Morgunblaðið - 07.04.1990, Síða 29

Morgunblaðið - 07.04.1990, Síða 29
MÓRGUNÉLAÐIÐ LAUGARDAÓtjfe 7. APRÍI. 1990 29 Andreas Papandreou, leiðtogi sósialista. gríska stjórnin eru vöruð við og sagt, að verði ekki gripið til strangra að- haldsaðgerða sé allt á huldu með framtíð Grikkja innan Evrópubanda- lagsins. Mitsotakis gerði bréfið opinbert en hann gat hins vegar ekki gefið neina skýringu á því hvers vegna þjóðstjórnin hefði ekkert gert til að minnka verðbólguna og gífurlegan halla á ríkissjóði. Jafnvel þótt strax væri hafist handa tæki það nokkur ár að koma efnahagslífinu á réttan kjöl. Verðbólgan er nú 15%, lántökur ríkisins á þessu ári munu líklega samsvara 20% af þjóðarframleiðslu, viðskiptahallinn þrefaldaðist í fyrra og greiðslujöfnuðurinn versnar stöð- ugt. Vegna þessa halda fjárfestend- ur að sér höndum og innflytjendur safna birgðum af ótta við mikla gengisfellingu drökmunnar. Það er því ekki lítið í húfi fyrir Grikki, að vel takist til í kosningunum á sunnu- dag. Heimild: The Economist. Innflutningur til Japans; Heita að aflétta við- skiptahindrunum Washington. Reuter. STJÓRN George Bush Bandaríkjaforseta fagnar nýjum samningi sem gerður hefiir verið í Washington við Japani um viðskipti ríkjanna þar sem hinir síðarnefndu heita því að fella burt ýmsar innflutning- hindranir, jafnt þær sem stjórnvöld hafa sett og þær sem fyrirtæki hafa komið á að eigin frumkvæði. Óljóst er þó hvort samningurinn nægir til að minnka viðskiptahalla Bandaríkjamanna gagnvart Japön- um. „Samningurinn er mikilvægt skref á leiðinni til bættra og traust- ari samskipta Bandaríkjanna og Japans,“ sagði Marlin Fitswater, talsmaður Bandríkjaforseta, í gær. Forsætisráðherra Japans, Toshiki Kaifu, sagði í Tókíó að fyrirhugaðar grundvallarbreytingar á efnahags- málum landsins vegna samningsins gætu valdið erfiðleikum í fyrstu en myndu síðar verða almennir.gi til hagsbóta. Hann vísaði á bug fullyrð- ingum um að stjórn hans hefði látið um of undan Bandaríkjamönnum í viðræðunum. Lítið er um stórmarkaði og versl- anakeðjur í Japan og samþykktu fulltrúar stjórnarinnar að gera dreif- ingarkerfið nútímalegra. Markmiðið með breytingunum er að erlendir aðilar eigi auðveldara með að vinna markaði í landinu. Einnig var ákveð- ið að lög gegn hringamyndun yrðu hert og þeim betur framfylgt en fram til þessa. Bandaríkjamenn hétu á móti að leggja sig fram um að minnka fjár- lagahalla ríkisins, auka sparnað og bæta starfsþjálfun til að hægt verði að framleiða meira af samkeppnis- hæfum vörum til útflutnings. Hallinn á viðskipum landanna veldur því að talsmenn refsiaðgerða gegn Japönum hafa fært sig upp á skaftið á Bandaríkjaþingi síðustu árin. Ýmsir embættismenn og þing- leiðtogar sögðu að of snemmt væri að segja að samningurinn væri já- kvætt skref; fyrst yrði að sjá hvort hallinn á viðskiptunum minnkaði í raun. Lloyd Bentsen, öldungadeild- arþingmaður fyrir demókrata, sagði Japani oft hafa lofað betri viðskipta- háttum en árangur enginn orðið. Líbanon: Boða lausn þriggja gísla Beirút. Reuter. HÓPUR öfgamanna undir for- ystu Abu Nidals hefur tilkynnt að þrír vestrænir gíslar í Líbanon verði látnir lausir. Gíslarnir sem um ræðir eru franska konan Jacquline Va- lente, unnusti hennar Femand Houtekins frá Belgíu en þeim var rænt á feiju á Miðjarðarhafi árið 1987 og barn þeirra Sony Houtekins sem fæddist í prísundinni. Walid Khaled talsmaður öfga- mannanna sagði í gær í yfirlýs- ingu að gíslarnir yrðu látnir lausir að beiðni Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga. r~ GRÆÐIÐI ■N GRÓÐURHÚSINU Ptosöos 1 Krókháls 6 05 Stuölaháls GERIÐ GOÐ KAUP FÖSTUDAG 13-17 LAUGARDAG 10-16 Gróöurhús -* Krókháls í STAÐ ÞESS AÐ SENDA LÍTIÐ GALLAÐÁ HEIMILISPOKA OG PRENTGALLAÐA POKA í ENDURVINNSLU. SEUUM VIÐ ÞÁ A HÁLFVIRÐIÁ MEÐAN BIRGÐIR ENDAST. V. Krókháls 6 Pottamold Blómaáburður Blómaúðarar Rósastilkar Mósáðpottar Sáðbakkar Vorlaukar Hanskar Weilu 4^, Papr’ Garðáhöld Blómaputtar Mósáðbakkar Vorið er á næstu grösum Með hækkandi sól hefst tími vorverka, gróðursetningar og garðræktar. Þú þarft ekki stóran garð eða garðskála til að njóta ómældrar ánægju af því að sjá handaverk þín blómstra og bera ávöxt. Þú þarft aðeins að hafa tímann svolítið fyrir þér og vita hvar þú færð það sem til þarf. Hjá okkur finnurðu það sem á þarf að halda til gróðurhúsa- og garðræktar, ásamt nauðsynlegum verkfærum og leiðbeiningum fagmanna. - PAR SEM VORIÐ BYRJAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.