Morgunblaðið - 29.03.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
Um húsnæðísmál
eftírJúlíus Sólnes
Á yfírstandandi þingi hafa farið
fram miklar umræður um hús-
næðismál. Öllum er í fersku minni
húsnæðisfrumvarp félagsmálaráð-
herra, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem
mikill styrr stóð um síðustu vikum-
ar fyrir jól. Þurfti ráðherrann að
fara í verkfall og neita að sækja
ríkisstjórnarfundi til að þvinga
stjómarliðið til þess að afgreiða
frumvarpið sem lög frá Alþingi fyr-
ir jólin. Þá lagði ráðherrann kaup-
leiguíbúðafrumvarp sitt fram fyrir
nokkru og hefur umræðan verið
mjög á sömu leið. Hinir stjómar-
flokkamir fínna því allt til foráttu
og kvarta yfír því, að ráðherrann
hafi ekki haft samráð við þá um
frumvarpið. Ýmsir þingmenn bæði
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks hafa í umræðum á Alþingi
lýst yfír andstöðu sinni við frum-
varpið í núverandi mynd. Er því
mjög óljóst hvað verður um það í
meðförum þingsins.
Enginn efast um góðan vilja Jó-
hönnu Sigurðardóttur til þess að
láta gott af sér leiða í húsnæðismál-
unum. En hverju hefur svo sem
verið breytt? Hvað hefur áunnizt
við að samþykkja þessar breytingar
á lögunum um Húsnæðisstofnun
rfkisins? í þeim felst vissulega við-
leitni til þess að koma í veg fyrir,
að núverandi húsnæðislánakerfí
hrynji endanlega saman. Ekki er
þó hreyft við neinum nýjum hug-
myndum né gerð tilraun til þess að
leggja drög að nýju og nothæfu
húsnæðislánakerfí. Þegar upp er
staðið virðist allt sitja við hið sama.
Ekkert hefur breytzt nema hvað
biðlistinn eftir húsnæðislánum hef-
ur lengzt. Er nú reiknað með þvf,
að 12.000 umsóknir um húsnæðis-
lán verði óafgreiddar um næstu
áramót. Þá hefur heyrzt, að aftur
verði stöðvuð afgreiðsla á lánslof-
orðum, þar sem byggingarsjóðimir
séu tómir. Kerfíð gerir þannig
áfram ráð fyrir þvf, að umsækjend-
ur bíði í óvissu í mörg ár eftir því
að fá að vita hvort og hvenær þeir
fái húsnæðislán. Er jafnvel farið
að tala um, að þeir, sem nú sækja
um lán, fái þau afgreidd einhvem
tímann á næstu öld.
Lífeyrissjóðimir virðast halda að
sér höndunum. Bæði voru þeir sein-
ir til að ganga frá samningum við
Húsnæðisstofnum um skuldabréfa-
kaup og eins virðast þeir notfæra
sér það að draga þau fram eftir ári
sem framast er unnt. Enda er ekki
nema von. Því skyldu lífeyrissjóð-
imir vera áfjáðir í að kaupa skulda-
bréf á miklu lægri vöxtum en pen-
ingamarkaðurinn gerir almennt ráð
fyrir? í rauninni er því með þessari
síðustu tilraun félagsmálaráðherra
til að stoppa upp í eitt gatið enn á
handónýtu húsnæðislánakerfí
landsmanna kveðinn upp dauða-
dómur yfír því f núverandi mynd.
Því er kominn tími til að leita nýrra
leiða, hugsa málin upp á nýtt.
Landsmenn em löngu orðnir yfír
sig þreyttir á því að slást við hús-
næðislánadrauginn, sem hefur tröil-
riðið þjóðfélaginu mörg undanfarin
ár í skjóli óviturlegra ráðstafana
þeirra, sem hafa haft mest áhrif
og völd til þess að móta núgildandi
löggjöf um húsnæðismál.
Tillögnr Borgaraflokksins
Þingmenn Borgaraflokksins hafa
lagt mikla vinnu f það að fara ofan
í saumana á húsnæðislánakerfínu.
Hafa þeir lagt fram á Alþingi fmm-
varp tiLlaga um nýtt húsnæðislána-
kerfi, sem byggir á allt öðmm for-
sendum en það handónýta kerfí,
sem við nú búum við. Borgaraflokk-
urinn mætir til leiks óbundinn af
þeirri missmíð, sem núverandi hús-
næðislánakerfí er. Með því að leggja
fram tillögur að nýju og nothæfu
húsnæðislánakerfí vill Borgara-
flokkur sýna í verki, að hann megn-
ar að koma fram með nýjar hug-
myndir og notfæra sér nýja tækni,
nokkuð, sem gömlu stjómmála-
flokkunum virðist fyrirmunað að
gera.
Það hefur vakið athygli okkar
borgaraflokksmanna, en kemur
ekki á óvart, að fjölmiðlar gömlu
flokkanna, ríkisfjölmiðlamir em þar
ekki undanskildir, hafa forðazt að
minnast á þessar tillögur, þótt þær
eigi svo sannarlega erindi til alls
almennings í landinu. Undirritaður
hefur hins vegar þá reynslu af
Morgunblaðinu, að það stendur opið
öllum, sem vilja koma skoðunum
sínum á framfæri. Munum við því
á þeim vettvangi leitast við að gera
grein fyrir þeim tillögum, sem
flokkurinn hefur lagt fram á Al-
þingi.
Tvöfalt húsnæðislánakerfi
Þeirri skoðun hefur oft verið
hreyft, að bankakerfíð eigi að taka
að sér húsnæðislánin. Bankamir
geti algerlega séð um öll húsnæðis-
lán og þurfí ríkið ekki að skipta sér
frekar af þeim. Við teljum, að slíkt
kerfí geti aldrei gengið í þessu fá-
menna þjóðfélagi. Bankamir eiga
fullt f fangi með að sinna lánum
til atvinnurekstrar, veita lán til
skamms tíma til að fjármagna kaup
á alls kyns neyzluvömm, bflum,
heimilistækjum, Spánarferðum, svo
eitthvað sé nefnt. Þeir veita einnig
skammtfmalán vegna húsbygginga
og fbúðarkaupa og munu þurfa að
halda því áfram hvaða húsnæðis-
lánakerfí, sem yrði svo sem fundið
upp. Það að veita langtímaveðlán
vegna fasteigna samræmist illa
þeim bankarekstri, sem landsmenn
þeklq'a til. Þá hefur þeirri spurnfngu
Júlíus Sólnes
„Húsnæðislánakerfi ná-
grannaþjóðanna virðist
yfirleitt vera í góðum
farvegi og hinar ör-
væntingarfullu ráðstaf-
anir, sem sífellt er verið
að gera á íslandi til
þess að bjarga gjör-
ónýtu húsnæðislána-
kerfi okkar, eru
óþekktar með öllu.“
heldur ekki verið svarað: Hvar eiga
bankamir að fínna eða skapa það
fjármagn, sem óseðjandi húsnæðis-
lánakerfíð þarfnast? Einnig má
benda á það, að bankamir myndu
aðallega geta sinnt þeim, sem hafa
góða afkomu og ættu auðveldara
með að greiða hina háu markaðs-
vexti af húsnæðislánum bankanna.
Eftir sem áður verður nauðsynlegt,
að ríkisvaldið sinni málefnum
þeirra, sem þurfa á félagslegri að-
stoð að halda. Þannig verða félags-
legar íbúðir áfram að vera undir
vemdarvæng ríkisins og eins verður
það að sinna ungu fólki, sem er að
byggja eða kaupa sfna fyrstu íbúð
og hefur hreinlega ekki bolmagn
til þess að standa undir miklum
lánum með markaðsvöxtum.
Borgaraflokkurinn leggur því til,
að tekið verði upp tvöfalt húsnæðis-
lánakerfi. í fyrsta lagi sjái ríkið
aðeins um lánveitingar til bygginga
með félagsleg markmið og til
þeirra, sem em að byggja eða kaupa
sína fyrstu íbúð. í þessu skyni verði
Byggingarsjóður ríkisins og Bygg-
ingarsjóður verkamanna sameinað-
ir. Þingmenn Borgaraflokksins hafa
þegar lagt fram breytingartillögur
við lögin um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins þar að lútandi. Þar segir um
hlutverk hins sameinaða Bygging-
arsjóðs ríkisins.
„Úr Byggingarsjóði ríkisins er
heimilt að veita lán til byggingar
eða kaupa á íbúðarhúsnæði, til
meiri háttar viðbygginga, endur-
bóta og endumýjunar á notuðu
húsnæði, til útiýmingar á heilsu-
spillandi húsnæði og til orkuspar-
andi breytinga á húsnæði sem hér
segir:
1) íbúðir fyrir láglaunafólk (verka-
mannabústaðir).
2) íbúðir fyrir þá, sem eru að
byggja eða kaupa sína fyrstu
íbúð.
3) Verndaðar íbúðir fyrir öryrkja.
4) Vemdaðar fbúðir fyrir aldraða.
5) Leiguíbúðir á vegum sveitarfé-
laga og félagasamtaka.
Úr Byggingarsjóði ríkisins er enn
fremur heimilt að veita lán til bygg-
ingar eða kaupa á húsnæði fyrir
félagslegar stofnanir á vegum opin-
berra aðila og félagasamtaka svo
sem dagvistarstofnanir fyrir böm
og aldraða, hjúkmnarheimili og
dvalarheimili."
Þetta leiðir af sér, að hlutverk
Húsnæðisstofnunar ríkisins verður
aðallega að annast lánveitingar,
hugsanlega með niðurgreiddum
vöxtum eða sérstökum skattaíviln-
unum, til 1) íbúða fyrir láglauna-
fólk (verkamannabústaða), 2)
þeirra, sem em að kaupa eða byggja
sína fyrstu fbúð, 3) byggingar leigu-
íbúða í samvinnu við sveitarfélög,
félagasamtök og hagsmunasamtök
launþega, 4) byggingar vemdaðra
íbúða fyfip aldraða og öryrkja, 5)
„Hús og s1jörnur“
eftír Gunnlaug
Guðmundsson
Frá því að undirritaður fór að
leggja stund á stjömuspeki, í kring-
um 1973/74, hefur mikið vatn
mnnið til sjávar og margar breyt-
ingar orðið í stjömuspeki og á við-
horfum fólks til hennar.
Á fyrstu ámnum sem ég var að
læra stjömuspeki var hlátur al-
gengur eða að menn settu upp fyrir-
litningarsvip og sögðu: „Hvað í
ósköpunum ert þú að eyða tíma
þínum í þessa vitleysu." Ég hafði
hins vegar heillast af sljömuspeki,
hafði kynnt mér hana og vissi því
að hún bjó yfír meiri fegurð og visku
en flestir höfðu gert sér grein fyr-
ir. Enda ekki nema von. Hvemig
átti fólk að þekkja stjömuspeki sem
aldrei hafa kynnt sér hana og hélt
að stjömuspáin í blöðunum, „ekki
fara út í kvöld, þú færð bréf á
morgun", væri stjömuspeki. Það
var því ekki um annað að ræða en
að setja í herðamar og stíga fastar
til jarðar, að alkunnum sið Nauta,
þegar á móti blæs.
Vaxandi áhugi
Nú á síðari ámm hefur áhugi
manna farið vaxandi og augu
margra opnast fyrir þeirri stað-
reynd að hin ævafoma móðir vísind-
anna, stjömuspekin, er bæði hið
skemmtilegasta, ffóðlegasta og
gagnlegasta fag. Það að undirritað-
ur skyldi opna stjömuspekimiðstöð
á Laugavegi f hjarta höfuðborgar-
innar hafði sitt að segja og einnig
það að blað allra landsmanna skyldi
opna síður sínar fyrir alvarlegri
stjömuspeki en úthýsa stjömuspán-
um. Auknar upplýsingar höfðu þvf
sitt að segja. Það sem þó skiptir
aðalmáli er að á undanfömum ámm
og áratugum hefur tekið að gæta
vaxandi áhuga á andlegum málum
af öllu tagi, bæði hér á landi sem
og f heiminum öllum. Augu manna
hafa opnast fyrir því að efnis-
hyggjan ein sér opnar ekki dyr
hamingjunnar. Þar verða listin og
andinn einnig að eiga sinn sess.
Nýttfólk
Nú á þessu ári hafa síðan orðið
önnur tímamót í stjömuspeki hér á
íslandi, eða það að nýtt fólk er að
reyna að hasla sér völl í faginu.
Slíkt er eðlilegt. Aukinn áhugi þýð-
ir að nýtt fólk fer að láta sig fagið
varða. Þetta hefur m.a. birst í því
að á fót hefur verið sett stjömu-
kortagerð í Kringlunni í Reykjavík
og f Kaupfélaginu á Akureyri og
að annar aðili hefur auglýst kort
til sölu á Selfossi og í sveitum þar
f kring. Það að nýtt fólk bætist f
hóp áhugamanna um stjörnuspeki
verður að teljast fagnaðarefni. Þeim
mun fleiri sem hafa áhuga þeim
mun betra.
Aukin ábyrgð
Þegar áhuginn eykst og fleiri
fara að spyijast fyrir um fagið eykst
hins vegar ábyrgð þeirra sem
standa í fyrirsvari fyrir stjömu-
speki. Um það vil ég fjalla nánar
hér, enda er ástæðan fyrir því að
þessi grein er skrifuð sú að þó þró-
unin hafí hingað til verið hagstæð
þá eru nú ýmsar blikur á lofti. Ein
helsta hættan í dag er sú, að ef
stjömuspeki er kynnt á óvandaðan
hátt eða ef rangt er farið með stað-
reyndir er ekki við góðu að búast.
Undirritaður ber mikla virðingu
fyrir stjömuspeki og hefur reynt
að kynna hana hér á landi þannig
að virðingar sé gætt og að hvergi
sé farið með rangt mál. í dag ótt-
ast ég hins vegar að hætta sé á
ferðum og ef ekki sé að gáð verði
margt eyðilagt.
Stjörnuspeki er fag
Það sem um er að ræða er að
stjömuspeki er fag, sem menn
verða að læra áður en þeir ætla sér
að kynna það fyrir almenningi. Ef
ákveðnir aðilar sem ekki þekkja til
gmnnþátta fagsins setja sig hins
vegar upp sem fagmenn er hætta
á ferð.
Ástæðan fyrir þvf að ég skrifa
þessa grein er fyrst og fremst sú,
að mér hafa borist til eyma ákveðn-
ar sögur af kynningu á stjömu-
speki sem em beinlfnis (faglega)
rangar. Slíkt tel ég rryög illt og get
ekki, sem formaður samtaka
áhugamanna um stjömuspeki, látið
það óátalið að rangsögum sé komið
af stað. í stuttu máli hefur það nú
gerst að ákveðnir aðilar sem selja
stjömukort segja það kortum sfnum
einna helst til ágætis að f þeim sé
útlistun á húsunum svokölluðu.
Síðan er sagt að húsin séu aðalat-
riði og mikilvægari en aðrir þættir
í stjömukortinu. Það er þetta síðast
talda sem er rangt.
Varasöm fræðsla
Þeim sem lftið em innf stjömu-
speki fínnst þetta kannski smá-
vægilegt atriði. Það er hins vegar
alvarlegt ef stjamspekileg fræðsla
er röng. Hvað gerist ef upp rís í
landinu hópur stjömuspekinga sem
setur fram fullyrðingar sem ekki
fá staðist í raunvemleikanum? Hvað
ætli yrði t.d. um lögfræði ef hópur
manna tæki sig til og setti upp lög-
Gunnlaugur Guðmundsson
„Nauðsynlegl er að fólk
sem er að fjalla um
ákveðið fag hafi á því
þekkingu sem ristir
undir yfirborðið. Ég vil
þvi vinsamlegast biðja
þá sem ætla sér að
vinna við stjörnuspeki
að kynna sér gfrundvall-
aratriði í faginu áður
en farið er að kynna
það fyrir öðrum.“
fræðiskrifstofur hér og þar um
landið án þess að hafa neina sér-
staka þekkingu á lögum? Hætt er
við að illa færi og að virðing manna
fyrir lögum og reglum færi óðum
þverrandi.
Húsin eru varasöm
Varðandi húsin vil ég segja þeim,
sem hafa áhuga á stjömuspeki,
tvennt. í fyrsta lagi em þau mikil-
væg, en alls ekki það mikilvægasta
í kortinu. Merki og plánetur koma
þar fyrst og húsin sfðar. í öðm lagi
em húsin af mörgum talin varasöm.
Ástæðan fyrir þvf er tvíþætt. Ann-
ars vegar byggjast húsin á fæðing-
artíma, sem þarf að vera nákvæm-
lega réttur til að rétt hús fáist, og
hins vegar em til mörg húsakerfi
og erfítt að velja hið eina og rétta.
Skekkja um fímm mínútur getur
t.d. breytt húsum og stundum kem-
ur til greina að ein og sama plánet-
an geti verið f 2 húsum. Stöðluð
tölvulýsing á húsum er því mjög
oft ómarktæk og beinlínis villandi.
Það getur t.d. gerst að Sól í 5.
húsi verður Sól í 4. húsi og lista-
manni sagt að hann sé efni í fast-
eignasaia. Af þessum ástæðum not-
ar undirritaður húsin aldrei nema í
einkatfmum eða þegar það er aug-
ljóst að tfminn sé réttur eða að ein-
hver skekkja skiptir ekki máli. Það
byggist á reynslu manns sem hefur
brennt sig. Enda gleymir undirrit-
aður því aldrei þegar hann var að
byija í stjömuspeki og hitti fólk sem
hann hafði áður gert kort fyrir.
„Heyrðu, ég var að frétta að ég er
fæddur klukkan tfu mínútur f þijú
en ekki tíu mínútur yfír. Skiptir það
máli?“ Auðvitað brá mér, því u.þ.b.
helmingur af því sem ég hafði sagt
átti ekki við.
Fagmennska
Og þama erum við komin að
máli sem skiptir öllu. Nauðsynlegt
er að fólk, sem er að fjalla um
ákveðið fag, hafí á því þekkingu
sem ristir undir yfírborðið. Ég vil
því vinsamlegast biðja þá sem ætla
sér að vinna við stjömuspeki að
kynna sér grundvallaratriði í faginu
áður en farið er að kynna það fyrir
öðmm. Einnig er mikilvægt að gera
sér grein fyrir því að hún er fag
sem tekur tíma að læra. Því er
betra að flýta sér hægt. Menn verða
ekki fagmenn á einum degi. Jafn-
framt óska ég þess að farið sé með
rétt mál í allri kynningu á stjömu-
speki.
Ég vil einnig biðja þá sem hafa
áhuga á stjömuspeki að fara var-