Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 44
> SAGA CLASS Fyrir þá sem eru aðeins á undan FLUGLEIDIR FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Fryst flök hækka um 5% í Bretlandi Litlar líkur á hækkun á Bandaríkjamarkaði ÍSLENSKU fisksölufyrirtækin í Bretlandi, Icelandic Freezing Plant og Iceland Seafood, hækkuðu verð á frystum þorskflökum, sem þau kaupa héðan, um 5% að meðaltali um síðustu helgi. Friðrik Pálsson, forstöðu- maður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, segir að hækkunin sé vegna þess að framboð á þorskflökum hefur farið minnkandi á Bretlandsmark- aði að undanfornu. Hann telur litlar líkur á að verð hækki í Banda- ríkjunum. Friðrik segir að eins og er hafi þessi hækkun ekki mikla þýðingu fyrir vinnsluna hér á landi. Markað- urinn í Bretlandi hafi ekki verið sam- keppnisfær við verð á Bandaríkja- markaði, en nú séu fyrirtækin í Bret- landi að reyna að örva framleiðsluna fyrir þann markað með verðhækkun- inni. Lítið framboð er á þorski í Bret- landi um þessar mundir. Friðrik segir að litlar verðbreyt- ingar hafi orðið í Bandaríkjunum í langan tíma. Þar hefur engu að síður verið spáð síðan í sumar að verðið hækki í haust. „Á sama tíma berast síðan stöðugt fréttir af miklum birgð- um þar af þorski sem reyndar er ekki íslenskur. Hann kemur, að því talið er, að mestu frá Alaska. Það ganga mjög mismunandi sögur um það hvort þessi þorskur sé yfirleitt til eða hvort þetta séu rangar tölur. Þetta hefur engu að síður þýtt það að markaðurinn í Bandaríkjunum er tiltölulega rólegur. Blokkarverð hef- ur að vísu hnikast upp frá því snemma á þessu ári og er talið verða núna í 1,60 dollurum en hafði farið lægst í 1,25. Flugleiðir: Hyg-gja á áætlunarflug til Malag’a o g Palma FLUGLEIÐIR hafa lagt inn um- sókn til samgönguráðuncytisins um leyfi til að hefja áætlunarflug til tveggja.borga á Spáni þegar á Fiskiðjan Freyja: Ríkið bætir * Utvegsbank- anum tapið FRESTUR sá er sýslumaðurinn á ísafirði veitti Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri, til þess að gera upp opinberar skuldir sínar, rennur út í dag. Fyrirtækið verður inn- siglað á morgun, ef skuldirnar verða ekki gerðar upp. Freyja hefúr reynt að fá skuld sína við Útvegsbanka Isiands lækkaða og er þá um viðskipti við gamla Út- vegsbankann að ræða. Steingrím- ur Hermannsson, forsætisráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ríkissjóður myndi tapa því sem þeirri upphæð næmi. Viðskipti Freyju og Útvegsbank- ans eru eitt þeirra mála sem sett voru í nefnd með aðild ríkissjóðs, ^þegar Útvegsbankanum var breytt í hlutafélagsbanka. Útvegsbanki ís- lands hf. telur því þessi viðskipti nýja bankanum óviðkomandi. Því mun sá háttur verða hafður á, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, að þær kröfur sem Útvegs- bankinn getur ekki innheimt frá Freyju verða greiddar Útvegsbanka íslqnds hf. af rikissjóði. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði í gær að sér væri ekki kunnugt um hversu mikið félli á ríkissjóð vegna örðugleika Freyju, en það hefði komið sér á óvart að þessar skuldir væru meiri eri þær 45 milljónir sem rætt hefði verið um. „Ég veit að eftirlitsmenn- irnir með þessum gömlu skuldum Fiskiðjunnar Freyju meta það þannig að þær séu ríkissjóði tapaðar, ef fyr- irtækið verður gjaldþrota. Það eru engin veð sem duga fyrir þessu. Það var þess vegna sem mælt var með ' því að þessu yrði breytt í víkjandi lán,“ sagði forsætisráðherra. næsta sumri, Malaga á Costa del Sol og Palma á Mallorka. Sam- gönguráðuneytið fjallar nú um umsókn félagsins. Flugleiðir hafa leyfi til áætlunar- flugs til Barcelona en hafa ekki not- fært sér það. Flestir íslenskir sólar- landafarar leggja hins vegar leið sína til Costa del Sol, sem er í næsta nágrenni Malaga, og til Palma á Mallorka. Á undanförnum árum hafa um 35 þúsund íslendingar ferðast til Spánar á ári hvetju, og undan- tekningarlítið í leiguflugi. Pétur Eiriksson, framkvæmdastjóri mark- aðssviðs Flugleiða, segir Flugleiðir stefna að því að geta flutt um helm- ing þeirra farþega sem árlega ferð- ast til Spánar í leiguflugi. í áætlunum Flugleiða er gert ráð fyrir að fljúga tvær ferðir í viku til Malaga og Palma að sumarlagi en einu sinni í viku yfir vetrartímann. Sjá nánar B10 í viðskiptablaði. Haustleikir Morgunblaðið/RAX Fundu áfengi í olíutankí TOLLGÆSLAN hefúr upplýst smygl á 240 lítrum af vodka og 40 kössum af bjór, alls að verð- mæti 677 þúsund krónur sam- kvæmt verðskrá ÁTVR. Góssið var falið í olíutanki og undirstöð- um löndunarkrana um borð í flutningaskipinu Hauki. Fjórir skipverjar hafa gengist við brot- inu. Þegar skipið kom til hafnar í Reykjavík frá Belgíu í síðustu viku hófu tollverðir leit í því og var leit- að í þijá daga. Að sögn Kristins Ólafssonar tollgæslustjóra hafði sterka áfengið, 240 lítraflöskur af Smirnoff-vodka, verið falið í olíu- tanki skipsins og hafði verið fyllt yfir til að villa um fyrir tollvörðum. Bjórinn, 40 kassar, var falinn í undirstöðum löndunarkrana skips- ins. Útsöluverð 240 lítra af Smirn- off vodka er í ÁTVR 569 þúsund krónur en þar kosta 40 kassar af bjór 108 þúsund krónur. Sam- kvæmt því er verðmæti góssins 677 þúsund krónur. Krani valt á fólksbíl Neskaupstað. FÓLKSBÍLL gjöreyðilagðist þegar kranabíll valt á hann á bryggjunni í Neskaupstað í gær. Enginn var í bílnum þegar óhappið varð og kranastjórinn slapp ómeiddur. Ohappið varð þegar verið var að prófa loðnudælu, sem notuð er til löndunar loðnu í bræðslu hjá Síldar- vinnslunni. Stór krani, notaður til að lyfta dælúnni, valt á hliðina og á fólksbílinn, sem hafði verið lagt á bryggjunni. Bíllinn lagðist nær alveg saman og er gjörónýtur. Kraninn skemmdist talsvert, en kranastjóranum tókst að stökkva út úr honum á síðustu stundu og slapp ómeiddur. Ágúst Verðsamanburður á matvörum í sjö höfuðborgum: Verð á landbúnaðarvörum yfirleitt hæst í Reykjavík íslenskt kjöt mun dýrara hér en í Færeyjum - álagning að jafuaði lægst í Reykjavík SAMKVÆMT niðurstöðum verðkönnunar Verðlagsstofnunar á al- gengum matvörum í höfúðborgum sjö landa í júní síðastliðnum kemur í ljós, að verð á landbúnaðarvörum var í flestum tilfellum, hæst í Reykjavík, en lægst í Þórshöfii í Færeyjum. Söluverð á öðrum innlendum matvörum og innfluttum matvörum var ekki óhagstætt í Reykjavík í samanburði við samskonar vörur erlend- is. Verslunarálagning var að jafhaði lægri í Reykjavík en í þeim borgum sem samanburður var gerður við, en söluskattur var hæstur í Reykjavík. Verðlagsstofnun kannaði verð á 28 algengum matvörutegundum í Reykjavík, og á sama tíma var verð á sömu vönim kannað í Þórs- höfn, Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Helsinki og London. Þrátt fyrir allmiklar niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum reyndist smá- söluverð vera hæst í Reykjavík í átta tilfellum af tólf, en í Þórshöfn í Færeyjum var verðið lægst í jafn- mörgum tilfellum, og stafar það meðal annars af því að stór hluti landbúnaðarvara í Færeyjum er innfluttur. íslenskt lambakjöt var mun hærra hérlendis en í Þórshöfn. Að sögn Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra hefur Verðlagsráð fjallað um niðurstöður könnunar- innar, og var þar álitið að þörf væri á enn ítarlegri upplýsingum, sem meðal annars gætu varpað frekara ljósi á orsakir hás verðlags á landbúnaðarvörum hér á landi. „í því sambandi er þegar vitað um óhagkvæmnina sem ríkir í Iandbúnaðarframleiðslunni og einnig í rekstri sláturhúsa og mjólkurbúa, en varðandi hátt verð á kjúklingum og eggjum ber þó að hafa í huga opinbera skattlagn- ingu á þessa framleiðslu. Það er ekki einungis það nei- kvæða varðandi landbúnaðarvör- urnar sem vekur athygli i þessari könnun, heldur virðast aðrar ís- lenskar framleiðsluvörur og inn- fluttar vörur koma frekar vel út úr samanburðinum, og einnig stenst verslunarálagningin saman- burð, og vel það í landbúnaðarvör- unum að minnsta kosti,“ sagði Georg. Sjá nánar á bls. 18 og 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.