Morgunblaðið - 03.02.1989, Side 19
MORGUNBLASIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
V19
Ungverjar opna sendiráð
íS-Kóreu
Ungveijar tóku upp stjórnmálasamband við Suður-Kóreumenn á
miðvikudag, fyrstir kommúnistaríkja, og sagði Gyula Horn, ut-
anríkisráðherra Ungveijalands við það tækifæri að hann vonaði
að þessi áfangi myndi stuðla að betri sambúð Kóreuríkjanna. Roh
Tae-woo, forseti Suður-Kóreu, sagði að með því að koma á stjórn-
málasambandi myndu þjóðirnar efla frið og samkomulag milli
austurs og vesturs. Frá því að Roh tók við völdum í febrúar á
síðasta ári hefur hann unnið markvisst að því að koma á betri
samskiptum við kommúnistaríki í því skyni að fá norður-kóresk
stjórnvöld til að fallast á friðsamlega sambúð ríkjanna. Norður-
Kóreumenn brugðust við ákvörðun Ungverja með því að kalla
sendiherra sinn í Búdapest heim og skipa ræðismann í hans stað.
A myndinni er Gyula Horn, utanríkisráðherra Ungveijalands t.v.
og aðstoðarutanríkisráðherra Suður-Kóreu, Shin Dong-won við
sendiráð Ungveijalands.
Suður-AMka hefur
kverkatak á Namíbíu
Helsta höfiiin og samgönguæðin í Walvis
Bay undir stjórn Suður-Afríkumanna
Walvis Bay. Reuter.
SUÐUR-AFRÍKU STJÓRN, sem
farið hefur með völd i Namibíu
í 75 ár, mun áfram hafa tögl
og hagldir í hafnarborginni
Walvis Bay, þrátt fyrir að sam-
komulag hafil náðst um sjálf-
stæði Namibíu. Svo virðist sem
duttlungar í sögu evrópskrar
nýlendustefhu hafí mælt svo
fyrir að þessi óvistlega hafiiar-
borg, sem státar af einu skip-
gengu höfninni á 1.100 km
langri strönd Namibíu, verði
áfram undir stjórn Höfðahéraðs
í Suður-Afríku. Deilur hafa risið
upp á milli Færeyinga og Græn-
lendinga vegna þess að Græn-
lendingar telja að þeir fyrr-
nefindu bijóti gegn ákvörðun
dönsku ríkisstjórnarinnar um
bann við viðskiptum við Suður-
Afiríku með því að gera út fiski-
skip frá Walvis Bay. Sennilegt
er talið að yfirráðin um Walvis
Bay muni skapa úlfúð á milli
sljórnarinnar í Pretoríu og
skæruliðahreyfíngarinnar
SWAPO, sem haldið hefur uppi
skæruhernaði frá árinu 1966
gegn stjórn Suður-Afríumanna
í Namibíu.
„Suður-Afríkumenn hafa tölu-
verðan herstyrk hér en bærinn
gegnir þó öðru og mikilvægara
hlutverki en að hýsa setuliðið,"
sagði Christo de Jager, fyrrum
borgarstjóri þessarar litlu umluktu
borgar og þingmaður Þjóðar-
flokksins, sem fer með völdin í
Suður-Afríku.
„Bærinn er Suður-Afríkumönn-
um hemaðarlega mikilvægur og
einnig skiptir hann efnahag lands-
ins miklu,“ bætti hann við.
Hernaðarlegt mikilvægi bæjar-
ins liggur í augum uppi því um
höfnina fer úraníum, demantar,
kopar, blý og aðrir málmar sem
samtals nema um 85% af útflutn-
ingstekjum Namibíumanna. Eina
járnbrautaflestin í Namibíu fer frá
Walvis Bay til Suður-Afríku og
bæjarbúar hafa miklar tekjur af
vinnslu salts sem að mestu leyti
er flutt út til Suður-Afríku. Kaup-
{ ANGÓLA ! Km
N am ibe 1
„..•A.&k.
NAMIÐlA 1 <
J 1
\s Windhoek
Waivle BayV
» Keetmanshoop
UiderltzV
•Port Nolloth
SUÐUR-
AFRÍKA
( Uöföaborg^
3u»kk*>
sýslumenn segja að Suður-Afríku-
stjómin geti hæglega unnið óbæt-
anlegan skaða á efnahag Namibíu,
ef hinir nýju ráðamenn reynast
suður-afrískum stjórnvöldum
óþægir ljáir í þúfu.
Talið er víst að frambjóðendur
SWAPO-hreyfingarinnar hljóti
flest atkvæði í þingkosningunum í
Namibíu, sem fara fram undir eft-
irliti Sameinuðu þjóðanna 1. nóv-
ember næstkomandi. Þá eiga að-
eins 1.500 suður-afrískir hermenn
að vera í landinu og þegar sjálf-
stæði landsins verður formlega lýst
yfir, sem enn hefur ekki verið
ákveðið hvenær verði, eiga suður-
afrískir hermenn að vera á braut.
Fulltrúar SWAPO hafa þegar
gert tilkall til Walvis Bay á þeim
forsendum að bærinn sé óaðskilj-
anlegur hluti Namibíu, en Sam
Nujoma, leiðtogi hreyfingarinnar,
sagði á síðasta ári að slíkar kröfur
yrðu ekki settar á oddinn fyrr en
að lýst hefði verið yfir sjálfstæði
landsins.
Namibískir sjómenn gera sér
vonir um að Namibía geti sem
sjálfstætt ríki fært landhelgina út
í 200 sjómílur og að sjávarútveg
landsins verði forðað frá hruni sök-
um ágengni erlendra fiskiskipa á
miðin.
Kanada:
Indjánar á Queen Charlotte-
eyjum lýsa yfir sjálfstæði
Vancouver, Bresku Kólumbiu. Reuter.
HAIDA-indjánar á Queen Charlotte-eyjum norður af Vancouver lýstu
yfir á þriðjudag, að þeir hefðu tekið upp eigin fána og gæfu hér eftir
sjálfir út vegabréf handa eyjaskeggjum, auk þess sem þeir hygðust
taka stjórn eyjanna í sinar hendur og lýsa yfir sjálfstæði.
Haida-indjánar segjast aldrei hafa
afsalað sér yfirráðum yfir landi sínu
og kveðast þess vegna ekki sjá neinn
tilgang í því að bera fram kröfur í
því sambandi við stjómvöld í Kanada.
Miles Richardson, forseti þjóðar-
ráðs Haida, segir, að um 5000 Haid-
ar búi á Queen Charlotte-eyjum og
um 1000 í Alaska. Richard Van Lo-
on, talsmaður Kanadastjómar í mál-
efnum indjána, áætlar, að um 1000
Haidar búi á eyjunum.
Richardson segir, að ákveðið hafi
verið á ársfundi Haida um helgina,
að hér eftir gefí þeir sjálfír út vega-
bréf handa þeim, sem férðast til út-
landa, auk þess sem helgaður hafi
verið þjóðfáni Haida, rauður og
hvítur, skreyttur emi og hrafni,
merkjum Haida-ættbálkanna á Que-
en Charlotte-eyjum.
Talsmaður Kanadastjórnar sagði,
að stjómvöld stæðu ekki í neinum
samningaviðræðum við indjánana
um þetta efni, en bætti við, að þeir
hefðu ekki gert sig seka um nein
lögbrot: „Það er ekkert ólöglegt við
það í Kanada að gefa yfírlýsingar
eins og þeir hafa gert,“ sagði hann.
ORLANE
P A .R ! S
'ilil ■ ll '.
ANAGENESE
Barátta við tímann
Forskot húðarinnar
á gangi tímans
Kynntí dog
frá kl. 13-18.
FÖRUSALAN,
Akureyri.
SAMTÖK FISKVINNSLUSTÖÐVA
BOÐATIL
KYNNINGARFUNDAR:
FISKVINNSLA
í FRAMÞRÓUN
Á HÓTEL SÖGU, SAL A,
LAUGARDAGINN 4. FEB.
KL. 9.30-13.00
DAGSKRÁ:
Elías Gunnarsson: Karavæðing, slæging og flokkun.
Sjálfvirkni í móttöku.
Trausti Eiríksson: Nýjungar í saltfiskvinnslu.
Finnbogi Alfreðsson: Þróun flæðLlínunnar.
Gísli Erlendsson: Sjálfvirkni í pökkun og frystingu.
Geir A. Gunnlaugsson: Upplýsingakerfi - stjórntæki.
Umræðustjóri: Sturlaugur Sturlaugsson.
1 :
ÖLLUM ÁHUGAMÖNNUM UM
FISKVINNSLU ER BOÐIÐ Á FUNDINN.
Þátttökugjald kr. 400.-
Veitingar eru ínnífaldar í verðí.
” STJÓRN SF.