Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 10
1 11 D stm aasM3r:w i smoAcnmwKi ItÁfíIli;JT22%HMAM caG^iavrjomv 10 c MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 LÆKNISFRÆÐI/Æ, þetta verblaunastand! Meira um nóbel-mann Asunnudaginn var nefndum við nóbelsverðlaunahafa í lífeðlis- fræði eða læknisfræði, eins og þessi hluti verðlaunanna heitir fullu nafni. í þetta sinn segir ofurlítið nánar frá einum hinna „ný- bökuðu“, skoska lækninum James Black. Hann er 64 ára að aldri, fæddur og uppalinn í Cowden- beath, ekki ýkja eftir Þórarin langt frá Edinborg, Guðnason en hinum megin við Forth-fjörðinn. Faðir hans var námu- verkfræðingur, og næstelsti sonurinn á heimilinu las læknisfræði. James litli fletti stundum lærdómsbókum bróður síns án þess að hugsa fram í tímann. Hann var rólyndur piltur og lifði og hrærðist í dagdraumum, segir hann sjálfur og bætir gjarnan við: „Ég hef alla tíð verið gefinn fyrir að láta hugann reika.“ En læknisfræði valdi hann í há- skólanum og gerðist þar brátt hinn mesti námsgarpur. Snemma varð honum ljóst að hefðbundin læknis- störf yrðu honum ekki að skapi. „Ég sætti mig ekki við þá meðferð sem sjúklingar fengu. Mér fannst hún ekki nógu skilningsrík. Þeir voru dregnir í dilka: Hjarta, lifur, iungu — og voru ekki einu sinni sjúkling- ar, því að sjúklingar eru verur með einstaklingseðli." Samt sneri hann að prófi loknu út á brautir vísindarannsókna, þótt flestir sem þar ganga láti sig ein- staklinginn litlu varða. En lífeðlis- fræðin freistaði hans, nákvæmni hennar og reglufesta. Og kunnugir telja að hjá honum hafi alltaf verið grunnt á löngun til að láta gott af sér leiða. Styrkur hans hafi ekki síst legið í leit að þekkingu sem koma mætti venjulegu fólki til hjálpar, með öðrum orðum sjúklingum. Black gekk hvað eftir annað í þjón- ustu stórra lyfjafyrirtækja en gætti þess að verða hvergi mosavaxinn. „Rannsóknastofnanir eiga ekki að vera mjög stórar. Þær skemma góða menn,“ er haft eftir honum. Þegar hann var orðin þekktur fyrir upp- götvanir sínar vildi lyfjaiðnaðurinn flagga nafni hans í auglýsingaskyni. „Ég hélt við ættum að búa til meðul en komst að því að við áttum að búa til peninga. Peningar eru eins og loftið sem við öndum að okkur — nauðsynlegir en ekki einhlítir." Hann vann hjá Imperial Chemical Industries þar sem própranólól (Ind- eral) og önnur hjarta- og háþrýst- ingslyf urðu til; síðan flutti hann sig til Smith Kline & French og í þeirra hlut kom að framleiða fyrsta maga- sárslyfíð, símetidín (Tagamet); og að lokum stjómaði hann tvö hundruð manna liði í lyfjarannsóknum fyrir Sir James Black Wellcome-stofnunina þar til nú fyrir skemmstu að hann hóaði saman nokkrum vel völdum samstarfsmönn- um og setti á laggirnar rannsókna- stöð í tengslum við King’s College spítalann í London. Þar hyggst hann snúa sér að hormónarannsóknum en risafyrirtækið Johnson & Johnson ætlar að sjá um fjármálin og lofar að skipta sér ekki af öðrum hliðum starfseminnar. Þrátt fyrir allt er ekki ónýtt að vera frægur. Eftirmaður hans hjá Wellcome segir: „Hann er vísindamaður í meist- araflokki og með eindæmum hug- myndaríkur. Lyfjaiðnaðurinn hafði árum saman byggt á starfi manna sem leituðu nýrra afbrigða eftir lög- málum efnafræðinnar og þreifuðu sig áfram með því að prófa ný og ný. En James Black breytti um stefnu. Nú þreifa menn ekki lengur fyrir sér; nú hanna þeir lyfin. Það er honum öðrum fremur að þakka að við eigum völ á skraddarasaumuð- um sameindum." Black er sannfærður um að ef hann hefði sigrast á sjaldgæfum sjúkdómi með uppgötvunum sínum hefði frægð hans orðið lítil miðað við þá sem hann hlaut fyrir að líkna milljónum manna með hjartasjúk- dóma, hækkaðan blóðþrýsting eða magasár; og það finnst honum ekki með öllu réttlátt. Hann segir nútímann ekki hlið- hollan rannsóknum á borð við hans. „Mikilvægustu rannsóknir eru alltaf umdeildar í fyrstu og það voru mínar rannsóknir líka. En á seinni árum fæst enginn til að kosta umdeildar ranrisóknir. Nú liggur svo mikið á og við þær aðstæður hefði ég litlu fengið áorkað. Nú verða menn að geta sannað ágæti vinnu sinnar, að öðrum kosti fá þeir enga peninga. Ef við hættum að fást við umdeildar rannsóknir kynni okkur að iðra þess eftir tuttugu ár. Höfum við efni á að bíða svo lengi?“ Þessum snillingi þótti nóg um all- an gauraganginn kringum nóbels- verðlaunin. Það hefði verið ólíkt meira gaman að taka ný rannsókna- tæki upp úr kössum en opna öll þessi bréf og skeyti sem þöktu skrifborðið hans. Æ, þetta nóbel-stand! En í einu sendibréfanna stóð skrif- að: Ég hugsa hlýtt til þín í hvert skipti sem ég sting upp í mig Taga- met-töflu. Hlýleg, íslensk jólagjöf handa námsmónnum, vinum og œttingjum erlendis íslensk Álafossvœrbarvob er gób hugmyndþegar velja skal fallega og vandaba jólagjöf handa œttingjum og vinum erlendis. Notaleg jólakvebja, sem kemur sér vel, hlý, mjúk og endist lengi. SÖLUSTAÐIR: Álafossbúðin, Vesturgötu 2. íslenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3. Rammagerðin hf., Hafnarstræti 19. Ullarhúsið, Aðalstræti 4. Er nauðsynlegt að vísindamenn endurskoði afstöðu sína til Homo habilis, fyrstu tegundarinnar sem tilheyrði ættkvísl mannlegra vera? VÍSINDI/ Varþ róun mannsins mun flóknari en talid hefur veriöf Afforfeðmm mannanna Upphaf mannsins er sígild og brennandi spurning sem enn er langt frá því að vera fullsvar- að. Jarðsagan geymir fjölbreyttar menjar mannapa og annarra mannskyldra vera, en nákvæm þróunarfræðileg tengsl hinna ýmsu tegunda eru flest frekar óljós. Oft er erfitt að segja til um það hvort tvær tegundir tilheyra tveimur sjálfstæðum þróunar- greinum, eða hvort önnur hefur þróast af hinni. Aldursgreining ein getur ekki skorið úr um þetta at- riði. A undanförnum fjórum áratug- um hafa fornleifafræðingar fundið mikilvægar menjar ýmissa for- feðra okkar í Tansaníu og öðrum Iandsvæðum Austur-Afríku. Lengi vel var það trú manna að menjarn- ar væru eingöngu af tveimur meg- integundum frummanna, Homo habilis og Australopithecus. Fyrr- nefnda tegundin er taiin sú fyrsta sem tilheyrir flokki „mannlegra vera“, þ.e.a.s. Homo-ættkvíslinni, en sú síðamefnda er frumstæðari og tilheyrir mannöpum. Homo habilis lifði á tímabilinu frá því fyrir 2,3 milljón árum þangað til fyrir 1,6 milljón árum og var fyrst allra lífvera til að búa til einföld verkfæri úr steini. Tegund- in Homo erectus kom fram á sjónarsviðið fyrir 1,6 milljón ámm og hafði stærra heilabú og lengri fætur en Homo habilis. Verkfæri Homo erectus vom vandaðri og marg- þættari en verkfæri Homo habilis. Nýlegar rannsóknir sýna að menjar sem vísindamenn hafa hingað til talið til Homo habilis tilheyra líklega tveimur, ef ekki þremur, mismunandi teg- undum. Þetta kemur ekki allskostar á óvart, þar sem nokkrir vísindamenn hafa um nokkurt skeið talið að hin eiginlegu einkenni Homo habilis hafí verið óljós og því hafi menn freistast til að flokka óljósa fundi til þeirrar tegundar. Fyrsta verulega óvissan um stöðu Homo habilis í þróun mannl- íkra vera kom fram árið 1986, en þá fundust í Olduvai Gorge í Tans- aníu leifar smávaxinnar kvenvem, nú þekkt undir nafninu OH 62, sem talin var tilheyra Homo habil- is. Nákvæmar rannsóknir á fjölda beinbrota sýndu að andlitslögun og tanngerð þessarar lífvem líktist helst fyrsta þekkta eintakinu af Homo habilis, sem fannst árið 1960, en stærð og útlimahlutföll minntu meira á Australopithecus. Þessar nýju niðurstöður setja ýmsar eldri hugmyndir úr skorð- um og benda til þess að þróun mannskepnunnar og forfeðra hennar hafí verið langtum flókn- ari en venjulega er talið. Flestir eiginleikar nýju tegundanna sýna að þær hafa verið skyldari Homo- ættkvíslinni en Australopithecus. Ef vísindamenn vilja viðhalda nafngiftinni Homo habilis, fyrir ákveðna sjálfstæða tegund, verða þeir að komast að því hver af teg- undunum tveimur eða þremur líkist mest fundinum frá 1960. Nokkrir fræðimenn trúa því að nýju tegundimar tilheyri allar Homo habilis og að mismunandi andlitsgerð, hæð, þyngd og heila- stærð komi til vegna mismunandi kynferðis lífveranna. Ýmsum finnst þessi skýring ólíkleg þar sem ekki er auðvelt að skipta leif- unum niður í tvo (og einungis tvo) aðgreinda hópa, þ.e.a.s. kvenkyns- og karlkynshópa. Eins hafa vísindamenn frá Harvard-háskóla bent á að sé slík skýring rétt þá hefði kynmismunur innan Homo habilis-tegundarinnar verið meiri en hjá öllum þekktum mann- og mannapategundum. Eins og stendur er því trúlegt að vísindamenn verði að endur- skoða afstöðu sína til Homo habil- is, en huti þeirrar endurskoðunar verður að ná til nákvæmari lýsing- ar á tegundinni, svo að auðveldara verði að ákveða hver tilheyrir henni og hver ekki. eftir Dr. Sverri Ólafsson Höfuðkúpa mannapategundarinnar Australopithecus africanus. Nýlegar rannsóknir gætu varpað nýju ljósi á þró- unarfræðileg tengsl þessara mannapa og fyrstu fulltrúa Homo-ættkvíslarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.