Morgunblaðið - 22.11.1989, Blaðsíða 48
Greiða ekki
söluskatt
afHúna-
vershátíð
SKATTSTJÓRINN í Reykjavík
hefiir komist að þeirri niðurstöðu
að ekki sé grundvöllur fyrir álagn-
ingu söluskatts á aðgangseyri á
hátíð Stuðmanna í Húnaveri um
verslunarmannahelgina í sumar,
eins og málið liggi fyrir. Mörður
Arnason, upplýsingafulltrúi fjár-
málaráðuneytisins, segist gera ráð
fyrir að þetta séu endalok málsins
af hálfu ráðuneytisins. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
hefði söluskattur vegna hátíðar-
innar numið um íjórum milljónum
króna.
Mörður sagði að málið hefði snú-
ist um það hvort undanþága ráðu-
neytisins til Stuðmanna vegna tón-
leikahalds hefði verið veitt á réttum
forsendum og skattstjórinn í
Reykjavík kæmist að þeirri niður-
stöðu á grundvelli fyrirliggjandi
gagna að svo væri. Fjármálaráðu-
neytið hefði ákveðið að greina ekki
á milli tónlistartegunda eða hvemig
tónleikagestir höguðu sér, hvort
þeir sætu í sætum sínum eða stæðu
upp og hreyfðu sig.
"T# Mörður sagði að ekki hefði verið
tekin afstaða til þessarar niðurstöðu
skattstjóra í fjármálaráðuneytinu.
Hann ætti ekki von á frekari að-
gerðum af hálfu ráðneytisins, en
þó væri ekki hægt að útiloka það.
30 manns sagt
upp störfum
á Reyðarfirði
Öllu fastráðnu starfsfólki frysti-
Jiúss Kaupfélags Héraðsbúa á
áxeyðarfirði, yfir 30 manns, var
sagt upp störfúm í gær vegna
hráefnisskorts, að sögn Hauks
Þorleifssonar formanns Verka-
lýðsfélags Reyðaríjaröar.
Á Seyðisfirði hafa 30-100 manns
verið atvinnulausir í haust, að sögn
Hallsteins Friðþjófssonar formanns
verkamannafélagsins Fram. Hjá
Gullbergi hf. á Seyðisfirði hafa um
120 manns unnið við síldarfrystingu
og -söltun í haust og verður meiri-
hluta þessa fólks sagt upp störfum
náist ekki saltsíldarsamningar við
Sovétmenn. Ákvörðun um uppsagn-
irnar verður tekin í dag. Það eykur
á vandann í sjávarplássum að lítið
ftefur veiðst af stórri sfld til fryst-
ingar á Japansmarkað.
Miðbærinn nötr-
aði vegna öflugr-
ar sprengingar
LAUST fyrir klukkan tíu í gærkvöldi sprakk mjög öflug sprengja
á göngustíg sem liggur á milli húsanna númer 22 og 24 við Laufás-
veg að bakhlið hússins að Fríkirkjuvegi 11. Talið er að um tuttugu
rúður háfi brotnað á vesturhlið hússins að Laufásvegi 24. Tvær
rúður brotnuðu í kjallara á Fríkirkjuvegi 11, og einnig brotnaði
rúða í kjallara nærliggjandi húss við Skothúsveg. Engin slys urðu
á fólki og enginn virðist hafa verið á ferli í næsta nágrenni er
sprengjan sprakk.
Um miðnætti var ekki vitað hver
valdur var að sprengingunni, en
eftir ítarlega leit lögreglunnar og
sprengjusérfræðings frá Landhelg- ,
isgæslunni fundust leifar af kveiki-
þræði á göngustígnum, sem talið
er líklegt að hafi verið í dínamít-
sprengju. Þrátt fyrir nákvæma leit
lögreglumanna í nágrenninu höfðu
þá engin önnur vegsummerki fund-
ist eftir sprengjuna, og var jafnvel
talið líklegt að hún hefði sprungið
án þess að snerta jörðina.
„Það nötraði allt og skalf og ég
gerði mér strax grein fyrir að þetta
var gífurlega öflug sprenging þó
ég væri staddur í hinum enda húss-
ins,“ sagði Halldór Hansen læknir,
en hann býr í húsinu númer 24 við
Laufásveg. Um miðnættið vann
flokkur frá Reykjavíkurborg við að
setja hlera fyrir glugga í húsi hans.
Lögreglunni barst tilkynning um
sprenginguna klukkan 21.53, en í
Þingholtum og út á Seltjarnarnes
varð fólk vart við hávaða af völdum
hennar. Lögreglan fór að banda-
ríska sendiráðinu við Laufásveg,
en í fyrstu var taiið að sprengingin
hefði orðið á lóð sendiráðsins.
Oupplýst er hveijir voru að verki
þegar sprengingar urðu á Öldugötu
og Bergþórugötu síðsumars.
Morgunblaðið/Júlíus
Sprengjusérfræðingar rannsaka leifar kveikiþráðs sem fundust á
göngustígnum við Laufásveg 24. Á myndinni til hliðar kannar
lögreglumaður skemmdir á einu húsanna í nágrenninu.
Undirbúningur langtímasamn-
ings við Sovétmenn stöðvaður
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anrikisráðherra, gaf í gær fyrir-
mæli um það tif íslenskrar sendi-
nefndar í Moskvu að viðræður
um nýjan langtímasamning ís-
lendinga og Sovétmanna hefjist
ekki fyrr en niðurstöður liggja
fyrir um síldarsölusamning. Ráð-
gert hafði verið að undirbúnings-
viðræður þjóðanna byijuðu í dag.
Jón Baldvin sagði í samtali við
Morgunblaðið að sendinefndin, und-
ir formennsku Tómasar Á. Tómas-
sonar, sendiherra í Moskvu, hefði
átt að hefja undirbúningsviðræð-
urnar við Sovétmenn í dag. „Þessar
viðræður geta ekki hafist af okkar
hálfu fyrr en fyrir liggja niðurstöð-
ur um þann bráðabirgðasamning
sem fyrir liggur um síldarkaup Sov-
Þorskur flúinn frá V-Grænlandi vegna versnandi skilyrða LÍn^að
Evkur líkur á borskffönffu h
ALLUR þorskur er horfinn af miðunum við Vestur-Grænland og og sagði Jakob, að það kæmi ekki hefur af þeim sökum orðið að segja upp fólki í mörgum fiskvinnslu- á óvart enda hefði nú þegar orðið húsum. Vegna þessa hafa vaknað upp spurningar um hvort von sé vart aukinnar þorskgengdar við i á þorskgöngu frá Grænlandi á íslandsmið og hafði Morgunblaðið Austur-Grænland sunnanvert. af því tileftii samband við Jakob Jakobsson, forstjóra Hafrannsókna- Jakob vildi ekkert um það full- stofnunar. Sagði hann, að strax í haust hefði orðið vart við kóln- yrða hvort nú væri von á þorsk- andi sjó við Vestur-Grænland og væri því fúll ástæða fyrir íslenska göngu frá Grænlandi á íslandsmið sjómenn að hafa augun hjá sér og láta óðara vita af merktum þorski. en sagði, að slæm skiiyrði í sjónum þar ykju að sjálfsögðu líkurnar á Jakob sagði, að í haust hefðu þegar var þorskurinn tekinn að því eins og gerst hefði 1980-81. þýskir hafrannsóknamenn skýrt flýja. suður á bóginn. í fréttum frá Hann sagði, að fiskurinn, sem nú frá kólnandi sjó og versnandi skil- Grænlandi segir, að þorskur finnist fengist við Austur-Grænland, væri ► yrðum við Vestur-Grænland og þá nú helst suður og austur af Ilvarfi fimm ára, hægvaxta fiskur, en yfir- ieitt kæmi göngufiskurinn frá Grænlandi hingað til að hrygna 7 eða 8 ára gamall. íslenskir fiski- fræðingar hefðu því almennt ekki átt von á honum fyrr en 1991. Sagði hann, að Danir hefðu verið við fiskmerkingar við Vestur- Grænland í sumar og því væri brýnt, að íslenskir sjómenn fylgd- ust með öllum vísbendingum og létu strax vita fyndu þeir merktan porsk.
étmanna," sagði utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagði að staða máls-
ins væri þannig að fyrir lægi bráða-
birgðasamningur um síldarkaup
Sovétmanna, sem gerður hefði ver-
ið 4. nóvember sl. og kvæði hann
bæði á um magn og verð, þ.e. 15
þúsund tonn af saltsíld, með hugs-
anlegri viðbót síðar upp á 5 þúsund
tonn. „Það sem strandar á er að
sovéski sjávarútvegsráðherrann
treystir! sér ekki til þess að stað-
festa verðið sem samið var um og
var málinu vísað til ráðherranefnd-
ar. Frá henni hefur ekkert heyrst
og sendinefndin er enn í biðstöðu í
Moskvu,“ sagði utanríkisráðherra.
Ráðherra sagði að Tómas Á.
Tómasson, sendiherra, hefði gengið
mjög vasklega fram í því að knýja
fram svör, en án árangurs, enn sem
komið væri. „Við munum leggja
áherslu á að við teljum þennan drátt
orðinn gjörsamlega óeðlilegan og
viljum ekki una honum lengur. Það
verður að fá botn í máiið, á hvern
veginn sem það verður," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra.