Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 80_______ Minning: Fæddur 17. mai 1898 Dáinn 11. desember 1987 Búnaðarskóli var stofnaður að Eiðum í Suður-Múlasýslu árið 1881. Aðdragandinn að stofnun skólans hafði verið nokkur. Meðal þeirra manna sem forgöngu höfðu um stofnun skólans voru tveir ungir menn af Héraði er sótt höfðu menntun sína erlendis, en það voru þeir frændumir Guttormur Vigfús- son frá Amheiðarstöðum og Jónas Eiríksson frá Skriðuklaustri. Þeir Guttormur og Jónas höfðu árin fyr- ir stofnun skólans ferðast um Múlasýslur til að kenna bændum það er til framfara mætti verða í búnaðarmálum. Urðu þeir síðan fyrstu skólastjórar hins nýja skóla, Guttormur fyrstu árin en árið 1888 tók Jónas við skólanum og stýrði honum í átján ár, til ársins 1906. Það er langur tími ef tekið er tillit til hve skólastarfið var allt ómótað og nýttust þar einstakir skipulags- hæfileikar og reglusemi Jónasar. Eftir Jónas liggur fjöldi skrifaðra kennslubóka og hélt hann svo ná- kvæmar skýrslur um bú og skóla að einstakt má telja. Liggja þar merkar skráðar heimildir um braut- ryðjandastarf í skólamálum Austur- lands. Þeir bændaskólar er þá risu voru undanfari allrar alþýðumennt- unar er síðar varð í landinu. Leiftur nýs tíma hafði farið um landið og átti eftir að leiða þjóðina úr myrkri vanþekkingar og örbirgðar til nýrra tíma. Kona Jónasar var Guðlaug Margrét Jónsdóttir frá Eiríksstöð- um á Jökuldal. Hafði hún miklu starfí að gegna sem bústýra skólans en því starfi gegndi hún allan þann tíma er maður hennar var skóla- stjóri. Guðlaug Margrét var mikil- hæf kona, virt mjög og vinsæl af öllum. Bæði voru hjónin gædd þeim gáfum sem best máttu nýtast í því starfi er þau völdust til. Þegar Jónas Eiríksson og Guð- laug Margrét fluttust að Eiðum höfðu þau þegar eignast ijóra syni. Það vpru þeir Halldór, Jón, Bene- dikt og Þórhallur. Á Eiðum fæddust þeim síðan tveir synir til viðbótar, v Ji Gunnlaugur og Emil. Eftir lát Guð- laugar Margrétar eignaðist Jónas einn son, Friðrik. Móðir hans var Helga Baldvinsdóttir. Urðu því syn- ir Jónasar alls sjö og voru nefndir Eiðabræður. Því höfum við farið hér í upphafi nokkrum orðum um Eiðastað að þeir bræður, synir Jón- asar og Guðlaugar Margrétar, mótuðust mjög af dvöl og starfí foreldra sinna í Eiðaskóla og átti það eftir að hafa djúpstæð áhrif á skaphöfn og líf þeirra allra. Eru nú fimm þessara bræðra látnir, fjór- ir fyrir all löngu en sá fimmti, Emil Jónasson lést á Landakotsspít- ala 11. desember síðastliðinn. Eftir lifa Gunnlaugur og Friðrik. "V' Emil föðurbróðir okkar sem við kveðjum fæddist að Eiðum og ólst þar upp hjá foreldrum sínum til átta ára aldurs en fluttist árið 1906 með föður sínum og bræðrum að Breiðavaði. Þá jörð hafði faðir hans keypt áður en hann lét af starfi skólastjóra. Guðlaug Margrét móðir hans hafði látist að Eiðum 26. maí 1906 rétt í þann mund er flytjast átti að Breiðavaði. Var þá Gunn- laugur ellefu ára og Emil átta ára. Mjög varð þeim móðurmissirinn sár en Guðlaug Margrét hafði verið . mikil og góð móðir sem þeim þótti afar vænt um. Emil naut allrar þeirrar fræðslu sem hægt var að fá að Eiðum og lærði eins og þeir bræður reyndar allir að stunda sjálfsnám svo hann varð gagn- menntaður maður. Emil var eigin- lega allt sitt líf að læra og hafði áhuga á öllum sköpuðum hlutum. -...Um tíma dvaldi Emil hjá frændfólki sínu á Eskifírði, Jóni Amesen kaup- manni, við nám og störf. Emil var ákaflega músíkalskur og stundaði nám í píanóleik hjá Eggert Gilfer í Reykjavík og spilaði alla tíð mik- ið. Þetta var fyrir þá tíð að vænlegt þætti að hafa hljóðfæraleik að Iífsstarfí en það hefði ekki verið Emil fjarri skapi. Nýlega hefur Jón Þórarinsson tónskáld sagt frá því í sjónvarpsþætti að sína fyrstu til- sögn í hljóðfæraleik hafí hann fengið hjá Emil Jónassyni á Seyðis- fírði, en þeir voru frændur og þeirrar kennslu nutu einnig önnur böm í fjölskyldunni. Emil kom til Seyðisíjarðar árið 1918 en þá höfðu þrír bræður hans þegar sest þar að, þeir Jón, Bene- dikt og Gunnlaugur. Starfaði hann þar við verslunarstörf uns hann í október 1923 tók að nema símritun hjá Stóra norræna símafélaginu. Starfaði hann síðan sem símritari á Seyðisfirði uns hann var skipaður umdæmisstjóri Pósts og síma á Austurlandi árið 1957 og því starfi gegndi hann til ársins 1967 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Stóra norræna símafélagið hafði gert samning við íslendinga um lagningu sæsíma til Seyðisfjarðar og umsjón rékstursins í tuttugu ár eðatil ársins 1926. Fyrsti símstöðv- arstjórinn var norskur, P. Trampe- Holm en árið 1927 tóku íslendingar við rekstrinum og varð þá Þorsteinn Gíslason fyrsti íslenski stöðvarstjór- inn. Norræn áhrif höfðu verið nokkur á Seyðisfírði. Þangað höfðu flust bæði Danir og Norðmenn. Blær norrænnar menningar setti því mjög svip á bæjarlíf á Seyðisfirði og jókst það að miklum mun með tilkomu sæsímans. Stöðvarstjórar voru erlendir og einnig kom fjöldi erlendra símritara til starfa. Gerðu aðrir Austfírðingar stundum grín að Seyðfirðingum, sögðu að þar gengju menn með flibba og hálstau alla daga og töluðu dönsku. Ekki var laust við að þessu fylgdi vottur af öfund því vitanlega jukust um- svif mjög og bæjarlífið blómstraði. Félagslíf var mikið og leiklist, söng- ur og hljóðfæraleikur í hávegum hafður. Blaðaútgáfa var þó nokkur og hafði verið það um langan tíma. Haldin voru vegleg kvöldverðarboð og dansleikir. Spilað var á hljóð- færi meðan matast var og kom það meðal annars í hlut Emils að spila svokallaða dinnermúsík og þótti takast vel enda ágætur píanóleik- ari. Höfðu þeir bræður Gunnlaugur og Emil lært að spila á hljóðfæri ungir drengir og voru óspart notað- ir til að spila fyrir dansi í sveitinni. Emil var bæði gáfaður og §öl- fróður maður og tók mikinn þátt í félagslífí. Hann sat í bæjarstjóm fyrir Alþýðuflokkinn frá árinu 1930 til 1942 eða í þijú kjörtímabil. Einn- ig var hann taflmaður góður og tefldi talsvert alla tíð, tók snemma að safna bókum og átti mikið og gott bókasafn. Þar er að fínna helstu bókmenntaverk, íslensk og talsvert erlendra fagurbókmennta. Þá átti Emil mikið safn listaverka- bóka og kunni svo góð skil á alþjóðlegri list og listsköpun að manni fannst stundum að hann hefði skoðað listaverk um veröld alla. Árið 1936 kvæntist Emil Bryn- hildi Haraldsdóttur. Brynhildur fæddist á Seyðisfirði 12. apríl 1899 og var dóttir hjónanna Haraldar Guðmundssonar og Önnu Ingi- mundardóttur. Brynhildur gekk í bama- og unglingaskóla á Seyðis- fírði og mætt.i segja okkur að það nám hafí verið svona ámóta og stúdentspróf er nú, því fram eftir þessari öld eða frá þeim tíma er fræðsla var almennt tekin upp í landinu, lærði fólk miklu meira á skömmum tíma en nú er. eftir allnokkra sjúkdómslegu á Landakotsspítala þann 11. þ.m. á 90 aldursári, og hafði þá lengi átt við vanheilsu að stríða. Emil Biynjólfur, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur á Eiðum í Eiðaþinghá þann 17. maí 1898, og var yngstur í hópi sex sona hjón- anna Jónasar Eiríkssonar, skóla- stjóra þar, og Guðlaugar M. Jónsdóttur. Eftir nám í Eiðaskóla fór Emil til SeyðisQarðar í símrit- aranám á áranum 1923—24, en réðst að því loknu til starfa hjá Landssímanum á Seyðisfírði sem símritari, og vann eftir það sleitu- laust hjá þeirri stofnun til ársins 1967 að hann sagði starfí sínu lausu fyrir aldurs sakir og fluttist búferl- um til Reykjavíkur. Þá hafði hann verið póst- og símstöðvarstjóri í tæpan áratug eða frá 1958, en gégnt áður starfí ritsímavarðsíjóra í allmörg ár. Sýnir það, að snemma hefur hann notið trausts og trúnað- ar í starfí. Þess naut hann einnig á sviði stjómmálaafskipta, því að hann var kjörinn í bæjarstjóm Seyðisfjarðar á vegum Alþýðuflokksins árin 1930—1942, og sat síðan í fram- færslunefnd Seyðisijarðarkaup- staðar á áranum 1936—1942, sem hefur sjálfsagt ekki verið vanda- laust á áram kreppu og atvinnuleys- is. Emil var afar fjölhæfur maður og hafði afskipti af fleira en stjóm- málum utan fastrar atvinnu. Hann var með afbrigðum tónelskur mað- ur, enda hneigðist hugur hans snemma til tónmennta, og tvítugur að aldri seldi hann kindahóp, sem hann hafði eignast á Eiðum, og notaði andvirðið til þess að fara í tónlistamám hér í Reykjavík, þar sem hann lærði m.a. píanóleik hjá frú Valborgu Einarsson, konu Sig- fúsar tónskálds. Er til Seyðisfjarðar kom eftir námið, hóf Emil að kenna píanóleik, en varð einnig undirleik- ari á skemtunum bæði við einsöng og íjöldasöng. Á síðustu áram æfði hann tríó með tveimur vinum sínum af Seyðisfírði, og sýnir það hversu vakandi áhuga hann hafði á tónlist. Einnig hafði hann snemma feng- ið áhuga á guðspeki, þótt hann gæti ekki sinnt því hugðarefni sínu svo nokkra næmi, fyrr en hann var seztur að hér í Reykjavík, og var hann á síðari áram allvirkur félagi í Guðspekifélaginu. Emil kvæntist haustið 1936 Brynhildi Haraldsdóttur, Guð- mundssonar, verkstjóra frá Firði, Seyðisfírði, og eignuðust þau eina dóttur, Önnu Katrínu, sem er sjúkrahúslæknir í Flórída í Banda- ríkjunum, gift Richard Rowey, en að auki tóku þau Emil og Bryn- hildur til sín í fóstur systurdóttur hennar, Halldóra Stefánsdóttur, sem er gift Karli Bóassyni, lög- regluþjóni, og hefur hún reynst fósturforeldram sínum með afbrigð- um vel, og verður lengi í minnum haft, ekki sízt hvert athvarf hún og hennar fjölskylda bjó Emil eftir að Brynhildur lézt árið 1969 og þar til yfír lauk. Eg man eftir þeim Emil og Bryn- hildi eða Billu, eins og hún var ævinlega kölluð af vinum og ætt- ingjum, allt frá því ég fyrst mann eftir sjálfri mér, enda mjög náinn vinskapur og samgangur milli móð- urforeldra minna, foreldra og þeirra hjóna, og áttu ættarbönd sinn þátt -í því, en móðurafí minn og Harald- ur, faðir Brynhildar, vora systkina- synir, og einnig vora Emil og móðuramma mín skyldmenni. Þess utan hafði Emil kynnst móðurfor- eldram mínum áður en hann kvæntist, þar sem hann leigði um hríð í Wathneshúsinu, þar sem þau bjuggu alllengi. Símstöðin var starf- andi í næsta húsi, sem auðveldaði samgöngur milli fjölskyldnanna. Emil og Brynhildur vora aufúsu- gestir á bemskuheimili mínu, og minnist ég margra góðra stunda með þeim þár, þótt ekki fyndist bami og unglingi alltaf skemmtilegt umræðuefni, sem á boðstólum var, á heimili, þar sem allt snerist um stjómmál. Það er erfítt að dæma um, hvort hjónanna var pólitískara, en ég minnist þess, að þegar um- ræður snerast um stjómmál, þá var Brynhildur oftast frammælandi í þeirri umræðu og talaði meira um Emil Jónasson frá Seyðisfirði Brynhildur var dugmikil gáfu- kona með lifandi áhuga á félags- og þjóðmálum, einörð í skoðunum, hreinskiptin og ákaflega sanngjöm. Skemmtileg kona. Brynhildur starf- aði hjá Stóra norræna og hafði hafíð störf þar sama ár og Emil eða 1923. Hún vann þar ýmist skrif- stofustörf eða sem talsímakona. Þeim hjónum fæddist dóttir árið 1937, Anna Katrín, sem lærði lækn- isfræði, stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og hefur starfað þar nær óslitið síðan. Er nú starf- andi læknir í West Palm Beach í Flórída, gift bandarískum manni, Richard Roweg, verkfræðingi. Einnig ólst upp hjá þeim hjónum systurdóttir Brynhildar, Halldóra Jóna Stefánsdóttir, gift Karli Bóas- syni fyrrverandi lögregluþjóni. Búa þau í Reykjavík og eiga þijú böm, Emil Brynjar, Önnu Sigríði og Öm. Brynhildur reyndi að halda áfram störfum utan heimilis eftir fæðingu Önnu Katrínar en það hefði hún helst viljað. Var að því leyti á und- an sinni samtíð, kannski svolítið róttæk en aðstæður leyfðu ekki slíkt á þeim tíma. Hún mun hafa verið mjög fær í sínu starfí og einnig afar snjöll saumakona. Síðar tók Brynhildur upp störf að nýju og aðstoðaði til dæmis mann sinn þau ár sem Emil gegndi starfí stöðvar- stjóra. Mikill samgangur var alla tíð milli Qölskyldna okkar enda ávallt verið náið samband milli þeirra bræðra. Bæði hjónin vora okkur alltaf ákaflega góð og fluttist sú góðvild og gæska með er við stofn- uðum sjálf heimili svo makar okkar og böm nutu einnig vináttu þeirra og umhyggju. Árið 1967 er Emil lét af störfum fluttust þau hjón til Reykjavíkur en þau höfðu þá byggt sér fallega íbúð á Kleppsvegi 126 og búið þar vel um sig. Þar var gott að koma eins og áður á Seyðisfirði. Brynhildur lést árið 1969 og það var Emil frænda okkar erfítt, en hann bjó upp frá því einn á Kleppsvegi 126, sem hann löngum kallaði miðpunkt heimsins. Sitt annað heimili átti hann þó á Dunhaga 13, hjá Hall- dóra fósturdóttur sinni sem ætíð reyndist honum hin besta dóttir og hugsaði ákaflega vel um fóstra sinn. Má með sanni segja að vel hafí hún launað honum fóstrið. Emil ferðað- ist ekki mikið á yngri áram en eftir að Anna Katrín hafði sest að erlend- is fór hann árlega til hennar til dvalar lengri og skemmri tíma. Hin síðari ár dvaldi hann vetrarlangt sérhvert ár hjá henni í Flórída. Mjög kært var með þeim feðginum, Önnu Katrínu og Emil. Reyndist og Richard, maður Önnu Katrínar, honum hinn besti sonur. Þegar hann dvaldi hjá þeim reyndu þau að gera honum allt það gott er þau gátu í té látið og ferðaðist hann með þeim víða og hafði af því mikla ánægju. Þegar gamall maður nær níræðu deyr vitum við í hjarta okkar að tíminn var kominn þó söknuður sæki ávallt að við lát góðs manns. Önnu Katrínu, Richard, Halldóra, Karli og bömum þeirra vottum við samúð og kveðjum Emil frænda okkar með virðingu og þakklæti. Áslaug, Jónas, Hallfríður, Lárus og Jón Gunnlaugsbörn frá Seyðisfirði. Enn fækkar í hópi fjölskylduvina og gamalla Seyðfírðinga. í dag verður til moldar borinn Emil Jónas- son, fyrram póst- og símstöðvar- stjóri á Seyðisfirði, en hann lézt þau en Emil. Bæði vora þau trúir og tryggir kjósendur og fylgjendur Alþýðuflokksins, og naut Emil stuðnings konu sinnar í stjóm- málastörfum sínum í bæjarstjóm- inni á Seyðisfírði, enda var Brynhildur bæði greind, skarp- skyggn og félagsvön kona, og líka óvenju hreinskilin og hispurslaus í skoðunum, sem stundum gat komið sér vel. Emil missti því mikið, þeg- ar hennar naut ekki lengur við, þótt hann væri löngu hættur öllum stjómmálaafskiptum og störfum, enda vora þau mjög samstæð heild í veranni, og varla hægt að hugsa sér hvort án annars. Eg minnist Emils þó fyrst og fremst sem góðs leiðbeinanda og félaga í tónlistinni, sem var okkar sameiginlega áhugamál, og entist okkur sem uihræðuefni mestallan tímann, sem hann stóð við í heim- sóknum sínum á bemskuheimili mínu. Til hans sótti ungur lagahöf- undur góð ráð, leiðbeiningar, styrk og stuðning, og síðast en ekki sízt álit, sem var mikils metið, enda bar Emil það gott skynbragð á tónlist og tónsmíðar, þótt sjálfmenntaður væri að mestu á þeim sviðum, að mati hans var óhætt að treysta. Stundimar, sem við áttum við píanóið á bemskuheimili mínu yfír tónsmíðum og hljóðfæraleik, meðan móðir mín tók til veitingar frammi í eldhúsinu, era mér því ógleyman- legar í minningunni, og fæ ég seint þakkað honum þá leiðsögn og þann áhuga, sem hann lét í té. Emil var gamansamur að eðlis- fari, léttur og hress í lund, hvenær sem hann var að hitta, og vel em á seinni áram og fylgdist grannt með þjóðmálaumræðu, lét þá skoð- anir sínar óhikað í ljós. A.m.k. einu sinni á ári ferðaðist hann út til Flórída og dvaldi þar alllangan tíma hjá Önnu Katrínu, dóttur sinni, enda var mjög kært með þeim feðg- inum, og lét hann sig ekki muna um að fara þessar ferðir, þótt aldur- inn færðist yfir og heilsan farin að bila. Þegar ég nú að leiðarlokum kveð Emil hinztu kveðju er mér efst í huga ómælanlegt þakklæti fyrir styrk hans, stuðning, hvatningu og leiðsögn á tónlistarsviðinu, og einn- ig trausta og trygga vináttu hans í minn garð og foreldra minna, um leið og ég bið honum blessunar Guðs í nýjum heimkynnum, og sendi dóttur hans, fósturdóttur og öðram aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Guðbjörg Snót Jónsdóttir Ungur má, en gamall skal, og ekki sæmir að hefja ramakvein, þá er gamall maður skilst við þessa tilvera, eftir langa ævi og innihalds- ríka. Þykist ég enda hafa þekkt Emil Jónasson, vin minn og frænda, nógu vel til að vita, að tárvot mærð- arrolla í hans minningu hefði orðið honum lítt að skapi, og raunar hæpið að hann hefði lagt á sig slíka lesningu. Kynni okkar frændanna hófust ekki fyrr en hann var kominn vel yfir sjötugsaldur, en má með sanni segja að betra væri seint en aldrei. Hann var þá löngu hættur veraldar- vafstri sínu, bæði í embætti stöðvar- stjóra Pósts og síma á Seyðisfirði og ýmsum öðram starfa. Kona hans, Brynhildur Haraldsdóttir frá Seyðisfirði, var þá látin fyrir nokkr- um áram, og Emil sat einn í ríki sínu á Kleppsveginum, er hann nefndi ávallt Nafla Heimsins, horfði sposkum augum á heiminn og „fílósóferaði" fram og aftur um Lífin og Tilveramar. Ein sextíu og tvö ár lágu millum okkar frænda, en stóðu hvoragum fyrir þrifum, og komu síst í veg fyrir að ég, strák- pjakkurinn, sækti Nafla Heimsins sem hvem annan helgidóm, og gleypti þar hvert orð, er fram gekk af munni Spámannsins sem stóra- sannleik. Er árin liðu, tók svo lærisveinninn að leggja einnig orð í belg, uns svo var komið, að öll helstu vandamál þessa heims og annars fundu sér óbrigðular lausnir í Nafla Heimsins, og mátti ekki milli sjá, hvor heimspekinganna væri gáfulegri. Reyndar skal þó játað, að Emil bar hér ætíð hærri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.