Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 14
14 MófuM^LAÐlÐ'FbÍMÍufiidÚIi -ík -FáÍíÖAR- 1989 Heiður og sómi eftir Þórhildi Þorleifsdóttur Sú var tíðin að úthlutun heið- ursiauna listamanna var eitt helsta bitbein stjórnmálamanna. í sölum Alþingis, fyrir augliti allrar þjóðar- innar voru listamenn vegnir á vog- arskálum flokkanna. Flokksmál- gögnin hvöttu og studdu sína menn, sem æstust allir og létu hærra. Líkt og gladiatoramir í Róm skemmtu þeir lýðnum en í stað vopna var barist með lista- mönnum. Því miður verður það að segjast að oft lét hátt í „vopnun- um“. En sem betur fer áttuðu menn sig á því að þetta gat ekki gengið og til að forða listamönnum og ekki síður stjómmálamönnum frá þessari árlegu hneisu var umræðan um úthlutun færð úr þingsölum til menntamálanefnda þingsins sem sameinuðust til þessa starfs. Þar fer valið fram fyrir luktum dyrum, líkt og þegar kardínálar velja páfa, nema í stað reykskýja kemur út tillaga sem lögð er fyrir þingið. Um það hefur verið samkomulag að vefengja ekki í aðalatriðum nið- urstöður nefndarinnar og nefndar- menn sjálfír staðið einhuga um niðurstöðu, hvemig svo sem henni hefur verið náð. — Nú hefur hins vegar orðið breyting á. Vert er að taka fram að engar deilur urðu í nefndinni um val lista- manna sem heiðurslaunin skuli hljóta, hvort ijölga skuli á listan- um, og ef svo er þá um hve marga. Niðurstaðan í ár var að fjórir nýir skyldu hljóta heiðurslaun í ár, þ.e. tveir komu í stað þeirra heiðurs- listamanna sem létust á árinu og tveim var bætt við. Næsta verk- efni var að ákveða upphæðina. Hún er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, því þegar ríkið er búið að taka með annarri hendinni það sem það gaf með hinni ná útborguð heiðurslaun ekki lágmarkslaunum í landinu. Að þessu loknu er svo tekið til við útnefningar. Nefna allir ein- hver nöfn, sumir færri en fjóra, sumir fleiri, með mismunandi mikl- um rökstuðningp. Þó helst megi það fínna að störfum nefndarinnar að lítið er rætt um ástæður tilnefn- inga, hefur það þó þann kost að ekki er verið að vega eða meta hugsanlega verðleika viðkomandi listamanns, í raun látið nægja að einhverri tiltekinni persónu (eða flokki) þyki hann launanna verður. Nefndin hefur lagalega séð ákaflega lítið til að styðjast við í vali sínu. Ekki eru sett nein skil- yrði fyrir útnefningu, hvorki aldur, afköst, listgrein eða kyn. Sem sagt ekki kvóti af neinu tagi. Það er þó heldur tilhneiging að heiðurs- laun hljóti þeir einir sem komnir eru til ára sinna. Sú er mín per- sónulega skoðun og ég veit að þeirri skoðun deili ég með fjöl- mörgum listamönnum. Heiðurs- laun eru í mínum huga þakklætis- vottur sýndur listamönnum fyrir framlag sitt. Þegar menn eru í fullu fy'öri, skapandi kraftur ekki tekinn að þverra, eiga þeir að njóta starfslauna. Auðvitað er alltaf er- fítt að fínna þessi mörk, en þar á hver nefndarmanna við samvisku sína. En áfram með nefndarstörfín! Að öllu jöfnu er nú ekki venjan að tíunda þau, en úr því sem kom- ið er verður vart hjá því komist. Formaður nefndarinnar, Ragnar Arnalds, stakk upp á að gerð yrði skrifleg skoðanakönnun til að línur skýrðust og að henni lokinni yrði gengið til atkvæða — líka skrif- lega. Er skemmst frá því að segja að þetta gekk eftir. Þó að þeim á Þjóðviljanum þyki sæma að tíunda nákvæmlega hvemig atkvæði féllu, læt ég nægja að segja að niðurstaða atkvæðagreiðslu var afdráttarlaus. Enginn nefndar- manna gerði athugasemd við nið- urstöðu og formanni nefndarinnar falið, venju samkvæmt, að flytja þingheimi tíðindin. Þórhildur Þorleifsdóttir „ Andstaðan við tillögu ráðherranna var ekki vegna þeirra tveggja manna sem þeir vildu bæta við, heldur vegna hins að þarna væri ver- ið að brjóta blað. Draga málið aftur út út nefnd- inni og inn í þingsali, byrja á ný að vegast með listamenn að vopni.“ í ljósi þessa kom mjög á óvart að formaður skyldi segja þegar hann fylgdi tillögunni úr hlaði að ósamkomulag hafí verið í nefndinni og því þurft að ganga til atkvæða. Því miður gafst ekki tóm til að inna formanninn nánar eftir þessu þar sem hann hvarf á braut að ræðu sinni lokinni. En meir komu þó viðbrögð nokkurra ráðherra á óvart. Það er ranghermt í Þjóðvilj- anum að hvellur hafí orðið í þing- inu við tíðindin. Sannast sagna er SVFR 50 ára Stangaveiðifélag Reykjavíkur heldur árshátíð sína í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 3. febrúar Dagskrá: Ávarp, Jón G. Baldvinsson, formaður SVFR. Verðlaunaafhending. Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir. Gamanmál: Ómar Ragnarsson. Hátíðarfluga kvöldsins. Vísukeppni. Glæsilegt happdrætti. Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi til kl. 3. Fylltar laxarúllur. Sítrónuísmusl. eilsteiktur nautahryggur Bernaise. :ulaðimús með mandarínusósu. ^íin innifalin. Veislustjóri: Ingvi Hraín Jónsson. Húsið opnað kl. 19. Miðasala ífélagsheimili SVFR, Háaleitisbraut 68, laugardaginn 21. janúar kl. 13-17. Borðapantanir á sama stað. Sími 83425. Hátíðarkveójur. Skemmtinefnd SVFR. Stangveiðifélag Reykjavíkur Opinn fundur um stangaveiði og netaveiði í Víkingasal Hótels Loftleiða föstudaginn 20. janúar kl. 20.30. SVFR byrjar hálfrar aldar afmælisár sitt með opnum fundi stangaveiðimanna og neta- bænda til að ræða í bróðerni og á breiðum grundvelli samstarf og sameiginleg hagsmuna- mál þessara aðila. Frummælendur: Jón G. Baldvinsson, formaður SVFR. Hvers vegna viljum við netin upp? Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur. Hugsanleg áhrif upptöku neta á lífríki ánna. Þorkell Fjelsted, bóndi í Ferjukoti. Viðhorf netabænda. Hringborðsumræður og almennar umræður undir stjórn Ingva Hrafns Jónssonar. Gestir fundarins verða Árni ísaksson, veiðimálastjóri, Böðvar Sigvaldason á Barði, for- maður Landssambands veiðifélaga og Rafn Hafnfjörð, formaður Landssambands stanga- veiðifélaga. Allir áhugamenn um þessi mál eru velkomnir á fundinn, sem hefst stundvíslega kl. 20.30. Mætið vei. Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR. &.:&■■■ f- f- f.f- f f- f. SVFR SVFH SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR _Dale . Carneqie þjálfun RÆÐUMENNSKA OG MANNLEG SAMSKIPTI Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn í kvöld fimmtudaginn 19. janúar kl. 20.30 á Soga- vegi 69. Allir velkomnir. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust. ★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfæring- arkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Taliðerað85%afvelgengniséukominund- ir því hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri lífskrafti - heima og á vinnu- stað. ★ Halda áhyggjunum í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting f menntun skilar þór arði ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 0 STJÓRNUNARSKÓLIIMIM c/o Konráö Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðm*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.