Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 45

Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 45 Kvenfélag Kópavogs: Starfsár félagsins að hefjast svolítið spenntur eftir vinnuþrælkun síðustu vikur og verður að fara gætilega, ekki alls fyrir löngu leit hann yfir farinn veg og gerði upp sitt fyrra líf, ákvað að skrúfa tap- pann endanlega á flöskuna eftir að hafa átt við verulegt áfengisvanda- mál að stríða árum saman. Hann bauð í útsýnisferð um borgina í bíl sínum og upp á umræður um það sem efst er á baugi og ég þáði gott boð. Hann kom að stuttri stund liðinni og hringdi dvrabjöllunni. Ég tók eftir því að hann hafði ekki enn losað sig við sígarettuna en það stendur allt til bóta, þar er næsta verkefnið. Fór samt ekkert á milli mála að hann er yfirvegaður og alls ekki eins órólegur í bíl sínum og áður, nánast eins og nýr og betri maður, allt viðhorf til lífsins jákvæðara og lífsglaðari mann varla að fínna. A meðan hann ók um miðborgina leið meira að segja þreytan og spennan vegna vinnu liðinná vikna úr líkamanum, við reyndum að vera báðir jákvæðir til manna og málefna og einmitt slíkt hugarástand sagði kunningi minn beinlínis nauðsynlegt í oft á tíðum langri og strangri baráttu alkóhól- ista til að öðlast nýtt og betra líf. Og nú ók hann ekki eins og fyrr, líkt og Bakkus væri í aftursætinu, á miklum hraða, stressaður og yfir sig spenntur með áhyggjur af öllu milli himins og jarðar, allt á síðasta gjalddaga, falinn víxill og lögtaks- maður í dyragættinni. Nei, hann sýndi gangandi og akandi vegfar- endum sérstaka tillitssemi, kvað alkóhólista þurfa að vera öðrum til fyrirmyndar í umgengni við sam- ferðamenn. Ég hafði heldur ekki verið lengi í bíl kunningja míns þegar ég sannfærðist um innihald orða hans. Við fórum um miðborg- ina, Hafnarstræti og fyrir framan bílastæði við bflastöðina á homi Aðalstrætis og Hafnarstrætis, hleypti kunningi minn sendiferðabíl út á götuna, stoppaði bílinn og veif- aði til bflstjórans og kallaði til hans um leið og hann skrúfaði niður rúð- una bflstjóramegin í bfl sínum: . — Gjörðu svo vel, ekkert liggur mér á og það er í góðu lagi með umferðina á eftir mér, og bifreiða- stjóri sendiferðabílsins var greini- lega svo gáttaður á slíkri kurteisi að hann horfði á kunningja minn um stund eins og eitthvert fyrir- bæri sem væri af öðrum hnöttum eða plánetum, sagði síðan: „Ja, þakka þér fyrir góði,“ og brosti um leið og hann hélt út í Hafnarstræ- tið og er við komum á móts við Rammagerðina innar í Hafnar- strætinu var þar annar bfll, vöru- flutningabfll sem sennilega hafði um stund reynt að komast út úr porti, baka til við Útvegsbankann án nokkurs árangurs þar til kunn- ingi minn kom akandi á bfl sínum, fjögurra manna fólksbfl, hægði á ferðinni, var kominn út í glugga mín megin, hafði drepið í sígarett- unni í öskubakka í bifreiðinni og kallaði til bflstjóra vöruflutn- ingabflsins að hætti skákmanna: „Þú átt næsta leik. Ég sé að þér liggur á. Gjörðu svo vel, ég held röðinni fyrir aftan mig rétt á meðan þú ekur vöruflutningabflnum út úr portinu og yfír á götuna.“ Bílstjóri vöruflutningabifreiðar- innar veifaði til kunningja míns og kallaði síðan: „Heyrðu. hvaðan af landinu ert þú?“ „Hvaðan? Nú, úr Reylcjavík, Breiðholtinu," svaraði kunningi minn. „Jæja, og ert þá nýkominn með bflpróf, eða hvað?“ „Nei, nákvæmlega tuttugu og sex ár síðan ég tók prófíð," kallaði kunningi minn og bifreiðastjóri vöruflutningabifreiðarinnar, tók of- an húfu á höfðinu og hneigði sig, stökk síðan inn í vöruflutningabif- reiðina og lét ekki biða eftir sér, var kominn út í Hafnarstrætið á innan við hálfri mínútu og ekki einu sinni flautað í bflaröðinni sem hafði myndast á eftir bíl kunningja míns eftir öllu Hafnarstrætinu. Það var líka bjart og fagurt veður og allir í svona ljómandi góðu skapi, kvöld- ið áður lauk á Laugardalsvellinum landsleik íslands og Sovétn'kjanna, Davíðs og Golíats, með jafntefli þar sem Davíð stóð lengst af betur og hrein óheppni að Golíat næði jafn- tefli... Fimmtudaginn 22. september kl. 8.30 hefst 39. starfsár Kvenfélags Kópavogs. Þá verður haldinn fundur í Félagsheimilinu. Gestur fundarins verður Sigríður Ingimarsdóttir vara- formaður Kvenfélagasambands ís- lands, ætlar hún að kynna fyrir fund- arkonum erlend sambönd Kvenfé- lagasambandsins, svo sem Hús- mæðrasamband Norðurlanda — Al- þjóðasamband húsmæðra o.fl. Konur í Kópavogi eru hvattar til að mæta á þennan fund og kynna sér um leið starfsemi Kvenfélagsins. Stjóm Kvenfélags Kópavogs skipa nú eftirtaldar konur: Helga Helgadóttir formaður, Stefanía Bjarnadóttir varaformaður, Heiðrún Helgadóttir ritari, Ólöf Þorbergs- dóttir gjaldkeri, Þórunn Friðjóns- dóttir meðstjómandi, Margrét Sig- tryggsdóttir varamaður, Asta Guð- mundsdóttir varamaður. Almennir félagsfundir em haldnir einu sinni í mánuði og em þeir allt- af auglýstir í dagbókum dagblað- anna með nokkurra daga fyrirvara. Eins og undanfarin ár mun stjóm félagsins kappkosta að bjóða konum upp á vandaða og um leið skemmti- lega vetrardagskrá. Leikfiminámskeið félagsins verð- ur haldið í íþróttahúsi Kópavogs- skóla mánudaga og miðvikudaga kl,- 19. Kennari verður Sigrún Ingólfs- dóttir. Hægt verður að innrita sig hjá Önnu Bjamadóttur í s: 40729. Eins og flestum bæjarbúum er kunnugt hefur Kvenfélagið starf- rækt Líknarsjóð Áslaugar Maack um árabil. Formaður stjómar sjóðsins er Helga Þorsteinsdóttir. Meðal tekjulinda sjóðsins hefur verið merkjasala á kosningadögum og fæmm við öllum bestu þakkir fyrir . góðar móttökur í síðustu forseta- kosningum. Á þessu ári hefur sjóður- inn úthlutað rúmlega 300 þúsund krónum til bágstaddra bæjarbúa, öll úthlutun sjóðsins fer fram í kyrrþey. (Fréttatilkynning) LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13.00—17.00 Sýnum 1989 árgerðirnar frás MITSUBISHI OG VOLKSWAGEN Komið og skoðið mest seldu bílana á íslandi í dag Mitsubishi Lancer, Colt og Galant ásamt VW. Passat, sem nú er á allra vörum í Þýskalandi. BÍLASALAN BJALLAN OPIN BÁÐA DAGANA BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG [hIhekiahf Laugavegi 170-172 Simi 695500 MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.