Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 8
MQRWXBLAÐtt) DAGBOK .•íiÍNxnQAfiL’R W. APRÍL 1989 T A P er sunnudagur 23. apríl. Jónsmessa Hólabiskups 1 Ux\.ljr um vorið. 4. sd. eftirpáska. 113. dagnrársins 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 7.28 og síðdegisflóð kl. 19.45. Sólarupprás í Rvík kl. 5.28 og sólarlag kl. 21.27. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.26 og tunglið er í suðri kl. 2.48. (Almanak Háskóla íslands.) ÁRIMAÐ HEILLA AA ára afinæli. í dag, 23. t/U apríl, er níræður Þórð- ur Pálmason fyrrum kaup- félagsstjóri í Borgamesi, Kvisthaga 17, Reykjavík. Kona hans er frú Geirlaug Jónsdóttir. Þau eru að heim- an. DA ára afinæli. í dag, 23. OU apríl, er áttræður Jó- hann Pálsson fyrrum skip- stjóri og aflakóngur frá Vestmannaeyjum, Dalbraut 18 hér I bænum. Kona hans er Ósk Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum í EyjunS. Hann var um árabil formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélags- ins Verðandi og var í stjóm LIU og sat á þingum Fiskifé- lagsins. Hann er að heiman í dag. SKIPIN_______________ REYKJAVÍKURHÖFN. í gær var togarinn Snorri Sturluson væntanlegur inn af veiðum til löndunar. Á strönd fóru Amarfell og Jökulfell. þ.m., er áttræður Daníel Gíslason fyrram verslunar- maður hér í Reykjavík, Sörlaskjóli 20. Hann og kona hans, Guðbjörg E. Guð- brandsdóttir, ætla að taka á móti gestum í Oddfellow- húsinu afmælisdaginn kl. 17-19._________________ BRÁÐAVAKT Vegna verkfalls á Land- spítalanum hefur bráða- vakt spítalanna verið breytileg. í dag, sunnu- dag: Landspítalinn. Bráðavakt barnadeilda: í dag, sunnudag, á Landa- kotsspítala. KRISTILEG samtök kvenna, Anglow, efna til fundar annað kvöld, mánu- daginn 24. þ.m., í menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Hefst fundurinn með kaffi- drykkju kl. 20. Fundurinn er opinn öllum konum. Gestur samtakanna á þessum fundi verður kona frá Bandaríkjun- um, Shirley Bradley að nafni. Hún mun m.a. tala um samfélag okkar við Guð og hvert annað. Ritari þessara kristilegu samtaka kvenna er Sigrún Ásta Kristinsdóttir. ITC-deildin Kvistur heldur fund annað kvöld, KROSSGÁTAN LÁRÉTT: - 1 fjörmikil, 5 vínglas, 8 sól, 9 vaxin, 11 starf, 14 myrkur, 15 geta neytt, 16 grefur, 17 illmælgi, 19 beitu, 21 trassi, 22 koma nær, 25 skyldmenni, 26 vein- ar, 27 spil. LÓÐRÉTT: - 2 krot, 3 espi, 4 þekktar, 5 slungin, 6 skán, 7 dráttardýrs, 9 varkár- ara, 10 mikil mergð, 12 fæð- ingarhríðir, 13 örlagagyljuna, 18 æsingur, 20 leit, 21 tveir eins, 23 kusk, 24 rykkom. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 fátæk, 5 ágeng, 8 karga, 9 sleif, 11 ætlun, 14 lít, 15 efsta, 16 uggur, 17 róm, 19 munn, 21 hali, 22 nálægar^ 25 rói, 26 aka, 27 ill. LÓÐRÉTT: - 2 áll, 3 æki, 4 kaflar, 5 ágætum, 6 gat, 7 níu, 9 skelmir, 10 eisunni, 12 lagnari, 13 nirfill, 18 ótæk, 20 ná, 21 ha, 23 Ia, 24 GA. Tveir þingmenn yfirgefa Borgaraflokkinn: Þetta er nú ekki allt mér að kenna, Sólnes minn. Denni gleymdi að passa sig... MANNAMÓT mánudagskvöld, í Hótel Holiday Inn kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. SAFNAÐARFÉL. Ás- prestakalls heldur fund nk. þriðjudag, 25. þ.m. Sr. Ámi Bergur Sigurbjömsson segir frá Rússlandsför og sýnir lit- skyggnur. Þá koma í heim- sókn konur úr Kvenfélagi Breiðholts. Fundurinn hefst kl. 20.30. KVENFÉL. BSR efnir til spila- og kaffikvölds í Skeif- unni 17, félagsheimili Hún- vetningafélagsins, annað kvöld, mánudag, kl. 20.30. FÉL. eldri borgara hefur opið hús í dag, sunnudag, í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 14. Frjálst spil og tafl. Og í kvöld kl. 20 verður dansað. Á morg- un, mánudag, er opið hús í Tónabæ. Verður byijað að spila félagsvist kl. 14. FRÉTTIR__________________ HEILSUGÆSLU STÖÐ V - ARNAR í Hafnarfirði, Kópa- vogi og Selfossi hafa fengið til starfa sérfræðing í bama- lækningum, segir í tilk. frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu í Lögbirt- ingi. Hefur Einar Lövdahl læknir verið skipaður í hálft starf við Heilsugæslustöðina í Hafnarfírði, við Heilsu- gæslustöðina í Kópavogi í fjórðungsstarf og Heilsu- gæslustöðina á Selfossi í fjórðungsstarf. Læknirinn tók til starfa hinn 1. mars síðastl. MÁLSTOFA í guðfræði. Næstkomandi þriðjudag, 25. þ.m., verður haldin málstofa í guðfræði. Þá flytur dr. Örn Steingrímsson fyrirlestur sem hann nefnir Ferðir Abra- hams um landið Kanaan. Nokkrar bókmenntafræðileg- ar athuganir á 1. Mósebók ÞETTA GERÐIST 23. APRÍL KVENFÉL. Kópavogs, spilafundur, félagsvist, verð- ur nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í félagsheimili bæjar- ins. KFUK Hafnarfirði, Ad- deildin, efnir til kvöldvöku nk. þriðjudagskvöld í húsi félag- anna Hverfisgötu 15 kl. 20.30. Sumri fagnað, Helga S. Hróbjartsdóttir kennari talar. KVENFÉL. Breiðholts. Næstkomandi þriðjudags- kvöld verður farið í heimsókn til Safnaðarfél. Ásprestakalls og tekið þátt í fundi sem hefst kl. 20.30. KVENFÉL. Fríkirkj- unnar í Reykjavík ráð- gerir hópferð til Lúxemborgar 27. maí nk. Þær Sigurborg í s. 685573 og Málfríður í s. 19111 skrá þátttakendur og veita nánari uppl. 12.-13. Málstofan er haldin í Skólabæ, Suðurgötu 28, og hefst kl. 16. HÁDEGISVERÐUR presta verður mánudaginn 1. maí nk. í safnaðarheimili Bú- staðakirkju. LAUF. Aðalfundur fer fram í Gerðubergi 22. maí næst- komandi. UNGT FÓLK með hlutverk efnir til þriggja kvölda biblíu- námskeiðs þar sem fjallað verður um nokkur mikilvæg- ustu atriði kristinnar trúar. Námskeiðið fer fram í Grens- áskirkju og stendur yfir mánudags-, miðvikudags- og laugardagskvöld og hefst kl. 20.00 öll kvöldin og lýkur kl. 22.15. Kennarar verða úr hópi samtakanna. Nánari uppl. í síma 27460. ERLENDIS: 1633: Suður-þýskir mótmæl- endur ganga í Heilbronn- bandalagið með Svíum og Frökkum. 1795: Warren Astings fv. landstjóri Breta á Indlandi sýknaður af ákæru um land- ráð. 1838: Reglulegar ferðir gufu- skipa yfír Atlantshafið hefjast með komu Sirius og Great Westem til hafnarinnar í New York. 1848: Orrustan um Slésvík. 1873: Ashanti-ófriðurinn brýst út í Afríku. 1895: Rússar, Frakkar og Þjóðveijar mótmæla afsali kínversks landsvæðis við Jap- ani. 1904: Bandaríkin fá í sínar hendur eignir franska Pan- ama-skurðarfélagsins. 1918: Orrustunni við Zee- brugge Iýkur. 1924: Wembley-sýning opn- uð. 1945: Her Bandamanna á ít- alíu sækir að ánni Pó. 1952: Olíuleiðsla frá Kirkuk til Banias fullgerð. 1965: Charles De Gaulle Frakklandsforseti dregur franskan liðsafla úr flotaæf- ingum SEATO-bandalagsins. 1969: Sirhan B. Sirhan dæmdur til dauða fyrir morð- ið á Robert Kennedy (dómi seinna breytt í fangelsisdóm). 1974: Bandaríkjastjórn heitir Egyptum 250 millj. dollara efnahagsaðstoð. 1975: S-Víetnamstjóm segir af sér og skelfíng grípur um sig í Saigon. Gerald Ford for- seti Iýsir yfír að Víetnamstríð- inu sé lokið. HÉRLENDIS 1014: Bijánsbardagi. 1200: Jónsmessa lögtekin. 1727: Brottvikning Odds Sig- urðssonar lögmanns staðfest. 1959: Varðskipið Ægir tekur breska togarann Lord Mont- gomery við Vestmannaeyjar. Afinælisdagar: W. Shake- speare leikritaskáld (1564- 1616), breski listmálarinn J.M.W. Tumer (1775-1851), S. Prokofjev tónskáld í Rúss- landi (1891-1953), Halldór Laxness 1902. ORÐABÓKIN að goska Síðasta sunnudag var hér í orðabókarhorninu minnzt á so. að þórodda og hugsan- legan uppruna þess. Hér kemur annað sagnorð, en það er so. að goska, sem Bl. hefur í merkingunni að gabba, leika á e-n. Þetta so. er einnig vel þekkt í Árnes- sýslu og trúlega víðar um Suðurland a.m.k. í þessari merkingu. En þar er hún einnig höfð um að hnupla og á þann hátt, að ekki komist upp. Sagt er: „Hann goskaðiþvi frá mér.“ Stund- um var sagt um hrafninn: „Hann goskaði mig á þessu,“ þegar e-ð smálegt hvarf, sem úti hafði legið. Menn hafa almennt trúað því, að so. þetta sé dregið af verkum Gottsvins þess Jónssonar, sem var viðrið- inn Kambsránið forðum daga og þótti bæði slyngur við að næla sér í sitthvað og þá ekki síður fela það, þegar leitað var hjá honum. Sbr. þá alkunnu sögu um manninn, sem leitaði á náð- ir Gottsvins, þegar gerð var þjófaleit hjá honum, þar sem hann var grunaður um að hafa stolið brennivínskút. Þá á Gottsvin að hafa sagt, um leið og hann dýfði kútn- um ofan í lýsisgrút og gerði hann þannig torkennilegan: Sá á ekki að stela, sem ekki kannaðfela. — JAJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.