Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 t Faðir okkar, FRIÐBERG KRISTJÁNSSON frá Hellissandi, verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 18. september kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Kristján Friðbergsson, Geir Friðbergsson, Guðni Friðbergsson, Edda Friðbergsdóttir Bakke. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ELÍAS JÓN GUÐJÓNSSON skókaupmaður, Staðarfelli, Akranesi, andaðist á heinili sínu 14. september. Sigriður Ármannsdóttir, Guðjón Elíasson, Gunnhildur Elíasdóttir, Vigdfs Eyjólfsdóttir, og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín og dóttir okkar, MARGRÉT BJÖRGÓLFSDÓTTIR, Sólvallagötu 45, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. september kl. 13.30. Jónas Sen, Þóra Hallgrfmsson, Björgólfur Guðmundsson. + Faðir minn, ÞORSTEINN STEINBERG ÁRELÍUSSON, Skarðshlið 16, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. septem- ber kl. 13.30. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Harpa Þorsteinsdóttir. Fyrir vandláta JPinniéttingar Fallegt handbragð í fyrirrúmi. Ef þú vilt hafa heimilið glæsilegt og sérstætt, skaltu koma til okkar, því við bjóðum upp á fleira en eldhúsinnréttingar. íslensk framleiðsla sem ber af. JPinnréttingar Skeifan 7 - Reykjavik - Símar 83913 -31113 Minninff: Guðni Bjarnason fv. verksljóri Fæddur 20.júní 1907 Dáinn 11. september 1989 A morgun mánudag verður jarð- sundinn í Dómkirkjunni í Reykjavík tengdafaðir minn, Guðni Bjarnason. Foreldrar hans voru þau hjónin Bjarni ívarsson bóndi og Magndís Benediktsdóttir. Börn þeirra hjóna voru átta, og var Guðni elstur. Auk hans eru látin andvana barn, þá Aðalsteinn og Kristjana. Eftir lifa Benedikta Magndís, íva, Auðbjörg og Sigurbjörg. Guðni fæddist á Narfakoti í Innri-Njarðvík. Á íjórða aldursári fiuttist hann frá Innri-Njarðvík ásamt foreldrum sínum, fyrst að Laxárbakka og síðar að Seli í Mikla- holtshreppi, þar sem hann ólst upp í foreldrahúsum. Síðar lá leið þeirra aftur suður með sjó til Keflavíkur. Þegar þangað var komið tók hann að vinna hin ýmsu störf til lands og sjávar. Guðni var mikill atorku- maður, fílhraustur og vinnusamur svo af bar. Forystuhæfileikar hans komu fijótt í ljós, enda var hann orðinn vegavinnuverkstjóri hjá Vegagerð ríkisins aðeins 22ja ára og gegndi því starfi í átta ár. Síðar var hann verkstjóri hjá Olíufélaginu hf. í Keflavíkurbæ og Véltækni hf. Guðna var mjög annt um samtök verkstjóra, enda fór svo að hann varð einn af stofnendum Verk- stjórasambands íslands og sat í stjórn þess í mörg ár sem gjald- keri. Hann var gerður að heiðurs- félaga þess árið 1974. Sem ungur verkstjóri var hann sendur tii vegavinnuframkvæmda í Norður-Múlasýslu og Norður-Þing- eyjarsýslu á vegum Vegagerðar ríkisins. Við þessa vegagerð vann hann í fimm sumur. En einmitt á þessum tíma kynntist hann eftirlif- andi konu sinni, Jónínu Davíðs- dóttur frá Vopnafirði og gengu þau í hjónaband 21. október árið 1933. Hjónaband þeirra var einstakt. Sýndu þau hvort öðru ástúð og vin- áttu í hvívetna alla tíða svo af bar. Um þessar mundir eru liðin 35 ár frá því undirritaður kynntist fyrst þessum sómahjónum, en það álít ég að hafi verið mestu gæfuspor lífs míns, því þá kynntist ég konu minni, Sigrúnu Guðnadóttur, kjör- dóttur þeirra. Alla tíð hafa þau hjón sýnt mér einstakan hlýhug og vináttu. Það er því mikill söknuður að missa slíkan vin og félaga sem Guðni var mér. Alla tíð var hann mér mikil stoð í starfi mínu, enda hafði hann mik- inn áhuga á trésmíði. Sem ungur maður langaði hann mjög mikið til að gera smíðar að ævistarfi. En hann var smiður að Guðs náð, byggði mörg hús, tók að sér að rífa gömul hús og flytja brott. Guðni var mjög lagtækur og eftir að hann var farinn að lýjast á verkstjóra- störfum þá fór hann að smíða hús- gögn. Hann smíðaði ýmiss konar húsgögn, t.d. svefnbekki, af mikilli snilld, og stundaði hann þá iðju í um 15 ár heima hjá sér á Oldugötu 33 í Reykjavík. Þau hjón voru mjög samrýnd og gestrisin. Á heimili þeirra var ætíð glatt á hjalla. Á góðri stund var Guðni hrókur alls fagnaðar. Guðni var mjög víðlesinn og fróður. Landafræði var hans áhugamál, þar bjó hann yfir ótrúlegri þekkingu sem leikmaður. íslendingasögurnar voru hans eftirlætislesning. Þá hafði hann einnig mjög gaman að því að spila brids. Hann var einn af stofnendum Bridsfélags Keflavíkur. Þau hjón stunduðu spilamennsku nú síðustu ár og höfðu af því mikla ánægju. Guðni var mjög barngóður og hafa börn mín ekki farið varhluta þar af. Þau hafa ætíð notið hans góðmennsku og er því söknuður þeirra sár á skilnaðarstundu. Elsku tengdamamma, ég bið al- góðan Guð að vera með þér og styrkja þig í sorg þinni. Ég kveð nú rninn kæra vin og þakka fyrir þær ógleymanlegu sam- verustundir, sem ávallt munu iifa í minningunni um góðan dreng. Tyrfingur Sigurðsson Á morgun kveðjum við Guðna Bjarnason, en hann lést mánudag- inn 11. september sl., 82 ára að aldri. Hann hafði verið óvenju heilsuhraustur alla ævi, en nú var líkamlegt þrek hans á þrotum. Hann vissi sjálfur að kallið var kom- ið og sofnaði vært hinum langa svefni með manneskjurnar tvær við hlið sér sem voru honum kærastar, eiginkonu sína Jónínu Davíðsdóttur og einkadótturina Sigrúnu. Jóna og Guðni áttu yndislegt heimili að Óldugötu 33. Þar ólu þau Sigrúnu upp í ást og umhyggju sem engin orð fá lýst. Hún var auga- steinn þeirra og var þeim mikill gleðigjafi. Guðni var góður heimilis- faðir og hélt ávallt verndarhendi yfir litlu Ijölskyldunni sinni. Sigrún giftist Tyrfingi Sigurðs- syni og eignaðist með honum þijú börn sem fylltu íbúðina á Öldugöt- unni af fjöri og lífi. Ólýsanleg er sú ást sem Guðni veitti afabörnun- um sínum. Guðni, Sigurður og Þór- unn Jónína sakna nú q11 afa síns sem þau virtu og elskuðu svo mik- ið, enda var ástin og umhyggjan sem hann veitti þeim stærri en svo að hún verði nokkurn tíma full- þökkuð. Mér er ógleymanleg sú stund er ég sá þennan fallega mann í fyrsta sinn. Hann var þá tekinn að eldast, en það-var ótrúlegt að finna alla hlýjuna sem geislaði frá Guðna allt frá því hann heilsaði mér fyrst. Ég var bara ung feimin stúlka, nýkom- in í fjölskylduna, en fann á samri stundu að ég var orðin ein af þeim. Og orðunum sem ég heyrði Guðna mæla til Jónu í þessari fyrstu heim- sókn minni gleymi ég aldrei: „Jóna hún er alveg eins falleg og þú“. Yndislegri orð er ekki hægt að hugsa sér af vörum manns sem elksaði, dáði og virti konu sína eins mikið og Guðni gerði. Guðni og Jóna leiddust ávallt hönd í hönd og þannig gengu þau í gegnum lífið. Jóna mín, þú hefur misst mikið, en eins og þú sjálf hefur sagt, þá mun trygga og hlýja höndin hans Guðna vaka yfir þér og okkur hinum. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRANNA RÓSA SIGURÐARDÓTTIR Droplaugarstöðum, verður jarðsungin þriðjudaginn 19. september kl. 10.30 frá Foss- vogskirkju, Sigurjón Guðmundsson, Þórunn Ólafsdóttir, Guðmundur J. Kristjánsson, Þórlaug S. Guðnadóttir, Sigurbjörg Kristjánsdóttir. barnabörn og barnabarnabörn. SLÖKUNARNUDD fyrir almenning Fyrir einstaklinga Vikulega 8 kvöld. Hefst þriðju- daginn 26. sept. kl. 18-21. Fyrir hjón Vikulega 8 kvöld. Hefst fimmtu- daginn 28. sept. kl. 18-21. Kennari er Rafn Geirdal, sjúkranuddari. Skráning alla virka daga kl. 13-17 í síma 686612. Nuddskóli Raf ns. Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.