Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANUAR 1990 3 Mokveiði af loðnu út af Langanesi MOKVEIÐI var af mjög góðri loðnu norðaustur af Langanesi að- faranótt fostudags. Tíu norsk loðnuskip voru komin á miðin, eða á leiðinni þangað, á fimmtudag. Þá var hins vegar ekkert færeyskt skip á loðnumiðunum, að sögn Landhelgisgæslunnar. Þessi skip höfðu tilkynnt um afla síðdegis á föstudag: Háberg 650 tonn til Þórshafnar, Örn 750 tonn óákveðið hvert, Björg Jónsdóttir 550 tonn til Þórshafnar, Kef lvíking- ur 530 tonn til Raufarhafnar, Dag- fari 520 tonn til Raufarhafnar, Þórður Jónasson 710 tonn til Rauf- arhafnar, Börkur 1.200 tonn til Neskaupstaðar, Gígja 750 tonn óá- kveðið hvert, Jón Kjartansson 1.000 tonn til Eskifjarðar, Gullberg 620 tonn óákveðið hvert, ísleifur 620 tonn óákveðið hvert og Skarðsvík 670 tonn til Raufarhafnar. Loðnuvertíðin byrjar vel á Þórs- höfn á nýju ári að sögn fréttaritara Morgunblaðsins og er allt komið í fullan gang eftir rólegheitin um jólahátíðina. Þrír loðnubátar lönd- uðu hér á föstudag, Björg Jóns- dóttir, Háberg og Gullberg, alls um 1.800 tonnum. Loðnan veiddist u.þ.b. 70 sjómílur norðaustur af Langanesi og er hún stór og góð. Togari Útgerðarfélags Norður- Þingeyinga, Stakfell, lét úr höfn á fimmtudag eftir margra vikna inni- legu og var mönnum mál að kom- ast á flot eftir svo langan tíma í landi að sögn Líneyjar Sigurðar- dóttur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Beittir frá Neskaupstað kom til heimahafnar undir miðnættið á fimmtudagskvöld með fyrsta heila farminn; 1.100 tonn, sem þangað hefur borizt frá upphafi vertíðar í haust. I gær var hitt nótaskipið frá Neskaupstað, Börkur, á leið til hafiiar með fullfermi, 1.200 tonn. Loðnunni var vel fangað í Neskaupstað, ekki bara af sjómönnum og starfsmönnum bræðslunnar. Trillukarlar voru fljótir að grípa tækifærið og ná sér í slatta af beitu, en hana heftir skort að undan- fornu. Ekki ánægður með verðið en ekkert betra stendur til boða - segir Magnús Hjaltested bóndi á Vatnsenda „ÉG ER ekki ánægður með verðið sem ég fæ en það stendur ekkert betra til boða, enda ekkert annað yfirvofandi en eignarnám á jörð- inni,“ sagði Magnús Hjaltested bóndi á Vatnsenda við Morgunblaðið, eftir að hann hafði undirritað samkomulag við Reykjavíkurborg um sölu á Vatnsenda. Magnús sagði að Reykjavíkurborg fengi þarna mjög gott byggingarland sem lægi að Breiðholtinu, en þó yrði stör hluti landsins væntanlega skipu- lagður sem útivistarsvæði. Hann sagði láta nærri að borgin væri að kaupa yfir 500 hektara. Magnús sagðist halda eftir um 100 hekturum, sem væri um 40-45 hektara svæði meðfram Elliðavatni og síðan hluti vatnsins sjálfs með veiðirétti. Þegar Magnús var spurður hvort þessi sala á Vatnsendajörð tengdist Stöð 2, eins og látið hefur verið liggja að, sagði hann það rangt. Hins veg- ar ynni kona sín og mágur á Stöð 2 en það væru hans einu tengsl við fyrirtækið. —Þú ætlar þá ekki að leggja þessa peninga í fyrirtækið? „Ég er ekkert farinn að íhuga hyað ég geri við þá, enda eru þeir ekki komnir í hendurnar á mér enn- þá, en það hafa ótrúlegustu aðilar gefið sig fram við mig til að reyna að fá lán,“ sagði Magnús. Þegar hann var spurður hvort hann hefði lánað fyrri aðaleigendum Stöðvar 2 tímabundið veð í jörðinni til að tryggja hlutafjárloforð þeirra upp á 150 milljónir króna, sagðist hann að vísu hafa gefið munnlegar yfirlýsingar um eitthvað í þá átt, en ekki annað. „Þessi kaup eru alls ekki á vegum Stöðvar 2. Hvað ég geri við pening- ana, hvort ég fjárfesti í einhverju fyrirtæki, nú eða kaupi ríkisskulda- bréf fyrir þá, verður svo að koma í ljós. Svo verður að líta á það að ég fær mestan hluta kaupverðsins, ef af verður, á 10 ára skuldabréfi, og sennilega geri ég ekkert betra við skuldabréf frá borginni en að eiga það,“ sagði Magnús. Vatnsendaland er samkvæmt erfðaskrá háð þeim skilyrðum að það gangi í erfðir til elsta sonar landseta og það megi ekki selja. Erfðalög víkja þó fyrir eignarnámslögum og vegna þessa verður að koma til eignarnám, kaupi Reykjavíkurborg landið. Magnús sagði að viðræður milli eigenda Vatnsendalands og Reykjavíkurborgar um landakaup hefðu fyrst hafist 1934. Borgin hefði tekið Heiðmörkina eignarnámi 1948 og síðar f leiri skika, þar af þrjá síðan landið komst í eigu Magnúsar. Við- ræður um þessi síðustu iandakaup hefðu hafist sl. vetur en á þeim hefði orðið hlé þar til í nóvember sl. Morgunblaöið/Júlíus Óli Karló Olsen, verkefnisstjóri hjá Slökkviliði Reykjavíkur, kannar hinar miklu skemmdir sem urðu i eldinum hjá veitingasölunni Stúdío-Brauð í Austurveri við Háaleitisbraut. Lengst til vinstri kom eldur- inn upp, yfir djúpstcikingarpotti en lengst til hægri á myndinni sést peningakassi fyrirtækisins, hálf- bráðnaður eftir logana. Mikið tjón 1 eldsvoða í veitingasölu í Reykjavík: Stóð yfir pottinum þegar mik- ill eldur gaus upp í feitinni segir Kristín Guðmundsdóttir eigandi staðarins MIKIÐ Ijón varð í eldsvoða í veitingasölunni Stúdío-Brauð í Austurveri við Háaleitisbraut um klukkan hálfátta í gær- kvöldi. Eldurinn kom upp í djúp- steikingarpotti. Eigandi staðar- VopnaQörður, Eskiljörð- ur, Fáskrúðsfjörður: Enn deilt um fiskverð ENN er ósamið í kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Vopnafirði. Sjómenn á togur- unum Brettingi og Eyvindi vopna frá Vopnafirði kröfðust fyrst 30% hækkunar á allt fisk- verð, en stjórnendur Tanga hf og sjómenn ræddust við í gær á öðrum nótum, sem ekki feng- ust skýrðar. Að sögn talsmanns áhafnar Eyvindar vopna leggja þeir áherzlu á, að vegna þess að út- gerð og vinnsla sé í eigu sömu aðila, sé alls ekki í raun verið að tala um að útgjöld Tanga hf vegna hráefniskaupa aukist um 30% þó fiskverð til sjómanna aukist svo. í raun nemi útgjalda- aukningin aðeins um 7%, þar sem sama sé hvorum megin hryggjar liggi útgjöld vegna fiskkaupa eða tekjur vegna fisksölu innan sama fyrirtækis. Þó laun sjómanna verði hækkuð ætti það því ekki að buga rekstur fyrirtækisins. Sjá samtal við Hraftikel A. Jónsson á miðopnu. ins, Kristín Guðmundsdóttir, stóð ásamt starfsstúlku yfir pottinum þegar eldurinn gaus upp. Slökkviliðið slökkti eldinn á skammri stundu en mikinn reyk lagði um verslanamiðstöð- ina og barst hann inn í nálægar verslanir. „Við fundum lykt frá pottinum og þegar ég leit á hann sá ég svarta köggla, eins og möl, ofan á olíunni,“ sagði Kristín Guð- mundsdóttir, eigandi staðarins. „Það var búið að slökkva á pottin- um og ég sótti spaða til að taka þessa köggla ofan af olíunni og stóð yfir pottinum, ásamt stúlku sem vinnur hjá mér, þegar olían sprakk og það gaus upp eldur. Við settum strax asbestteppi yfir pottinn og ég kveikti á halogen- slökkvitæki yfir pottinum en það sló ekkert á. Stúlkan hljóp út bak- dyramegin með dóttur mína sem var hjá mér. Maður sem var að versla hjá okkur greip annað slökkvitæki og sprautaði á eldinn en það hafði heldur engin áhrif. Kristín sagðist aldrei hafa séð neitt þessu líkt setjast á djúpsteik- ingarfeiti áður. Hún sagðist fyrr um daginn hafa bætt nýrri olíu í pottinn. Hæstiréttur: Mælt með að Magnús þurfí ekki prófinál HÆSTIRÉTTUR hefúr sent dómsmálaráðherra bréf þar sem mælt er með því að orðið verði við umsókn Magnúsar Thoroddsen fyrrum hæstarétt- ardómara um að honum verði veitt leyfí til málflutnings fyrir Hæstarétti án þess að þurfa að flytja prófinál. Eins og fram hefur komið hefur Magnús í hyggju að hefja lög- mannsstörf. Dómarar Hæstaréttar voru einhuga um þessa niðurstöðu. Dómsmálaráðherra veitir lög- mönnum leyfi til að flytja mál fyrir Hæstarétti en Hæstiréttur veitir umsögn um undanþáguum- sóknir af þessu tagi. Vopnahlé samið í físk- verðsdeilu í Grindavík Vertíðarbátarnir komnir á veiðar Grindavík. Vertíðarbátar héldu úr Grindavíkurhöfn um hádegisbil í gærdag eftir að áhafiiir þeirra ákváðu að taka boði útgerðarmanna um fiskverð sem var boðið í fyrrakvöld. Ölver Skúlason, skipstjóri á Geirfugli, sagði í samtali við Morg- unblaðið að sjómenn væru ekki ánægðir og áskildu sér allan rétt til frekari aðgerða. Ölver bætti við að megn óánægja væri meðal sjó- manna með kjör sín og væri búin að véra lengi. Spurning væri hve- nær upp úr syði. Nú hefði hinsveg- ar verið gengið til samkomulags á grundvelli tilboðs sem kom frá útgerðarmönnum. Útgerðarmenn buðu 30 krónur fyrir ufsakílóið, 35- krónur fyrir dauðblóðgaðan þorsk og 50 krónur fyrir lifandi blóðgaðan þorsk og verður þetta samkomulag í gildi þangað til annað verður ákveðið. FÓ ísafjörður: Ýta fór á hliðina í malarnámi ísafirði. Meðalstór jarðýta lagðist á hliðina í malarnámi ísafjarðar- kaupstaðar í Réttarholti í Engid- al, snemma í gærmorgun. Stjórn- andi jarðýtunnar hlaut minni- háttar meiðsl og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði en fékk að fara heim síðdegis í gær. Að sögn ýtustjórans, Sigurðar Sveinssonar, sem hefur starfað við svona störf í yfir 40 ár, voru dimm- viðri og klaufaskapur helstu or- sakavaldar óhappsins. Tildrögin voru þau að Sigurður var að ýta upp möl fyrir ofaníburð og hafði gert djúpan skurð meðfram mal- arnáminu. Vegna dimmviðris fór ýtan of nálægt kantinum og lagðist á hliðina ofan í skurðinn. Vélin er lítið skemmd, utan að rúður í húsi brotnuðu. Búið var að koma ýtunni á beltin aftur og gert ráð fyrir að hægt væri að taka hana í notkun innan fárra daga. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.