Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990 KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN Þrándur Sigurðsson. ■ HALLDÓR Sævar Birgisson er eini landsliðsmaðurinn í Sindra. Hann var í unglingalandsliðinu í golfi á síðasta ári. ■ MAGNÚS Páisson, leik- maður með 1. deildar liði FH, er eini leikmað- urinn frá Höfn, -^sem hefur farið frá félaginu með því hugarfari að ná lengra í knattsj)yrnunni. ■ JON Sig- urðsson, ungl- ingalandsliðs- þjálfari í körfubolta og fyrrum landsliðsmaður, lék með Sindra 1971. Hann byrjaði í vörninni, en var síðan fluttur á miðjuna og þótti afburða skallamaður. ÞORBJÖRN Jensson, þjálfari 1. deildar liðs Vals í handbolta, lék með Sindra sama sumar. Þeir voru saman í brúarvinnuflokki, sem hér var staðsettur. Þorbjörn lék að sjálfsögðu í vörninni. íi BOGI Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps, var verkamaður á Hölh í byrjun sumars 1972 og náði að leika með Sindra. ■ KR hefur einu sinni áður leikið á Höfn. 2. flokkur félagsins kom hingað 1972. Ólafur Lárusson, dómari, þjálfaði þá lið KR, en Jón- as Þór, fyrrum KR-ingur, stjórnaði heimamönnum. ■ ALBERT Eymundsson hefur verið allt í öllu hjá Sindra í rúm- _ lega 20 ár, fyrst sem leikmaður, síðar einnig þjálfari og síðan í haust sem formaður knattspyrnudeildar og framkvæmdastjóri. Hann er skólastjóri Hafnarskóla. ■ BRYNJAR Bjarnason er 5 ára snáði hér á Höfn. Eins og hjá öðrum er leikurinn í kvöld efstur í huga, en fótboltinn er málið. „Maradona er bestur og ég held með Arg- entínu, en Sindri vinnhr KR 1:0 og Þrándur eða Gunnar skorá," sagði kappinn við Morgunblaðið. Sindri, eina 4. deildarliðið í keppninni, fær 1. deildarlið KR í heimsókn í kvöld: Æfðu sérstak lega vrtaspymur! 4. DEILDARLIÐ Sindra á Höfn í Hornafirði, sem eitt liða allra deilda hefur ekki tapað leik á keppnistímabilinu, tekur á móti 1. deildarliði KR í kvöld. Mikill áhugi er á leiknum hér á Höfn og leikmennirnir bíða ekki síst spenntir eftir viðureigninni. Undir- búningurinn hefur annars verið hefðbundinn, nema hvað liðið æfði sérstaklega vítaspyrnur í gærkvöldi! En ef jafntefli verður í bikarkeppninni er framlengt, og gripið til vítaspyrnukeppni ef úrslit fást ekki fyrr. reynum að spila okkar leik. Við erum með ágætlega spilandi lið, en það er ljóst að við verðum að hafa góðar gætur á framherjum KR og landsliðsmönnunum á miðjunni, því þessir menn mega ekki fá tíma til að athafna sig.“ „Fáumsúpu í bónus" Garðar Jónsson, þjálfari og leik- maður, sagði við Morgunblað- ið í gær að leikmenn hefðu vart hugsað um annað en þennan leik, síðan dregið var í 16 liða úrslitin. „Menn hafa reynt að hlífa sér í deildar- leikjum að undan- förnu til að forðast meiðsl, því eng- inn vill missa af þessum stórvið- burði. Þetta hefur komið niður á leik okkar, en við höfum samt sigr- að og það er fyrir öllu.“ Steinþór Guöbjartsson skrífar frá Höfn ÍHomafirði Ekki rætt um annað Þjálfarinn sagði að það væri gífurleg lyftistöng fyrir fótboltann hér á Höfn að leika gegn KR. „Þessi leikur hefur vakið mikinn áhuga á fótboltanum hér og um annað er ekki rætt. En við komum afslappaðir til leiks, því álagið er fyrst og fremst á KR-ingunum.“ Sindri leikur venjulega 3-5-2- leikaðferð og sagði Garðar að sami háttur yrði hafður á í kvöld. „Það héfur gengið vel að skora og við Þrándur Sigurðsson-, fyrirliði, sem byrjaði að leika í meistara- flokki tæplega 14 ára, er eini leik- maður Sindra, sem hefur leikið í 1. deild. Hann var með ÍA 1987, gerði þá m.a. bæði mörk liðsins gegn Fram í meistarakeppninni og var í sigurliði gegn KR. „Þetta verður atlt annað núna og mun erfiðara," sagði leikstjórn- andinn, sem hefur gert 11 mörk í sumar eins og Gunnar þjálfari, 6 í deild og 5 í bikar. „Við reynum að halda uppteknum hætti og skora, Morgunblaðið/JGG Garðar Jónsson þjálfari og leik- maður Sindra. en það verður sjálfsagt erfitt að sækja eins mikið gegn KR og í fyrri leikjum sumarsins. Annars reynum við að líta á þetta sem hvern.annan leik og eini munurinn er að við mætum á hótelið fyrir leik og fáum súpu.“ Skemmtilegt Sævar Albertsson, markvörður, tók undir orð fyrirliðans. „Þetta verður erfitt en að sama skapi skemmtilegt. Það verður gaman að spila gegn þessum landsliðsmönn- um og ég er dálítið kvíðinn, en vörn- in er góð hjá okkur og við reynum að standa okkur.“ „Kemur okkur á landakorlid“ - sagði Albert Eymundsson, formaður knattspyrnudeildar Sindra og forseti bæjarstjórnar „VIÐ duttum sannarlega i lukkupottinn. Að leika gegn KR kemur okkur á landak.ortið," sagði Albert Eymundsson, formaður og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Sindra, við Morgunblaðið á Höfn í gær. Hann var þá að ganga frá leikskrá vegna leiksins og var nýbúinn að sjá um dreifingu á sérstöku fréttabréfi í hvert húsá Höfn. Knattspyrnan á sér ekki langa sögu á Höfn. Sindri tók fyrst þátt í íslandsmólinu 1969, „en áður léku menn éína helst á sjómanna- daginn og 17. júni Steinþór og kepptu þá inn- Guðbjartsson fæddir og aðfluttir skrifar ega sjómenn og fraHofn landkrabbar,“ sagði Albert. Markviss uppbygging frá 1975 Sindri -sendi ekki lið til keppni 1972, 1975 og 1976. „Við ákváðum að byrja frá grunni og efla starfið í yngri flokkunum. 1975 tók 5. flokkur einn þátt og árið eftir bætt- um við við 4. ílokki. Síðan höfum við reynt að hlúa fyrst og fremst að uppbyggingunni og er meistara- flokkurinn núna afrakstur þess starfs." Sindri byggir fyrst og fremst á heimamönnum og er ekki unnið kerfisbundið að því að styrkja liðið með aðkomumönnum eins og víða annars staðar. „Við leggjum fyrst og fremst áhersiu á uppeldisþáttinn, en það er ljóst að árangur eykur áhugann, dregur fleiri að og því þarf að keppa að því að ná sem lengst. Stefnan hjá okkur er að færast upp um deildir, en ég hef ekki áhuga á því að vera í 1. deild eitt árið og hrapa síðan jafnhratt niður allan stigann. En við viljum gera það besta úr þeim efnivið, sem við höfum — með góðri uppbygg- ingu kemur árangur." Besta auglýsingin Albert sagði að yfirleitt hefði verið litið á bikarkeppnina sem æf- ingu, enda Sindri ekki riðið feitum hesti frá keppninni. Liðið hefur allt- af dottið út í 1. umferð þar til nú nema 1988, en þá komst liðið í 2. umferð vegna misskilnings mótheij- anna í 1. leik, sem héldu að leikur- inn ætti að fara fram degi síðar en Morgunblaðið/JGG Albert Eymundsson, forseti bæj- arstjórnar á Höfn og formaður og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Sindra. ákveðið var og mættu því ekki til leiks. „Leikirnir hingað til hafa ekki vakið mjög mikla athygli, en að dragast gegn KR er besta auglýs- ingin, sem við gátum fengið. KR er þekktasta félagið í landinu, stór- veldi í knattspyrnunni, og með liðinu leika þekktir einstaklingar eins og Pétur Pétursson, Atli Eðvaldsson og Rúnar Kristinsson. Þetta eru leikmenn, sem eru í sviðsljósinu, og því er ánægjulegt að fá þá hingað. Það vekur athygli bæjarbúa á því sem við erum að gera og verður vonandi til þess að við fáum bætta aðstöðu.“ Albert talaði þarna sem talsmað- ur Sindra, en hann situr einnig hinu- megin við borðið — var oddviti Sjálf- stæðismanna í bæjarstjórnarkosn- ingunum í vor og er nú forseti bæj- arstjórnar. „Ég legg áherslu á íþróttamálin, en þau eiga samt ekki að hafa óeðlilegan forgang og eins og í öllum málum ræður meirihlut- inn. En ég legg áherslu á hvers virði íþróttirnar eru fyrir bæjarfélagið og vil að við fáum sambærilega aðstöðu og boðið er upp á í öðrum ámóta sveitarfélögum og jafnvel minni.“ KNATTSPYRNA / 3. DEILD Slagsmál á Vopnafirði Leikmaður Þróttar rófubeinsbrotinn eftir spark frá liðsstjóra Einherja LEIKUR Einherja og Þróttar frá Neskaupsstað sem fram fór á Vopnafirði á mánudaginn var sögulegur. Mikill hitti var í leikmönnum, á spennandi lokamínútum, og lauk viðskptum liðanna með því að einn leikmaður Þróttar rófubeinsbrotnaði eftir duglegt spark frá liðsstjóra Einherja. Dómarinn sá ekki atvikið en tekin var lögregluskýrsla og má búast við að málið verði tekið fyrir á stjórnarf undi hjá KSÍ. Atvikið átti sér stað fímm mínútum fyrir leikslok. Sóknarmaður Einherja sótti að markverði Þróttar og lenti þeim saman. Fleiri leikmenn bar að og segja heimamenn að leikmenn Þróttar hafi veist að sóknannanni Einherja og sparkað í hann. í kjöl- farið komu þjálfarar og liðstjórar beggja liða inná völlinn. Að sögn Þróttara sparkaði Ólafur Ar- mannsson, liðstjóri Einheija, í Árna Þór Freysteinsson. „Þeir voru komnir inná völlinn og Ólafur sparkaði hraustlega í Árna,“ sagði Víglundur Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar. „Þetta er rgjög alvarlegt mál og við kærum það að sjálfsögðu. Ég veit ekki hvort við getuin farið fram á að úrslitunum verði breytt en viljum að minnsta kosti koma í veg fyrir að atvik sem þetta gerist aftur,“ sagði Víglundur. „Málið er kannski ekki svo ein- falt. Það gerðist ýmislegt á síðustu mínútunum og það voni margir komnir inná,“ sagði Einar B. Kristbergsson, formaður knatt- spyrnudeildar Einhcija. „Ég ætla ekki að reyna að afsaka þetta en það var mikil harka í lokin. Það var sparkað í einn leikmanna okk- ar og það hleypti illu blóði í menn,“ sagði Einar. Hjá KSÍ fengust þær upplýsing- ar að málið hefði ekki verið tekið fyrir á fundi aganefndar enda at- vikið ekki nefnt á skýrslu dómara. Það yrði hinsvegar líklega tekið fyrir á stjórnarfundi KSÍ og knatt- spymusambandið hefði þegar fengið afrit af lögregluskýrslunni. Aðrir leikir SEX leikir verða í Mjólkur- bikarkeppni KSÍ í kvöld. Sindri og KR leika á Horna- firði, UBK og Þór í Kópa- vogi, Selfoss og IR á Selfossi, Víkingur og KS á Víking- svelji, ÍA og KA á Skipaskaga og ÍBK og ÍBV í Keflavík. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00 nema leikur Sindra og KR sem hefst hálftíma síðar. Síðustu leikir 16 liða úrsli- tanna verða á föstudag en þá mætast Valur og Fram annars vegar og FH og Stjarnan hins vegar. Sex leikir verða í 4. deild; Njarðvík - Ármann, Aftureld- ing - T.B.R., Augnablik - Víkingur Ólafsvík, KSH - Umf. Stjarnan, Leiknir - Hug- inn og Valur Rf. - Höttur. Breiðablik og Valur áttu að leika í 1. deild kvenna í kvöld, en leiknum hefur verið frestað til 14. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.