Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 32

Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 Það var álit viðstaddra við formlega opnun laugarinnar i gær að nýja sundlaugin að IHugastöðum væri snyrtilegt mannvirki og um- hverfi hennar einnig. Ný sundlaug tekin í notkun á Olugastöðum NÝ sundlaug var formlega tek- in i notkun hjá orlofshúsunum á Illugastöðum i gær. Sundlaug- in er tæplega 17 metra löng og átta metra breið og hjá lauginni var jafnframt tveimur „heitum“ pottum komið fyrir. Heitt vatn er á bænum Reykj- um, sem er í um 6 km fjarlægð frá Illugastöðum. Þó var ekki ráð- ist í hitaveituframkvæmdir vegna of hás kostnaðar. Hinsvegar var ákveðið að taka tilboði Rarik sem bauð svokallaðan sumarbústaða- taxta til hitunar á sundlauginni. Að sögn sundlaugarvarða er nýt- ingin á sundlauginni mjög góð það sem af er og eru gestir allt upp í 150 á dag. A öllu svæðinu eru hátt í 200 manns í einu og eru orlofshúsin fullnýtt yfir sumartí- mann. Við orlofshúsin er húsvörð- ur, Jón Óskarsson, í fullu starfí og auk hans sér kona hans, Hlíf Guðmundsdóttir, um reksturinn á sumrin. Þá skipta tvær konur á milli sín sundlaugargæslunni yfír sumartímann og tveir unglingar eru ráðnir í snatt. Verktaki við framkvæmdina var Stefán Óskarsson á Rein í Reykja- hverfí. Raforka á Akureyri sá um raflögn og Miðstöð sf. sá um pípu- lagnir. Verktakar frá bænum Nesi sáu um jarðvinnslu, Verkfræði- stofa Norðurlands sá um hönnun laugarinnar, en framkvæmdir hóf- ust 29. maí. Fyrstu gestimir böð- uðu sig í lauginni 29. júlí svo fram- kvæmdimar tóku aðeins 69 daga. Opið er í sundlauginni á Illuga- stöðum frá kl. 11.00 til 18.00 alla daga nema laugardaga. Arið 1968 hófust fyrst fram- kvæmdir á Ulugastöðum með byggingu sjö orlofshúsa. Nú er risinn þar 31 bústaður auk félag- smiðstöðvar, verslunar og sund- laugar sem 20 verkalýðsfélög eiga aðild að. Gróðursettar hafa verið á svæðinu um 30.000 plöntur frá upphafí. Frá því að landið var girt og friðað, hefur gróður tekið mikl- um stakkaskiptum og meiningin er að halda áfram öflugu gróður- setningastarfí. Eitt orlofshúsið er sérhannað fyrir fatlaða og félag- smiðstöðin og sundlaugin hafa jafnframt verið hönnuð með þarfír fatlaðra í huga. Nýtingin er sem áður segir góð yfír sumartímann, en stjóm orlofshúsabyggðar á 111- ugastöðum hefur hug á að nýta húsin enn frekar yfír vetrartímann og býður bæði einstaklingum og félagasamtökum afnot af húsun- um fyrir ráðstefnur, fundi, nám- skeið og hvað annað sem nöfnum tjáir að nefna. Morgunblaðið/Rúnar Þór Síjóm orlofshúsabyggðar Illugastaða, frá vinstri: Jón Óskarsson húsvörður, Hlíf Guðmundsdóttir, Ása Helgadóttir, Kristín Hjálmarsdóttir, Hákon Hákonarson, Björa Snæbjörasson, Kristján Grant bilstjóri og Sigurður Hallvarðsson. Minni eftirspurn eftir út- gerðarvörum fyrirsjáanleg Tveir „heitir“ pottar voru settir niður hjá sundlauginni. SAMDRATTUR hjá sjávarút- vegsfyrirtælgum virðist ekki Dalvíkingar telja hafnar- aðstöðuna ófullnægjandi ÚTGEÐARFÉLAG Dalvíkinga fékk fyrir skömmu afhentan nýj- an togara, Björgvin. Skipið er stærra en þau sem fyrir voru í bænum, og virðist sú hætta fyrir hendi, að skipið taki niður í höfn- inni, sökum þess hve djúpt það ristir. Að sögn Júlíusar Snorrasonar, formanns Hafnamefndar Dalvíkur er ljóst að dýpka verður höfnina. „Þegar grafið var fyrir henni, var ekki gert ráð fyrir skipum af þeirri stærð, sem við gerum nú út. Gömlu skipin okkar voru farin að kenna grunns og þar sem hér er um stærra skip að ræða erum við mjög uggandi. Það sætir nú sjávarföllum til að sigla inn í höfnina og ljóst er að til verulegra vandræða getur komið í slæmum veðrum í vetur.“ Júlíus sagði Dalvíkinga hafa áhuga á því að fá bætt úr þessu ástandi með haustinu. „Umferð um höfnina hefur aukist mikið á síðustu árum en aðstaðan er engan veginn fullnægjandi. Það er eins og við séum ekki inn á fjárlögum, því ein- ungis er gert ráð fyrir að við fáum 500.000 kr. til hafnargerðar á þessu ári. Hins vegar þurfum við að fá bætt úr þessu á fjárlögum fyrir næsta ár,“ sagði Júlíus að lokum. enn hafa komið niður á þeim iðnfyrirtækjum við Eyjafjörð, sem framleiða vörur fyrir út- gerðina. Forráðamenn þessara iðnfyrirtækja segjast hins vegar verða varir við að aðlilar í út- gerð og fiskvinnslu séu að draga saman seglin, og minna sé pant- að fyrir næsta ár heldur en þetta. Að sögn Kristjáns Eldjáms Jó- hannessonar hjá DNG á Akureyri hefur gegnið vel hjá fyrirtækinu það sem af er þessu ári. „Við gerð- um ráð fyrir samdrætti hjá útgerð- inni enda benti allt til þess í fyrra að svo færi. Við þetta miðuðum við áætlanir okkar. Salan hjá okk- ur er svipuð og á síðasta ári en við fínnum hins vegar að það er minna fjármagn í umferð en þá. Margir sýna áhuga á framleiðslu- vörum okkar, en hafa ekki peninga til að kaupa þær. Ef markaðurinn innanlands bregst munum við ein- beita okkur að því að finna nýja markaði erlendis, en áætlanir okk- ar miðast við að hefja útflutning eftir ár.“ Pétur Reimarsson hjá Sæplasti á Dalvík telur að samdráttur í út- gerðinni 'nafí ekki enn komið niður á fyrirtækinu. „Söluaukninginn hjá okkur frá því í fyrra er 60 af hundr- aði,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Við getum auðvit- að ekki verið annað en ánægðir með það. Hins vegar lítur út fyrir að salan verði treg í haust. Við verðum nú þegar varir við sam- drátt í pöntunum hér innanlands. Fyrir nokkrum árum tókum við hins vegar þá ákvörðun að veðja á útflutninginn og þar hefur orðið mikil aukning hjá okkur að undanf- ömu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.