Morgunblaðið - 31.05.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
49 '
fsins. Á tímabilinu janúar 1987 til
maí 1988 hækkar allt verðlag í
landinu um 30% þrátt fyrir fast-
gengisstefnuna, á sama tíma
lækkar gengi dollars um 10% og
meðalgengið er fast, helmingur
af öllum tekjum sjávarútvegs er
tengdur dollar eins og allir vita.
Lánskjaravísitalan hækkaði um
32% og framfærsluvísitalan um
29%, þetta þýðir að margir kostn-
aðarliðir sem eru tengdir lán-
skjaravísitölu hafa hækkað á
þessu tímabili, þetta er lykilatriði.
Verðbólgan hefur verið alltof mik-
il og það er þess vegna sem við
erum í þessari stöðu í dag. Það
hefur ekki tekist að taka á ýmsum
öðrum þáttum sem valda verð-
bólgu, sumt hefur orðið beinlínis
til að auka verðbólgu þótt það sé
ekki verðbólguskapandi eins og
t.d. vextimir. Á þessum tíma hafa
raunvextir hækkað úr 5% í 9,5%
sem er yfir 80% hækkun, raun-
vaxtakostnaður hefur hækkað á
þessu tímabili. Þetta er það sem
er grátlegast við þróun síðustu ár,
við erum búnir að hafa bullandi
góðæri, hækkun á afurðaverði er
þrátt fyrir það er lítið eftir, fyrir-
tækin hafa ekki getað notað þetta
góðæri til að greiða niður skuldir
og byggja upp fyrir erfíðari tíma
og ein ástæðan er þessi gífurlegi
vaxtakostnaður. Annar stór þáttur
í verðbólgunni er fjárfestingar-
stjómunin í landinu, við höfum séð
miklar stórframkvæmdir á höfuð-
borgarsvæðinu sem hefur leitt til
mikillar eftirspumar á fjármagni
og þenslu. Gagnvart þessum þátt-
um hefur ekkert verið gert, það
er stundum talað um byggða-
stefnu og nauðsyn hennar en það
eru engin merki þess að það sé
markviss byggðastefna í landinu.
Það vantar fólk í sjávarútveginn
úti á landsbyggðinni. Ekkert hefur
verið gert til að draga úr fram-
kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu,
stjómvöld geta gert það ef þau
vilja. í Finnlandi var t.d. settur
skattur á framkvæmdir á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta er vel hægt
að gera til að draga tímabundið
úr þeim. Það eina sem hefur verið
gert er að leggja 6% skatt á erlend-
ar lántökur og jafnt á sjávarútveg
sem skapar 76% af útflutnings-
tekjunum, það er út af fyrir sig
gott að draga úr erlendum lántök-
um en við þurfum að fjárfesta í
fiskiðnaðinum sem við lifum á. Það
er enginn greinarmunur gerður á
hvort verið er að fjárfesta í tækjum
sem skapa meiri útflutningsverð-
mæti fyrir þjóðarbúið eða stein-
steypu. Við getum auðvitað spurt
okkur, hvað getum við gert? Og
það er hlutverk svona ráðstefnu
að athuga hvað við getum gert
og hvaða kröfur við gemm til
stjómvalda, því það em stjómvöid
sem stýra afkomu landsbyggðar-
innar í gegnum stýringu og af-
komu í sjávarútvegi. Við hljótum
að gera kröfu um markvissa
byggðastefnu," sagði hann.
Finnbogi nefndi nokkur atriði í
því sambandi eins og að setja á
sérstakan íjárfestingaskatt á
ákveðin svæði í einhvem tíma og
að hafa lægri persónuafslátt hjá
fólki sem ynni við fískvinnslu á
landsbyggðinni. Það gerði það
kannski að verkum að hægt væri
að manna þessa undirstöðuat-
vinnugrein. Undanfarin misseri
hefur aukist útflutningur á óunn-
um físki vegna mannaflaskorts
sem væri mjög óhagkvæmt fyrir
þjóðarbúið f heild. Samgöngur á
landsbyggðinni er mikilvægur
þáttur til að bæta rekstur físk-
vinnslufyrirtækjanna, því með
bættum samgöngum er hægt að
dreifa hráefni meira á milli fyrir-
tækjanna, taka upp meiri sam-
vinnu og ná þannig meiri rekstrar-
hagkvæmni. Samgöngur em eitt
af undirstöðuatriðunum fyrir
landsbyggðina sagði hann.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
í hinni nýju verslun íslensks markaðar i flugstöðinni, Heilsu- og
happahorninu. Á myndinni eru frá vinstri til hægri: Aðalheiður
Svava Hólmgeirsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Emma H. Einars-
dóttir verslunarstjóri, Ófeigur Hjaltested framkvæmdastjóri og
Óskar H. Gunnarsson stjórnarformaður íslensks markaðar.
Keflavíkurflugvöllur:
Happa- og heilsuhom-
ið opnar í flugstöðimii
KefUvtk.
ÍSLENSKUR MARKAÐUR hefur
opnað nýja verslun í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Verslunin
heitir Happa- og heilsuhornið og
þar verða á boðstólum vítamín,
bætiefni og ýmsar þjónustuvörur
fyrir ferðamenn.
Ófeigur Hjaltested fram-
kvæmdastjóri íslensks markaðar
sagði að hugmyndin að verslun með
heilsuvörur væri ekki ný, en þar sem
rekstrarkostnaður væri mikill í
flugstöðinni hefði hann ákveðið að
hrinda hugmyndinni í framkvæmd
til að ná aukinni veltu.
Meðal þess sem selt er í Happa-
hominu er íslenskt sælgæti, blöð
og tímarit. Auk þess verða þar seld-
ir skyndihappdrættismiðar, svo sem
Happaþrennur, Lukkutríó og
Ferðaþristar og sagði Ófeigur að
yrði einhver svo heppinn að vinna
500.000 króna vinning þá yrði hann
borgaður út á staðnum, annað hvort
í erlendum gjaldeyri eða íslenskum
krónum.
- BB
Fjölbreytt úrval garöhús'gagna
Einstaklega falleg og á frábæru werði