Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989 Málstofa í Viðey um skóla, nám og samfélag EFNT verður til málstofu í Við- eyjarstofu föstudaginn 23. júní um rannsóknir og þróunarverk- efni- í skólastarfi. Málstofan er lialdin til heiðurs dr. Wolfgang Edelstein en hann á sextugsaf- mæli um þessar mundir. í frétt, sem Morgunblaðinu hefiir bor- ist, segir að dr. Wolfgang hafi um 20 ára skeið verið einn af áhrifamestu skólamönnum þjóð- arinnar. Frumkvæðið að mál- stofunni eiga vinir og kunningj- Arnessýsla: Tjón af völd- um flóða Syðra-Langholt GEYSIMIKIÐ vatn hefur verið hér í stærstu ánum að undan- förnu. Iflá bænum Auðsholti hér í Hrunamannahreppi hefiir Hvítá flætt yfir garðlönd og tún. Vignir Jónsson bóndi í Auðsholti sagði að erfitt væri að segja til um hve tjón yrði mikið en m.a. flæddi áin yfir kartöflugarð þar sem jarð- vegurinn er hitaður upp með hita- rörum. Vonast er eftir ágætri upp- skeru úr þeim garði síðari hiuta júlímánaðar. Stóra-Laxá er einnig foráttu mikil en laxveiði á að hefj- ast í henni 20. júní. Margir neta- veiðibændur við Hvítá og Ölfusá geta ekki komið niður netum enda tilgangslaust meðan þessi hamur er í vatnsföllunum. Jón Bjarnason í Auðsholti sem kominn er á níræðisaldur og er stál- minnugur, telur að mestu vorflóð á öldinni hafí verið hér árin 1920, 1934 og 1949. Jón fullyrðir t.d. að veturinn 1920 hafí verið snjóþyngri en sl. vetur. - Sig.Sigm. ar dr. Wolfgangs sem vilja minn- ast hins merka framlags hans til íslenskra skólamála á þessum timamótum. í málstofunni fjallar Siguijón Björnsson um rannsóknir í uppeld- issálarfræði, Gunnar Finnbogason uppeldisfræðingur greinir frá at- hugunum sínum á sögu skólarann- sóknadeildar menntamálraáðu- neytisins, Sigþór Magnússon nám- stjóri ræðir niðurstöður kannana sem hann hefur gert á kennslu- háttum og aðstöðu í litlum skólum, dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir lektor fjallar um samskiptahæfni skóla- barna, Halldór Valdimarsson skólastjóri á Húsavík og Guðrún Geirsdóttir kennari á Akranesi lýsa tilraunum með þróunarstarf í skól- um og Auður Hauksdóttir fram- haldsskólakennari greinir frá rann- sóknum sínum á námsmati og kensluháttum í dönskukennslu. Loks mun dr. Wolfgang flytja ávarp. Ráðstefnustjórnar verða þau Ásgeir Guðmundsson náms- gagnastjóri og Gerður G. Óskars- dóttir ráðgjafi menntamálaráð- herra. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, heiðrar málstofuna með nærveru sinni. í tengslum við málstofuna efnir Námsgagna- stofnun til sýningar á nýjum og gömlum kennslugögnum. Málstofan hefst með listflutn- ingi klukkan 9.30 en farið verður með Viðeyjarfeiju úr Sundahöfn klukkan 9. Nokkur sæti eru enn laus. Þeir sem áhuga hafa á þátt- töku hafi sem allra fyrst samband við Ingvar Sigurgeirsson lektor í Kennaraháskóla Islands eða Ólaf H. Jóhannsson skólasijóra í Æf- ingaskólanum. Þátttökugjald er áætlað krónur 2.600 og er innifal- inn hádegisverður, kaffi, málstofu- gögn og bátsferð til og frá Viðey. (Úr fréttatilkynningu) Nýstúdentar frá Framhaldskólanum í Vestmannaeyjum að útskrift lokinni. Morgunbiaðið/GnmurGísiason. Framhaldsskólanum í Yest- mannae^jum slitið í 10. sinn V estmannaeyjum. FRAMHALDSSKÓLANUM í Vestmannaeyjum var slitið fyrir skömmu. Þar með lauk 10. starfsári skólans sem hefúr nú útskrifað 100 stúd- enta frá upphafi starfs síns. Við upphaf skólaslitanna færði Ágúst Karlsson skólanum að gjöf ræðupúlt seip prýtt var merki skólans. Ólafur Hreinn Siguijóns- son, skólameistari, þakkaði gjöf þessa og sagði að frá upphafi starfs skólans hafi Ágúst sýnt honum mik- inn áhuga og velvilja sem vert væri að þakka. Skólameistari hélt síðan skóla- slitaræðu þar sem hann greindi frá starfsemi skólans. Hann sagði að þrátt fyrir verulega röskun á starf- seminni, vegna 6 vikna verkfalls, þá hefði tekist með góðri samvinnu nemenda og kennara að Ijúka starfs- árinu með sóma. Hann brýndi fyrir nýstúdentum hversu verðmæt menntun væri og hvatti þá til þess að nota menntun sína til góðra verka í framtíðinni. 210 nemendur hófu nám á haust- önn við Framhaldsskólann en 190 á vorönn. Nú voru útskrifaðir 27 nem- endur af ýmsum brautum. 5 luku verslunarprófi af viðskiptabraut, 3 luku grunndeild rafiðna, 6 luku vél- virkjanámi, 1 pípulögn og 2 luku vélavarðamámi. Þá voru 10 nemend- ur brautskráðir með stúdentspróf. Fjöldi viðurkenninga var veittur fyrir góðan námsárangur og skóla- meistari veitti 100. stúdentinum sem nú var útskrifaður frá skólanum gjöf til minningar um það. Þröstur Kristjánsson talaði fyrir Æfði augnskurðað- gerðir á hænueggjum Rætt við Robert Machemer, heimsþekktan augnlækni NORRÆNT augnlæknaþing er nú haldið í Reykjavík og sækja það nærri 800 erlendir gestir. Prófessor Robert Machemer frá Duke- háskóla i Bandaríkjunum er heimsþekktur vísindamaður á sviði augnlækninga og heldur einn af þremur aðalfyrirlestrum þingsins. Prófessor Machemer er kunnastur fyrir brautryðjendastarf í smár- sjáraðgerðum á augum vegna sykursýki og áverka. Með tækni hans er aðgerðin framkvæmd inni í auganu, í stað þess að skera þvert á augað, opna það og vinna utan frá. Aðferð Machemers er nú beitt um allan heim, meðal annars hérlendis frá 1984. Prófessorinn var fenginn til að segja eilítið frá störfúm sínum. Robert Machemer er Þjóðveiji tækið er nokkurs konar nál eða en fluttist til Bandaríkjanna að lo- knu læknisnámi í heimalandi sínu. Hann starfaði lengi við háskólann í Miami en hefur í áratug unnið við Duke-háskólann í Norður- Karólínu fylki. Þar er augnlækn- ingamiðsstöð sem sjúklingar sækja víðs vegar að úr heiminum, en sjúkrahús í fjölmörgum löndum beita nú sömu tækni og þar er notuð. Machemer kveðst hafa fram- kvæmt fyrstu aðgerðina í lokuðu auga árið 1970. Segir hann að aðferðin sé notuð til að meðhöndla ýmsa sjúkdóma sem áður voru tald- ir ólæknandi. Til dæmis blæðingar inn í augu hjá sykursjúkum, sem er algengasta orsök blindu hjá Bandaríkjamönnum á aldrinum 24 til 64 ára, og sjónhimnulos. Bata- horfur eru misgóðar; tveir af hveij- um þremur sjúklingum sem orðnir voru blindir, jafnvel þrír af hveijum fjórum, öðlast nothæfa sjón aftur. Áðferð Machemers er einnig beitt við augnáverkum. Aðferðin sem Machemer er upp- hafsmaður að felst að hans sögn í að farið er með tvö hárfín tæki inn í augað, sitt frá hvorri hlið. Annað töng sem unnið er með innan frá, en hitt sem haldið er á móti hefur ljós á endanum. Með þessu móti er unnt að framkvæma flóknar augnaðgerðir sem áður var útilokað að gera og hætta á að augað falli saman er mun minni. Hér á landi hafa verið skurðaða- gerðir sem þessar verið fram- kvæmdar í fímm ár með tæki sem Oddfellow-klúbburinn Þorsteinn í Reykjavík gaf Landakoti. Ingólfur Gíslason, læknir þar, hefur sérhæft sig í aðgerðunum og nýlega kom Einar Stefánsson, augnlæknir, heim frá Bandaríkjunum þar sem hann starfaði með prófessor Mac- himer við Duke-háskóla. Einar var í fyrra skipaður prófessor í augn- lækningum við Háskóla í íslands. Þótti aðferðirnar grimmilegar „Mér fannst frá upphafi sér- fræðinámsins grimmilegt og óþarf- lega áhættusamt að rista augað upp til að komast að meininu,“ segir Machemer aðspurður um kveikiuna að aðferð hans. „Þess vegna vildi ég fínna leið til að lækna augað innan frá. í staðinn fyrir skæri og tengur vildi ég nota fíngerð tæki sem hæfðu augunum betur. Heppnin var með mér, ég hitti verkfræðing, Parel að nafni, sem teiknaði fyrir mig tæki og tól til að vinna með inni í auganu. Hann á stóran þátt í nú er hægt að framkvæma augnaðgerðir í þennan hátt.“ Töng sem notuð er við augnað- gerðir sem þessar minnir á áhöld tannlækna, en er mun fíngerðari. Með berum augum virðist örfín nál vera á enda áhaldsins en þegar horft er á það gegnum smásjá sem notuð er við augnaðgerðir sést að jámið endar í hring. Prófessor Machemer segir það venjast að beita fíngerðum áhöldum við að- gerðir þar sem ekkert má útaf bregða. Þetta sé raunar mikið ná- kvæmnisverk og oft taki hver að- gerð margar klukkustundir. Meðan prófessor Machemer var enn að þróa aðferðina við aðgerðir í lokuðu auga æfði hann sig til að byija með á hænueggjum. „Hrá eggjahvíta er eins og við vitum glært hlaup sem svipar til gler- vökva augans og mér fannst upp- lagt að reyna að fást við egg áður en ég sneri mér að aðgerðum á mönnum. Ég notaði lítinn nafar til að bora gegnum skurnina og ná hluta af rauðunni út úr egginu. Svona byijaði þetta nú,“ segir Machemer kímileitur. Aðgerðir á kornabörnum Tæknin sem notuð er við augn- aðgerðir er stöðugt að breytast; Morgunblaðið/Einar Falur Prófessor Robert Machimer fann upp aðferð til að framkvæma augnaðgerðir inni í auganu í stað þess að opna það upp. Aðferð Machimers er nú notuð á sjúkra- húsum viða um heim. tækin verða fullkomnari og að- ferðirnar betri. Nú vinnur prófessor Machemer mikið með nýfædd böm sem hafa skerta eða enga sjón af því að fæðast löngu fyrir tímann. Fyrirlestur hans á augnlæknaþing- inu fjallaði einmitt um sjónhimnu- skemmdir á fyrirburum, en æða- kerfið i augum þeirra virðist oft ekki þola súrefnið í andrúmsloftinu. „Þetta eru börn sem vega niður í fjórar eða sex merkur og fæðást oft tólf vikum of snemma," segir Machemer, „en við framkvæmum ekki aðgerð fyrr en þremur mánuð- um eftir að þau koma úr móður- kviði. Þar er sömu grunnreglum beitt og við aðgerðir á fullorðnu fólki, munurinn er sá að öll áhöld eru helmingi minni enda er auga í ungabarni ekki stórt. Það er erfíð- ara að lækna sjóndepru í koma- börnum en fullorðnu fólki, en nú vinnum við að því að bæta árangur- inn. Þróunin í læknavísindum held- ur stöðugt áfram, stundum tekur hún stór stökk fram á við og það er vinnunnar virði.“ hönd nýstúdenta og þakkaði starfs- fólki skólans fyrir gott samstarf á liðnum ámm. Skólameistari sleit síðan skólan- um og óskaði nemdum sínum vel- famaðar í framtíðinni. Grímur. Arbók Ferða- félags Islands um Breiða- Qarðareyjar Árbók Ferðafélagsins er komin út í 62. sinn og Qallar að þessu sinni um Breiðafjarðareyjar. Landlýsingu eyjanna rita þeir Ámi Bjömsson þjóðháttafræðingur og Eysteinn G. Gíslason bóndi í Skáleyj- um. Eysteinn ritar um Vestureyjar og Árni um eyjar á suðurhluta Breiðafjarðar. Ævar Petersen fuglafræðingur á Náttúmfræðistofnun íslands ritar þátt um náttúrafar Breiðaijarðar- eyja, Ljósmyndir fyrir bókina tóku þeir Grétar Eiríksson og Jón Karl Snorrason í leiðöngmm sem famir vom í fyrrasumar. Aðrir sem eiga ljósmyndir í bókinni em Ævar Pet- ersen, Björn Þorsteinsson, Guðmund- ur P. Ólafsson, Magnús Magnússon og Trausti Tryggvason, Ib Petersen og Julia Yoshida. Ennfremur era birtar gamlar myndir sögulegs eðlis eftir þá Óskar Gíslason, Sæmund Guðmundsson, Viktor Guðnason og Vilhjálm Hjaltalín. Guðmundur Ó. Ingvarsson land- fræðingur teiknar 20 staðfræðilega landsuppdrætti. Um Breiðafjörð liggja mót þriggja sýslna og skiptast eyjamar milli þeirra. í ferðafélagsárbókum hefir áður verið fjallað nokkuð um Breiða- ijarðareyjar í samhengi við aðliggj- andi sýslur: í Barðastrandarsýslubók eftir Jóhann Skaptason 1959, Dala- sýslubók Þorsteins Þorsteinssonar 1947 og bók Einars Hauks Kristjáns- sonar um Snæfellsnes norðan fjalla 1986.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.