Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 Sambúð ríkja á Kóreuskaga: Norðanmenn vilja sambands- ríki og Bandaríkjaher á brott Taka vel 1 tillögnr Rohs Tae-woos um leiðtogafiind ríkjanna og friðarráðstefiiu SeouL Reuter. Aðstoðarutanrikisráðherra Norður-Kóreu, Kang Sok Ju, flutti í gær ræðu á allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna og sagði að skynsamlegasta leiðin til að tryggja frið og samein- ingu ríýanna á Kóreuskaga væri að koma á sambandsríki. Hann krafðist þess að bandariskt herlið og kjarna- vopn yrðu flutt á brott frá Suð- ur-Kóreu, ríkin tvö fækkuðu verulega i heijum sinum og Kóreuskagi yrði gerður að kjarnavopnalausu svæði. Hann sagði enn fremur að þeir, sem segðu að ólíkt þjóðfélagsskipu- lag í ríkjunum tveim gerði sam- einingu þeirra óframkvæman- lega, vildu einfaldlega að Suð- ur-Kórea yrði „eign útlendinga um alla framtíð." Kang tók vel i tillögur Rohs Tae-woos, for- seta Suður-Kóreu, um leiðtoga- fimd Kóreuríkj anna og ráð- stefhu um firið i Norðaustur- Asíu en sagði að afhema yrði suður-kóresk lög sem bönnuðu ibúunum að kynna sér stefnu Norður-Kóreumanna. Kang gerði gys að fullyrðingum þess efnis að bandarískt herlið væri í Suður-Kóreu til að verjast mögulegri árás suður yfír landa- mærin og sagði þær úr lausu lofti gripnar. Spumingum norðan- manna um dvöl 40 þúsund manna bandarísks herliðs í Suður- Kóreu hefur ávallt verið svarað á sama hátt af fulltrúum suður-kóreskra sfjómvalda jaftit sem Bandaríkja- stjóm; herliðið fer ekki á brott fyrr en hættan á árás af hendi Norður-Kóreu er úr sögunni. Roh Tae-woo, forseti Suður- Kóreu, er talinn hafa komið mjög til móts við Norður-Kóreumenn í veigamiklum atriðum í ræðu sinni á allsherjarþingi SÞ á þriðjudag. Stjómmálaskýrendur segja þó að mörg ljón séu enn á veginum til sameiningar ríkjanna tveggja og sé þar helst að nefna kröfur Kims Il-sungs, einræðisherra Norður- Kóreu, um brottflutning alls bandarísks herliðs og kjamavopna frá Suður-Kóreu. Roh vék ekki að því máli í ræðu sinni. Roh hvatti í ræðu sinni til þess Noregur: Ríkisstjórnin með betri tök á efnahagsmálunum Ósló. Fri Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. NÚ þegar eitt ár er i almennar þingkosningar í Noregi virðist minnihlutastjóm Gro Harlem Brundtland vera traustari i sessi en nokkru sinni fyrr. Þótt borg- aralegu flokkamir hafí meiri- hluta á þingi geta þeir ekki kom- ið sér saman um aðra stjórn og kom þessi ágreiningur vel í \jós i umræðunum á þriðjudag að lok- inni hásætisræðunni, þar sem stefha ríkisstj órnarinnar er kynnt. Ekki hefur farið mikið fyrir sam- starfsandanum þjá borgaraflokkun- um sfðan þriggja flokka stjóm Kár- es Willochs fór fiá fyrir rúmum tveimur árum. Auk þess hefur ágreiningurinn um hugsanlega aðild Norðmanna að Evrópubandalaginu orðið til að stía þeim enn frekar í sundur, Miðflokknum og Kristilega þjóðarflokknum annars vegar og Hægriflokknum hins vegar. Hægri- flokkurinn vill fulla aðild að EB eins fljótt og auðið er en Miðflokkurinn er á móti og kristilegir vita ekki í hvom fótinn þeir eiga að stíga. Verkamannaflokknum hefur ekki vegnað vel í skoðanakönnunum á árinu en Gro Harlem og ríkissyóm- in virðast þó vera að ná tökum á eftiahagsmálunum. Er ekki ólíklegt, að það geti orðið flokknum til fram- dráttar í kosningunum að ári. Verð- bólgan er nú á bilinu 5-6% og háu, norsku vextimir em á niðurleið. Ekki fer á milli mála, að sú ákvörð- un stjómarinnar sl. vor að banna launahækkanir á árinu umfram eina nkr. á tímann hefur skiiað vemleg- um árangri. Einkaneyslan hefur minnkað mikið en afleiðingamar em líka þær, að atvinnuleysi hefur auk- ist, er nú um 3%, sem er þó langtum minna en í flestum Vestur-Evrópul- öndum. Margt bendir til, að vinsældir Framfaraflokksins fari heldur dvínandi. Um tima í sumar var flokkurinn sá næststærsti í Noregi með langt umfram 20% en nú er hann kominn niður fyrir 15%. Er fylgistapið meðal annars rakið til klaufalegra yfírlýsinga formanns- ins, Carls I. Hagens. Sagði hann meðal annars, að fólk ætti að fá að stunda „svarta" vinnu, svíkja undan skatti með öðmm orðum, og taldi, að ekki ætti að skattleggja tekjur upp að 100.000 nkr., um 700.000 ísl. kr. Þá vildi hann efna til þjóðar- atkvæðagreiðslu um stefnuna í mál- efnum innfljrtjenda. Ummælin um „svörtu" vinnuna ollu svo mikilli hneykslan meðal almennings, að Hagen sá sig tilneyddan til að taka þau aftur. markmiðið með viðræðunum væri að Kóreuskaginn, sem klofínn hef- ur verið í tvö ríki frá stríðslokum, verði aftur sameinaður i eitt ríki. Roh lagði einnig til að haldnar yrðu könnunarviðræður með fuli- trúum frá Kóreurflqunum báðum, Bandaríkjunum, Sovétrflgunum, Kína og Japan og skyldu þar rædd- ar leiðir til að koma á varaniegum friði í Norð-Austurhluta Asíu. í tillögum Rohs gekk hann að kröf- um norðanmanna um að ræða gagnkvæmar afvopnunaraðgerðir. Vestrænir stjómarerindrekar álíta að frumkvæði Suður-Kóreu til lausnar deilunum staft ekki sfst af auknu sjálfstrausti þeirra vegna mikilla efnahagslegra framfara í landinu síðastliðin ár og velheppn- uðum ólympíuleikum í Seoul í síðasta mánuði. Hvorki Sovétmenn né Kínveijar hafa enn sagt álit sitt á hugmynd Rohs um könnun- arviðræður ríkjanna sex en Japan- ar og Bandaríkjamenn hafa hins vegar lýst yfir stuðningi sínum við tillögur Rohs. Reuter Nýjasta tryllitækið Mikil, alþjóðleg hönnunarsýning var opnuð í gær í Singapore. Þar gat m.a. að líta nýja tegund af bresku reiðhjóli með þjálpar- vél. Vélin, sem er 35 rúmsentimetrar að stærð, tveggja strokka og kostar um 300 Bandaríkjadali (14.500 isl. 10*.), er sambyggð framþjólinu. Reuter Roh Tae-woo að leiðtogar ríkjanna beggja héldu með sér fund sem fyrst til að ræða griðasáttmála, gagnkvæma fækkun í heijum landanna ásamt friðsamlegum samskiptum og við- skiptasamningum. Langtíma- Ástarævintýrí Papandreous: Vekur fremur aðdáun með Grikkjum en hneykslan Fjnandai Timea og Reuter. UNDANFARNAR vikur hefur gríska þjóðin haft meiri áhyggjur af ástarævintýri Andreasar Papandreous forsætisráðherra en líðan hans eftir þjartauppskurð í London. Fyrir skemmstu birtist umdeild mynd, tekin i garði sjúkrahússins, af ráðherranum með ástkonu sinni. Að svo háttsettur ráðamaður skuli leyfa ljósmynd- ara að mynda sig á rómantískri göngu með þjákonu sinni væri óhugsandi í Bretlandi, Bandaríkj unum og næstum hvaða Vestur- Evrópuríki sem er. Papandreou hafði hins vegar ekkert við slíkt að athuga jafiivel þótt í Grikklandi sé tryggð við (jölskyldu og heimili mjög í hávegum höfð og kynlffsbyltingin viðs Qarri. Astarævintýri forsætisráðherr- ans og flugfreyjunnar Dimitru Liani hefur allt til að bera sem hneykslað gæti viðkvæmar sálir skyldi maður ætla. Þau hittust í flugvél á leið til Indlands fyrir þremur árum. Dagblað f stjómar- andstöðu ljóstraði upp um hliðar- spor forsætisráðherrans fyrir ári. Þá kaus hann fremur að fara í skemmtisigiingu með Liani en taka þátt f minningarathöfn um fómarlömb jarðskjálfta f bænum Kalamata á Grikklandi. Bæði era gift en skilnaður Liani og eiginmanns hennar er yflrvof- andi. Papandreou hyggst sækja um skilnað frá Margareth, hinni bandarfsku eiginkonu sinni, þegar hann heldur heim ftá Englandi. Þau hafa verið gift f 37 ár. í ljósi þess að Papandreou er 69 ára gamalj en Liani 34 ára mætti búast við hneykslan og kröfu um afsögn ráðherrans. Aðdáunarverð lífsorka En hvers vegna hefur gagnrýn- in farið svo hljótt? Svarið er aug- ljóst þegar haft er f huga að íhaldssemi grísks þjóðfélags hvflir þyngra á konum en körlum. Litið er á dráp á ótrúum eiginkonum eða vinkonum sem vegsemdar- auka en framhjáhald karla, sem er nokkurs konar viðtekin hefð, staðfestir fremur aðdáunarverða lífsorku. „Nú, ef stúlkumar geta ekki látið hann í friði við hveiju er að búast," eru hin dæmigerðu viðbrögð grískra kynbræðra Pap- andreous við hliðarspori hans. Meðal eldri kynslóðar grískra Papandreou og Dimitra f ajúkrahúsgarðinum. kvenna sem ekki vinna utan heim- ilis er f heiðri höfð ímynd eigin- konunnar sem býr í þöglu píslar- vætti við framhjáhald eigin- mannsins og fær útrás fyrir kvöl sína í móðurástinni. Píslarvætti eiginkonuniiar Þvf er ekki að undra að stórir hópar grfsks þjóðfélags lfta með aðdáun á Margareth Papandreóu, stofnanda herskárrar kvenrétt- indahreyflngar á Grikklandi, sem hefur kosið að taka framhjáíhald- inu með þögn fremur en grípa frumkvæðið til að binda enda á hjónabandið. Viðhorfið til „Mirni" eins og. Papandreou kallar lagskonu sína tekur daglegum breytingum. Þeg-; ar Papandreou kaus að taka hana; með sér til London í stað eiginkon- unnar var bmgðið upp mynd af henni sem hinni tryggu grísku konu sem léti sér annt um elsk- huga sinn. En þegar heimför for- sætisráðherrann nálgast er henni fremur lýst sem konunni sem svipti hinn aldna ráðherra glór- unni. Fjölmiðlar á Grikklandi bfða spenntir eftir heimkomu ráðherr- ans en hann er nú á hóteli f Lon- don til að ná sér eftir aðgerðina. Hvað verður um Liani? Verður hún við hans hlið f baráttunni fyrir þingkosningamar í júnf? Er hjónaband á döflnni? Flestir spá því að ástarævintýr- ið verði síst til að draga úr fylgi við flokk Papandreous f kosning- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.