Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
Tölvur
Á tölti um tölvuborg
Sýningin DECville sem Digital heldur í Cannes í Frakklandi annað hvert ár er með stærstu
tölvusýningum í heimi sem einkafyrirtæki halda
FRUMKVOÐULLINN — Stofnandi Digital, Kenneth Olson, (fyrir miðju) gengur út úr ráðstefnu-
höllinni í Cannes ásamt borgarstjóranum og öðru fylgdarliði eftir að hafa opnað DECville ’90 formlega.
eftir Hildi Friðriksdóttur
RÁÐSTEFNUHÖLLIN í Cannes í
Suður-Frakklandi var eins og seg-
ulmagn fyrir jakkaklædda karl-
menn og uppstrílað kvenfólk dag-
ana 10.—12. september síðastlið-
inn, en þá stóð yfir tölvusýningin
DECville ’90, sem Digital Corpor-
ation Company stendur fyrir.
Reyndar lýkur sýningunni ekki
fyrr en á morgun, 21. september.
Klukkan 8:30 á morgnana
streymdi fólkið að eins og litlir
títuprjónar, sem dragast ósjálf-
rátt að segulstáli. Öryggisverðir
voru líkt og maurar í kringum
höllina fyrsta daginn, en síðan
virtist sem slakað væri örlítið á
utan dyra og sáust þeir aðeins
einn og einn á stangli. Eins var
mjög strangt eftirlit haft með
þeim sem áttu erindi inn í höllina
og öryggiskortið, sem bæði gestir
og starfsmenn þurftu að bera, var
kannað við hveija inn- og út-
göngu. Tvö hundruð blaðamönn-
um var boðið á sýninguna fyrstu
tvo dagana, en gestir hennar sem
dreifðust á tímabilið voru um það
bil sex þúsund.
Sýningarsvæðið tók yfir 7000 fer-
metra svæði í kjallara hússins og
skiptist það í níu mismunandi svæði,
má þar m.a. nefna tæknisvið, stjórn-
völd og vísindj, framleiðslu, iðnað
og íjármál, hver deild merkt ákveðn-
um lit. Tæknibúnaður á svæðinu var
að andvirði 50 millj. dollara eða
tæpra þriggja milljarða íslenskra
króna, sem er svipuð upphæð og
heildarvelta íslenska tövlúmarkaðar-
ins á síðasta ári. Fyrir tæknisinhað
fólk hlýtur sýning eins og þessi að
vera gullnáma.
Fyrir framan einn af u.þ.b. 30
skjám í fjármáladeildinni sátu tveir
menn, annar frá Bretlandi, að því
er mér heyrðist, hinn sennilega
kauphallarmaður frá New York. Hjá
þeim stóð ung kona, starfsmaður
Digital, sem útskýrði tölur á skján-
um, sem var margskiptur. Við út-
skýringar hennar og tilfærslur lifn-
aði kauphallarmaðurinn allur við,
iðaði í sætinu og sagði: „Við í New
York notum þetta mikið, sérstaklega
ef við erum með kaupendur í gegn-
um síma. Þegar einhver hringir hef
ég tölurnar hér beint á skjánum, sem
hægt er að útlista um leið breyting-
arnar verða þegar kaup eða sala
fara fram.“ Síðan ræddu þeir áfram
um þessar og fleiri aðgerðir. Þegar
ég gekk í burtu var sá breski að
spyrja hin tvö spjörunum úr fullur
áhuga.
Tölvan sem skilur
mannamál
Ég komst að raun um það að jafn-
vel fyrir lítið sinnað tölvufólk getur
verið geysilega skemmtilegt að
ganga um'sýningarsali og skoða það
sem fyrir augu ber. Á svæðinu um
stjórnvöld og vísindi vakti sérstaka
athygli tölva sem skildi mannamál.
Forritið var hannað með stuttum
fyrirvara og er einungis sýnishorn
af þeim möguleikum, sem hægt er
að bjóða upp á. Notaðar voru raddir
eitt þúsund manna, karla og kvenna,
til að þjálfa tölvuna og þekkir hún
nú hvaða rödd sem er, það er að
segja svo framarlega sem töluð er
enska. Stjórnandinn sýndi hvernig
hægt er að nota tölvuna til dæmis
á skurðstofu á meðan á uppskurði
stendur. Nánast allir — ef ekki allir
— skjáir á sýningunni voru litaskjáir
og var þessi engin undantekning. Á
skjánum birtist mynd af höfði ímyn-
daðs sjúklings efst til vinstri, hægra
megin var skýrsla hans og neðst á
skjánum voru nokkrir kassar, þar
sem hægt var að velja úr ýmsum
möguleikum. Stjórnandinn hafði
hljóðnema fyrir framan munninn og
var hann festur við spöng á höfðinu,
þannig að hendurnar voru ftjálsar
til að „skera sjúklinginn upp“. Þegar
stjórnandinn sagði: „Didley“, komu
viðbrögð frá skjánum og Didley
sýndi að hann var í viðbragðsstöðu.
Þá hélt stjórnandinn áfram og sagði:
„Show me one“. Didley sýndi undir-
eins höfuð sjúklingsins frá öðru sjón-
arhorni. Stundum svaraði Didley
ekki fyrstu tilraun og þá endurtók
stjórnandinn með örlítið skerptri
rödd eins og hann væri að ræða við
óþekkan krakka: Didley!, sem tók
þá viðbragð, og stjórnandinn hélt
áfram: „Show me two“ og þá birtist
ljósmynd af sjúklingnum. Einnig var
hægt að heyra hvernig hjarta sjúkl-
ingsins sló og um leið birtist línurit
yfir hjartsláttinn. Þetta var mjög
áhugavert, en var bara hluti af því
sem forritið bauð upp á.
Hag'naður aðeins 2%
milli ára
Á blaðamannafundum kom fram,
að Digital hefur ekki gengið alltof
vel á síðastliðnum þremur árum.
Fyrirtækið stóð mjög vel árið 1987,
en eftir hrunið mikla í Wall Street
sama ár fór að halla undan fæti og
á sl. fjárhagssári jókst hagnaður
aðeins um 2% miðað við fyrra ár.
Aðspurður sagði Mark A. Stein-
krauss, frá Digital í Bandaríkjunum
að fyrirtækið mundi bregðast við
með því að reyna að líta nánar á
allan kostnað, reyna að ná hærri
markaðshlutdeild í Evrópu, þar sem
hún væri einungis 8%. Einnig verði
lögð aukin áhersla á sérhæfingu og
nýja markaði og hafa í því skyni
verið sett á markað ýmis ný forrit
fyrir UNIX og VMS. „Matvælaiðn-
aður er til dæmis eitthvað sem við
ætlum að gefa mikinn gaum í fram-
tíðinni," sagði Steinkrauss. Hann
sagði einnig að þeir hyggðust kom-
ast inn á markað í Austur-Evrópu
og þar væri Austur-Þýskaland vænn
kostur. Inn í Ungveijaland hafa þeir
nú þegar brotið sér leið, en hins
vegar sagði hann að ef litið væri til
Rúmeníu væri ljóst að lítið væri um
peninga þar og þar af leiðandi lítið
um fjárfestingar í næstu framtíð.
Miklar breytingar hafa átt sér
stað hjá Digital í starfsmannamálum
á sl. ári. Hefur starfsfólki fækkað
um 1800 og gert er ráð fyrir enn
meiri fækkun á árunum 1991 og
’92, eða fimm til sex þúsund manns.
Miklum fjármunum hefur verið varið
til menntunar á því starfsfólki sem
fyrir er og gáfu forsvarsmenn Digit-
al það fyllilega í skyn að þeir éinir
gætu haldið vinnunni sem væru til-
búnir að leggja eitthvað á sig til
þess að auka veg og vanda fyrirtæk-
isins. Pier Carlo Falotti yfirmaður
Digital í Evrópu sagði þegar hann
ræddi um framtíð starfsfólksins og
fyrirtækisins: „Ég sé ekkert því til
fyrirstöðu, að við náum okkur upp
úr lægðinni, við höfum gert það
áður.“
TÖLVUPISTILL
Holberg Másson
Margar nýjungar kynntar hjá IBM
í BYRJUN þessa mánaðar kynnti
IBM yfir 300 nýjungar, en fyrir-
tækið hefur ekki kynnt jafn marg-
ar nýjungar í einu síðustu tuttugu
og fímm ár. Kynntar voru nýjung-
ar í núverandi tölvubúnaði og
áform um nýjan tölvubúnað sem
IBM mun byija að afhenda á
næsta ári. Einnig kynnti IBM
ýmsar nýjungar í hugbúnaði. Hér
á landi eru þessar nýjungar
kynntar á tveggja daga ráðstefnu
sem IBM heldur á Hótel Örk í
Hveragerði og hófst í gær.
Áhugaverðar nýjungar
IBM kynnti nýja hönnun á stór-
tölvum, System/390 hönnunina.
Þessi hönnun er áframhald þróunar
eldri System/360 og System/370
stórtölvukerfa en nokkrar slíkar
tölvur hafa verið fluttar til landsins.
Eins og á einmenningstölvumark-
aðnum þá hefur IBM farið að finna
fyrir samkeppni í sölu á stórtölvum.
Hefur þessi samkeppni lækkað verð
á afkastaeiningu þó nokkuð síðustu
tvö ár. Heldur þróunin áfram með
tilkomu þessarar nýju hönnunar,
verð á afkastaeiningu lækkar og
tölvurnar verða fullkomnari. Lítur
út fyrir að IBM muni takast að halda
samkeppnisforskoti sínu á stórtölvu-
markaðnum með þessum nýjungum.
Hagnaður IBM mun þó minnka og
sennilega mun IBM tapa smám sam-
an markaðshlutdeild á stórtölvu-
markaðnum, bæði til nýrra sam-
keppnisaðila, svo sem Digital og
Tandem auk þeirra sem framleiða
IBM-stórtölvu samhæfðar tölvur og
jaðartæki.
Öflugri eintök af öðrum IBM tölv-
um, svo sem 4381, 9370 og AS/400
tölvum, voru kynntar. Nýir prentar-
ar og ýmis ný jaðartæki voru líka
kynnt. Ymsar nýjungar í hugbúnaði
voru kynntar, bæði fyrir stórtölvur,
millitölvur og einmenningstölvur.
Var í flestum tilfellum um að ræða
nýrri útgáfur af eldri hugbúnaði eða
hugbúnað fyrir stærri tölvukerfi.
Yel sótt ráðstefna
' Ráðstefnan á Hótel Örk er vel
sótt af yfir hundrað manns og er
nú með öðru sniði en svipuð ráð-
Stefna sem IBM hélt fyrir tveimur
árum. Sú ráðstefna var tvískipt. Á
Hótel Örk komu saman notendur
minni tölvukerfa, svo sem S/36,
S/38 og AS/400 tölva og einmenn-
ingstölvuneta. Á Hótel Selfossi
komu saman notendur stærri tölvu-
kerfa, svo sem 9370 og 3090, milli-
og stórtölvukerfa. Að þessu sinni er
ráðstefnan öll haldin á Hótel Örk,
meðal annars vegna þeirra bættu
aðstöðu sem búið er að koma upp
þar. Er Hótel Örk orðin mjög fram-
bærilegur staður fyrir ráðstefnur
sem þessa.
í gær voru á dagskrá kynningar
og frásagnir af helstu nýjungunum.
Sagt var frá þróuninni hjá IBM síðan
síðasta ráðstefna var haldin og rætt
um þær nýjungar sem helst eiga við
íslenska tölvumarkaðinn. Sagt var
frá alþjóðatölvuneti IBM, sem heitir
INS, en IBM býður íslenskum fyrir-
tækjum tengingu við INS. í gegnum
INS geta fyrirtæki til dæmis sent
tölvupóst og viðskiptaskjöl, „EDI“,
til annara fyrirtækja hér heima sem
erlendis. INS er síðan tengt við önn-
ur virðisaukin erlend tölvunet.
í dag flytur Gunnar M. Hansson
erendi, sýningin verður skoðuð og
nokkur önnur erendi verða flutt. I
lokin verður samantekt og umræð-
ur. Ráðstefnunni lýkur kl 17.00.
Áhugaverð sýning
í tengslum við ráðstefnuna sýnir
IBM sumar af þeim nýjungum sem
þeir eru að kynna svo og hugbúnað-
arkerfi frá ýmsum samstarfsaðilum.
Ný öflug AS/400 tölva með nýrri
útgáfu af stýrikerfinu er sýnd, ásamt
nýrri íslenskaðri útgáfu af Skrif-
stofusýn, skrifstofukerfi IBM. Sýnd-
ar eru ýmsar nýjar PS/2 tölvur, PS
staðarnet og nýir prentarar. Hinar
nýju RS/6000 hraðvirku vinnustöðv-
ar eru sýndar, en IBM er nú að
byija að afhenda þessar tölvur, og
er Reiknistofnun Háskóla íslands
búin að taka á móti sinni fyrstu
RS/6000 vinnustöð. Lítur út fyrir
að IBM hafi nú þegar tekist að ná
mjög góðum árangri í sölu vinnu-
stöðvanna. Einnig sýnir IBM af-
greiðslukerfi fyrir búðir, er um að
ræða afgreiðslukerfi fyrir strika-
merktar vörur þar sem búðarkassinn
er síðan tengdur bókhaldskerfi búð-
arinnar. IBM sýnir ýmsa þjónustu-
þætti og notkun á tölvuneti sínu,
þar á meðal notkun á EDI hugbún-
aði, til sendingar viðskiptaskjala
milli tölva.
Á sýningunni er sýnd hin nýja
PS/1 heimilistölva sem IBM kynnti
nýlega og er að fara að selja hér á
landi. Virðist sem IBM hafist tekist
betur upp nú í hönnun og markaðs-
færslu á heimilistölvu en síðast er
þeir reyndu. í þessu sambandi má
segja að tíminn hafi unnið með þeim
þar sem mjög fnargir kunna nú á
einmenningstölvur, sem þeir hafa
lært á á vinnustað og riotkun tölva
í skólakerfinu er orðinn mjög út-
breidd. Heimilistölva verður meira
nýtt nú en fyrir fimm árum, en- hve
margar slíkar tölvur seljast á næst-
unni ræðst mjög mikið af verði og
markaðssetningu. Kæmi ekki á óvart
að verð á nothæfu tölvukerfi sé enn
í hærri kantinn og að skæður keppi-
nautur PS/1 tölvunnar verði sam-
bærilegar tölvur frá samkeppnisaðil-
um IBM sem selja samskonar tölvur
á lægra verði.
Hörð samkeppni
Með kynningu á yfir 300 nýjung-
um þá hefur IBM gefið tóninn. Fyrir-
tækið ætlar að keppa á tölvumarkað-
inum yfir alla tölvulínuna. Sam-
keppnin fer harðnandi og stendur
IBM þar nokkuð vel að vígi.
Höfundur starfar við tölvuráðgjöf