Morgunblaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐE)
IÞROTTIR
(trí/wia/'líááOM
PÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Morgunblaðið/JOIÍus
Kristján Arason var markahæstur íslendinga í gær með átta mörk. Hér
skýtur hann að marki í gær - til vamar er Kjetil Larsen.
Island - Noregur
25 : 24
Áminning
VANMAT? Of lítil upphitun?
Menn voru með ýmsar hug-
myndir í Höllinni í gærkvöldi
um ástæður hroðalegrar
frammistöðu „strákana okkar“
í fyrri hálfleik fyrri vináttuleiks-
ins gegn Norðmönnum í þess-
ari heimsókn. ísland sigraði
með einu marki, 25:24. Tröppu-
gangurinn var ótrúlegur í leik
íslenska liðsins að þessu sinni;
byrjunin hroðaleg, síðan mjög
góður kafli í lok fyrri hálfleiks
og langt fram í þann seinni, og
síðan slakur kafli aftur í lokin.
Allar líkur eru á að ísland og
Noregur mætist í milliriðli
B-keppninnar í Frakklandi síðar í
þessum mánuði, og ef allt er með
■mi felldu á ísland að
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
vmna oruggan sigur
á þessu norska liði.
í gær voru íslensku leikmennim-
ir algjörlega úti að aka framan af
— eftir 19 mín. leik var staðan 4:10
fyrir Norðmenn. Alla hugmynda-
auðgi vantaði í sóknarleikinn, vöm-
in var slök og markvarslan nánast
engin. Þegar þama var komið var
Sigurður Sveinsson settur inn á í
sóknina, Kristján Arason fór inn á
miðjuna í stöðu leikstjómanda og
leikurinn breyttist eins og hendi
væri veifað. Sigurður var gífurlega
ógnandi, átti þátt í þremur mörkum
Laugardalshöll, vináttulansleikur i handknattleik, fímmtudaginn 2. febrúar 1988.
Gangur leikains: 0:3, 2:4, 3:6, 4:10, 6:11, 7:12, 10:12, 10:13, 11:13, 12:13, 12:14,
15:14, 17:14, 17:15, 20:16, 20:17, 22:17, 23:18, 25:20, 25:24.
fsland: Kristján Arason 8/3, Jakob Sigurðsson 6, Bjarki Sigurðsson 3, Júllus Jónasson
3, Sigurður Sveinsson 3/1, Þorgils Óttar Mathiesen 1, Héðinn Gilsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 6, Hrafn Margeirsson.
Utan vallar: 10 minútur.
Noregur: Rune Erland 8/1, Roger Kjendalen 4, Dag Vidar Hanstad 3, Kjetil Larsen
3, Oysten Havang 2, Kare Ranneklein 1, Bent Svele 1, Ole Gustav Gjekstad 1 og Knut
1.
Espen Karsten 14 skot.
Utan vailar: 2 mfnútur.
Dómarar: Ole Christiansen og Per Jörgensen frá Danmörku.
á skömmum tíma og íslenska liðið
minnkaði muninn. Það var eins og
íslensku strákamir áttuðu sig hrein-
lega ekki á því að leikurinn væri
hafinn fyrr en Sigurður kom inn á.
Hugarfar
Það var ljóst strax f upphafí
síðari hálfleiks að íslensku leik-
mennimir voru með hugann við það
sem þeir vom að gera; staðráðnir
í að þeir áhorfendur sem mættir
voru í Höllina fengju eitthvað fyrir
aurana sína. Jafnt var orðið eftir
rúmar fimm mínútur og Kristján
Arason kom Islandi síðan yfir með
marki úr vítakasti, 15:14. Kristján
var skömmu síðar rekinn út af en
ísland skoraði enn, og strax eftir
að Kristján kom inn á aftur vom
Geir og Júlíus reknir út af sámtím-
is. En það hafði engin áhrif — nema
þá til hins betra! — og ísland komst
fjómm mörkum yfír, 19:15. Munur-
inn varð síðan fimm mörk, en með
afleiturn leik síðustu mínútumar
misstu íslendingar forskotið niður
í eitt mark. Vom þá allt of bráðir.
Jakob Jónsson og Kristján Ara-
son vom bestir í íslenska liðinu í
gær. Þá átti Sigurður Sveinsson
mjög góða spretti en var óheppinn
með skot.
Áminning
Fyrstu tuttugu mínútur leiksins
vom slakar, mjög svo. Erfitt er að
gera sér grein fyrir því hvers vegna,
en ljóst er að Bogdan og leikmenn-
imir þurfa að reyna að komast að
því. Norðmenn virkuðu aftur á
móti léttir og leikandi í byijun, vön*
þeirra var góð og sýndu Norðmenn
að þeir geta gert góða hluti. Þegar
íslendingar áttuðu sig — fóra að
leika flata vöm, og náðu að stappa
stálinu hver í annan var ekki að
sökum að spyrja. íslenska liðið ER
betra en það norska. Um það hljóta
allir að geta verið sammála, en
slæmu kaflamir í leiknum vom þó
góð áminning fyrir B-keppnina.
ÍHéWR
FOLK
■ STEINAR Ingimundarson
kannast ekki við að hann ætli að
leika áfram með Leiftri í sumar,
eins og Morgunblaðinu var tjáð af
norðamönnum og sagði frá. Steinar
skipti yfír í KR og varð löglegur
með liðinu 19. janúar. Það er því á
hreinu að hann hyggst klæðast
búningi vesturbæjarliðsins í sumar.
■ SOVÉSKUR körfuknattleiks-
maður tekur þátt í hluta „hátíða-
haldanna" er Stjömuleikur NBA-
deildarinnar bandarísku verður
haldinn síðar í þessum mánuði. Það
er Rimas Kurtinaitis, sem var f
Sillverðlaunaliði Sovétmanna á
lympíuleikunum í Seoul í haust.
Forráðamenn NBA hafa boðið hon-
um að taka þátt í þriggja stiga
skotkeppninni og hann þáði boðið.
Leikmaðurinn átti stóran þátt í því
að Sovétríkin sigmðu Bandaríkin
í undanúrslitum Ólympíuleikanna,
82:76, og skoraði einmitt flórar
þriggja stiga körfur í þeim leik!
■ BARCELONA og Real
Madrid hafa tryggt sér sæti í 2.
umferð í spænsku bikarkeppninni.
Barcelona sigraði Cartagena, sem
leikur í 2. deild, 4:0, samanlagt
7:0. Real Madrid átti hinsvegar í
mestu vandræðum með andstæð-
inga sína, Elche. Síðari leik liðanna
lauk með jafntefli, 1:1, en Real
Madrid sigraði samtals, 3:2.
Þjálfari má ekki hengja
haus þegar illa gengur
- sagði Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ
Bogdan Kowalczyk - var hann
ekki nógu virkur í fyrri hálfleik?
JÓN Hjaltalm Magnússon,
formaður HSÍ, var ekki hress
meðfyrri hálfleikinn íleiknum
í gær, frekar en aðrir, og sagði
hann góða áminningu fyrir B-
keppnina.
etta var alls ekki nógu gott í
fyrri hálfleik, en vörnin og
markvarslan vom í lagi í seinni
hálfleik," sagði Jón.
„Upphitunin var ekki nógu góð
og keppnisandinn ekki í lagi í fyrri
hálfleik. En þetta var allt annað í
seinni hálfleiknum," bætti formað-
urinn við. Jón Hjaltalín lýsti yfír
óánægju sinni með þátt Bogdans í
fyrri hálfleik: „Mér fannst þjálfar-
inn ekki nógu virkur í fyrri hálf-
leik. Það er hlutverk þjálfarans að
standa með sínu liði þegar á móti
blæs. Það versta sem þjálfari getur
gert er að hengja haus er gengur
illa. En hann stóð með liði sínu í
síðari hálfleik, hvatti það áfram,
og þá var allt annað að sjá liðið,“
sagði Jón Hjaltalín Magnússon.
Bogdan Kowalczyk
„Ég skil ekki hvemig þetta er
hægt. Að leika mjög illa fyrstu 15
mínútumar, mjög vel næstu þijátíu,
og vera næstum búnir að klúðra
leiknum á síðustu 5 mínútunum,"
sagði Bogdan landsliðsþjálfari eftir
leikinn. „Ég veit ekki hvað var að
liðinu í byijun — það er skrýtið hve
liðið getur veri misjafht. Þetta er
ekki eðlilegt.“ Bogdan var því langt
frá því að vera ánægður með liðið
- og um síðustu mínútumar sagði
hann: „Ég sagði við strákana er sex
mínútur vom eftir að nú yrðum við
að spila yfírvegað. Þá fóm þeir að
skjóta allt of snemma! Við vomm
með fimm marka forskot en vomm
næstum búnir að missa það niður."
Jakob með 100% skotanýtingu
■ Jakob Sigurðsson átti sér-
lega góðan leik í gær. Hann var
með 100% skotanýtingu - 6 mörk
úr jafnmörgum tilraunum. Þá
fiskaði Jakob 5 vítaköst.
■ Kristján Arason skaut 11
sinnum í leiknum, þar af þrisvar
úr víti, og skoraði 8 mörk - þar
af úr öllum vítunum þremur.
Þrisvar var varið frá honum.
■ Bjarki Sigurðsson var með
60% nýtingu - skoraði 3 mörk úr
5 skotum, einu sinni var varið frá
honum og Bjarki skaut einu sinni
í stöng.
■ Sigurður Sveinsson skaut
10 sinnum að marki, þar af tvisv-
ar úr víti. Hann skoraði þrjú mörk,
flómm sinnum var varið frá hon-
um, eitt skotið fór yfír og tvö í
stöng. Jakob náði knettinum eftir
bæði stangarskot Sigurðar og
skoraði ( bæði skiptin.
■ Júlíus Jónasson skoraði 3
mörk úr 4 tilraunum. Hann skaut
einu sinni yfir og missti knöttinn
einu sinni.
■ Héðinn Gilsson skaut §ór-
um sinnum, skoraði einu sinni,
tvisvar var varið frá honum og
eitt skotið fór yfir. Hann missti
knöttinn einu sinni.
■ Þorgils Óttar Mathiesen
skoraði eitt mark úr tveimur til-
raunum, hitt skot hans var varið.
Hann missti knöttinn tvisvar og
fiskaði eitt víti.
■ Geir Sveinsson skaut
tvívegis en bæði skotin vom varin.
I Sigurður Gunnarsson
skaut einu sinni, og var skot hans
varið.