Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Tunglin o g tungan eftírJón Óttar Ragnarsson Amar Hákonarson, umboðsmaður gervitungladiska, skrifar grein í Mbl. á dögunum og sendir mér tón- inn. Hann reynir að sjálfsögðu að beija í bresti þessarar tegundar sjónvarps, en gleymir því miður að fræða Islend- inga um nokkrar almennar stað- reyndir í leiðinni. Það sem mestu skiptir er að gervi- hnattasjónvarp nýtur alls staðar tak- markaðra vinsælda nema í þeim lönd- um þar sem ríkiseinokun tröllríður ljósvakamiðlun eins ogt.d. í Noregi. Ástæðan er einföld. Aðkeypt efni er yfir 90% af dagskránni og yfír- leitt a.m.k. 10 ára gamalt. Eigin framleiðsla er einskorðuð við létt- meti sem sjaldnast nýtur almennra vinsælda. Ekki bætir úr skák að allar gervi- tunglastöðvar Evrópu riða til falls vegna gegndarlauss taprekstrar. Bendir allt til að gerbreytt tækni (þ.á m. nýjar tegundir diska) sé síðasta von þessa iðnaðar. Gegn einokun Gervihnattastöðvar, einkum Sky Channel, hafa engu að síður gert ótrúlegt gagn. Þetta fyrirtæki hefur „Gervitunglasjónvarp á fullan rétt á sér, eink- um þar sem ríkiseinok- un er enn í fullu gildi. Hins vegar eiga að gilda sömu reglur um það eins og annað sjón- varp og þ.á m. sú regla að allt efni þeirra beri að þýða og texta á góða íslensku einsog gert er á RÚV og Stöð 2. Regl- an um að hægt sé að dreifa þessu efni til allt að 36 íbúða án textunar er að mínu mati allt of rúm því slík dreif ing er orðin vísir að sjón- varpsstöð og þar með merki um undanhald.“ t.d. á eigin spýtur átt verulegan þátt í að opna sjónvarpsmarkaðinn í Evr- ópu. Það er kaldhæðnislegt að árangur- inn er aragrúi einkastöðva sem senda út nýrra og betra efni sem hefur dregið verulega úr áhuga almennings á dagskrá gervihnattastöðvanna. Við bætist að það er aðstandend- um þessara fyrirtækja gífurlegt áfall að allar vonir um verulega aukinn samevrópskan auglýsingamarkað hafa hrunið til grunna á síðustu 5 árum. Þetta eru meginástæður þess að tvær stærstu stöðvamar, Sky Chann- el og Superchannel, eru að kikna undan skuldahalanum og framtíð þeirra er óviss svo ekki sé meira sagt. Hvers vegtia léleg dagskrá í gervihnattasjónvarp fer allt að 90% af fjármagni fyrirtækjanna í tækjabúnað (fyrst og fremst í rekst- ur á gervihnattarsambandi) og af- gangurinn í dagskrárkaup. Þessi hlutföll eru því sem næst öfug miðað við það sem gerist í hefð- bundnum sjónvarpsstöðvum á borð við RÚV og Stöð 2 þar sem um 10% fer í tækni og allt að 90% í dag- skrána. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að gervitunglasjónvarp fær t.d. sýn- ingarrétt síðast allra aðila, þ.e. eftir- að myndin hefur verið sýnd í bíó, Jón Óttar Ragnarsson vídeó, áskriftarsjónvarpi og loks ríkissjónvarpi. Til samanburaðr fær áskriftar- sjónvarp á borð við Stöð 2 kvikmynd- ina á undan öllum öðrum tegundum sjónvarps og þá venjulega a.m.k. 10 árum á undan gervihnattasjónvarpi. Framtíð gervi- hnattasjónvarps Gervitunglasjónvarp á fullan rétt á sér, einkum þar sem ríkiseinokun er enn í fullu gildi. Hins vegar eiga að gilda sömu reglur um það eins og annað sjón- varp og þ.á m. sú regla að allt efni þeirra beri að þýða og texta á góða íslensku einsog gert er á RÚV og Stöð 2. Reglan um að hægt sé að dreifa þessu efni til allt að 36 íbúða án textunar er að mínu mati allt of rúm því slík dreifíng er orðin vísir að sjón- varpsstöð og þar með merki um und- anhald. Varðveisla tungunnar er ekkert gamanmál. Ég var nýlega í Edinborg hjá frændum okkar Skotum. Þar tala 80.000 manns skosku (gelísku). Hinir sakna þess sárt að hafa glatað tungunni. Skotar eru a.m.k. eins stoltir af sínu þjóðemi og íslendingar. Sú stað- reynd að þeir glutruðu niður málinu er aðeins ein af milljón ábendingum til íslendinga að slaka hvergi á í þessum efnum. Lokaorð Gervihnattasjónvarp á að sjálf- sögðu fullan rétt á sér á íslandi sem annars staðar, en það verður að lúta sömu reglum og annað sjónvarp. Alþingi hefur lögfest að ótextuðu sjónvarpsefni megi ekki dreifa til fleiri en 36 íbúða í einu kerfí. Allir íslendingar eiga að leggjast á eitt að þau lög verði ekki rýmkuð . .. og ekki brotin heldur! Höfundur er sjónvarpsstjóri Stöðvar2. Nú getur þú valið um Gevalia kaffi í tvenns konar umbúðum. í Gevaliaflölskyldunni finnur hver og einn kaffi við sitt hæfi. Hafir þú ekki þegar kynnst gæðum Gevalia kaffisins - taktu þá hiklaust harðan pakka- eða mjúkan. NtJAR UMBUEHR H SOMU GÆDI SAMAVERD ^ M. V E-BrygK l;AÍ> - '.' -i I !iltliVíií!)u flfi l(íillifíuiiii f ijolliuin iiiiili ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.