/ yfir 130 borgo í 77 löndum
ARGUS/SlA