Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 19
JensEvensen ræðir um ný umhverfis- lög heimsins JENS Evensen, dómari í Alþjóða- dómstólnum í Haag, flytur al- mennan fyrirlestur um gerð nýrra alþjóðareglna um vernd umhverf- isins í dag, fimmtudaginn 28. sept- ember, klukkan 17.15 í stofii 102 í Lögbergi. Öllum er heimill að- gangur. Fyrirlesari er hér á landi í boði lagadeildar Háskólans og lögfræðingafélagsins. Jens Evensen er einn af kunnustu lögfræðingum álfunnar á sviði þjóða- réttar. Hann lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla og var lengi yfir- maður lagadeildar norska utanríkis- ráðuneytisins. Evensen gegndi störfum við- skiptaráðherra Noregs og var haf- réttarmálaráðherra árin 1974-1978. Á Hafréttarráðstefnunni 1973-1982 var hann formaður norsku sendi- nefndarinnar og einn af varaforset- um ráðstefnunnar. Dómari í Alþjóða- dómstólnum hefur hann verið frá 1985. í fyrirlestri sínum mun Jens Evensen Qalla um nauðsyn þess að þjóðir veraldar setji alþjóðalög um vemd umhverfis mannsins á jörðinni svo unnt sé á þann hátt að takast á við þær hættur sem þar steðja að, svo sem mengun hafsins, eyðingu ósonlagsins og gróðurhúsaáhrif. Slíkar alþjóðareglur hafa ekki enn verið lögfestar og mun í fyrirlestrin- um verða rætt um það hver meginat- riði slíkra reglna ættu að vera og á hvern hátt ríki heims geta starfað saman að gerð þeirra. Jakob Jónsson. Jakob Jóns- son sýnir í Galleríi List JAKOB Jónsson sýnir myndverk unnin á pappír í Galleríi List, Skip- holti 50B. Sýningunni lýkur nk. sunnudag. Opið verður á virkum dögum klukkan 10-18 og um helgar klukkan 14-18. (jiv&þ1,1 ÍTÖLSK V I K A í KRINGLUNNI 28. sept. - 7. okt. ítalskar vörur/#Tískusýningar Tónlist O Kaffihús O ítalskur matur O Feröakynningar O //Getraun, vinningur: ferb fyrir tvo til Ítalíu O 5)Ojj(;i,Iþ;BþAijll? Kl.Mi\jTþ'DAGUR,28v,SEPTEMBER 1989 Ferðamálanám Hefur þú áhuga á störfum tengdum ferðaþjónustu ? Með þetta í huga hefur Málaskól- inrt, í samvinnu við Viðskipta- skólann, nú skipulagt námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á að takast á við hin margvíslegu verkefni sem bjóðast í ferðamannaþjónustu. Námið er undirbúið af fagmönnum og sérfræðingum á ýmsum sviðum ferðamála. Sérstök áhersla er lögð á lausn raunhæfra verkefna. Námið tekur alls 176 klst. og stendur yfir í 11 vikur. Kennarar á námskeiðinu hafa allir unnið við störf tengd ferðaþjónustu og hafa mikla rejmslu á því sviði. Ablaðamannafundi sem Ferða- málaráð hélt nýverið kom fram að heildarvelta ferðaþjónustu þessa árs hér á landi yrði á milli 9 og 10 milljarðar króna. Áætlað er að um 135 þúsund ferðamenn heimsæki ísland í ár og miðað við aukninguna frá 1984 munu um 300 þúsund ferðamenn sækja ísland heim á ári hverju um næstu aldamót. Á blaðamannafundinum kom einnig fram að nú eru 6 þúsund ársstörf hér á landi tengd ferðaþjónustu og reikna mætti með verulegri fjölgun þeirra á næstu árum. Hefur pú áhuga á aö starfa aö spennandi og fjölbreyttum störfum íferÖaþjónustu hér heima eÖa erlendis? Vissir pú aÖ ferÖamannapjónusta er í örum vexti á Islandi? Meðal námscjreina í ferðamálanaminu erus Starfsemi ferðaskrifstofa. Erlendir ferðamannastaðir. Innlendir ferðamannastaðir. Tungumál. - Rekstur fyrirtækja í ferða- mannaþj ónustu. - Flugmálasvið. - Heimsóknir í fyrirtæki. Hringdu í okkur og við sendum þér bækling með nánari upplýsingum. Ath. Fjöldi þátttakenda er takmark- aður. Málaskólmn BORGARTÚNI 24, SÍMI 62 66 5 5 . •:!4 jgL 11 >„:3dt jlí ,i j jít i lusr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.