Morgunblaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
2K**0i Útgefandi mKlnKIK Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson,
, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Ekki fleiri
framsóknarflokka
Enn einu sinni bíða menn
eftir að ríkisstjóm landsins
grípi til efnahagsaðgerða. Sú
stjóm sem nú situr var mynduð
fyrir rúmum Jjórum mánuðum
vegna þess að tveir flokkanna í
fyrri stjóra, Alþýðuflekkur og
Framsóknarflokkur, töldu hana
ekki ganga nógu skipulega til
verks við efnahagsaðgerðir. Á
þessum fjórum mánuðum hafa
ráðherramir síðan reynt að ná
saman um einhveijar ráðstafanir
og tala eins og þær séu alltaf á
næsta leiti. Fjárlögum var komið
saman á veikum gmnni og með
því að stórauka skattheimtu. Til
þess að auka þær álögur fékk
ríkisstjómin aðstoð frá Borgara-
flokknum, sem nú er rætt við
og hefur verið talað við í margar
vikur um það, hvort flokkurinn
eða einhver hluti hans vilji ganga
formlega til liðs við ríkisstjóm-
ina. Stæðu þá fímm flokkar eða
flokksbrot að stjóminni.
Framsóknarflokkurinn hefur
nú staðið við stjómvöl þjóðar-
skútunnar í 17 ár. Á þessum
ámm hefur óðaverðbólga gengið
yfír landið og stjómmálamenn
og aðrir jafnan staðið á öndinni
yfír ráðstöfunum af einu eða
öðm tagi. Þjóðfélagið hefur tek-
ið breytingum á þessum ámm,
jafnvel meiri breytingum en
framsóknarmenn sýnast átta sig
á, þótt þeir hafi verið innan búð-
ar í stjómarráðinu í allan þennan
tíma. Raunar hafa þeir oftar en
ekki látið eins og þeir hafí aldrei
komið nálægt neinu sem miður
hefur farið á þessum ámm og
reynt að klína öllu misjöfnu á
aðra. Hlálegast er þetta í sam-
bandi við tal þeirra um láns-
kjaravísitöluna. Hún kom til sög-
unnar fyrir 10 ámm, þegar Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur og
Framsóknarflokkur sátu við völd
eins og núna. Var það sérstakt
baráttumál Ólafs Jóhannesson-
ar, þáverandi forsætisráðherra
og forvera Steingríms Her-
mannssonar á formannsstóli í
Framsóknarflokknum, að inn-
leiða þessa vísitölu til að verð-
tryggja sparifé. Hafði Ólafur
barist fyrir þessu máli um langt
árabil. Þegar framsóknarmönn-
um undir forystu Steingríms
hentaði ekki lengur að bera
ábyrgð á lánskjaravísitölunni var
heíst að skilja á þeim, að hún
væri eitt versta afsprengi frjáls-
hyggjunnar!
I tæp tíu ár eða síðan í febrú-
ar 1980, þegar Steingrímur Her-
mannsson varð sjávarútvegsráð-
herra en Halldór Ásgrímssson
tók við af honum 1983, hafa
framsóknarmenn farið með yfír-
stjóm sjávarútvegsmála í
landinu. Þó er eins og þeir telji
sig geta komist upp með að
kenna öllum öðmm um það, sem
miður hefur farið á þessum vett-
vangi. Stjóm framsóknarmanna
á landbúnaðarmálum er ekki
síður langvinn. f báðum þessum
atvinnugreinum standa menn
frammi fyrir vanda, sem á ekki
síst rætur að rekja til þess,
hvemig stefnumótun á vegum
stjómvalda hefur verið háttað.
Þegar grannt er skoðað er auð-
velt að komast að raun um að
í stjóm þessara mála í tíð Fram-
sóknarflokksins hefur ekki skort
á forsjárhyggjuna, sem nú á að
vera helsta bjargtæki núverandi
framsóknarstjómar, sem hefur
það yfírlýsta markmið að fara
aðrar leiðir en vestrænar í stjórn
efnahagsmála.
Þegar þeir skiptust á að heim-
sækja flokksþing hvor annars
Steingrímur Hermannsson og
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, lét hinn
síðamefndi orð falla á þann veg,
að nú væri að renna upp svipað
skeið í stjóm landsmála og á
fjórða áratugnum. Samstjóm
Álþýðuflokks og Framsóknar-
flokks á þeim tíma hefur fengið
þá einkunn að hún sé einhver
mesta afturhaldsstjóm sem hér
hefur setið. í hennar tíð var SÍS
hyglað á alla lund og almennt
staðið þannig að málum, að ætla
mætti að þau vinnubrögð ættu
sér fáa formælendur nú á tímum.
Það er því ekki að ástæðulausu,
að Alþýðublaðið kemst þannig
að orði í forystugrein á miðviku-
dag, þegar rætt er um störf Jóns
Baldvins, að hann virðist tilbúinn
að halda þannig á málum til að
nálgast Álþýðubandalagið, að
hann fómi frjálsræðinu. Og þeg-
ar blaðið lítur yfir völlinn eftir
fundaherferðina á rauðu ljósi
segir það óttaslegið: „Eitt er víst.
Við þurfum ekki á einum fram-
sóknarflokknum enn að halda.“
Framsóknarúrræðin eiga
þannig eftir að setja svip sinn á
aðgerðir þessarar ríkisstjómar.
Engir hafa betur sýnt það en
framsóknarmenn svo sem í
stjóm sjávarútvegsmála og land-
búnaðarmála til hvers úrræði
þeirra leiða — og nú er það
helsta kappsmál forsætisráð-
herra framsóknar að afnema
lánskjaravísitöluna sem forveri
hans taldi rósina í hnappagati
sínu. Við þurfum vissulega ekki
fleiri framsóknarflokka.
Davíð Oddsson borgarstjóri flytur framsöguerindi sitt.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Umferðarmannvirki yfir
Elliðaárósa á næstu árum
Á fjölmennum fundi með íbúum Grafarvogs kom fram að stefiit er
að því að ljúka framkvæmdum við umferðarmannvirki yfír Ell-
iðaárósa á árunum 1990 - 1991. Fundurinn var haldinn að tilhlutan
Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi og fundarstjóri var Reynir
Karlsson.
Davíð Oddsson borgarstjóri var
frummælandi og í máli hans kom
fram að Grafarvogurinn hefði
byggst hraðar upp en önnur hverfi
borgarinnar. Davíð sagði að mest
áhersla hefði verið lögð á gerð
gatna, gangstétta og stíga. Fylgt
væri þeirri stefnu að leggja gang-
stéttar stuttu eftir að menn gengju
frá lóðum sínum.
Davíð sagði að á næstunni hæfust
framkvæmdir við dagvistarstofnun
í Hamrahverfi sem kæmist í gagnið
vorið 1990. Verið væri að ljúka
öðrum áfanga Foldaskóla og 'í lok
febrúar yrði þar tekin í notkun sér-
stök félagsaðstaða fyrir hverfísbúa
sem gert hefði verið ráð fyrir frá
upphafi í teikningum að skólanum.
Davíð taldi að tveir kostir væru
fyrir hendi varðandi íþróttahús
Foldaskóla. Annaðhvort yrði reist
iítið fþróttahús við skólann eða
fullgilt keppnishús við fyrirhugað
íþróttasvæði Grafarvogs, í nokkurri
fíarlægð frá Foldaskóla. Stefnt
væri að því að íþróttahúsið yrði
tekið í notkun vorið 1990 og hverf-
isbúar yrðu að velja hvom kostinn
þeir vildu.
I máli Davíðs kom fram að skipu-
lagsvinna við Borgarholt 1 væri vel
á veg komin og þar væri gert ráð
fyrir 2100 íbúa byggð. í Borgar-
holti 2 er skipulagsvinna á frum-
stigi en þar munu um 4500 manns
búa.
Að loknu framsöguerindi Davíðs
var Grafarvogsbúum boðið að bera
fram fyrirspumir til hans og ann-
arra yfírmanna borgarinnar er vom
viðstaddir. í svari Inga Ú. Magnsús-
sonar gatnamálastjóra við fyrir-
spum um erfiðar samgöngur vegna
snjóþyngsla og hálku í Funafold
kom fram að ekki væri von á úrbót-
um í þeim efnurn fyrr en rrteð til-
komu Nesjavallavirkjunar eftir tvö
ár. Þá væri fyrirhugað að leggja
leiðslur með heitu vatni í bröttustu
götumar í Foldahverfí.
Fram kom fyrirspum um gerð
knattspymuvallar í Grafarvogi og
í svari borgarstjóra kom fram að
borgin mun leggja fram 500 þúsund
krónur til íþróttafélagsins Fjölnis í
Grafarvogi, sérstaklega ætlað til
framkvæmda við knattspymuvöll.
Að auki verður fylgt 80% reglunni
sem felst í því að borgin leggur
fram 80% fíarmagns við völlinn en
íþróttafélagið 20%.
Kvartað var yfír erfiðleikum við
að komast út úr hverfinu á
álagstímum og í svari Inga Ú.
Magnússonar kom fram að fyrir-
hugað er að fíölga akreinum yfir
Gullinbrú í fíórar. Taldi Ingi að
þetta myndi auðvelda samgöngur.
Gatnamálastjóri sagði þó að endan-
leg lausn fengist ekki fyrr en með
tilkomu umferðarmannvirkja yfír
Elliðaárósa að tveim árum liðnum.
Ný nefiid um starfsemi Námsgagnastofiiunar:
Virðist sem ekki eigi að skoða
samstarf við útgefendur
- segir Kristján Jóhannsson hjá AB
KRISTJÁN Jóhannsson, framkvæmdastjóri Almenna Bókafélagsins,
segir það afar slæmt að nýrri nefiid á vegum menntamálaráðherra
um Námsgagnastofnun skuli ekki ætlað það hlutverk að skoða
möguleika á auknu samstarfí stofiiunarinnar við útgefendur. Kristj-
án var snemma í haust skipaður í nefiid á vegum menntamálaráðu-
neytisins í ráðherratíð Birgis ísleifs Gunnarssonar. Sú nefiid átti
að gera úttekt á starfsemi Námsgagnastofiiunar, meðal annars með
tilliti til samstarfs við önnur útgáfiifyrirtæki.
Nefnd Birgis ísleifs tók aldrei
til starfa. Reynir Kristinsson, sem
skipaður var formaður hennar, seg-
ir að hann hafi fengið þær upplýs-
ingar úr ráðuneytinu eftir ríkis-
stjómarskiptin að fyrirhugað væri
að skipa nýja nefnd, sem endur-
skoða ætti starfsemi Námsgagna-
stofnunar. í fyrri nefndinni áttu
að sitja, auk þeirra Reynis og
Kristjáns Jóhannssonar, þau Sólrún
Jensdóttir, tilnefnd af ráðuneytinu,
og Ásgeir Guðmundsson náms-
gagnastjóri, tilnefndur af Náms-
gagnastofnun. Einnig var óskað
eftir tilnefningu frá Bandalagi
kennarafélaga, sem aldrei barst.
Samkvæmt skipunarbréfí fyrri
nefndarinnar átti hún að „gera at-
hugun á rekstrarskipun Náms-
gagnastofnunar, þar með talið
hvemig rétt sé að haga samstarfi
við bókaforlög og önnur fyrirtæki
um útgáfu og miðlun námsefnis,"
svo vitnað sé orðrétt í bréfið. Að
öðru leyti var hlutverk nefndarinn-
ar svipað því, sem sú nýja hefur
með höndum; hún átti að leggja á
ráðin um húsnæðisþörf stofnunar-
innar og að yfírfara lög um hana
og leggja til æskilegar breytingar.
í nýju nefndinni er enginn full-
trúi útgefenda, og henni er aðeins
ætlað að endurskoða lög um starf-
semi Námsgagnastofnunar, endur-
meta Qárþörf stofnunarinnar og
gera tillögur um húsnæðisþörf
hennar. „Sem útgefandi harma ég
þetta, því að það var orðið löngu
tímabært að kanna gmndvöll þess
að bókaforlögin kæmu í auknum
rnælf inn í námsgagnagerð og út-
gáfu á kennslubókum,“ sagði
Kristján Jóhannsson. Hann sagði
að ýmis bókaforlög hefðu áhuga á
að gefa meira út af námsefni fyrir
grunnskóla. Þrjú eða fjögur
stærstu forlögin hefðu gefið út
námsefni fyrir menntaskóla, enda
væru það kennarar, sem þar stjóm-
uðu því hvaða bækur væru notaðar
til kennslu.
„Það er í undantekningartilvik-
um sem bókaforlögin hafa komið
inn í námsgagnagerð fyrir grunn-
skóla, en í nágrannalöndum okkar
eru forlögin alls staðar virk á þess-
um markaði. Eg er sannfæærður
um að það myndi auka ijölbreytni
kennsluefnis og jafnvel stuðla að
örari endumýjun á því ef slíkt
væri einnig uppi á teningnum hér,“
sagði Kristján. „Námsgagnastofn-
un yrði þá frekar sá aðili, sem
stjómaði útboðum í þessi verk, en
núna em engin útboð á kennsluefni
á vegum stofnunarinnar. Það sem
þessi nefnd átti að gera var að
skoða þessi mál og athuga hvort
ekki væri hægt að koma þar við
aukinni hagræðingu og hag-
kvæmni. Nú virðist sem ekki eigi
að skoða neitt í þeim dúr.“
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
23
2.100 manns atvinnulausir í desember:
45.000 skráðir atvinmileys-
isdagar í desember 1988
31.200 fleiri atvinnuleysisdagar í desember 1988 en á sama tíma 1987
Samkvæmt upplýsingum fé-
lagsmálaráðuneytis vóru skráð-
ir 45.000 atvinnuleysisdagar
hér á landi i síðast liðnum des-
embermánuði. Það er 31.200
daga meira atvinnuleysi en í
sama mánuði árið áður. Skráðir
atvinnuleysisdagar í desember-
mánuði sl. jafngildir því að
2.100 manns á vinnualdri hafí
ekki haft atvinnu, eða 1.7%
mannaflans.
í júnímánuði sl. vóru skráðir
atvinnuleysisdagar hér á landi
12.300, sem jafngildir því að 570
einstaklingar hafi ekki haft verk
að vinna og þýðir 0,4% atvinnu-
leysi. Skráðir atvinnuleysisdagar
í desember jafngilda hinsvegar því
að 2.100 manns hafi verið án at-
vinnu, sem þýðir 1.7% atvinnu-
Útflutnings- og samkeppnisgreinar:
Hækkun raungengis
veikti rekstrarstöðuna
Samkeppnisstaða sjávarút-
vegsins var 12% lakari á árinu
1988 en árið 1987 og 19% lak-
ari en árið 1986. Samkeppnis-
staða útflutningsiðnaðarins var
12% lakari 1988 en 1986. Staða
samkeppnisiðnaðar var 9.7%
lakari 1988 en 1986. Ástæðan
er þríþætt: hækkun raungengis
krónunnar, verðlækkun á sjáv-
arvörum erlendis og tilkostnað-
arhækkanir innanlands.
Samkvæmt upplýsingum Seðla-
bankans, sem fram komu á stjóm-
arfundi Verzlunarráðsins fyrir
skemmstu, hefur samkeppnis-
staða sjávarútvegs og útflutnings-
og samkeppnisiðnaðar versnað
verulega milli áranna 1986 og
1988. Ástæðan er m.a. rakin til
hækkunar á raungengi krónunn-
ar, en það var talið 5% hærra á
árinu 1988 í heild en á árinu 1987
og 14.8% hærra en á árinu 1986.
Sú mikla raungengishækkun, sem
varð á árinu 1987, og ekki gekk
nema að hluta til baka 1988, er
talin hafa skekkt samkeppnis-
stöðu atvinnuveganna, með og
ásamt verðlækkun á sjávarvörum,
sem var 9.5% frá upphafi til loka
árs 1988.
Miðað við meðaltal sjávarút-
vegs, útflutningsiðnaðar óg sam-
keppnisiðnaðar versnaði sam-
keppnisstaðan á árinu 1988 um
7.4% miðað við árið 1987 og um
8.7% miðað við árið 1986.
leysi. Skráðir atvinnuleysisdagar
í desember 1988 eru 31.200 fleiri
en í desember 1987, en þá var
mikil þensla í þjóðfélaginu.
Af 45.700 skráðum atvinnu-
leysisdögum í desember sl. eru
10.700 skráðir á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem rúmur helming-
ur þjóðarinnar býr. Skráð atvinnu-
leysi er fyrst og fremst í strjál-
býli, ekki sízt í byggðarlögum sem
byggja á sjávarútvegi og útflutn-
ingsiðnaði.
Að meðaltali var skráð atvinnu-
leysi hér á landi 0.5% árið 1987.
Svipað ástand helzt fram á þriðja
ársfjórðung 1988. Þá eykst at-
vinnuleysi snögglega. í nóvember
eru 1200 einstaklingar skráðir
atvinnulausir, eða 0.9% mannaf-
lans, og í desember 2.100 manns,
eða 1,7% mannaflans.
í samræmi við stefiiu
EB að draga úr inn-
flutningi á saltfiski
Brussel. Frá Kristófer M.Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKVÆMT heimildum innan EB byggjast tillögur framkvæmda-
sijómarinnar um tollaívilnanir meðal annars á saltfiski á þeirri stefiiu
bandalagsins að draga úr innflutningi á unnum sjávarafúrðum. Sömu-
leiðis er reiknað með þvi að framboð á sjávarafúrðum verði meira á
þessu ári en árið 1988. Það er því talið að innflytjendur geti greitt
hærri tolla en áður.
Að sögn Gunnars ^Snorra Gunn-
arssonar í sendiráði íslands við EB
hafa sjónarmið íslendinga, sem eiga
hér mikilla hagsmuna að gæta,
verið kynnt fyrir embættismönnum
bandalagsins. Gunnar Snorri sagði
að það væri ljóst að íslendingar
ættu ekki lagalega kröfu á hendur
bandalagsins. Þetta væru tollaíviln-
anír sem bandalagið ákveddi ein-
hliða á hveiju ári og stæðu ekki í
tengslum við neina samninga. Já,
við höfum kynnt viðhorf okkar og
við munum halda því áfram, sagði
Gunnar Snorri.
Samkvæmt heimildum innan
Tannvernd-
ardagur-
inn er í dag
Tannverndardagurinn verð-
ur haldinn í sjötta skipti i dag,
föstudag. í téngslum við hann
mun Tannverndarráð leggja
áherslu á umfjöllun um matar-
venjur íslendinga og notkun
fluortannkrems.
Aðstoðarfólk tannlækna mun
veita fræðslu í stórmörkuðum um
vamir gegn tannskemmdum,
tannfræðingar munu heimsækja
sjúkrastofnanir og áletranir verða
settar á strætisvagna í Reykjavík
og Kópavogi á kostnað viðkom-
andi sveitarfélaga.
Þá verða birtar greinar eftir
tannlækna, næringarfræðinga og
lækna og eru kennarar hvattir til
að nota þær til fræðslu. Einnig
verða fíölmiðlar hvattir til að fíalla
um málefni tannvemdardagsins.
framkvæmdastjómarinnar er lítill
áhugi á því að halda áfram að út-
hluta tollaívilnunum sem allir geta
notfært sér m.a. Kanadamenn, en
bandalagið stendur í deilum við þá
vegna veiða bandalagsflotans á
NAFO-svæðinu svokallaða og
sömuleiðis vegna fiskveiðihags-
muna við frönsk vemdarsvæði und-
an ströndum Kanada. Tillögurnar^
áttu að koma til umfjöliunar í ráð-
gjafanefnd miðvikudaginn 1. febrú-
ar og munu síðar verða sendar
nefnd fastafulltrúa aðildarríkjanna
til umsagnar. Gert er ráð fyrir því
að sjávarútvegsráðherrar afgreiði
tillögumar á fundi 23. febrúar.
Ýmislegt þykir benda til þess að
tillögur framkvæmdastjómarinnar
verði ekki samþykktar óbreyttar á
ráðherrafundinum. Portúgalir telja
innflutningsþörf sína á saltfiski á
þessu ári 60 þúsund tonn, en sam-
kvæmt tillögum verða tollaívilnanir
fyrir 55 tonn til bandalagsins í
heild. Á undanfömum árum hefur
verið tilhneiging á ráðherrafundum
til að auka magnið og lækka tolla.
Árið 1986 lagði framkvæmda-
stjómin til 25 þúsund tonn ,með
6,5% tolli, en ráðherramir ákváðu
40 þúsund tonn með 3% tolli. Fyrir
árið 1987 vom tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar 35 þúsund
tonn með 5% tolli, en ráðherramir
samþykktu 40 þúsund tonn með
óbreyttum tolli og 1 þúsund tonn
af skreið og 250 tonn af söltuðum
flökum að auki á lækkuðum tollum.
Fyrir síðasta ár vom tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar 45 tonn með
5% tolli, en ráðherrar samþykktu
52,5 tonn með óbreyttum tolli.
Óhætt er að fullyrða að sjónarmið
íslendinga mæta betri skilningi hjá
stjórnmálamönnum en embættis-
mönnum innan EB. Miklar vonir
hljóta þó að vera bundnar við fyrir-
hugaða heimsókn Halldórs Ás-
grímssonar sjávarútvegsráðherra
til viðræðna við framkvæmdastjórn
EB í mars nk.