Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 Málningar- límbönd ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK- SlMI 667222 -TELEFAX 687295 Rofmagns oghand- Ijrnarar Liprirog handhægir. Lyftigeta: 500-2000 kíló. Lyftihæð upp í 6 metra. Mjóar aksturs- leiðir. Veitum fúslega allarupplýsingar. BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI:6724 44 Sannsögli o g sannleikur eftir Guðmund Heið- ar Frímannsson Sannindi verða til þegar orð og setningar vísa til einhvers í veröld- inni, ósannindi þegar ekkert sam- svarar þeim. Sannsögli er mikil dyggð og maður iðkar hana, þeg- ar maður veit að maður segir satt, en lýgur þegar maður veit að maður segir ósatt. Það er mikil- vægt að átta sig á að sambandið á milli sanninda og sannsögli'velt- ur á vitneskju. Það er meira en hugsanlegur möguleiki að ýmis- legt, sem ég taldi vera satt og sagði eftir beztu vitund reynist vera ósatt. Sömuleiðis að lygi reynist vera sannindi. Það er á hinn bóginn æskilegt og gott að sannsöglin og sannindin fari sam- an. Það breytir þó engu um verkn- aðinn og dyggðina eða löstinn, sem í honum felst. Lygi er jafn- mikill löstur, þótt hún reynist vera sönn. Það, sem hér hefur verið sagt, eru sjálfsögð sannindi og þarf ekki sérstaklega mikla skarp- skyggni til að sjá þau og skilja. En samt sést mönnum stúndum yfir þau. Mikið hefur verið deilt um svo- kallað Tangen-mál, um frammi- stöðu fréttastofu Ríkisútvarpsins og skýrslu Þórs Whiteheads og sýnist sitt hveijum um þessi efni. Ein rökin, sem notuð hafa verið gegn skýrslu Þórs hljóða einhvem veginn svona: Dag Tangen gat ekki fært sönnur á mál sitt um leynilegt samband Stefáns Jóh- anns Stefánssonar við bandarísku leyniþjónustuna og fréttastofan gerði mistök; sannindin í málinu eru hins vegar svipuð því, sem hann taldi vera og hafa komið fram í skjölum, sem birzt hafa í Helgarpóstinum; það er ámælis- vert, svo ekki sé meira sagt, að Þór Whitehead skuli ekki hafa tekið tillit til þessa. Honum bar fræðimannsskylda að skoða öll hugsanleg skjöl um málið. (Sjá til dæmis grein Þorleifs Friðriksson- ar hér í blaðinu 27. apríl sl.) Þessi rök eru röng vegna mun- arins á sannindum og sannsögli. Tangen-málið snýst um sann- sögli; öjj fréttamennska byggir á henni. Öll gögn í því máli hljóta að lúta að því hvaða gögn líklegt „Tangen-málið snýst um sannsögli; öll fréttamennska byg-gir á henni. Öll gögn í því máli hljóta að lúta að því hvaða gögn líklegt sé að Tangen hafi haft fyrir sér og hvaða gögn fréttastofan hef- ur haft.“ sé að Tangen hafi haft fyrir sér og hvaða gögn fréttastofan hefur haft. Hvorl til eru gögn, sem varða þetta mál og varpa á það ljósi, en þeir, sem hlut eiga að máli, vissu ekki af, segir ekki nokkum skapaðan hlut. Það varð- ar einungis sannindin, ekki sann- söglina. Það er því villandi, svo vægt sé til orða tekið, að telja það blett á fræðimannsheiðri Þórs Whiteheads að hann hafí ekki fjallað um öll þau gögn þessa máls, sem hafa birzt, eftir að fréttimar vom sagðar í Ríkisút- varpinu. Eg hef enga vitneskju til að meta sannindi þessa máls um samband Stefáns Jóhanns Stef- ánssonar við Bandaríkjamenn á árunum eftir seinni heimsstyijöld- ina og ég veit ekki, hvort nokkur er í aðstöðu til þess. En einn liður- inn í að komast að þeim sannind- um er að átta sig á skoðunum, markmiðum og mati allra þátttak- enda þeirra atburða, líka Stefáns Jóhanns Stefánssonar, til að skilja, hvað vakti fyrir þeim. Það er dómgreindarleysi að kokgleypa allt, sem Bandaríkjamenn segja um þessi efni, jafnvel þótt það standi í leyniskýrslum. í Iokin er rétt að taka_ fram, hvað ég hef ekki sagt. Ég hef ekki sagt neitt um frammistöðu fréttastofu Ríkisútvarpsins, nóg hefur verið sagt um hana nú þeg- ar; ekki neitt um skýrslu Þórs Whiteheads um Tangen-málið, ég hef ekki lesið hana í heild; né heldur um fræðimannsheiður hans að öðru leyti, enda ekki þörf á því. Ég hef einungis bent á að ofangreind rök leiða ekki til þeirr- ar niðurstöðu, sem þeim er ætlað. Höfundur er við framhaldsnám í heimspeki í Skotlandi. Bláfjöll; Skíðamenn fóru milljón ferðir í vetur ÞRÁTT fyrir lítinn snjó í Blá- fjöllum framan af vetri var áð- sókn skiðafólks með mesta móti. Sjaldan hefur verið hægt að hafa lyftur opnar jafnoft og á nýliðn- um vetri. RITVELAR REIKNIVÉLAR PRENTARAR TÖLVUHÚSGÖGN SJÓMENN - ÚTGERÐARMENN Til sölu systurskip Reykjaness GK19 Umsögn Magnúsar Guðmundssonar eiganda og skipstjóra Reykjaness: „Báturinn hefur góða sjóhæfni, hann er góður á móti, í lensi og reki. Hann er stöðugur og með mikiö dekkpláss." Báturinn er úr stáli 9.9 tonn, hentugur til línu-, neta- og handfæraveiða. Báturinn er tilbúinn til innréttingar og vélarísetn- ingar. Veiðiheimild fylgir bátnum. Nánari upplýsingar veitir Karl Olsen í síma 92-14175 og eftir kl. 17 í síma 92-12334. Vélsm. Ol. Olsen hf. Sjávargötu 28 260 Njarðvík. Að sögn Þorsteins Hjartarsonar, fólkvangsvarðar í Bláfjöllum, ræður helgarveðrið mestu um aðsóknina. Hefur það verið með besta móti í vetur, og aðsóknin í samræmi við það. Teljarar í lyftum á vegum Blá- fjallanefndar sýna að skíðafólk hef- ur rennt sér um milljón sinnum nið- ur brekkur Bláfjallanna. Þessi mikla aðsókn hefur gefið af sér tekjuafgang, sem þeir Blá- fjallamenn vonast til að geta notað til þess að byggja aðstöðuna enn frekar upp. Síðastliðinn vetur leigði Bláfjallanefnd lyftur skíðadeilda Fram og Armanns og vonast er til að lyfta Breiðabliks fáist með sama hætti næsta vetur. Hugmyndin er svo að reisa bamalyftu, samskonar þeirri nýju, í Suðurgilinu svonefnda. Þorsteinn Hjartarson segist vera sannfærður um það, að enn fleiri komi til með að leggja leið sína í Bláfjöll eftir því sem aðstaðan byggist upp. Morgunblaðið/Sverrir Lögreglan kannar ljósastaurinn, sem féll í höfuð konu á sunnudag. Ljósastaur féll á konu LJÓSASTAUR í Hljómskála- garðinum brotnaði á sunnudag og féll á konu. Hún var flutt á slysadeild, en mun ekki vera al- varlega slösuð. Óhappið varð skömmu fyrir kl. 18 á sunnudag. Konan var á gangi í Hljómskálagarðinum, eftir Tjam- arbakkanum austanverðum. Þá brotnaði skyndilega ljósastaur við bakkann. Hann féll á konuna og kom í höfuð hennar. Lögregla og slökkvilið var kallað á vettvang og var konan flutt á slysadeild, þar sem gert var að sámm hennar. Talið er að ljósastaurinn hafi brotnað vegna ryðs eða tæringar. HITACHI KCrlNN© . w/vff neim stspk KRINGLUNNI -SÍMI (91)685868 Erlendum ferðamönn- umfækkaði íapríl ERLENDUM ferðamönnum fækk- aði um 1.250 í aprílmánuði sé hann borinn saman við aprílmánuð i fyrra. Hins vegar varð aukning á fjölda eriendra ferðamanna fyrstu þijá mánuðina og þvi stendur nokkurn veginn sama tala beggja megin ef fyrstu fjórir- mánuðir áranna 1987 og 1988 eru bornir saman. Hjá Ferðaþjónustu bænda sagði Páll Riehardsson, framkvæmdastjóri, að í verkfallinu hefði lítið verið að gera og ætti Ferðaþjónusta bænda í erfiðri samkeppni við sólarlandaferðir íslendinga. Hjá Konráð Guðmundssyni hótel- stjóra á Hótel Sögu fengust þær upp- lýsingar að margir gestir hefðu af- pantað í apríl. Taldi hann að reksturinn á hótelinu yrði ekki búinn að jafna sig fyrr en um 20. maí. Jónas Hvannberg hótelstjóri á Holiday Inn sagði að gestum hefði fækkað á meðan verkfallið stóð en nú væri allt komið í eðlilegt horf. Hjá Bifreiðastöðinni Hreyfli og Bifreiðastöð Reykjavikur var minna að gera meðan á verkfallinu stóð en nú virðist allt komið í lag aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.