Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 -i—ri—! ■ i'' r1.-"--1 ' L' 'tTi l '■ 1; )'l' ' Minning: María Rögnvalds- dóttir, Bolungarvík Fædd 13. janúar 1891 Dáin 19. október 1989 Marla Rögnvaldsdóttir lést í sjúkrahúsinu i Bolungarvík fimmtu- daginn 19. þ.m. á nítugasta og níunda aldursári. Saga þessarar sér- stæðu konu var mikil baráttusaga. Hún og maður hennar, Ólafur Hálf- dánsson, áttu 15 börn á sextán árum, þar af 6 sinnum tvíbura. Eru þrettán þeirra á lífi, allt mann- vænlegt og dugandi fólk. Auk barna sinna tóku þau einn dreng í fóstur og ólu hann upp með sínum stóra hóp. Ég minnist þessarar stóru og dugmiklu fjölskyidu allt frá ungl- ingsárum mínum í Vigur. Þau voru vinir okkar og nágrannar í Djúpinu. Allar minningar um þau eru hlýjar og bjartar. María Rögnvaldsdóttir fæddist á Svarfhóli í Álftafirði 13. janúar 1891, næsta bæ við Jón Indíafara. Hún hefði því orðið 99 ára 13. jan- úar á næsta ári. Vinir hennar og frændur héldu að hún myndi verða hundrað ára. En fyrir fjórum árum tók heilsu hennar að hraka. Hún var þó andlega hress nema 1—2 síðustu árin. Þegar ég hitti hana sl. sumar þekkti hún mig og tók hlý- lega í hönd mér. En þá var þessari lífsglöðu og kjarkmiklu konu þó mjög brugðið. Foreldrar Maríu fluttu úr Álftafirðinum inn að Upp- sölum í Seyðisfirði. Þar bjó hún þar til hún var 24 ára og giftist Ólafi Hálfdánssyni frá Hesti. Höfðu þau kynnst er Ólafur reri á árabát með Einari Guðfinnssyni frænda sínum frá lítilli sjóbúð í Vigur. Var María þar fanggæsla. Áður hafði hún ver- ið kaupakona í 3 ár hjá séra Sig- urði Stefánssyni og Þórunni Bjarna- dóttur konu hans. En prestur gifti þau Ólaf þega,r þau bjuggu í verbúð- inni. Stóð heimili þeirra síðan á ýmsum stöðum í Súðavíkur- og Ögurhreppi, síðast að Folafæti, áður en þau fluttu til Bolungarvíkur árið 1930. En þar stunduðu þau fyrst búskap í Tröð og Meirihlíð. Þaðan fluttu þau niður í kauptúnið og eign- uðust þar lítið hús, ekki langt frá sjónum. Sambúð þeirra Maríu og Ólafs var löng og farsæl. Þegar hann lést árið 1972 höfðu þau búið saman í 57 ár. Sagði María, að á þeim tíma hefði þeim aldrei orðið sundurorða. Svo mikil var gæfa þessara merku hjóna. Meðan . þau bjuggu í Djúpinu stundaði Ólafur lengstum sjó á ára- bátum Samhliða búskapnum. En í Tröð og Meirihlíð var landbúnaður eingöngu stundaður með kúm og kindum. Eftir að þ'au fluttu niður í kauptúnið stundaði Ólafur ýmsa vinnu, alltaf í nánum tengslum við Einar Guðfinnsson. Voru þeir nánir vinir allt frá þvi að þeir reru saman frá Holubúð í Vigur. Tengsl og vinátta okkar Vigur- fólks og Maríu Rögnvaldsdóttur og fólks hennar er því orðin löng. Hún var frábærlega trygg og heiðarleg kona. I raun og veru var líf hennar kraftaverk og ævintýr. Það var eng- inn leikur að koma upp svo fjöl- mennum bamahóp á erfiðum tímum. En gæfa hennar var öðlings- maðurinn Olafur Hálfdánsson og hin dugmiklu og vel gerðu börn þeirra, sem öll komu fram við hana af kærleik og einlægu þakklæti fyr- ir stórbrotið starf og mikla ástúð. María Rögnvaldsdóttir var því mikil gæfukona. Lífsgleði, atorka og kjarkur mótuðu allt hennar starf. Góðvild hennar brást engum þeim, er kynntust henni. Hún var elsta kona Bolungarvíkur er hún kvaddi vini og frændur. Má segja með sanni að hún hafi heilum vagni heim ekið. Sjálfur kveð ég hana með einlægum þökkum fyrir órofa tryggð og vin- áttu. Merk vestfirsk kona hafði fyrir mörgum árum að orðtæki: Engum þarf ills að biðja, allt jafnast upp um síðir. Með þeim orðum hefði María Rögnvaldsdóttir, einnig getað kvatt samtíð sína. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Hún amma okkar fæddist á Svarfhóli í Álftafirði 13. janúar 1891. Þegar við vorum krakkar kölluðum við hana ömmu í Meiri- Hlíð, því þar áttu þau heima, afi og amma, áður en við fluttum þang- að. Síðan bjuggu þau á Hafnargötu 7, það kölluðum við að fara inná horn til afa og ömmu. Afí sat oft- ast við vinnu sína í kjallaranum, þar sem hann dó árið 1973. Það var mikið áfall fyrir ömmu, því þau voru mjög samrýmd eftir sína löngu og góðu sambúð. Þau eignuðust 15 böm á 15 árum, þar af sex sinnum tvíbura. Einburar eru: Ósk, Guðrún og Jónatan. Tvíburar eru: Einar og Karitas, en hún dó í barnæsku; Kristín og Rögn- valdur, hann dó árið 1964; Fjóla, sem er mamma okkar, og Lilja; Helga Svana og Hálfdán; Halldóra og Haukur; og María og Ólafur Daði. Auk þess ólu þau upp Ármann Leifsson, þau litu alltaf á hann sem einn af sonum sínum og finnst okk- ur hann vera einn af hópnum. Það söknuðu allir afa þegar hann dó, því hann var eihstaklega hlýr og yndislegur maður. Við fengum að hafa hana ömmu hjá okkur öll þessi ár og erum við þakklát fyrir það og sérstaklega fyrir þá góðu heilsu sem henni var gefin. Annars hefði hún ekki getað verið okkur afkomendum sínum það sem hún var, ef ekki hefði verið góða skapið og heilsan ásamt óþrjót- andi dugnaði og áhuga fyrir að vera fólkinu sínu sú óendanlega dýrmæta manneskja sem aldrei gleymist. Við 'erum öll betri manneskjur fyrir það að hafa átt elsku ömmu að. Þrátt fyrir söknuð okkar, þá er yndislegt að geta trúað því að hún er hjá þeim góða guði sem hún ávallt treysti og aftur búin að hitta sinn góða lífsförunaut, hann afa. Blessuð sé minning ykkar. Okkur langar að þakka þeim fjölmörgu sem önnuðust hana ömmu okkar á sjúkrahúsinu síðustu árin hennar, einnig fólkinu sem þar býr og öllum sem heimsóttu hana og styttu henni stundir. Fyrir hönd systkinanna frá Meiri-Hlíð og fjölskyldunnar. Beta M^ja Það var eitt bjart vorkvöld að ung kona gekk hvatlega upp frá litlu koti utarlega í Fætinum. Hún gekk yfir ásinn og inn með Hestfirði allt innundir bæinn að Hesti. Hún var að sækja kúna sína. Þegar þessi sporlétta kona kom til baka og sá út Djúpið var sólin að setjast við hafsbrún og brá gulln- um lit á allt umhverfið. Hún stans- aði snögglega og settist niður. Heima i kotinu biðu bömin — það elsta á sjötta ári — þess að mamma kæmi heim með kúna til mjalta. Pabbi var í sjóróðrum eins og flest- ir bændur aðrir við ísafjarðardjúp. María Rögnvaldsdóttir var ekki gefin fyrir slór eða iðjuleysi, en þau örfáu augnablik sem hún sat og naut þeirrar hljóðlátu fegurðar sem umvafði Djúpið þetta kvöld geymdi hún alla tíð í huga sér. Ég held að þessi eiginleiki að geta fundið fegurð og gleði í hvunn- deginum hafi verið ömmu minni endingargott nesti og sannkallaður kínalífselexír, því hún bjó enn á tíræðisaldri yfir þeim fágæta eigin- leika að geta bæði sagt frá atburð- um og fólki á gamansaman og nær- færinn hátt. . Gamansemi Maríu ömmu var ekki hástemmd, heldur kyrrlát og hlý og hefur það án vafa orðið til þess að við börnin hændumst að henni og höfðum ánægju af því að heim- sækja hana. Eftir að barnabömin uxu úr grasi og eignuðust sjálf böm var nærvera langömmu jafn eðlileg og Guð á himninum. Hún hafði lifað svo lengi að bömin spurðu hvort langamma hefði alltaf verið til. Fyrir okkur sem nutum samvista við hana mun hún alltaf verða til vegna þess að minningin varðveitir alltaf hið góða. Egill Hún langmama mín er dáin. Mér hefur aldrei liðið eins skringilega á ævi minni, þó að innst inni finni ég til léttis, því þetta var henni fyrir bestu og ég veit að þetta var það 1 sem hún vildi. Allt frá því ég var lítil stelpa var ég vön að heimsækja hana þar sem hún bjó hjá Halla syni sínum og fjölskyldu, en síðar flutti hún í sjúkraskýlið og bjó þar síðustu árin. Ég bjó skammt frá skýlinu og fór oft til hennar, oftast þegar skólinn var búinn á vetuma. Hún var vön að segja mér hvað ég væri orðin stór stúlka og bauð mér alltaf úr krukkunni sinni. Mér hefur alla mína tíð þótt mjög vænt um hana langömmu mína. Eftir að ég flutti suður í Ágúst varð mér oft hugsað til hennar og óskað þess að ég gæti verið hjá henni. Þegar ég fór svo vestur í heim- sókn fyrir nokkmm vikum, fór ég til hennar og var hún þá orðin mjög slöpp og hélt fast um höndina á mér allan tíman sem ég var hjá henni. Ég var ekki viss um að hún þekkti mig, en bjóst þó frekar við því. Langarrima átti marga afkom- endur í Bolungarvík og var því oft- ast einhver hjá henni þegar ég leit inn. Það verður skrítin tilfinning að koma aftur heim til Bolungarvíkur og labba framhjá skýlinu án þess að skreppa þar inn og heilsa upp á langömmu. Ég vona að góður guð hugsi vel um hana langömmu mína og-láti henni líða vel þama hinumegin. Elísa Rakel Jakobsdóttír Amma mín, María Rögnvaids- dóttir, Bolungarvík, lést fimmtudag- inn 19. október sl. Hún var orðin öldruð í árum talið en samt var hún síung í anda alla tíð. Nýliðið sumar og undangengin vetur voru þung þjóðinni. Slæmt árferði og almenn niðursveifla. Amma var skynsöm og raunsæ kona. Hún hafði skilað sínu hlut- verki fyrir þessa þjóð og hafði ekki áhyggjur af framtíð hennar, þótt tímabundið bjátaði á. Hún fékk að fara rétt áður en nýr vetur skall á. Enda sagði amma, að sér leiddust vetur og vildi helst alltaf hafa sól. Hún gerði líka sitt, og vel það, til að skapa hlýju og sumarstemmn- ingu kringum sig. Afi og amma í Tröð, afi og amma í Meiri-Hlíð, afi og amma á „Hom- inu“. Þetta eru staðimir sem ég man eftir þeim á. Þau bjuggu áður á nokkmm stöðum við Djúp, en framantafdir staðir eru allir í Bol- ungarvík. Tveir þeir fyrst nefndu sveitabýli en „Hornið“ var heimili þeirra í þorpinu. „Hornið“ var eigin- lega ekki hom, heldur hús við miðja götu, en gekk alltaf undir þessu nafni hjá okkur, enda voru þarna homsteinar ættarinnar — afi og amma. Höfuðeinkenni á heimili afa og ömmu, hvar sem það stóð, var ástin. Þau heilsuðust og kvöddust ævinlega með kossi og faðmlagf, jafnvel þótt aðskilnaðurinn ætti að- eins að vera nokkrar mínútur, búð- arferð eða þess háttar. Þau vom bæði skapmikil, en raunsæ og sátt- fús. Ekki vom þau mjög lík í skapi, en bættu hvort annað upp í besta skilningi. Mér er í bamsminni, þeg- ar afi, ákafamaðurinn sá, varð að gefast upp við að elta uppi rollu, sem átti að lýja, og amma sagði: „Og hún kemur aftur fíflið að tarna. Þegar henni fer að leiðast áttar hún sig á hvað best er.“ Eins og sést á þessu hafði amma óbilandi trú á hæfni fivers og eins til að taka rétt- ar ákvarðanir, „þegar tíminn kæmi“. Og gilti þar nánast sama um menn og dýr. Og þegar við, afkomendur hennar, lentum í mis- jöfnum málum, lifðum kannski hratt og hlupum út undan okkur, áttum við alltaf ömggt andlegt athvarf hjá ömmu. Hún átaldi okkur ekki eða grét orðinn hlut. Við myndum jú átta okkur sjálf og gætum það raun- ar ein, „þegar rétti tíminn kæmi“. Mörg okkar hafa í verki sannað þessa kenningu hennar, önnur munu gera það síðar. Öll tilvera ömmu byggðist á góð- vild, innsæi, æðmleysi og ást. Guð blessi elsku ömmu mína. Hvar sem hún hefur verið, hefur alltaf verið gott að koma. Þangað, þar sem hún er núna, verður líka gott að fara, „þegar rétti tíminn kemur“. Ættingjum okkar öllum flyt ég bestu kveðjur og veit að við sýnum öll virðingu og æðmleysi við þessi tímamót. Við fengum gott veganesti. Halldór Ben Halldórsson Amma er dáin. Hún lifði maka sinn, Hálfdán Ólaf Hálfdánsson, Öll sín systkini og samtíða fólk, enda komin langt á 99. árið. Ég fmn það best nú þegar afi og amma em bæði horfín, hvílík forréttindi það em að fá að umgangast og þekkja elstu kynslóðina. Afí féll frá í mars 1973. Þá var ég á 10. árinu. Kynni mín af honum vom því fremur stutt. Amma lifði lengur og ég fékk tækifæri til að kynnast henni betur eftir því sem ég varð sjálf eldri og þroskaðri. Hún átti gott skap og það er með ólíkind- um hvað hún fylgdist vel með síðustu æviárin. Ég sá ömmu í síðasta skipti í ágúst sl. Þá gat hún rétt heilsað mér og gefíð til kynna að hún þekkti mig og vissi af mér við rúmið sitt. Stuttu síðar var hún fallin i mók og sýndi engin merki þess að hún skynjaði umhverfi sitt. Þann 19. október fékk hún svo loks langþráða hvíld. Ég veit að kynni mín af ömmu eiga eftir að reynast mér dijúgt veganesti inn í framtíðina. Um leið og elsku amma heldur á vit hins ókunna, þá vil ég þakka henni fyrir ógleymanlega fylgd og óska henni blessunar. Fari hún í friði. Olla í dag verður jarðsungin frá Hóls- kirkju í Bolungarvík aldursforseti Bolvíkinga, María Rögnvaldsdóttir. Við fráfall hennar sjáum við á bak hetju og mannkostakonu, sem á ýmsan hátt skar sig úr fjöldanum og varð öllum, er henni kynntust, harla minnisstæð sakir persónuleika síns og heilbrigðra lífsviðhorfa. Ekki fékk ég tækifæri til að kynn- ast Maríu neitt að ráði, fyrr en hún var komin á tíræðisaldur. Þótt ég ætti að heita læknir hennar frá 1974, þá sá ég hana sárasjaldan, því ekki var hún kvellisjúk og taldi það lítt til heilsubótar fallið að æða til læknis vegna smákvilla eða vera sífellt að gleypa eitthvert meðalas- ull. Mér varð þó snemma ljóst af afspurn, að heilsuhreysti Maríu var líffræðilegt undur. Hún hafði sex sinnum gengið með og fætt tvíbura og þrisvar einbura að auki, þannig að börn hennar urðu 15 talsins. Við andlát hennar voru afkomendurnir orðnir um tvö hundruð talsins. Slík kynsæld mun fágæt vera. Þrátt fyrir það álag og slit, sem fylgdi því að koma þessum hóp á legg og stýra stóru heimili, þar sem efnin voru löngum af skornum 13 skammti; þá hélt María heilsu sinni svo góðri, að níræð þurfti hún eng- in lyf að taka að staðaldri. Réð þar raunar mestu heilbrigð lífsskoðun hennar og bjartsýni, sem ekkert mótlæti fékk bugað. Hún virðist allra tíð hafa verið sátt við sjálfa sig og þar af leiðandi aðra líka. María átti því auðvelt með að gleðj- ast og blanda geði við fólk og mik- ið yndi hafði hún af söng alveg fram í andlátið. Hún hafði þá afstöðu til lífsins, að erfiðleikamir væru til þess að sigrast á þeim og það hefði ekkert upp á sig að harma orðinn hlut eða kenna öðrum um. Slík við- horf eru mjög svo heilsubætandi, en miklu réð í þessu tilviki hin and- lega hreysti hennar, því minni og andlegu atgervi hélt hún nær óskertu fram undir það síðasta, og þekki ég engin dæmi slíks úr þeim hópi gamalmenna, sem ég hef haft kynni af. Réttlætiskennd Maríu var mikil og heilbrigð og mér fannst hún jafn- an eiga auðvelt með að greina kjarna þeirra mála, sem hún taldi sig hafa vit á. Sýndarmennska var henni fjarlæg og eftirþankar, víl og grufl röskuðu aldrei ró hennar, það ég vissi dæmi til. Hún var sjálfstæð í skoðunum og fór aldrei í mann- greinarálit. Mér virtist María stund- um eiga í vissum erfiðleikum með . að bera virðingu lyrir höfðingjum, ef henni fundust þeir dreissugir. Henni þótti aldrei neitt til hinna nýju fata keisarans koma og var jafnvel skæð með að láta þess get- ið, að hann væri ekki í neinu. Það varð henni tíðum ljóst á undan öðr- um. Hins vegar áttu hinir minni máttar góðu að mæta hjá henni, einkum ef þeir sýndu af sér mann- dóm af einhveiju tagi. Hún var for- dómalaus og hafði betri skilning á eðli og þörfum æskunnar heldur en margir þeir, sem yngri voru að árum. Hún átti aldrei í neinum erfíð- leikum með að blanda geði við æsku- fólk né börn og hafði lifandi áhuga á öllum þeirra málum. í mínum huga verður María Rögnvaldsdóttir ávallt fágætt dæmi um líkamlega og andlega hreysti, eins og hún getur bezt og farsælust orðið. Ég votta afkomendum hennar virðingu mína fyrir að vera út af henni komnir. Pétur Pétursson Upp í.huga minn þyrlast myndir af gamalli konu í stól. Andlitið er rúnum rist og bakið bogið en augun jafn Qörleg og í ungri stúlku. í þess- um augum býr næstum aldar gömul saga. Þeim sem er alinn upp á Reykja- víkurmölinni og þekkir vart muninn á þorski og sauðkind kann lífssaga Maríu Rögnvaldsdóttur að virðast fjarstæðukennd. Hvemig getum við sem yngri erum skilið unga móður sem saumar skó úr steinbítsroði handa bömum sínum, skó sem hún veit að endast ekki daginn? Hvernig fáum við skynjað þá veröld sem var okkar fyrir örfáum áratugum, ver- öld fátæktar, ómegðar, baráttu við óblíð náttúmöfl, erfíðra samgangna og einangmnar? María hafði frá ótrúlegustu hlut- um að segja. en það vom ekki ein- göngu myrkar myndir sem hún dró upp af æskudögum sínum. Hún var náttúmbam, elskaði sjávarseltuna, ilminn af grænu grasi og þótti eng- inn staður í heiminum taka blessuð- um Seyðisfírðinum fram. í henni sameinuðust mildin og skapfestan. mýktin og harkan, ástin og æðm- leysið. Ég minnist þess að eitt sinn var hún sofandi þegar ég kom. Ég sett- ist hjá rúminu hennar og spurði hana að því þegar hún vaknaði hvort henni hefði nokkuð bmgðið við að hafa mig volandi yfír sér. Þá hnuss- aði í gömlu konunni og hún sagði: „Þú ert nú svo sem engin fugla- hræða.“ Við hlógum lengi að þessu. Þannig var María, það stóð aldrei á svarinu hjá henni og góða skapið fleytti henni yfír marga erfíðleikana. Og nú er hún horfín. Ég mun aldrei gleyma stundunum sem við áttum saman eða hversu vel hún reyndist mér. Oft er sagt að gleði og sorg séu angar sömu rótar og ég vona og trúi að við munum hittast öðm sinni. Guð blessi minningu Maríu Rögnvaldsdóttur. Sigríður Guðmarsdóttír

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.