Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 Finnskur leikhópur: Orðlaus alla sýninguna SÍÐARI sýning finnska leik- hópsins, Teater Totem, verður í Norræna húsinu i kvöld klukkan 20:30. Þarna koma fram þau Margret von Marthens sem er þekktur leik- ari og leikstjóri barnaleiksýninga í Finnlandi og dansarinn Timo So- kuras og þeim til aðstoðar er finnski bamabókahöfundurinn Christina Anderson sem einnig mun fjalla um leikförina í finnskum fjölmiðlum að henni lokinni. Blaðamaður hitti þremenningana að máli í Norræna húsinu og for- vitnaðist nánar um leikhópinn og fólkið að baki hans. Það er Margret sem verður fyrst fyrir svömm. „Te- ater Totem leikhópurinn saman- stendur af okkur tveimur — mér og Timo — sem stofnuðum leik- hópinn árið 1986. Við Timo kynnt- umst fyrst árið 1982 þegar hann var dansari með Raatikko dans- hópnum og þau settu upp sýningu byggða á sögunni um „Fríðu og Dýrið“ (Beauty and the Beast). Þetta var danssýning með sögu- manni og ég tók það hlutverk að mér. Okkur Timo talaðist til að ein- hvern tíma skyldum við stofna lítinn leikhóp og vinna saman. Þetta tæki- færi gafst árið 1986 þegar Timo hætti hjá dansflokknum og ég fékk ársleyfi frá Skolteatern. Við unnum Morgunblaðið/Ámi Sæberg Teater Totem: Timo Sokura, Margret von Marthens og Kristina Anderson. f004921OO IM 1 r, 0O.MAIUI SBOLJ\ BA N K / ÍSLSKNDS o 99 NU STYÐJUM VIÐ ÓLYMPÍUFARANA! Öllum hagnaði ÍSÍ af Lottóinu (aessa viku verður varið til að styrkja ferð íslenskra íþróttamanna til Seoul. Leggjum okkar fólki á Ólympíuleikunum lið og leikum í Lottóinu! Iþróttasamband Islands ... . ■ : , i j Úr sýningunni um Pic og Nic. síðan þessa sýningu um Pic og Nic og frumsýning var í Helsinki í febr- úar 1987.“ Timo segir að það hafi strax orð- ið að samkomulagi að hafa engan texta í sýningunni, því hann hafi enga þjálfun í slíkum flutningi og einnig sé Margret sænskumælandi Finni og hann sjálfur finnskumæl- andi. „Við höfðum líka í huga að ef við færum með sýninguna til annarra landa væri til bóta að hún væri án texta." Leikmátanum er kannski best lýst með því að segja að leikendur notfæri sér leikstíl þöglu kvikmyndanna svokölluðu, þar sem aðaláherslan er á tengslin milli persónanna annnars vegar og áhorfendanna hins vegar. „Þetta er ekki algengur leikmáti í Finn- landi og það hefur komið fyrir eftir sýningu að krakkar hafa þakkað fyrir og sagt að þetta hafí verið skemmtileg kvikmynd," segir Margret. Sýningin um Pic og Nic hefur farið víða síðustu misserin. Alls eru sýningar orðnar á annað hundrað í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Færeyjum og Júgóslavíu. Ferðin til íslands er styrkt af fínnska menntamálaráðuneytinu og á sunnudag heldur Teater Totem til Grænlands þar sem fyrirhugaðar eru 12 sýningar. Kristina Anderson sem er þriðji meðlimurinn í leik- förinni segist vera öðrum þræði tæknimaður sýningarinnar og einn- ig skrásetjari; „ég ætla að segja frá þessari leikför 5 finnska útvarpinu og jafnvel skrifa í finnsk dagblöð. Það er jafnvel hugsanlegt að úr þessu verði heil bók. Mér fínnst heillandi að fylgjast með hvernig áhorfendur í ólíkum Iöndum taka þessari sýningu og sérstaklega hlakka ég til að sjá hvemig græn- lensk börn munu taka henni,“ segir Kristina. Hún er íslenskum leikhús- gestum að góðu kunn því fyrir nokkrum árum flutti Alþýðuleik- húsið eftir hana leikritið Prinsessan sem gat ekki talað. Aðspurð um fyrir hvaða aldurs- hóp sýningin um Pic og Nic sé snið- in, segja þau að hún henti vel fyrir böm á aldrinum 4—104 ára. „Það hefur þó sýnt sig að unglingar láta sér helst fátt um finnast en öll önn- ur böm virðast skemmta sér kon- unglega," segja þau að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.